Heimilistíminn - 15.02.1979, Page 13

Heimilistíminn - 15.02.1979, Page 13
Olivia Newton-John á blaOamannafundi hefurhún hlotiö hverja viðurkenninguna af annarri. Þegar svo átti aö kvikmynda myndina Grease var þaö sjónvarpsreynsla Oliviu sem vakti athygli kvikmyndaframleiö- endanna. Hún haföi flutzt til Bandarikj- anna eftir nokkurra ára dvöl í Englandi og var þar farin aö hafa sin eigin sjón- varpsþætti sem þóttu skemmtilegir. Sjónvarpsþættir Oliviu voru mikils metnir og meira aö segja ABBA taldi sig mega hrósa happi aö fá aö koma fram f einum þessara þátta. Grease vakti gleöi meöal kvikmynda- húsgesta og talið er aö komiö hafi i kass- ana 200 milljónir dollara utan Bandarikj- anna en ekki vitum viöhversu mikiö hefur komiö inn hjá Bandarikjamönnum sjálf- um, en þar var myndin frumsýnd fyrir einu ári eöa þar um bil. Grease olli tölu- veröum breytingum á lifi Oliviu. — Þessi myndhefur þroskaö mig mikiö sagöi hún á blaöamannafundi f London i desember. — Fyrrlét ég mér flest i léttu rúmi liggja en eftir aö hafa náö svona langt, verö ég aö taka lifiö alvarlegar en áöur. Ég varö dálitið hrædd þegar æöiö fór aö breiöast út. Ég hugsaöi meö skelfingu til þess aö ég mætti ekki bregöast þvi trausti sem fólk sýndi mér. — Mér finnst ég ekki hafa gert neitt rangtmeö þviaö taka þátt I Grease, sagöi hún. — Hvers vegna ætti maöur aö reyna aö leysa heimsvandamálin I hvert sinn sem maöur gerir eitthvaö. Grease hefur gefiö fólki eitthvaö raunverulegt og ég gleöst yfir þvi, og er stolt yfir aö hafa veriö meö i þessu. Og hvaö skyldi svo Oliviu finnast um öll áhrifin sem Grease hefur haft á tizkuna t.d.? — Þetta hefur aö minnsta kosti oröiö til þe ss aö gefa fólki hugmyndir. Rokktima- biliö er ekkert fyrir þá sem komnir eru af bezta aldri. Peningar skipta mig ekki neinu máli segir hún. — Ég hugsa meira um listahliöina og á meöan ég hef gaman af þvi sem ég er aö gera hef ég ekki áhyggjur af peningunum. Olivla sagöi ennfremur á blaöamanna- fundinu aö hana langaöi til þess aö reyna sig i einhverjum alvarlegum kvik- myndaleik og hún haföi nú þegar fengiö tilboö um hlutverk. Samt myndi tónlistin vera þaðsem mestu máli skipti fyrir hana enn um sinn og þaö i meira mæli en veriö hefur til þessa. Þfb Að enduðum bóklestri Ég borga þér verkið i klingjandi klinki, og kyrri þar með hana sálu mina. Mikið helviti varstu nú horskur Brynki, er þú hálfdrapst Ragnheiði dóttur þina. Jón Jóhannesson \ l

x

Heimilistíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.