Heimilistíminn - 11.09.1975, Blaðsíða 12
Bay City Rollers
Bay City Rollers virðast ætla að verða
hin merkilegasta hljómsveit, eftir
öllum sólarmerkjum að dæma. Lætin
á hljómleikum hjá þeim eru vel sam-
bærileg við góðu gömlu Bitladagana
og slikt gerist hreint ekki hjá hverjum
sem er.
Fimmmenningarnir i Bay City
Rollers eru: Derek Longmuir, Stuart
Wood, Eric Faulkner, Lesley Richard
McKeown og Alan Longmuir. Þeir eru
á aldrinum 18 til 21 árs, en ýmsir eru
tortryggnir á, að það sé rétt. Allir eru
þeir ólofaðir og telja, að kvenfólk á
föstu muni skemma fyrir þeim. beir
eiga heima i Edinborg, en halda allir
til i London, þótt þeir séu ekki mikið
þar vegna stöðugra hljómleikaferða.
Bay City Rollers hafa leikið saman i
fimm ár. Það voru þeir Derek og Alan,
sem söfnuðuhinum saman til að stofna
popphljómsveit. 1 fyrstunni komu þeir
fram undir nafninu Saxons og héldu
sig á smáklúbbum i Edinborg. Þeir
voru vinsælir, en vöktu ekki sérstaka
eftirtekt. Það var ekki fyrr en þeir
hittu Tom Paton, sem er núverandi
umboðsmaður þeirra, að þeir skiptu
um nafn og breyttu stil sinum. Jafn-
framt fór allt að ganga hetur. Þeir fóru
I ferðalög um England og Skotland og
urðu æ vinsælli.
Frægðin kom með laginu „Keep On
Dancing” og á hæla þess kom
„Manana” sem hljómaði um þvera og
endilanga Evrópu og siðan hefur hvert
lag þeirra af öðru komizt á vinsælda-
listann, til dæmis „Shang-A-Lang”,
„Remember”, „All og Mé Loves All of
You”, „Summerlove Sensation” og
„Bye, Bye, Baby” ásamt fleiri. Auk
þess hafa tvær LP-plötur orðið ákaf-
lega vinsælar, „Rollin” og „Once upon
A Star”.
Leyndardómurinn að baki velgengni
hljó6hsveitarinnar er létt og aðgengi-
leg tónlist og auk þess leggja þeir
áherzlu á að koma jafnan vel fram og
lita vel út. Þeir nota ekki andlitsfarða
eins og svo margir eru farnir að gera
og þess vegna eiga þeir aðdáendur i
öllum aldursflokkum.
12
J