Heimilistíminn - 06.10.1977, Blaðsíða 8
Ný leið til að megra
sig fyrir þá sem vilja
borða brauð og kartöflur
Vikumatseðill fyrir þá sem
ekki vilja sleppa brauðinu
Mánudagur:
Morgunmatur: kaffi e&a te, 1/2 greip-
. frútt, 2 grillaöir tómatar á tvær sneiðar af
ristuðu brauði.
Hádegismatur: 2 1/2 dl kjötsoð, 120 gr.
grilluö nýru eða kjúklingalifur á 1 brauð-
sneið, grænmetifrá listanum hér á undan,
30grömm af 30% osti á eina brauösneið, 1
dl appelslnusafi.
Kvöldveröur: 1 1/2 dl tómatsafi, 120
grömm grillaðar magrar lambakótelett-
ur, grænmeti af listanum, 1 steikt epli.
Þriðjudagur:
Morgunmatur: kaffi eða te, 1 dl
appelsinusafi, 100 grömm reyktur fiskur á
eina brauðsneið.
Hádegismatur: 1 brauðsneið með harð-
soðnu eggi, 1 brauðsneið með 50 grömm-
um af magurri skinku, 1/2 dl jógurt.
Kvöldveröur: 2 1/2 dl kjötsoö, 120 grömm
grilluð lifur með 50 grömmum af grilluðu
beikon og kapris, grænmeti frá listanum,
30 grömm af camembertosti, 1
brauðsneið.
Miðvikudagur:
Morgunmatur: kaffi eða te, 1 pera, 2
brauðsneiðar meö 30 grömmum af osti og
50 grömmum af mögru kjötáleggi.
lládegismatur : 120 grömm grillaðar
lambakótelettur (skerið burtu alla fitu)
grænmeti af listanum, salat 1 epli.
Kvöldveröur: 1 1/2 dl tómatsafi, 150
grömm grillaöur kjúklingur (takiö skinn-
ið utan af honpm), grænmetiaf listanum 1
1/2 dl jógurt blandaö með appelsfnubit-
um.
Fimmtudagur:
Morgunmatur: 1/2 greipfrútt, 2 brauð-
sneiðar með 30 grömmum af osti og 50
grömmum af mögru áleggi.
Hádegismatur: 2 1/2 dl kjötsoð, 1 brauð-
sneið með sveppum sem steiktir eru í
ofurlitilli oliu, 100 grömm Ýmir.l epli.
Kvöldveröur: 2stórirtómatar, fylltir með
50grömmumafrækjum, I20grömmum af
köldum kjúklingi (ekki skinnið) 2 smáar
kartöflur með 1 desertskeiö af jógurt,
salat, 1 epli, 1 pera
Föstudagur:
Morgunmatur :kaffi eöa te, 1 appelsfna, 2
brauðsneiöar með 30 grömmum af osti og
50 grömmum af mögru áleggi.
Hádegismatur: 2 1/2 dl kjötsoö 120
grömm grilluð þorskflök eöa 120 grömm
af grillaðri nauta- eöa kálfalifur 2 brauð-
sneiðar, og tvær sneiðar af osti.
ÞÚMÁTT —
ÞÚ MÁTT EKKI
Finnst þér vonlaust aö hugsa til
þess að fara 1 megrunarkúr og
reyna að léttast vegna þess að þú
getur ekki hugsaö þér að hætta aö
borða kartöflur og brauö sem er
eitt af þvi bezta sem þú færö?
Þú þarft alls ekki að hætta að
borða þessar fæðutegundir. Þú
mátt minnast þess að brauö og
kartöflur eru meö I matarhringn-
um svonefnda sem okkur hefur
stundum verið sýndur, en 1 þessum
hring er sýnt það helzta sem borða
á og úr hvaða flokkum matvæla
velja á fæðuna.
Þetta þýöir allsekki að þú megir
troða þig út á brauði og kartöflum
en það ætti að vera betra að fá svo-
lltinn skammt daglega heldur en
þurfa algjörlega að leggja hvort
tveggja á hilluna.
Hér færðu tvær tillögur að mat-
seðli, annar er hugsaður fyrir þá,
sem vilja borða kartöflur og hinn
fyrirbrauöæturnar. Þér er i sjálfs-
vald sett að skipta um kjötrétti hér
og þar en þú verður aöeins að gæta
þess að fara ekki fram úr þeim
hitaeiningum, sem þú mátt borða
daglega.
Ekki er hægt að segja fyrir meö
nokkurri vissunákvæmlega hversu
mikið þú léttist, enda fer það eftir
ýmsu t.d. hversu þung þú ert og
hversu mikið þú hreyfir þig en farir
þú eftir þessum matseðli er talið
fullvlst aö þú sjáir merki þess á
viktinni.
Fyrir brauð- og kartöflumatar-
kúr gildir eftirfarandi:
Þú mátt boröa edns mikið og þú
vilt af sellerii, blómkáli, dill, gras-
lauk, agúrkum, hvitkáli og rauð-
káli, papríku, persilju, púrrulauk,
radisum, salati, spinati, sveppum,
tómötum og hvitlauk.
Ef þig langar til þess aö hafa ein-
hvers konar sósu út á grænmetis-
salatið þitt, þá getur þú búið hana
til úr blöndu af ediki, sitrónusafa,
worcestershiresósu, tabasco,
papriku, pipar, hvltlauk eða öörum
kryddtegundum.
Þú mátt drekka eins mikið af
kaffiog te og þú vilt, einnig á milli
máltiða.
Þú máttekki nota sykur.Avaxta-
safarnir sem nefndir eru á
matseðlinum, eru allir ósætir.
Þú verður a6 drekka 2 1/2 dl af
mjólk og boröa 1-2 teskeiðar af
matarfeiti daglega, matarolfu,
mayonesi, eöa álika.
Þú mátt ekki boröa kvöldmat
allt of seint á kvöldin. Ef þér er
raunveruleg alvara að léttast ættir
þú að fá þér göngutúr áður en þú
ferð að sofa.
Ogaö lokum —þú veröur að vera
fullkomlega heilbrigö þegar þú
byrjar I megruninni. Ef þú ert "kki
viss um að svo sé ættir þú að vöa
við lækninn þinn fyrst.
8