Heimilistíminn - 10.06.1976, Qupperneq 32
eld I
húskrókur"
framhald af bls. 19
Kokotte-egg
með aspargus
og kræklingi
10-14 kræklingar
8-10 stengur aspargus,
2 msk rjómi,
1 stórt egg,
salt, dill,
smjör.
Litil, ofnföst skál er smurö meö þykku
lagi af smjöri, kræklingur og aspargus er
sett i og rjómanum hellt yfir. Hrátt egg er
brotiö yfir allt saman og síöan er saltaö
létt. Rétturinn er settur i vel heitan ofn —
200-225 — þangaö til hann er gegnheitur og
hvitan stifnuð. Klippiö dill yfir. 1 staöinn
fyrir krækling má nota rækjur.
OQ
Frönsk
rækjueggjakaka
2 egg,
3-4 msk vatn.
salt, pipar,
2-3 lauksneiöar,
50 gr. rækjur
dill, smjör.
Egg, vökvi, sem má lika vera rjómi og
pipar, er þeytt létt saman og hellt á heita
pönnu með litlu smjöri. Hafiö góöan hita
undir og meðan eggjakakan stifnar, er
brúnum hennar sifellt lyft, svo hræran
renni niður. Þegar hún er nær fullstif, er
lauksneiöunum (þunnum ),rækjum og dilli
stráð ofan á og allt bakaö um stund viö
lágan hita.
32