Heimilistíminn - 11.09.1975, Síða 18

Heimilistíminn - 11.09.1975, Síða 18
Dillblómkát H Sjóðið blómkálið rétt meyrt í léttsöltuðu vatni. Látið það kólna og vatnið renna vel af þvi. Leggið það á fat með finklipptu grænu salat i, hellið yfir það sósu Ur majonesi og tómatsósu og stráið vel af dilli yfir. Þetta er ágætis forréttur, en dugar einnig sem létt máltið. Skinkurúllur með eggjahræru «< 4 sneiðar soðin skinka, 1/2 tesk. paprikuduft, 8 egg, 1 tesk. salt, svolitið miískat, 2 msk söxuð steinselja, 2 msk. saxaður graslaukur, 50 gr. smjör. Kaupið skinkusneiðarnar, þar sem hægt er að fá þær skornar i búðinni, þvi þær mega ekki vera of þunnar. Stráið paprikudufti á þær. Sláið eggin út i skál, notið hálft eggjaskurn sem mál og setjið átta slik af köldu vatni saman við eggin. Bætið i það salti og múskati og þeytið allt varlega saman með gaffli. Bræðið smjörið á pönnu og látið steinseljuna og graslaukinn malla um stund i þvi. Hellið eggjablöndunni yfir og ýtið henni siðan til á pönnunni, þangað til hún er alveg stifnuð, enblaut að ofan. Jafnið hrærunni á skinkusneiðarnar og vefjið þær saman. Berið fram með brauði og grænu salati. 18

x

Heimilistíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.