Heimilistíminn - 15.02.1979, Blaðsíða 5
sporið á nýjan leik me6 þvi aö segja eins
og Eva forðum: — Fáðu þér annaö epli.já
fáðu þér annað.
Staðreyndin er sú að þegar Noor hafði
gifzt konunginum, þurfti hún aö taka við
þremur hlutverkum. Hlutverki eiginkonu,
drottningarogstúpmóðurþriggja barna á
aldrinum 3,4og6ára. Þaðerubörn þriðju
konu Husseins.Alia drottningar.sem fórst
i þyrluslysi árið 1977. — Ég er alltaf aö
læra.segir Noor.Húner aö nema fræði Mú-
hameðstrúarmanna.en til þeirra telst hún
nú og svo hefur hún verið að læra ara-
bisku („fallegasta mál iheimi”.) Hussein
sem nú er 43 ára gamall reynir að hjálpa
henni við að lesa dagblöðin á hverjum
morgni.
Noor hefur einnig sýnt áhuga iþrötta-
þjálfun, borgaskipulagningu og
verndunarmálum alls konar. Hún er
heiðursforseti „Barnaársins”. Að sjálf-
sögðu eru mörg höft og bönn i landi.þar
sem konur hafa alveg nýverið fengið auk-
in réttindi. Aðeins fimm ár erufrá þvi þær
fengu kosningarétt i Jordaniu. Þaö fylgja
þvi lika hömlur aö búa I konungshöll og
hjónin veröa að láta sér nægja aö hittast
og ræðast við yfir morgunverðinum, en
hann getur lika staðið allt að fjórar
klukkustundir svona á stundum. Ekki eru
þau þó ótrufluð allan þann tima, þar sem
stundum þarf aö svara i sima og sitthvaö
fleira og svo ræða þau þess á milli um
stjórnmál og aðra þýðingarmikla hluti. —
Stundum klæðum við okkur ekki fyrr en
um hádegi segir drottningin.
Lifverðir fylgjast náið meö drottning-
unniog hún getur ekki lengur leyft sér aö
bregða sér i'búðir, þótt hana langi til þess.
— Einvera erþaö sem ég sakna mest,
segir hún og þaö gætir saknaðar i rödinni.
En hún heldur áfram: — Eitt af þvi sem
mér ber skylda til að gera, er að reyna að
færa ferskt loft inn i tilveru okkar.
Það má með sanni segja að henni hafi
tekizt það býsna vel til þessa og Hussein
segir: — Ég hef fundið lifið á ný. Hún
hefur hvatt hann til þess að synda, spila
tennis og fara i siglingar og stundum fer
hann með henni i skelfilegar hjólreiða-
feröir á motorhjólinu hans. Saman fengu
bau aðnjótanokkurra,,dásamlegradaga á
skfðumiOlpunum og þegar þau fóru i opin-
bera heimsókn til Þýzkalands tókst þeim
að læöast i burtu og kikja i búöarglugga.
Dásamlegar stundir á borð við þessar
geta átt eftir að verða fágætar i fram-
tiðinni. Fyrst eftir að þau giftu sig var
Noor vön að striða Hussein meö þvi að
honum átti aö nægja að eiga þau átta börn
sem hann nú á með fyrri konum slnum.
Núsegir húnhins vegar, aðenda þótt þau
hafi ekki ráögert nýja fæðingu I konungs-
fjölskyldunni, þá geri þau heldur ekkert
tii þess að koma I veg fyrir hana. — Ég
myndi hafa mikla ánægju af þvi að ala
honum barn. Hann er lif mitt, ást min og
framtlöarstarf.
Þfb
Hussein Jordaniukonungur.
5