Heimilistíminn - 15.02.1979, Blaðsíða 23

Heimilistíminn - 15.02.1979, Blaðsíða 23
Allt var þar i röð og reglu og borðin tandur- hrein. Nei, hér hafði enginn verið að elda mat. Þetta hlaut allt að vera hrein imyndun min. Ég hafði verið æst vegna heimsóknar Anna- belle og gleymt að hrista til koddana og laga yfirbreiðsluna. Ég gekk upp stigann til þess að fara eina eft- irlitsferð um efri hæðina, eins og ég var vön. Dimmt var inni, vegna þess hve skuggsýnt var orðið úti, svo ég kveikti á ljósi, sem hékk niður úr loftinu. Á sama augnabliki féllu fyrstu regn- droparnir þungt á rúðumar. Eftir fáeinar minútur var komin hellirigning.Égyrði að biða af mér rigninguna, enda myndi ekki verða óttast um mig. Allir vissu hvert ég hafði farið. Ég tók ljósið af króknum og bar það með mér. Ég leit út i öll horn og bak við kistur og koffort, en sá hvergi merki um óvelkomna mús né heldur annað. Rétt i þann mund, er ég ætlaði að fara niður aftur, nam ég staðar, og hjartað hætti næstum að slá. Ég hafði heyrt eitthvert hljóð af neðri hæð- inni, rétt eins og einhver hefði rekið sig i eitthvert húsgagnið. Einhver hiaut að leynast hér i húsinu. Einhver hlaut að hafa verið hér allan timann, staðið og hlustað, fylgt eftir hverju einasta skrefi, sem ég tók, og meira að segja getað fylgzt með mér úr felustað sinum. Ég gat imyndað mér hvernig einhver fylgdist með skugganum af mér i glætunni frá ljósinu, sem ég hélt á ... Hver gat verið hérna? Einhver hættulaus þjófur? En hvers vegna hafði hann ekki reynt að komast undan út i myrkrið og rigninguna, út um bakdyrnar? Nei, þetta hlaut að vera einhver annar, einhver sem vissi, að ég hafði ætlað að koma hingað. Einhver, sem hafði beðið færis þar til nú til þess að ... já, til hvers? Til þess að fá nægan kjark til þess að gera það, sem hafði rekið hann til þess að koma hingað. Ég hafð staðið grafkyrr langa stund, á meðan hugsanirnar þutu um i höfðinu á mér. Gegnum rigninguna heyrði ég minn eigin hjartslátt. Ég skipaði sjálfri mér, að reyna að hugsa nú skýrt. Þessi ókunna vera þarna niðri i myrkrinu vissi nú, að ég vissi, að hann var i námunda við mig. Skugginn af mér, sem allt i einu hafði orðið eins og máttlaust og stjarfur, hafði sagt honum það. Brátt myndi hann koma upp til min.... Ot, hugsaði ég, ég varð að komast út úr hús- inu. 1 flýti lyfti ég upp ljósinu og blés á það, og þaut svo niður stigann. Enginn hafði rétt út höndina til þess að gripa mig, þegar ég kom niður. Ég þaut áfram i myrkrinu i áttina að úti- dyrunum og frelsinu. Ég fann fremur en heyrði að einhver hreyfði sig fyrir aftan mig. Á næsta augnabliki æpti ég, hátt og skerandi, en á sama augnabliki lenti eitthvað hart og þungt i höfðinu á mér. Sárs- aukinn var óskaplegur, og ég fann til i öllum likamanum og svo varð allt tómt og kyrrt. Á móti vilja minum opnaði ég augun. Rose Murphy, þjónustustúlka frænku minnar, lá á hnjánum við hliðina á mér og kringlótt andlitið bar vott um áhyggjur þar sem ég sá það i ljósinu frá oliulampanum. — Svona, svona, vina min, svona, sagði hún lágt. Ég horfði á hana hálfvegis utan við mig, og allt i einu gerði ég mér ljóst að ég lá á gólf- inu i forstofunni heima i húsi frænku minnar. Fyrst skildi ég hvorki upp né niður i þessu og hélt helzt að ég væri horfin aftur i timann, þeg- ar við Rose og frænka min bjuggum hér i Ho- ward Street. Ég reyndi að risa á fætur en Rose kom i veg fyrir, að ég gerði það. — Hver var það sem gerði þetta? spurði hún alvarleg. — Hver sló hana með þessu þarna? Ég sneri höfðinu með erfiðismunum og fylgdi augnaráði hennar. Á forstofumottunni lá þung- ur skörungur úr messing, með rauða bletti hér og þar. Smátt og smátt fór ég að muna það sem gerzt hafði. — Ég veit það ekki, hvislaði ég. Einhver hafði barið mig i höfuðið. Og ég fann til skelfingarinnar eins og þungs steins i maganum, einhver hafði barið mig alveg á sama hátt og Julia Fonsell hafði verið barin. En sá sem hafði barið hana hafði barið hana hvað eftir annað þar til hann var viss um, að hún myndi aldrei tala aftur. Ég minntist þess, að ég hafði öskrað. Var það þess vegna, sem ég hafði fengið að lifa? Haföi hann hlaupizt á brott út i rigninguna, hræddur um, að einhver myndi heyra hrópin i gegnum storminn? — Ég fór hérna framhjá fyrir stuttu, sagði Rose og þá heyrði ég hestinn hneggja úti i hest- húsinu. Mér fannst eitthvað skrýtið við það að inni var aldimmt, og þess vegna ákvað ég að fara inn og sjá, hvað um væri að vera og hvort allt væri i lagi. Það var eins gott, að ég gerði það. — Rigningin, sagði ég. — Er hætt að rigna? — Já, það stytti upp fyrir svo sem klukku- tima. Nú skaltu bara vera róleg litla vina min, vegna þess að ég er búin að biðja nágrannana 23

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.