Morgunblaðið - 31.07.2004, Síða 16
ERLENT
16 LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Kerry þykir hafa tekiðáhættu, sem virtist nán-ast óhugsandi af hálfudemókrata ekki alls fyrir
löngu, með því að skora á George W.
Bush forseta til rökræðu um hefð-
bundin gildi og öryggismál, tvær
meginstoðir velgengni repúblikana á
síðustu árum.
Þetta er áskorun sem Kerry og
ráðgjafar hans virðast telja óhjá-
kvæmilega fyrir fyrstu forsetakosn-
ingarnar eftir hryðjuverkin 11. sept-
ember 2001. Kerry leitaðist við að
svara þeim sem hafa gagnrýnt hann
síðustu mánuðina og segja að hann
sé of frjálslyndur, of vitsmunalegur
og skorti kímnigáfu.
Hann gagnrýndi ennfremur
stefnu Bush og lagði áherslu á að
Bandaríkjamenn hefðu fleiri kosti.
Hann færði rök fyrir því, oft með
hvössu orðalagi, að hægt væri að
tryggja öryggi Bandaríkjanna með
öðrum hætti, til væri betri leið til að
stuðla að hagsæld og hægt væri að
stjórna landinu án þess að valda eins
mikilli sundrungu.
„Ég verð forseti sem mun aldrei
afvegaleiða þjóðina í stríð,“ sagði
Kerry. „Ég mun hafa varaforseta
sem heldur ekki leynilega fundi með
þeim, sem menga, til að endursemja
umhverfisverndarlögin. Ég mun
hafa varnarmálaráðherra sem mun
gefa gaum að ráðum leiðtoga hers-
ins. Og ég mun skipa dómsmálaráð-
herra sem verndar stjórnarskrá
Bandaríkjanna.“
Útlistaði ekki stefnu sína
í málefnum Íraks
Athyglisvert þótti þó hverju
Kerry sleppti í ræðunni og vakti það
spurningar um hvaða leið hann og
flokksbræður hans hafa valið í kosn-
ingabaráttunni. Líkt og aðrir ræðu-
menn á flokksþingi demókrata
minntist Kerry aðeins lítillega á
Íraksmálin, sem hafa verið í brenni-
depli í kosningabaráttunni, valdið
ágreiningi meðal demókrata og
stundum staðið Kerry fyrir þrifum.
Margir Bandaríkjamenn svipast
nú um eftir einhverri útgönguleið í
Írak og velta því fyrir sér hvort for-
setaefni demókrata hafi skýra áætl-
un, sem sé ólík stefnu Bush, en
Kerry lét nægja að segja að hann
vissi hvernig leysa ætti vandamálin.
Nokkur áhrifamikil dagblöð í
Bandaríkjunum sögðu að Kerry
hefði misst af tækifæri til að útskýra
fyrir þjóðinni hvað hann hygðist fyr-
ir í málefnum Íraks og efnahags-
málum.
„Kerry missti af tækifæri til að
gefa afdráttarlaus svör,“ sagði The
Washington Post og gagnrýndi for-
setaefnið fyrir að leiða hjá sér „þá
óþægilegu spurningu hvort hann
hefði farið í stríð í Írak, væri hann
forseti“.
„Hann sagði ekki orð til að fagna
því að Afganar voru frelsaðir undan
valdi talibana, eða Írakar undan
Saddam Hussein, og ekki eitt ein-
asta orð um hvernig hjálpa ætti
þessum þjóðum að koma á lýðræði,“
bætti The Washington Post við í for-
ystugrein.
The New York Times gagnrýndi
einnig Kerry fyrir að hafa ekki lagt
fram skýra áætlun um hvernig
koma ætti á friði og lýðræði í Írak
og sagði að kjósendur þyrftu að
heyra hann segja að honum hefðu
orðið á mistök með því að styðja þá
ákvörðun Bush forseta að fyrirskipa
innrás í Írak. „Ljóst er núna að
Kerry ætlar ekki að gera þetta og
það er synd,“ sagði The New York
Times í forystugrein.
USA Today sagði að á fjögurra
daga flokksþingi demókrata í Bost-
on hefði verið vel staðið að því að
kynna frambjóðendur flokksins í
kosningunum í nóvember. „Vanda-
málið er hins vegar að Kerry fer frá
Boston án þess að hafa gefið kjós-
endum skýra mynd af því hvað hann
hyggst gera í mikilvægustu málefn-
unum: stríðinu gegn hryðjuverka-
starfsemi og ófremdarástandinu í
Írak. Stefna hans í þessum málum
virðist vera eins og stefna Bush.“
Loforðin sögð óraunhæf
USA Today fagnaði yfirlýsingu
Kerrys um að hann myndi ekki hika
við að beita hervaldi til að tryggja
öryggi Bandaríkjanna og að hann
hygðist halda áfram baráttunni
gegn hryðjuverkastarfsemi í heim-
inum. „Stóra spurningin er hins veg-
ar hvaða kosti Kerry sér til að koma
á stöðugleika í Írak og halda áfram
baráttunni gegn íslamskri þjóðern-
ishyggju og hryðjuverkamönnunum
sem aðhyllast hana,“ sagði USA
Today. Blöðin gagnrýndu einnig
stefnu Kerrys í efnahagsmálum.
Hann hét því meðal annars að
minnka skattbyrði millistéttarinnar
en The New York Times lýsti því
loforði sem ómerkilegri kosninga-
brellu.
Kerry lofaði einnig að koma í veg
fyrir að fleiri bandarísk störf færð-
ust til annarra landa og gera ráð-
stafanir til þess að Bandaríkin væru
ekki lengur háð olíu í Mið-Austur-
löndum. The Washington Post sagði
að þessi loforð væru ekki raunhæf.
Demókratar tóku áhættu
Dan Balz, fréttaskýrandi The
Washington Post, skrifaði að hvorki
Kerry né John Edwards, varafor-
setaefni demókrata, hefðu notað
tækifærið til að blása til sóknar
gegn keppinautum sínum eða færa
sannfærandi rök fyrir því hvers
vegna Bandaríkjamenn ættu að
hafna Bush og stjórn hans. Ráðgjaf-
ar Kerrys teldu að kjósendurnir
væru nú þegar orðnir fúsir til að
snúa baki við Bush og aðeins þyrfti
að sannfæra þá um að þeir gætu
treyst Kerry.
„Þeir hafa ef til vill rétt fyrir sér,
en þeir tóku líka áhættu,“ skrifaði
Balz og bætti við að Kerry fengi
ekki betra tækifæri til að færa rök
fyrir því hvers vegna nauðsynlegt
væri að skipta um forseta fyrir
kappræðurnar í haust.
Á flokksþinginu var lögð mikil
áhersla á að sannfæra kjósendur um
að Kerry og demókratar væru stað-
ráðnir í því að tryggja öryggi
Bandaríkjanna. Kerry skírskotaði
til þess að hann barðist í Víetnam-
stríðinu þegar hann reyndi að sann-
færa kjósendur um að þeir gætu
treyst demókrötum til að halda
áfram baráttunni gegn hryðjuverka-
starfsemi. „Ég varði landið sem
ungur maður og ég mun verja það
sem forseti,“ sagði hann.
Kerry notaði hvert tækifæri til að
skírskota til bandaríska fánans og
reynslu sinnar sem hermanns fyrir
35 árum í því skyni að tengja sig við
föðurlandsást og sannfæra kjósend-
ur um að hann væri sérlega vel til
þess fallinn að gegna forsetaemb-
ættinu. „Sem forseti mun ég heyja
þetta stríð með þeim lærdómi sem
ég dró af stríðinu.“
Frá þingkosningunum fyrir
tveimur árum hafa demókratar ver-
ið tregir til að setja öryggismálin á
oddinn þar sem Bush hefur verið
talinn sterkastur á því sviði. Ræða
Kerrys bendir til þess að þetta hafi
breyst og að hann telji að eina leiðin
til að sigra í forsetakosningunum
felist í því að sýna að demókratar
hafi lagað sig að breyttum aðstæð-
um eftir hryðjuverkin 11. september
og taki öryggismálin alvarlega.
John Kerry heitir því að „endurreisa traust og trúverðugleika forsetaembættisins“
ReutersJohn Kerry heilsar fundarmönnum eftir að hann var formlega valinn forsetaefni demókrata á flokksþingi þeirra í Boston í fyrradag.
Gagnrýndur fyrir að
sneiða hjá Íraksmálunum
Boston. The Washington Post, Los Angeles Times, AFP.
’Kerry missti af tækifæri til að gefa
afdráttarlaus svör.‘
JOHN Kerry leitaðist við að lýsa sér sem holdtekju föðurlandsástar og hefð-
bundinna, bandarískra gilda í ræðu sem hann flutti á flokksþingi demókrata í
Boston í fyrrakvöld þegar hann var formlega valinn forsetaefni flokksins.
Hann hét því að bæta tengslin við bandamenn Bandaríkjanna erlendis og
„endurreisa traust og trúverðugleika forsetaembættisins“ en bandarísk dag-
blöð gagnrýndu hann fyrir að útskýra ekki fyrir þjóðinni hvað hann hygðist
gera í Íraksmálunum og til að styrkja efnahag Bandaríkjanna.
Á DEGI hverjum láta hundruð
manna lífið í Darfur-héraði í Súdan
vegna þess að þarlend stjórnvöld
hafa ekki afvopnað vígasveitir sem
herjað hafa á héraðið. Fréttavefur
BBC-útvarpsins hafði þetta eftir
sendiherra Bandaríkjanna hjá Sam-
einuðu þjóðunum, John Danforth,
sem hvatti öryggisráð samtakanna
til að hóta stjórnvöldum í Súdan
refsiaðgerðum yrðu vígamennirnir
ekki afvopnaðir innan mánaðar.
Að minnsta kosti sjö ríki af fimm-
tán í öryggisráðinu voru andvíg því
að Súdan yrði hótað refsiaðgerðum.
Bandaríkjamenn féllust því á að
milda orðalag ályktunardraganna,
þannig að hótað yrði „aðgerðum“ í
stað „refsiaðgerða“.
Ályktunin var samþykkt með
þessari breytingu í gær. Danforth
sagði að aðgerðirnar, sem öryggis-
ráðið hótaði, gætu falið í sér refsiað-
gerðir.
Stjórn Súdans hét því 3. júlí að af-
vopna vígamennina í Darfur og
Bandaríkjamenn vildu að öryggis-
ráðið hótaði refsiaðgerðum yrði ekki
staðið við þetta loforð. Sjö ríki – Pak-
istan, Kína, Rússland, Alsír, Angóla,
Filippseyjar og Brasilía – vildu hins
vegar að hótuninni um refsiaðgerðir
yrði sleppt þar sem þau töldu að
stjórn Súdans þyrfti meiri tíma til að
afvopna vígamennina.
2,2 milljónir manna
þarfnast hjálpar
Eftirlitsmenn Afríkusambandsins
í Darfur skýrðu frá því í vikunni að
arabískir vígamenn hefðu ráðist á
þorp í héraðinu fyrr í mánuðinum og
myrt íbúana, suma með því að
hlekkja þá og brenna lifandi.
Að minnsta kosti 30.000 manns og
hugsanlega allt að 50.000 hafa látið
lífið í átökunum sem staðið hafa í 17
mánuði í Darfur. 1,2 milljónir manna
hafa flúið heimkynni sín vegna átak-
anna og áætlað er að 2,2 milljónir
manna þarfnist matvæla eða lækn-
ishjálpar.
Sameinuðu þjóðirnar óskuðu eftir
framlögum, að andvirði alls 349
milljónum dollara, 25 milljarða
króna, vegna hjálparstarfsins í Darf-
ur. Kofi Annan, framkvæmdastjóri
samtakanna, sagði að þau hefðu
fengið tæpan helming þeirrar fjár-
hæðar.
Hundruð manna týna lífi
á hverjum degi í Darfur
,
()* + ' '& , & - .% / ' 0 %
. 1 -
. 2 - 3
4& 5
-
3 5
-
. 5
-
6=
<D !
4
3%
; :3 :=
T
)
;"."%
':
A!
-UG'6
J
%
D .. %
E
J
J
-*
J
%L&
@
: