Heimilistíminn - 17.08.1978, Blaðsíða 15
Blómin okkar
vetur, og leggja þau vandlega á minn-
i6. Þegar sumarblómafræin koma svo
á markaöinn næsta vor getiö þiö keypt
ykkur þau fræ, sem þiö hafiö áhuga á,
og ræktaö sjálf ykkar blóm til
þurrkunar.
Þaö er mjög auövelt aö rækta t.d.
eillföarblómin. Þó veröur aö gæta
þess, aö fræin nái ekki aö þornaá meö-
an þau spira og koma upp, vegna þess
aö það getur oröiö til þess aö þau eyöi-
leggist og ekkert veröi Ur blómarækt-
inni.
Þeir, sem ekki eiga garö, geta vel
ræktaö eilifðarblómin og haft þau ann-
aö hvort á svölinum hjá sér, eöa þá I
blómapotti i gluggakistunni. Eiliföar-
blómin þurfa töluveröa sól og hita til
þess aö ná aö blómstra, og þess vegna
getur verið ágætt aö taka þau inn I
potti og hafa þau i gluggakistunni, þvi
aö þar fá þau bæöi sól og hlýju eins og
frekast er kostur.
Þiö skulið ekki láta eiliföarblómin
opna sig allt of mikið. Þau eru fallegri,
ef þau eru ekki oröin ofsprottin. Blóm-
in veröur aö þurrka á þurrum, nokkuö
skuggsælum, og helzt loftgóöum staö.
Þaöerekkigottaöþau þorrni á allt of
skömmum tima.
Aö lokum er svo komiö aö þvi aö búa
eitthvaö til úr þurrkuöu jurtunum ykk-
ar. Þiö getiö látiö ykkur nægja aö raöa
blómunum saman I vasa, en það er þó
ekki þaö eina, sem hægt er aö gera.
Kannski eigiö þiö litla körfu, eöa
fallega skál, sem myndi sæma sér vel
undir blómaskreytingu. Svo kaupiö þiö
ykkur svokallaöan oasa eöa gervi-
svamp. Hann fæst I blómabúöum. I
hann er hægt aö stinga blómunum eftir
öllum kúnstarinnar reglum, og áöur en
þiö vitið af er komin dýrölegasta
blómaskreyting.
Þaö er lika hægt aö kaupa kúlu-oasa,
stinga i hana blómum, og festa hana
svo I snúru eöa boröa og hengja upp I
loft eöa út i glugga. Aö lokum er hægt
aö binda krans úr þurrkuðu jurtunum.
Þá er undirstaöan, eöa þaö sem
bundiö er utan um, útbúin fyrst t.d. úr
vir. Siðan eru blómin stráin bundin viö
virinn. Ef leggirnir á blómunum eru
orönir stökkir, og vilji þeir brotna get-
ir þiö mýkt þá dálitiö upp meö þvi að
strjúka þá meö rökum klút.
Nú læt ég ykkur um áframhaldiö og
óska ykkur bara góös gengis viö aö búa
til blómaskreytingarnar. Ef vel tekst
til, og þiö hafiö safnaö nógu af
skemmtilegum jurtum núna I haust
gætuð þiö ef til vill sparaö ykkur aö
kaupa jólagjafir aö hluta til og gefiö
vinum og kunningum þess I staö
heimatilbúnar blómaskreytingar. fb
Krans úr eillfðarblómum og stráum.