NT - 28.06.1984, Page 28
Flokkur mannsins, nýr stjórnmálaflokkur:
jOghi ifaðsi iaall lir
„göm ilu“ fl< okl karn iir
■ í vikunnistofnuðusamtökin
Samhygð nýjan stjórnmála-
flokk, Flokk mannsins. Eins og
fram hefur komið í fjölmiðlum
býður flokkur þess öllum öðrum
stjórnmálaflokkum birginn
kveöst hvorki til hægri né vinstri
heldur stefna beint áfram og
einbeita sér að manninum.
Hornsteinar flokksins er hug-
myndafræði Samhygðar og
flokkurinn er, að sögn for-
svarsmanna, samvinnu- og félags-
hyggjuflokkur. Þá hefur komið
fram hjá samhygðarmönnum,
sem nú veita þessum flokki
forystu, að þeir telja aðra flokka
mannskemmandi, fyrir þá sem •
þar starfa, og kerfisflokka.
Flokkur mannsins hyggst
bjóða fram til næstu alþingis-
kosninga og stefnir að meiri-
hluta strax.
NT fór á stúfana og leitaði
álits forsvarsmanna annarra
flokka á markmiðum, stefnu og
hugsanlegu fylgi hins nýja fjöl-
skyldumeðlims í hinni stóru
fjölskyldu sem stjórnmálaflokk-
arnir mynda.
Þurfum á ýmsu
öðru að halda
Verðum að
bíða og sjá
■ „Ég held nú að það séu
flestir að þessu puði fyrir
manninn," sagði Steingrímur
Sigfússon, AB, þegar NT sló á
þráðinn, en taldi um leið margt
gott um hinn nýja flokk að segja
þó svo að íslensk vinstri hreyf-
ing þyrfti á ýmsu öðru fremur
að haldaen fleiri flokkum. „Mín
skoðun er sú að meðan þeir
setja það eitt fram að ætla að
berjast fyrir manninn komist
þeir ekki langt. Það verða bein-
ar tillögur í efnahags-, atvinnu-
og kjaramálum, sem munu
verða ofaná í næstu kosningum,
og meðan ég hef ekkert frá
þeim séð í þeim efnum vil ég
engu spá um kjörfylgi. En ég
held að ég geti nú samt étið alla
þá hatta sem ég hef átt um
ævina uppá það að þeir fá
aldrei meirihluta í næstu kosn-
ingum,“ sagði Steingrímur að
■ Steingrímur S.: Segist geta
étið alla sína hatta upp á að
flokkurinn fái aldrei meirihluta
í næstu kosningum.
lokum, en vildi þó koma því að,
að hann hefði enn ekki kynnt
sér hinn nýja flokk vel ennþá.
Hafði nefnilega verið fyrir norð-
an í „mannskemmandi" starfi
fyrir flokk sinn í kjördæminu
eins og hann orðaði það sjálfur.
■ „Ég sé ekki fyrir mér að
fjölgun flokka leysi vanda ís-
lenskrar alþýðu, og það eitt sem
ég hef heyrt frá þessum svokall-
aða flokki er fyrir*hendi hjá
hinum flokkunum,“ sagði Karl
Steinar, þegar NT sló á þráðinn
í gær. „Annars hef ég ekki séð
neina stefnuskrá og það er ekki
vitað hvert þessi flokkur stefnir.
Ég hef þó ekki trú á að svona
flokkur njóti fylgis meðal al-
mennings". Um þær fullyrðing-
ar hins nýja flokks, að aðrir
flokkar væru kerfisflokkar og
mannskemmandi, sagði Karl
um þá fyrrnefndu að hún væri
ekki ný af nálinni, þetta hefðu
allir flokkar sagt um hina flokk-
ana. „En hvort flokkarnir séu
mannskemmandi þá hef ég
heyrt það frá fólki, sem verið
■ „Þau segjast eiga mikinn
hljómgrunn meðal fólks. Það er
alltaf erfitt að dæma um slíkt
fyrirfram. Við verðum bara að
bíða og sjá,“ sagði Kristín S.
■ Karl Steinar: Hefur ekki
trú á að flokkurinn njóti fylgis.
hefur í Sjálfstæðis- og Fram-
sóknarflokki, að það telur svo
vera, en aldrei um Alþýðuflokk-
inn. Ætli ég svari þessu ekki
bara svona,“ sagði Karl Steinar
að lokum.
Kvaran, þingmaður Bandalags-
ins, þegar NT sló á þráðinn til
hennar í gær. Hún er nýkomin
að utan og kvaðst ekki hafa
kynnt sér stefnu hins nýja flokks
vel. „En ég hef séð að þeir telja
önnur stjórnmálaöfl flokka
kerfisins. Ég bíð bara spennt
eftir að sjá þá skilgreina Banda-
lagið sem flokk kerfisins,“ sagði
Kristín. Aðspurð um hvort
Bandalagið væri mannskemm-
andi svaraði Kristín því til að
hún sjálf hlyti þá að hafa verið
eitthvað skemmd áður en hún
gekk í Bandalagið því hún hefði
ekki orðið vör neinna skemmda
á sjálfri sér síðan hún byrjaði.
Annars dró hún hugmyndina
mjög í efa.
■ Kristín Kvaran: Bíður
spennt eftir að sjá Bandalagið
skilgreint sem flokk kerfisins.
Fjölgun leysir
ekki vandann
Harma fjölgun
stjórnmálaflokka
■ „Ég harma það að verið sé
að stofna fleiri stjórnmála-
flokka, sem þegar eru of margir.
Ég tel að menn eigi að starfa
saman og jafna sín ágreinings-
mál innan flokkanna. Þetta
veikir öll stjórnarmunstur,"
sagði Steingrímur Hermanns-
son, þegar NT sló á þráðinn, en
tók það um leið fram að þarna
væru á ferðinni margar mjög
góðar hugsjónir enda sumt tekið
beint úr stefnu Framsóknar-
flokksins. „Manngildi ofar auð-
gildi, sem þeir taka nú upp, er
gamalt kjörorð Framsóknar-
flokksins og yfirleitt held ég að
það væri mjög gott ef allir lifðu
eftir þessum hugsjónum. En
það er bara margur þrándur í
götu í þeim efnum og menn
reka sig á staðreyndir.“ Um
fylgi liins nýja flokks vildi
■ Steingrímur Hermannsson:
Hafa góðar hugsjónir, - enda
teknar frá Framsóknarflokkn-
um.
Steingrímur ekkert segja, en
taldi þó fráleitt að henn hreppti
meirihluta á Alþingi í næstu
kosningum.
Áhugavert að
fylgjast með
■ „Það er sjálfsagt að þeir
[sem vilja vinna gegn ofbeldi og
leggja áherslu á mannleg verð-
mæti verði virkir í þjóðmálaum-
ræðunni. Það verður áhugavert
að fylgjast með því hvernig þeir
munu skipuleggja innra starf
sitt og hvernig þeir hyggjast
framkvæma hugmyndir sínar,“
sagði Guðrún Agnarsdóttir,
kvennalistaþingmaður, í sam-
tali við NT. Þá kvaðst hún telja
margar hugmyndir samhygð-
armanna mjög góðar og kunn-
ugar kvennalistakonum, enda á
stefnuskrá þeirra. Innt eftir
þeim ummælum forsvarsmanna
hins nýja flokks, þess efnis að
aðrir flokkar væru kerfisflokk-
ar, svaraði Guðrún því til að
það kæmi sér spánskt fyrir sjónir
ef þær væru flokkaðar sem hefð-
bundinn stjórnmálaflokkur.
■ Guðrún Agnarsdóttir:
Keinur það spánskt fyrir sjónir
ef litið er á Kvennalistann sem
hefðbundinn „kerfisflokk“.
„Við lítum ekki á okkur sem
slíkan heldur teljum okkur
miklu fremur vera grasrótar-
hreyfingu," sagði Guðrún Agn-
arsdóttir að lokum.
Geta vel unnið
eitthvað fylgi
■ „Þaðkæmimérsvosemekk-
ert á óvart að svona hreyfing
gæti fengið eitthvað fylgi í kosn-
ingum. Það hefur sýnt sig í
tveimur kosningum að svona
flokkar fá nokkra þingmenn og
við höfum tvö slík samtök inn á
Alþingi í dag,“ sagði Þorsteinn
Pálsson í samtali við NT. „Ann-
ars veit ég ekkert fyrir hverju
þessir menn eru að berjast. Af
því sem ég hef séð sýnist mér að
þeir ætli að vinna á fremur
einföldum slagorðum, sem get-
ur þá gengið í gegnum kosning-
ar einu sinni eða svo.“ Aðspurð-
ur um þau ummæli samhygð-
armanna, að aðrir flokkar séu
kerfisflokkar og jafnvel mann-
skemmandi, sagði Þorsteinn að
slíkt hlyti að koma til af því að
þeir hefðu ekki kynnt sér málin
nógu vel. Þorsteinn sagði fylgi
■ Þorsteinn: Höfum þegar tvo
svona flokka á Alþingi.
og traust sem Sjálfstæðisflokkur-
inn, langstærsti flokkur
landsins, nyti of mikið til þess
að umrædd ummæli gætu
staðist.