NT - 31.08.1984, Síða 30
■ Willie Banks var með sýningu fyrir áhorfendur. Hann sigraði auðveldlega í þrístökkinu þó svo
að honum hefði ekki tekist vel upp á ÓL.
Cunningham í mál
■ Enski knattspyrnumaður-
inn Laurie Cunningham hefur
hafið málsókn á hendur Real
Madrid, spánska liðinu sem
hann hefur verið samnings-
bundinn síðastliðin fimm ár.
Cunningham, fyrrum útherji
West Bromwich Albion og
enska landsliðsins, gerði samn-
ing við Real Madrid árið 1979,
upp á 100 þúsund pund á ári (4
miiljo'nir ísl. króna). En peset-
inn spánski lækkaði stöðugt í
samanburði við enska pundið,
og nú er svo komið að hann er
helmingi verðminni en hann
var árið 1979. Að jafnaði tapaði
því Cunningham 30 þúsund
pundum ári (1.2 milljón ísl.
króna).
Nú er samningur þessi útrunn-
inn, og Cunningham hefur gert
samning við franska liðið Mar-
seilles.
Skotland:
Dregið í Deildarbikarnum
■ í gær var dregið um hvaða lið leika saman í 8-liða úrslitum
í skoska Deildarbikarnum. Varð drátturinn á þessa leið:
Cowbenbeath-Rangers, Dundee-Hearts, Dundee Utd.-Celtic
og IVIcadowbank-St.Johnstone.
Leikirnir verða miðvikudaginn 5. sept.
islandsmótið 1. deild -13 umferð
NT-LIÐ UMFERÐARINNAR
Þorsteinn Bjarnason ÍBK (2)
Gylfi Rútsson Víkingi (1) Grímur Sæmundsen Val (4)
Þorsteinn Þorsteinss. Fram (3)
Guðmundur Kjartanss. Val (2)
Einar Ásbjörn Ölafss. ÍBK (2) Karl Þórðarson ÍA (4)
Gunnar Gíslason KR (1)
Kristinn Guðmundss. Víkingi (3) Jón G. Bjarnason KR (1)
Föstudagur 31. ágúst 1984 30
Frálsíþróttamót í Köblenz
Sýning Banks
Willie Banks var með „show“
Moses sigraði í 108. skipti
■ Nú stendur yfir mikið mót í
frjálsum íþróttum í Köblenz í
V-Þýskalandi. Fjöldi þekktra
keppenda er á mótinu og má
nefna að Edwin Moses keppti í
400 m grind og sigraði að
sjálfsögðu. Annars eru hér
helstu úrslit:
40ðm grindahlaup
Edwin Moses U.S. 47,32
Harald Schmidt V-Þ. 48,04
Langst. kvenna
Eva Murkova Tékkó. 6,63
Anna Wlodarczyk Pól. 6,55
Carol Lewis U.S. 6,54
lOOm hlaup karla
Kirk Baptiste U.S. 10,30
Calvin Smith U.S. 10,34
lOOm hlaup kvenna
V. Brisco-Hooks U.S. 11,08
Diane Williams U.S. 11,18
Kringlukast karla
Alwin Wagner V-P. 64,80
Rolf Danneberg V-Þ. 64,26
400m hlaup karla
Ray Armstead U.S. 45,03
Alonzo Babers U.S. 45,07
1500m hlaup karla
Said Aouita Morocco 3:34,10
Þrístökk karla
Willie Banks U.S. 17,39
Lazaro Betancourt Kúbu 16,94
200m hlaup karla
James Butler U.S. 20,53
Desai Williams Kanada 20,75
80ðm hlaup karla
Johnny Gray U.S. 1:42,96
40ðm hlaup kvenna
Jarmila Kratochvilova Tékkó. 49,81
Míluhlaup karla
Steve Cram Bretl. 3:49,64
John Walker N-Sjál. 3:49,73
Tíminn sem Moses hljóp á er
sá besti á árinu og nú hefur
hann sigraði í 108 skipti í röð.
Steve Cram ætlaði að setja
heimsmet í míluhlaupinu en
honum tókst það ekki frekar en
fyrri daginn. Reyndar var
gamla kempan John Walker
nærri því að sigra í hlaupinu en
hann átti feiki góðan enda-
sprett. Said Aouita ætlaði sér
að setja heimsmet í 1500m
hlaupinu en mistókst hrapa-
lega. Ólympíumeistarinn í
400m hlaupi Alonzo Babers
tapaði fyrir félaga sínum Ray
Armstead og V. Brisco-Hooks
sigraði loks í spretthlaupi, en
nú í lOOm og sá sigur var
naumur.
í þrístökki karla eða „The
Willie Banks Show“ (Sýning
Willie Banks) eins og keppi-
nautar hans kölluðu keppnina,
sigraði Banks með yfirburðum.
Hann er þekktur fyrir ýms
uppátæki eins og að hita upp
með vasadiskótæki á sér og
dansar þá jafnan fyrir áhorf-
endur.
Kirk Baptiste sigraði heims-
methafann Calvin Smith í lOOm
hlaupinu.
Jafntefli
■ Norðmenn og Pólverjar skildu jafnir í
vináttulandsleik í knattspyrnu í Osló í
gxrkvöldi (miðvikudag) 1-1. Það voru Pól-
verjar scm náðu forystu í upphafi seinni
hálfleiks en Norðmenn jöfnuðu um 10
mínútum síðar. Mark Pólverja gerði Rysz-
ard Tarasiewkz en Vidar Davidsson jafnaði
fyrir Norðmenn.
Alls 11.430 áhorfendur voru á vellinum.
Litlaust á Ítalíu
Heimir Karlsson Víkingi (7)
Veislu- og fundaþjónustan
Höfum veislusali fyrir hverskonar
samkvæmi og mannfagnaði.
Fullkomin þjónusta og veitingar.
Vinsamlega pantið tímanlegafyrir veturinn.
RISIÐ Veislusalur
Hverfísgötu 105
símar: 20024 -10024 - 29670.
Borgarnes:
Golfmót fyrir
draumaaldurinn
■ Samkvæmt frcttatil-
kynningu sem NT fékk
frá kylfingum í Borgar-
nesi er draumaaldurinn
að ná 55 árum. Fyrir
stráka og stelpur sem náð
hafa draumaaldrinum er
haldið golfmót þar um
næstu helgi, leiknar 18
holur með og án forgjaf-
ar.
Mótið cr laugardaginn
1. september, og verður
haldið í góðu veðri sem
veðurguðirnir ku hafa
lofaö Borgnesingum.
Veitt verða verðlaun fyrir
hesta árangur með og án
forgjafar, og að auki
verðlaun fyrir að vera
næstur holu á 1. braut.
Verðlaunin gefur Esso-
stöðin í Borgarnesi.
Borgnesingar segja að
gamla góða hallandi flöt-
in á 7. braut sé komin á
spjöld golfsögunar, og sé
orðin par 5.
I
■ Úrslit á Ítalíu í 3. umferð
bikarkeppninnar í knattspyrnu
voru þessi í fyrrakvöld:
1. riðill:
Como-Triestina................. 3-0
Carrarese-Mílanó ............. 0-2
Brescia-Parma ................ 1-1
2. riðill:
Inter Mílanó-Francavilla...... 3-1
Avellino-Spal...............frestað
Pisa-Bologna ................. 2-1
3. riðill:
Lazio-Pistolese............... 3-1
Varese-Roma.................... 0-0
Podova-Genoa ................... 0-1
4. riðill:
Cremonese-Monza................ 2-2
Vicenza-Toríno................. 0-0
Cesena-Empoli.................. 1-2
5. riðill:
Verona-Casarano ................ 5-0
Ascoli-Campobasso............... 2-2
Benevento-Catania ............ 1-0
6. riðill:
Sampdoria-Cavese............... 8-1
Udinese-Lecce ................ 2-1
Catanzaro-Bari.................. 0-1
7. riðill:
Juventus-Taranto .............. 1-0
Atalanta-Cagliari............. 1-0
Palermo-Sambenedettese .... 2-0
8. riðill:
Perugia-Napoli ................. 0-0
Fiorentina-Casertana.......... 1-1
Arezzo-Pescara................ 1-1
Eins og sjá má af þessum
úrslitum ríða stórliðin mörg
ekki feitum hestum frá þeim
smærri. Þau gætu þó skriðið í
áframhald bikarkeppninnar,
því efstu tvö liðin í hverjum
riðli fara áfram, eftir að einföld
umferð hefur verið leikin.
Erlendu stjörnurnar voru
ekki í sviðsljósinu í þessum
leikjum, og oílu sumar hverjar
vonbrigðum. Allra augu
mændu á Brasilíumanninn
Socrates, sem keyptur var til
Fiorentina í sumar fyrir 81
milljón króna. Kjaftasögurnar
á Ítalíu hafa jafnvel gengið svo
langt að bera að Socrates sé
slæmur fyrir hjarta, en læknir-
inn neitar því staðfastlega.
Engu að síður náði Fiorentina
aðeins jafntefli heima gegn 3.
deildarliðinu Casertana, og
Socrates var lítt áberandi í
leiknum.
Svipaða sögu er að segja af
Napóli, þar sem Diego Mara-
dona frá Argentínu, keyptur í
sumar fyrir 225 milljónir króna
lék nokkrum verðflokkum
neðar. Þar var markalaust jafn-
tefli gegn annarrardeildarliði
Perugia.
Evrópu-úrslitaliðið Roma
gerði einnig markalaust jafn-
tefli, við þriðjudeildarliðið
Varese, og nú þegar þrír leikir
eru búnir af fimm, er Roma í
þriðja sæti í riðlinum á eftir
Genoa og Lazio.
Brasilíumaðurinn Junior var
tekinn útaf í miðjum leik Tor-
ínó gegn Vicenza á útiveili. Þar
varð markalaust jafntefli.
Meistarar Juventus, Lazio,
AC Mílanó og Udinese unnu
öll sína leiki. Sampdoria vann
einnig stórt, með þá Graeme
Souness og Trevor Francis í
fararbroddi, 8-1 þriðjudeildar-
liðið Cavese. Verona sýndi
einnig styrk, vann Casarano
5-0.
■ Maradona - spilaði undir
verði.