Heimilistíminn - 20.02.1975, Page 19
Samtíningur
úr póstinum
Fyrir nokkru birtum við nokkrar
skemmtitegar klausur úr bréf um
fólks til bréfadálka blaða. Þetta
vakti almenna kátínu og hér
kemur meira:
Ég er búin að reikna það út, að ég er nokk-
urn veginn jafnfljót aö baka matarbrauð-
iðmitt sjálf og horfa á Onedin i sjónvarp-
inu. Svo er það lfka betra ....
Ég ætla hér með að leyfa mér að mót-
mæla mótmælum þinum við mótmælin i
siöasta blaði.
Ég á bæði sjónvarp, bil og dásamlega
frystikistu, en mig vantar karlmann.
Ég er mjög hreinlát kona og mig vantar
hreinlátan, stuttklipptan eiginmann með
ekkert skegg. Þeir, sem hafa áhuga á
kynlifi, eru beðnir að svara ekki.
Ég á engin stereotæki, en annars finnst
mér gaman að lifa og horfa á knatt-
spyrnu.
Ég er feitlagin, skapgóð og fátæk. En ég
hef allt of stór brjóst...
Vandamál mitt er að ég þori alls ekki aö
tala við kvenfólk þegar ég er undir áhrif-
um áfengis.
Þvi miður er ég ekki meðal þeirra sem
geta leyst heimsvandamálin þvi ég get
ekki ráðið fram úr minum eigin. Þau eru
sjö....
Hvað eiga kjölturakkar að sofa lengi?
Borða þeir agúrkusalat?
Ég lánaöi vinkonu minni sundfötin min til
aö fara i sund með kærastanum minum,
þegar ég var með flensuna. Nú eru þau
trúlofuö og hún vill kaupa sundfötin sem
minjagrip. Finnst þér það ekki frekt?
Ég er 16 ára og hrein mey. Ég hef fjórum
sinnum farið i bió með strák. Hann heldur
i höndina á mér, en reynir ekki meira.
Hvað er að?
Hjálp. Ég dreg kærastann minn i öll brúð-
kaup, sem ég get, en hann langar alltaf
minna og minna til að gifta sig. Hvað ger-
ir maður við svona fifl?
Ég var i bráðskemmtilegu partý um dag-
inn og það versta er að allt sem mamma
varaði mig við er það skemmtilegasta af
þvi öllu.
Tengdamamma segist ælta að kæra mig
fyrir lögreglunni fyrir hvernig ég þvæ, bý
til mat og skúra gólf. Hvað heldurðu að
gerist?
— Ég er ungur maður með lokka hér og
þar og mig langar svo til að verða stjórn-
málamaður með timanum ....
Stundum er ég glöð og stundum óskaplega
leiö á öllu. Heldurðu að þetta sé svona hjá
öðrum lika?
— Ég er 22 ára, elska púsluspil, appelsin
og tiu á toppnum. Nú langar mig til aö
reyna eitthvað annað. Hvað væri bezt?
— Haldið þér, aö maðurinn minn sé eðli-
legur??
svar: — Liklega ekki.
— Ég er 17 ára og i hvert sinn, sem strák-
ur býður mér i bió, segi ég honum, að ég
vilji ekki hátta hjá honum. Nú er orðiö
hræðilega langt siðan ég hef fariö i bió.
Ég er ekki alveg útslitin, þó að ég eigi
nokkur börn og duttlungafulla eldavél.
Mér finnst gaman að góöum myndum i
sjónvarpinu. Ef enginn skrifar mér, verð
ég að taka svefnpillur.
Mig dreymir um rauövin, likamlega
snertingu og einhvern til að hlægja meö.
Maður verður svo þreyttur af aö hlægja
einn.
Ég er 33 ára karlmaður með hugsjónir.
Þvi miður er mér orðið ljóst, að ég stend
svo fast á þeim, að ég er ennþá hreinn
sveinn. Það var alls ekki ætlunin.
Ég hef mikið skap, á ibúð og elska hvitvin.
Mig vantar einhvern sem elskar bækur,
bera fætur, lakkris, gallabuxur, pylsur og
góðan mat. PS. Ég er karlkyns...
Maðurinn minn dó af drykkjuskap og öll
fjölskyldan drekkur. Allt bindindisfólk,
sem ég þekki er svo leiðinlegt. Mér likar
hvorki fullt fólk né leiðinlegt. Er ekki til
eitthvað þar á milli?
Við eigum reglulega fint heimili með sima
og jóladiskum. Börnin hafa fengið gott
uppeldi, en mér hundleiðist!
—- Ég hef verið gift i tiu ár og er dauð-
hrædd við kyniif. Auðvitað veit maðurinn
minn ekkert um það ....
Ég hugsa og hugsa og hef komizt að þeirri
niðurstöðu, að maður lifir bara einu sinni.
1 hvert sinn, sem við hjónin rifumst, nær
hann i 1000 stykkja púsluspil og raðar og
raðar, án þess að segja orð. Heldurðu að
hann sé geðveikur?
Sem betur fer get ég hlegið að vitleysun-
um, sem ég geri. Tilveran er afskaplega
skemmtileg.
Hjarta mitt, hönd og peningaveski er til
reiðu fyrir hvern sem er. En þannig á það
vist ekki að vera, samkvæmt ástarsögun-
um.
Siðast þegar ég var ástfangin gerði ég það
vitlausasta af öllu vitlausu: Ég giftist
honum.
öll áhugamál min eru þess eðlis, að
áfengi kemst ekki að. Ég er ekki fullkom-
lega hamingjusamur.
Ég er orðin leið á bingó. Ég vinn aldrei.
Hvaö annað get ég gert. Mig vantar uppá-
stungur.
19