Heimilistíminn - 20.02.1975, Blaðsíða 17
23. febrúar
Þú ert ákaflega ákveðin manneskja,
næstum þvi þrá, en dómgreind þin er góð
og þegar þú gagnrýnir aðra fyrir að gera
litið, hefurðu fyllilega efni á þvi. Þú ert
andríkur að eðlisfari og kannt að koma
svo haganlega fyrir þig orði, að enginn
móögist. Þú kannt þá list, að segja ekki
brandara á kostnað annarra, og þú ert
ekki fyndinn, þegar þú gagnrýnir aðra.
Þú hefur næstum óskiljanlega hæfileika
til aö græða peninga og getur yfirleitt á-
kveöið á stundinni hvort fyrirtæki borgar
sig eða ekki. Þar af leiðandi vinnurðu
fyrir miklum peningum, en þú ert lika á-
kaflega greiðasöm sál og borgar yfirleitt
reikninginn fyrir allan hópinn, svo aur-
amir eru fljótir frá þér aftur. Ef þú lærir
að spara til mögru áranna, mun þig aldrei
skorta neitt.
Þar sem þú ert manneskja sem dregur
að sér fólk, eignastu marga vini. En þegar
að þvi kemur fyrir þig að velja maka, fara
málin að vandast, þvi að nauðsynlegt er
að makinn hafi sama skaplyndi og þú.
Fólk fætt I steingeitar-, krabba- og sporð-
drekamerkinu yrði liklega bezti makinn.
Hvað heimili og fjölskyldu varðar hugs-
aröu fyrst um það og þú skalt giftast ein-
hverjum, sem er sama sinnis þar.
24. febrúar
Rithæfileikar þinir og listrænir hæfi-
leikar yfirleitt eru mest áberandi dráttur i
persónumynd þinni, en þú ert lika ágætis
leikari. Þú gætirskrifað fyrir leiksvið, út-
varp, eða sjónvarp. Þú ert til skemmtun-
ar hvar sem þú ert, þvi að þú kannt listina
að segja frá. Þegar gestir koma til þin,
jafnast það á við að fara i bió eða leikhús.
Þú veizt lika, hvernig þú átt að kynna
ólikt fólk, þannig að beztu hliðar þess rati
saman. Konur fæddar þennan dag eru
einstaklega góðar eiginkonur manna, sem
eru að reyna að komast áfram i lifinu.
Þú hefur fengið sérstaklega næman
huga i vöggugjöf og þess vegna fram-
kvæmirðu yfirleitt eftir þvi frekar en rök-
um. Sumir gætu þetta aldrei, en þér geng-
ur ágætlega með það. Þú gerir aðeins vit-
leysur, þegar þú ferð að ráðum annarra.
Kærðu þig kollóttan um þá, sem ásaka þig
fyrir aðframkvæma án þess að hugsa, þvi
að það sem þér dettur fyrst i hug, er alltaf
bezta lausnin.
Þú ert blátt áfram og heiðarlegur i vin-
áttu. Þú ert svo mikil einstaklingshyggju-
manneskja, að þú átt bágt með að starfa
með öðrum eins mikið og þú þyrftir ef til
vill. Lifið er oft auðveldara, þegar maður
getur unnið i félagsskap.
25. febrúar
Félagslega hliðin á tilverunni gegnir
miklu hlutverki i daglegu lifi þinu. Það
virðist kannski undarlegt,Þar sem þúert
sérlega mikil einstakingshyggjumann-
eskja og átt oft erfitt með að verða öðrum
samferða. En ef aðra langar til að fara
þinar leiðir, eru þeir velkomnir og þú get-
ur komið á góðu sambandi, sem ber riku-
legan ávöxt.
Þú ert afskaplega rómantiskur i eðli
þinu, sérstaklega ef þú ert kona. Þú kem-
ur fram við elskuna þina eins og bezt
gerðist á miðöldum á riddaratimabilinu.
Ef þú þarft að biða óralengi eftir útvöld-
um maka, dregur úr rómantikinni, og
þess vegna skaltu gifta þig snemma, þar
sem þér liður bezt á eigin heimili i faðmi
fjölskyldunnar.
Þú ert fljótur að skilja málefnin niður i
kjölinn og ert svo hugmyndarikur að fólk
vill endilega hafa þig sem gest sinn i
hverju samkvæmi. Þú ert f jörugur og kát-
ur, en ef eitthvað fer nógu mikið i taug-
arnar á þérí blossarðu upp. Það gerist
yfirleitt, þegar fólk ætlast til að þú hjálpir
þvi of mikið að þinu áliti.
17