Heimilistíminn - 11.09.1975, Page 24
„ í'5*
7. ágúst
hú ert svo mikið gefinn fyrir útilif, að
þú þolir ekki að vera lokaður innan dyra
lengi i einu. Þú ert einn þeirra, sem likar
bezt að vinna undir beru lofti eða i starfi,
sem gerir þér kleift að ferðast mikið. Þú
ert mjög metnaðargjarn og vilt gjarnan
komast á toppinn. Þótt þú sért oft míeð
höfuðið fullt af dagdraumum, geturðu vel
verið hagsýnn, þegar um það er að ræða.
Þú ert afskaplega öruggur með þig og
verk þin og hlitir ógjarnan ráðum
annarra. Þú kýst að gera þinar eigin
áætlanir og halda við þær. Ef illa fer,
sakarðu sjálfan þig um það. Þú kærir þig
ekki um að deila með öðrum, hvorki
þegar um er að ræða gott né illt. Þú tekur
hlutina i þeirri röð sem þeir koma og þú
hefur oftast heppnina með þér.
Þú hefur einkar aðlaðandi persónuleika
og fólk dregst að þér, hvar sem þú kemur.
ÞU býrð yfir heilbrigðri dómgreind og
getur tekið sk jóta ákvörðun i hverju máli.
Þú hefur leiðtogahæfileika frá
náttúrunnar hendi.
Ef til viil tekur þig dálitinn tfma að
komast i gang, en þegar þú ert byrjaður,
siglirðu hraðbyri að markinu.
Þér likar vel að hafa það þægilegt og
notalegt heima fyrir, þar sem þú ert
heimakær og ert ánægðastur, þegar þú
hefur fjölskylduna i kringum þig. Veldu
þér maka, sem hefur svipuð áhugamál og
þú.
24
8. ágúst
Vizka þin og fjölhæfni gera þér kleift að
vinna næstum hvaða starf sem er og þér
verður úthlutað. Þegar vandi steðjar að,
ert það oft þú, sem fólk snýr sér til, vegna
þess að þvi er treyst að þú komir öllum
málum heilum f höfn. En þetta getur orðið
persónuiegum frama þinum til trafala,
þar sem það kemur i veg fyrir að þú getir
einbeitt þér á einu sviði. Þótt til séu
undantekningar frá þessari reglu, skaltu
vera á verði gagnvart þessu, ef þú vilt að
þú verðir viðurkenndur og starf þitt verði
þér að einhverju gagni.
Fyrir þér eru lög og reglur eitt af þvi
mikilvægasta i lifinu, og þar sem
smámunasemi þin nálgast stundum
heraga, myndirðu sóma þér vel hjá lands-
yfirvöldunum. Þú hefur meðfædda hæfi-
leika til að læra tungumál, og nýtur þess
að ferðast um ókunn lönd. Þess vegna
mun henta þér vel að vera i utanrikisþjón-
ustunni og gegna starfi I öðru landi. Þú
hefur þægilega framkomu og getur haft
áhrif á aðra, þegar þú óskar þess. Þú ert
ástriðuheitur og verður hamingjusamur
ef þú giftist ungur. Hjónabandið mun færa
þér margt gott og sumum jafnvel auðævi.
Þótt þú giftir þig ekki beinlinis til fjár,
getur ástin orðið þér til framdráttar á þvl
sviði.
9. ágúst
Þú hefur ágætis viðskiptavit og ert
fljótur að dæma fólk við fyrstu kynni. Þar
sem þú ert svona góður mannþekkjari, er
sjaldan hægt að gabba þig, þegar um er
að ræða að telja þér trú um eitthvað. Þú
athugar staðreyndir gaumgæfilega, áður
en þú lætur til skarar skriða. Þú hefur
mikið sjálfstraust og vilt leggja þig fram
við vinnu og nota dómgreindina tilað gera
það rétta. Þér finnst gaman að safna
peningum og munt að likindum safna all-
miklu af þeim á ævinni.
Þú hrifst auðveldlega af öllu nýju sem
þú tekst á hendur og skipuleggur tima
þinn og vinnu nákvæmlega, og þess vegna
geturðu orðið pirraður og móðgaður, ef
allt gengur ekki eins og þú hafðir ætlað
þér. Þá áttu það til að kvarta yfir
smámunum og verða æfur út af engu. I
þannig aðstöðu verðurðu að temja þér að
hefja þig yfir smámunina.
Svo virðist sem þú farir oft að annarra
ráðum, en þegar dýpra er gætt, kemur i
ljós, að þegar þú biður um skoðanir
annarra, hefurðu raunar ákveðiö þig og
munt i öllum tilfellum aðeins fara að eigiú
vilja. Þú ert tryggur og umhyggjusamur i
ástum. Þú ert framúrskarandi gestgjafi
og gengur vel að koma heimili á stofn. Þú
skalt giftast einhverjum, sem endur-
geldur tilfinningar þinar.