Heimilistíminn - 17.08.1978, Síða 6

Heimilistíminn - 17.08.1978, Síða 6
1 wr \ ý. t I / J Erb-fjölskyldan býr sig undir aö boröa nýbakaö brauö. Frá vinstri Ruth, James, Christina, sem heldur hér á hvolpi, sem hún er nýbúin aö fá og heitir Muffy, og aö lokum Zak. A myndina vantar Paul David. ar fjölskyldan ekki kjöt nema tvisvar i viku núoröiö, ogfrú Erbreynir að komast hjá þviaöborga meira en einn dollar (um 260 krónur) fyrir pundiö, hvaöa kjöt, sem hún kaupir. — Já, þú getur svo sannarlega fundið kjöt fyrir minna en doUar pundiö. Meira aðsegjahamborgara.Það getur vel verið, að þaö sé végna þess að það hafi veriö lækkað, en það er til. Ein verzlun hér á það til að laekka hvaða kjöttegund sem er — svinakjöt, kálfakjöt, nautakjöt, og selja það fyrir hálfvirði. Þá birgi ég mig upp. Með þvi aö birgja sig upp, segist hún eiga við, að hún kaupikjöt fyrir þetta 5 til 6 dollara (1300 til 1600 krónur) i einu, og þá setur hún birgöirnar I frystihólfiö I is- skápnum sinum, en hún á bara venjuleg- an Isskáp meö litlu frystihólfi, enga frystikistu. Kjúklingalifur, nautanyru og kjúklingar eru liöir á matseðli Erb-fjöl- skyldunnar. — A þessum árstíma (greinin var skrif- uö i júli) kaupi ég meira af niðursoönu grænmeti heldur en nýju, og ef ég finn ekki þriggja daga gamalt brauö i búöinni fer ég heldur heim og baka brauö sjálf, segir hún. Hún leitar að majónesi, ekta eöa gervi, þar til hún finnur eins litra dollur á 89 cent og alls ekki meira. Þegar hún finnur egg á 55 cent (um 130 krónur) tylftina kaupir hún nokkrartylftir og leggur eggin i pækil. Ekki notar Ruth neinar sérstakar upp- skriftir, heldur fer eftir þvi, hvað hún á til hverju sinni, og hvaöa afganga hún þarf að nýta. Fjölskyldan borðar alltaf morgunverð, og frá mánudegi til föstudags er haft ó- soðið haframjöl meö mjólk ( — Zak borð- ar ekki soðið haframjöl, segir Ruth). Á laugardögum eru annaö hvort þykkar pönnukökur, vöfflur eöa Egg Papa. — Egg Papa, segir Jamés Erb, sem er 52 ára, eru nokkurs konar hrærð steikt egg, og út i er ef til vill bætt ofurlitlu af vermouth, thyme eöa oregano. James Erb er tónlistarkennari við University of Richmond. Á sunnudögum er borðað kornfleks eöa eitthvaöálika. Börnin veljasér oftast það, sem kallað er Fruit Loops eöa Apple Jakcs. 1 hádegismat eru oftast samlokur með osti og einhverri niðursneiddri pylsu á Þetta er úrklippa frá árinu 1963, þegar^ Ruth Erb skrifaöi lesendadálki Bostonr Globe og ráðlagöi fólki aö spara meö þvi aö kasta aldrei neinu ætilegu. Þessi skrif hennar vöktu þá geysilega athygli og um- tal, og enn er Ruth I fréttunum hjá Boston Globe, vegna þess hve hagsýn húsmóöir hún er. milli, og svo ávöxtur á eftir. Fyrir kemur aðhún blandar saman haframjöli, kókos- mjöli, rúsinum og einhverju þvi um liku, og er þetta haft til aö narta i til tilbreyt- ingar. Frú Erb segir, að þar sem fjölskyldan sé mjög önnum kafinsé ekki mikill timi til þess að taka á móti gestum. Allir I fjöl- skyldunni spila annað hvort á violu, fiðlu, cello eða eru I kór, og þurfa þvi að æfa mikiö. En ef svo vill til, að gestir koma til kvöldverðar leitar hún gjarnan að ein- hverjum skemmtilegum igjpskriftum i timaritum eins og Gourmet Living. — Ég bý eitthvað gott til, en hled mig samt innan ákveöinna marka. Ég er ekki með kavfar eða þvi um likt. Kannski hef ég kjöt i potti og heimabakað brauð. Það fer allt eftir þvi hvert tilefniö er, segir hún. Christina segir, að þegar hún bjóði vin- um sinum til kvöldverðar, segi hún bara aö þeir skuli ekki búast viö þvi að þeir fái sams konar mat og þeir eru vanir heima hjá sér. Frú Erb kaupir gosdrykki, ef hún held- ur veizlur, — og viö skulum vona, að eitt- hvað sé eftir af þeim. Við höfum ekki átt kók i tvo mánuöi. Hún segir, að sparsemi hennar hafi komiö til sögunnar fyrir 45 árum, þegar hún sjálf fæddist i Evrópu. Hún er frá Mainz I Þýzkalandi, dóttir austurriskra foreldra, og hún heldur áfram: — Evrópubúar henda engu. Faðir hennar var tónlistarmaöur, Victor Urbancic, kaþólskur og af júgó- slavneskum uppruna, og móöir hennar Melitta, þýzkur Gyöingur. Þau flúöu með fjölskyldu sina til Islands árið 1938. Ruth hitti Jim Erb, þegar þau stunduðu bæði tónlistamám i Vinarborg. Þau giftu sig á tslandi og fluttust svo til Bandarikj- anna árið 1952. Þauhafa búiö I Richmond frá 1954, að undanskildum þeim þremur ámm, sem þau bjuggu i Winchester, á meðan Jim var viö Harvard. Ruth segir, að sparsemi þeirra standi u me for helP 1 aSuTeet but I j íee(j * “ úfdren’ ! tl3.50 a 6

x

Heimilistíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.