Heimilistíminn - 10.06.1976, Blaðsíða 23
Fjaðurmögnuð listaverk
Frú Lillian Love í bænum Bath í Englandi er fremur óvenjulegur
listamaður. Hún mólar á fjaðrir og
skapar undurfögur verk, sem mikil eftirspurn er eftir.
Lillian Lowe hefur aldrei lært list sina
hjá neinum öörum, en hiin hefur málaö i
átta ár. Verk hennar hafa vakiö áhuga
meöal viöurkenndra listamanna, vegna
þess aö hún notar mjög erfiöa tækni og er
nú viöurkennd af samtökum listamanna i
Englandi.
Málverk Lillian eru mjög eftirsótt
meöalsafnara og meira aö segja Elisabet
drottning hefur eignazt eitt þeirra, sex
fugla I berjarunni, málaöa á flam-
ingóa—fjööur. Mörg verka hennar hafa
lika veriö sýnd i Washington og þeirra er
getiö I bók Ripley á „Þiö ráöiö, hvort þiö
trúiö þvi”.
Ástæöan til þess aö Lillian Lowe hóf
þetta starf var alvarlegt umferöarslys
fyrir rúmum átta árum. Hún hlaut m.a.
heilaskemmdir og fór i endurhæfingu til
aö bæta úr þeirri örorku, sem skemmd-
irnar ollu. Læknarnir töldu, aö hún myndi
eiga viö afleiöingar heilaskemmdanna aö
striöa alla ævi, en frú Lowe vildi sýna
þeim fram á aö þaö væri hægt aö þjálfa
upp á nýtt einbeitingarhæfileikann og
næmi handanna. Dag einn, þegar hún var
úti i gönguferö, fann hún af tilviljun
nokkrar fallegar fjaörir og tók þær meö
sér heim til aö mála á þær.
—Þaö var eins og aö mála á þerripapp-
ir, sagöi hún. Þaö var erfitt aö fá máln-
inguna til aö tolla á og frú Lowe reyndi
margs konar aöferöir til aö auövelda sér
verkiö. Fyrst þvoöi hún fjaörirnar úr
volgu vatni, þurrkaöi þær og burstaöi og
svo málaöi hún, ofur varlega meö
emaille—málningu og hárfinum pensli.
Jafnframt þvi sem læknarnir undruöust
likamlegar framfarir frú Lowe, tóku list-
unnendur aö veita fjöörum hennar at-
hygli. Æfleiri fyrirspurnir komu frá fólki,
sem vildi kaupa þær, frá söfnum og sýn-
ingaraöilum og nú hefur frúin meira en
nóg aö gera.
Hún hefur samband viö fjölda dýra-
garöa til aö fá fjaörir af merkilegum
fuglategundum og hún setur málverk sin
lika upp á plötur eöa i ramma. Verö lista-
verkanna á fjöörunum er frá 10 þúsund til
150 þúsund (isl) krónur.
Lillian fann sjálf upp þessa áhrifamiklu málaratækni.
Myndir Lillian eru mjög nákvæmar og
smágeröar.
23