NT - 21.05.1984, Blaðsíða 15
11 \' Mánudagur 21. maí 1084 15
LlI
Besti vinur
barnannaá
sjúkrahúsinu
er asninn
„Dr. Donkey“
■
■ l’að má jafnvcl fara á bak
inni í sjúkrastofunni. ef ekki er
hægt að komast undir bert loft.
■ Donkey læknir fer á stofu-
gang á morgnana á sjúkrahúsi
í barnaspítala í Yorkshire í
Englandi, rétt eins og hinir
læknarnir, hann er aðeins ofur-
lítið seinna á ferðinni.
Hann getur að vísu ekki
veifað ncinum prófgráðum í
fræðunum, en hann hefur verið
viðriðinn sjúkrahúsið í 5 sl,
ár og er nærvera hans að sögn
yfirhjúkrunarkonunnar þar
a.m.k. eins mikið til góðs og
hjúkrunarliðsins. - Þaðglaðn-
ar yfir börnunum í hvert sinn,
sem þau sjá liann og ég er viss
úm að hann flýtir fyrir bata
þeirra, segir hún.
Donkey læknir, öðru nafni
Pindy, er asni og var færður
sjúkrahúsinu að gjöf af einum
fyrrverandi sjúklingi þar, sem
stundar asnarækt. Hann kem-
ur í heimsókn til sjúklinganna
tvisvar í viku og stundum,
þegar veðrið er gott, leyfir
hann þeinr að koma á bak á
grasflötinni við sjúkrahúsið.
Það er aðeins einn Ijpður á
ráði Pindys. Honum þykirgott
að gæða sér á ábreiðunum á
rúmum sjúklinganna! Starfs-
fólkinu á sjúkrahúsinu datt
það snjallræði í hug, að
kannski leiddist Pindy svo mik-
ið að vera eini sanni asninn á
þessum slóðum að þar væri að
leita ástæðunnar fyrir þessari
sérvisku hans. Það varð sér
því úti um eina snotra vinkonu
handa honum, Sarah. Pindy
líkar svo sem ágætlega félags-
skapur Sarah, en hann heldur
samt sem áður áfram að narta
í ábreiðurnar, hvenær sem
hann sér færi á!
Öðru hverju efnir hjúkrun-
arliðið til fjársöfnunar til að
standa straum af kaupum á
höfrum handa Pindy og Sarah
og tekst hún alltaf vel. Út-
skrifaðir sjúklingar gera sér
nefnilega tíðförult á sjúkrahús-
ið til að heilsa upp á þessa vini
sína og „það myndu þau aldrei
gera til að hitta aftur lækna og
hjúkrunarlið," segir yfirhjúkr-
unarkonan. Gestirnir eru því
fúsir til að taka þátt í hafra-
kostnaðinum.
■ Pindy er kominn á stofu-
gang og brúnin á sjúklingunum
lyftist.