NT

Ulloq

NT - 31.08.1984, Qupperneq 14

NT - 31.08.1984, Qupperneq 14
Föstudagur 31. ágúst 1984 14 1 2 Djassþáttur Vernharðar Linnet 3 djasshátíðir í dag: Rás 2 kl. 16. ■ Jassþáttur Vernharðar Linnet verður á dagskrá Rásar 2 kl. 16.00 í dag. Aðalefni þáttarins verða þrjú djassfesti- völ sém voru í sumar, í Þórs- höfn íFæreyjum, Kaupmanna- höfn og í Lignano á Ítalíu. Kvartett Kristjáns Magnús- sonar tók þátt í djassfestivalinu í Pórshöfn, og Kristján Magn- ússon verður í þættinum og spjallar við Vernharð um festi- valið, sem er það fyrsta sem haldið er í Færeyjum. Gunnar Reynir Sveinsson kemur líka og segir frá djassin- um á Ítalíu, og djassfestivalinu í Lignano. Á ltalíu er gífurlegt djasslíf, bæði fjöldi konserta og mikil plötuútgáfa, og ef sólarlandafarar hafa áhuga á djass þá er bara að skella sér á djassklúbba, sem bæði eru t.d. í Rimini og á Lignano, sagði Vernharður. Vernharður var sjálfur á djassfestivalinu í Kaupmanna- höfn og reyndar Kristján líka. Þar voru meðal annars afhent dönsku djassverðlaunin, og fékk gítarleikarinn Pierre ■ Vernharður Linnet ásamt syni sínum Steini. Dörge þau í þetta sinn. Spiluð verður tónlist með honum. Pi- erre Dörge hefur m.a. verið í Afríku og lært þar af innfædd- um, einnig var hann í danskri kvennarokkhljómsveit sem hét Hos Anne. Eins og áður segir er djass- þátturinn kl 16. Hann er hálfs- mánaðarlega á móti Bylgjum. - situr fyrir svörum í sjónvarpssal ■ Maður er nefndur Milton Friedman. Hann er nóbels- verðlaunahafi í hagfræði og boðberi frjálshyggju í efna- hagsmálum. I kvöld verður sýndur í sjónvarpinu þáttur, þar sem hann situr fyrir svörum um kenningar sínar á sviði hag- fræði og stjórnmála. Stjórn- andi er Bogi Ágústsson. Áhugamönnum um hagfræði og stjórnmál ætti að vera þetta kærkominn þáttur, því ekki er oft fjallað um hagfræði í fjöl- miðlum, þótt þetta sé sú fræði- grein sem einna mest áhrif hefur á efnahagsmál og þá daglegt líf fólks. Sjónvarp kl. 21.15 í kvöíd: Sjónvarp kl. 20.45 í kvöld: Skonrokk/^ ■ Lana Turner og félagar í Pósturinn hringir alltaf tvisvar. Sjónvarp kl. 22.10 í kvöld: Pósturinn hring- ir alltaf tvisvar Bandarísk sakamálamynd frá 1946 ■ Dægurlagaþátturinn Skonrokk verður á dagskrá sjónvarpsins í kvöld. Pegar NT hafði samband við annan umsjónarmann þáttarins, Önnu Hinriksdóttur, var fremur dauft hljóðið í henni. ■ Skyldi Susanne úr Human League koma á skjáinn í Skonrokki í kvöld? „Við höfum fengið ótrúlega lítið efni núna, varla neitt.“ Hún sagði að þær hefðu undan- farið verið að hugsa um hvað gera ætti, og líklega yrði það ofaná að endursýna gamalt efni, „því ekki þýðir að fella þáttinn niður.” Hvað heldurðu að verði mikið af nýju efni í þættinum? „Það verða líklega tvær eða þrjár nýjar spólur, og það er ekki komið á hreint hvað verður." Hvernig stendur á þessum skorti? „Innflytjendur efnisins, hljómplötufyrirtækin, hafa ekki staðið sig nógu vel. Það stendur bara þannig á að þeir hafa allir slakað á í einu.“ Við hringdum í einn af inn- flytjendunum, Steinar h/f. Pét- ur Kristjánsson sagði að þeir ættu tvær eða þrjár spólur, m.a. með George Michael og Human League, en sér hefði skilist að lítið væri um efni hjá a.m.k. sumum hinna innflytj- endanna. Pétur sagði að spólur væru mjög dýrar í innflutningi, og komið hefði fyrir að um- sjónarmenn þáttanna hefðu neitað að sýna spólur. „Þetta er í fyrsta sinn sem þetta gerist, en við eigum mik- ið af efni í pöntun og það er bara ekki komið.“ Þess má geta að spólu með HLH-flokknum var hafnað vegna þess að hún þótti of mikil Svala-auglýsing. ■ Föstudagsmyndin nefnist Pósturinn hringir alltaf tvisvar, og er bandarísk bíómynd frá árinu 1946, gerð eftir sam- nefndri sögu James M. Cain. Aðalhlutverk leika Lana Turner, John Garfield og Cecil Kellaway. Leikstjóri er Tay Garnett. Þýðandi er Bogi Arn- ar Finnbogason. Menn geta komist upp með eitt morð, en búast má við vandræðum ef um annað dráp er að ræða, jafnvel þótt það seinna hafi orðið af slysni. Eiginkona manns sem rekur veitingastað við þjóðveginn og vinnumaður þeirra, sem er elskhugi konunnar ákveða að myrða eiginmanninn. Þeim tekst það, en vekja grunsemdir yfirvalda. Þeim tekst þó ekki að sanna sekt þeirra. Eiginkona og vinnumaður- inn eru frjáls, en þegar allt virðist í besta gengi taka örlög- in málin í sínar hendur og óvæntir atburðir gerast. Líklega hafa ýmsir séð endurgerð þessarar myndar, þar sem Jack Nicholson lék vinnumanninn og Jessica Lange eiginkonuna. Sú mynd var töluvert djörf, en líklega er frumútgáfan hæfilega siðsam- leg. Gaman verður að bera þessar myndir saman, fyrir þá sem sáu nýju útgáfuna. ■ Milton Fríedman. Milton Friedman er ásamt fleirum helsti postuli þeirra efnahagsstefnu sem kom upp í byrjun núverandi efnahags- kreppu í heiminum. Allt frá stríðslokum var stöðugur upp- gangur í efnahagslífi hins kap- ítalíska heims, og kenningar hagfræðingsins Keynes um hæfileg ríkisafskipti af efna- hagslífi í hávegum hafðar. Þetta var j afnframt tímabil sós- íaldemókrata, velferðarríkis og fullrar atvinnu. Um miðjan 8. áratuginn fóru veður að skipast í lofti. Þeir hagfræðingar sem héldu því fram að kreppur hefðu verið gerðar útlægar úr hinum kapít- alíska heimi stóðu nú frammi fyrir raunveruleika kreppunn- ar. Venjuleg ráð í anda Keynes og velferðarþjóðfélagsins dugðu ekki lengur, og upp á himinfestingu stjórnmálanna skaust tvístirnið Thatcher - Reagan, sem hafði kenningar frjálshyggjunnar um óheft markaðskerfi að leiðarljósi. Friedman er fulltrúi þessara kenninga. Margir telja frjálshyggju- kenningarnar nánast rugl, en aðrir að þetta séu mjög góðir hlutir. Ýmsum hefur gengið illa að koma auga á hvernig kenningar um frjálsa sam- keppni geti komið að notum í heimi sem stjórnað er af stór- fyrirtækjum, sem eru svo stór að samkeppni við þau er ómöguleg. T.d. hafa mörg öflugustu fyrirtæki Bandaríkj- anna meira umleikis en meðal- stór iðnríki eins og Noregur eða Portúgal. En líklega getur Friedman skýrt allt þetta út. Þátturinn er á dagskrá kl. 21.15 í kvöld. Föstudagur 31. ágúst 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. i bítið. 7.25 Leikfimi. 7.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur Eiríks Rögn- valdssonar frá kvöldinu áöur. 8.00 Fréttir. 8.15 Veöurfregnir. Morgunorö - Arndís Jónsdóttir talar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Eins og ég væri ekki til“ eftir Kerstin Johansson Siguröur Helgason les þýöingu sína (14). 9.20 L?ikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar. Þulur velur og kynnir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. For- ustugr. dagbl. (útdr.). 10.45 „Þaö er svo margt að minnast á“ Torfi Jónsson sér um þáttinn. 11.15Tónleikar 11.35 Tvær smásögur a. „Leiksyst- ur“ eftir Guörúnu Jacobsen. Höf- undur les. b. „Orövana" Þórunn Magnea Magnúsdóttir les frum- samda smásögu. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynning- ar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til- kynningar. Tónleikar. 14.00 „Daglegt líf í Grænlandi" eftir Hans Lynge Gísli Kristjáns- son þýddi. Stína Gisladóttir byrjar lesturinn. 14.30 Miðdegistónleikar „La Lyra", 14.45 Nýtt undir nálinni Hildur Ei- riksdóttir kynnir nýútkomnar hljómplötur. 15.30 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður- fregnir. 16.20 Síðdegistónleikar 17.00Fréttiráensku 17.10 Síðdegisútvarp Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19.50 Við stokkinn Stjórnandi: Gunnvör Braga. 20.00 Lög unga fólksins: Þóra Björg Thoroddsen kynnir. 20.40 Kvöldvaka a. Silfurþræðir Þorsteinn Matthiasson flytur fjóröa þátt sinn af Páli Hallbjarnarsyni fyrrum kaupmanni í Reykjavík. b. Einsöngvarakvartettinn syngur 21.10 Tónlist eftir Igor Stravinsky Soffía Guðmundsdóttir kynnir. 21.35 Framhaldsleikrit: „Gilberts- málið“ eftir Frances Durbridge Endurtekinn VII. þáttur: „Bréfið“. (Áður útv. 1971). Þýð- andi: Sigrún Sigurðardóttir. Leik- stjóri: Jónas Jónasson. 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins 22.35 Kvöldsagan: „Að leiðarlok- um“ eftir Agöthu Christie Magn- ús Rafnsson les þýðingu sína (12). 23.00 Söngleikir f Lundúnum 5. þáttur: „Guys and Dolls" eftir Frank Loesser Umsjón: Árni Blandon. 23.50 Fréttir. Dagskrárlok. 24.00 Næturútvarp frá RÁS 2 til kl. 03.00. Föstudagur 31. ágúst 19.35 Umhverfis jörðina á áttatíu dögum Þýskur brúðumyndaflokk- ur. Þýöandi Jóhanna Þráinsdóttir. Sögumaður Tinna Gunnlaugsdótt- ir. 19.45 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.35 Á döfinni. Umsjónarmaður Karl Sigtryggsson. Kynnir Birna Hrólfsdóttir. 20.45 Skonrokk Umsjónarmenn: Anna Hinriksdóttir og Anna Kristín Hjartardóttir. 21.15 Milton Friedman Milton Fri- edman, nóbelsverðlaunahafi í hagfræði og boðberi frjálshyggju, situr fyrir svörum um kenningar sínar á sviði hagfræði og stjórn- mála. Umræðum stýrir Bogi Ág- ústsson, fréttamaður. 22.10 Pósturinn hringir alltaf tvis- var s/h (The Postman Always Rings Twice) Bandarísk bíómynd frá 1946, gerð eftir samnefndri sakamálasögu eftir James M. Cain. Leikstjóri Tay Garnett. Aðal- hlutverk: Lana Turner, John Gar- field og Cecil Kellaway. Dáfögur kona og elskhugi hennar koma sér saman um að losa sig við eigin- mann hennar og hagnast á því um leið. Þýðandi Bogi Arnar Finnboga- son. 00.00 Fréttir i dagskrárlok

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.