Heimilistíminn - 02.10.1975, Page 15
a
unga
dömu
Jakkinn er prjónaður úr grófu garni og
mynstrið er ofur einfalt. Vasarnir og
kraginn eru með garðaprjóni.
Stærðir: 11-13-15 ára.
Efni: 14-15-16 hnotur af garni sem hentar
fyrir prjóna nr 5 og 6,7 eða 8 tölur.
Prjónfcsta: .14 1 og 18 prjónamynstur á
prjóna 6 á að vera 10 cm.
Bakið: Fitjið 68-70-72 1 upp á prjóna no 5
og prjónið 3 cm garðaprjón. Skiptið yfir á
prjóna no 6 og prjónið mynstur eftir
teikningunni og látið það vera þannig, að
12sl 1 verði fyrir miðju bakinu. Takið eina
1 úr á hvorri hlið á 10.-11.-13. hverjum
prjóni 5sinnum. >á eru 58-60-62 1 á. Prjón-
ið siðan beint upp. Þegar stykkið er orðið
42-47-53 cm, er tekið úr handvegi á hverri
hlið á öðrum hverjum prjóni 2x2 og lxl
lykkja. Þá eru 48-50-52 1 á. Þegar stykkið
er 57-63-69 cm, er fellt af fyrir öxl á hvorri
hlið á öðrum hvorum prjóni 4x4 — 4x4 —
3x4 og 1x5 1. Þegar stykkið er 60-66-72 cm
eru 6 miðlykkjurnar felldar af fyrir háls-
máli og hvor öxl prjónuð fyrir sig. Jafn-
framt er hálsmegin tveimur prjónum
siðar fellt af, þannig: 1x5 — 1x6 — 1x6 1.
Prjónið hina öxlina eins, en gagnstæða.
Hægra framstykki: Fitjið 40-41-42 1 upp á
prjóna no 5 og prjónið 3 cm garðaprjón.
Setjið 6 yztu 1 hægra megin á nælu og
geymið. Fitjið eina nýja 1 upp i hægri hiið
og þá eru 35-36-37 1 á. Skiptið yfir á prjóna
no 6 og prjónið mynstur, byrjið frá hægri
þannig: 1 sl jaðarl, 6 sl, 2 sn o.s.frv. Takiö
úr á vinstri hlið eins og á bakinu. Prjónið
siðan beint upp. Þegar stykkið er orðið 42-
47-53 cm, er tekið úr i vinstri hlið fyrir
handvegi á öðrum hvorum prjóni 1x3 —
1x2 og 3x1 lykkja. Þá eru 22-23-24 1 á.
Þegarstykkiðerorðið 55-61-67 cm er tekið
úr fyrir hálsmáli i hægri hlið á öðrum
hvorum prjóni 1x2 og 4x1,1x3 og 4x1 — 1x3
og 4x1. Þegar stykkið er orðið 58-64-70 cm,