Heimilistíminn - 17.08.1978, Qupperneq 18
RÆKJU- OG
RAUÐSPRETTUPÆ
1 pæið eru notuð rauð-
sprettuflök og rækjur auk þess
sem talað er um sveppakrem.
Það hef ég nú ekki rekist á hér
i búðum, en þess i stað mætti
gjaman nota sveppasúpu úr
dós, eða jafnvel Maggi-Farm
sveppasúpu úr pakka. Sú súpa
er mjög sterk og bragðgóð og
töluvert af sveppum i henni.
Rétt er að búa ekki til jafning
nema úr hluta af pakkanum
fyrst til þess að hann verði
ekki allt of bragðmikill. Það
má alltaf bæta út i, en verra er
að taka af þvi, sem búið hefur
verið til. Ef þið notið pakka-
súpuna, skuluð þið laga hana
með aðeins litlu af mjólk eða
þá rjóma, ef þið viljið hafa
mikið við, og hún á sem sagt
að vera mun þykkari heldur
en venjuleg súpa, — þ.e. vera
einna likust þykkri sósu.
Og hér er svo uppskriftin:
Pædeigiö: 4 dl hveiti, 200 gr. smjör eöa -
smjörliki, 4-6 msk vatn.
Fylling: 500 gr. ný rauösprettuflök. Ef
ekki er til rauöspretta notiö þiö einhvern
annan fisk i staöinn, salt, 95 grömm af
áöurnefndu sveppakremi, eöa þess i staö
sveppasúpu úr dós eöa úr pakka.
Sósa: 1 1/2 msk. smjör, 1 1/2 msk. hveiti,
ofurlitiö fisksoö, 200 grömm af sveppum i
dós, 2 eggjarauöur, 1/2 dl rjómi, 200
grömm af rækjum. Pensliö yfir pæiö meö
eggi-
Myljiö saman hveiti og smjörliki og
bætiö vatni út I og hnoöiö svo og fletjiö út
pædeigiö i hæfilega þykka skel sem sett er
innan i eldfast form.
Saltiö rauðsprettuflökin litillega, helliö
sveppasósunni, sem viö ræddum um i
upphafi, yfir flökin og vefjiö þau upp.
Raöiö svo flökunum þétt saman i lágan
pott. Hellið yfir flökin vatni, og blandiö
súpudufti eða teningi út i þaö. Látiö fisk-
inn sjóöa i ca 5 minútur.
Setjið saman á pönnu smjöriö og hveit-
ið, ofurlitið fisksoö og svo er rjómanum og
eggjarauðunum bætt út i og aö lokum
rækjunum og sveppunum.
Fiskrúllurnar eru lagöar á pæbotninn
og sósunni hellt yfir. Leggiö pælokið yfir
alltsaman. Stingiögat á þaö. Pensliö meö
egginu. Bakið pæiö i 225stiga heitum ofni i
35 minútur. Rétt er aö draga úr hitanum
eftir 15 til 20 minútur og hafa hann eftir
það ekki meira en 200 st. Best er að bera
fram pæið beint úr ofninum meö
grænmetissalati.
■»' l 111