NT - 28.06.1984, Page 5
ÍTT j Fimmtudagur 28. júní 1984 5
ul Froftir
„Viljum leysa þetta mál
svo allir megi vel við una“
- segir Guðrún Ragnar Guðjohnsen formaður Hunda-
rækarfélagsins, um nýju reglugerðina í Reykjavík
Landsmótið í Kefla-
vík og Njarðvík:
ruR
■ „Það einasta sem við sam-
þykktum var að ræða við yfirvöld og
koma okkar sjónarmiðum á fram-
færi", sagði Guðrún Ragnars Guð-
johnsen formaður Hundaræktarfé-
lagsins við NT, en stjórnarfundur var
haldinn til að fjalla um nýju hunda-
reglugerðina sem nú liggur fyrir borg-
arstjórn. „Okkar sjónarmið er að
leysa beri þetta mál þannig að allir
megi vel við una en hins vegar finnst
okkur þetta gjald allt of hátt. Það eiga
ekki að vera nein forréttindi að halda
hund“, sagði Guðrún ennfremur.
dæmi um skynsamlegt fyrirkomulag nefndi
Guðrún hundahald í Garðabæ en þar er
gjaldið milli 16-1800 kr, en sektir þeim mun
hærri ef einhvers er ábótavant. Eins konar
bónuskerfi er og í gildi í Garðabænum,
þannig að hundaskatturinn lækkar ef ekkert
kemur uppá og engin afskipti þarf að hafa
af hundi og eykur það líkurnar á því að
hundaeigendur reyni að standa sig sem best.
Það kom fram hjá Guðrúnu í lokin að ýmis
önnur atriði þyrfti að athuga í þessari nýju
reglugerð. en þar sem þessi mál væru öll á
vinnslustigi væri erfitt að tjá sig um þau til
hlýtar fyrr en allt væri komið á hreint. Þó
vildi hún undirstrika að nauðsynlegt væri að
grípa til einhverra aðgerða því þetta væri
orðið ófremdarástands í Reykjavík og úr-
bóta þörf.
■ Guðrún Ragnars Guðjohnsen með nokkra af heimilishundunum
en þeir eru sex að tölu.
Það kom fram hjá Guðrúnu að heildar-
kostnaður við að halda einn hund yrði varla
undir 5-6 þúsund kr. á ári og væri þá
eingöngu útlagður kostnaður vegna hunda-
skatts, tryggingagjalda og hreinsunar tekinn
inn í dæmið, en eíckert reiknað með fæði og
læknishjálp fyrir seppa. Taldi hún umrætt
gjald, 4.800 kr. á ári, allt of hátt og benti á
að í nágrannabyggðum Reykjavíkur væri
hæsta hundagjald 2.500 kr. og væri innifalin
trygging og hreinsun í þeirri upphæð. Sem
Búistvið 10
þúsund manns
- dansleikir í Stapa öll kvöld
■ 18. Landsmót Ungmennafélags íslands
verður haldið í Keflavík og Njarðvík dagana
13. til 15. júlí. Búist er við um 10.000
mótsgestum en keppendur eru milli 12 og 15
hundruð. Aðgangseyrir á mótssvæðið fyrir
allt mótið verða 500 krónur jafnframt verður
hægt að kaupa miða fyrir aðeins einn dag
eða einstakar keppnisleiki. Dansleikir verða
öll kvöld í Stapa. hljómsvcitin Miðlar frá
Keflavík leikur.
Tjaldstæði verða í Njarðvík og verður
boðið uppá. sérstakar fjölskyldubúðir, al-
mennar búðir og ennfremur keppendabúð-
ir. Af samkomuhaldi á mótinu utan íþrótta-
leikja má nefna fjölskyldusamkomu laugar-
dagskvöld í íþróttahúsi Kefiavíkur og hátíð-
arsamkomu daginn eftir á leikvanginum í
sama bæ. Helsta nýjung á þessu móti er nýtt
fyrirkomulag skákmótsins en þar munu
keppa 20 sveitir sem er mun fjölmennara en
verið hefur.
AF SKATTSKYLDUM TEKJUM
AF AWINNUREKSTRI
Fyrirtækjum og einstaklingum sem hafa tekjur
af atvinnurekstri er nú heimilt að draga 40% frá skatt-
skyldum tekjum til að leggja í fjárfestingarsjóð.
Frádrátturinn er bundinn því skilyrði að helm-
ingur fjárfestingarsjóðstillagsins sé lagður inn á bund-
inn 6 mánaða reikning fyrir 1. júlí n.k. vegna tekna árs-
ins 1983. Ef reikningsárið er annað en almanaksárið
skal lagt inn á reikninginn innan 5 mánaða frá lokum
reikningsárs.
Innstæður á reikningunum eru verðtryggðar
samkvæmt lánskjaravísitölu. Auk þess býður Lands-
bankinn 1,54% stigum hærri vexti en gilda um aðra 6
mánaða reikninga.
Setið að sumbli
í kirkjugarðinum
■ Ábending vcgfaranda leiddi til hand-
töku innbrotsþjófa í fyrrinótt. Mennirnir
voru handteknir í Kirkjugarðinum við
Suðurgötu þar sem þeir sátu og gæddu sér
á stolnum veigum.
Lögreglan fékk ábendingu frá vegfaranda
um að grunsamlegir menn væru á ferli í
miðborg Reykjavíkur með flöskur í poka.
Er lögreglan fann mennina í kirkjugarðinum
játuðu þeir innbrot í veitingahús eitt í
miðbænum, en þar stálu þeir 9 flöskum af
léttvíni. Mennirnir eru síbrotamenn.
Norrænt opið hús
■ Opið hús er nú orðið hefðbundin sumar-
dagskrá í Norræna húsinu og er einkum
ætlað norrænum ferðamönnum. Fyrsta opna
húsið á þessu sumri verður í kvöld kl. 20.30.
Þá flytur Hallfreður Örn Eiríksson erindi
um íslenska þjóðtrú og þjóðsiði og sýnd
verður kvikmynd Ósvaldar Knudsens,
Sveitin rnilli sanda.
Reikningsinnstæðum má ráðstafa að loknum 6
mánaða binditíma, en innan 6 ára.
Enn er hægt að njóta þeirra skattfríðinda sem að
framan er lýst, við álagningu tekjuskatts og eignaskatts
á árinu 1984 vegna tekna ársins 1983. Fresturinn að
þessu sinni er til 1. júlí n.k.
Upplýsingar um stofnun fjárfestingarsjóðsreikninga
eru veittar í sparisjóðsdeildum Landsbankans.
LANDSBANKINN
Græddur er geymdur eyrir