Morgunblaðið - 31.07.2004, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 2004 21
FERÐALÖG
N
ýja-Sjáland er í Suður-
Kyrrahafinu um 1.700
kílómetra sunnan við
Ástralíu. Nýja-Sjáland er
eyjaklasi þar sem mest
fer fyrir tveimur stórum eyjum sem
kenndar eru við norður og suður.
Helga María var á Suðureyjunni, um
það bil eins langt og hægt er að
komast frá Íslandi á byggt ból. Bær-
inn sem hún bjó í heitir Mosgiel.
Á Nýja-Sjálandi búa hinir fornfrægu
maórar (frumbyggjar) og frá þeim
er komin mikil og merk menning. Á
þessum ævintýralegu eyjum eru 60
milljónir kinda og hinn ófleygi kíwí-
fugl er tákn Nýja-Sjálands.
Hvers vegna valdir þú að fara
hinum megin á hnöttinn?
„Þegar mér bauðst að fara út sem
skiptinemi langaði mig til að fara
eitthvað langt í burtu á stað sem ég
ætti örugglega ekki eftir að fara á
sem ferðamaður. Ég ætlaði til Ástr-
alíu af því mig hefur alltaf langað
þangað, en þar var ekki laust AFS-
pláss, svo ég fór til Nýja-Sjálands í
staðinn og þetta var besta ár lífs
míns hingað til.“
Var ekki erfitt að ákveða hvað þú
ættir að taka með þér til árs-
dvalar?
„Jú, það var sko erfitt því ég á það
til að taka með mér miklu meira en
ég þarf á að halda. Ég náði þó að
taka aðeins með mér 20 kíló þegar
ég fór út. Mun erfiðara var að kom-
ast heim með allt sem ég hafði
sankað að mér. Tveir kassar frá mér
bíða enn á Nýja-Sjálandi eftir því að
verða sendir hingað heim til mín.“
Kynntist þú öðru fólki en
Nýsjálendingum?
„Já, ég eignaðist fullt af vinum alls
staðar að úr heiminum og meðal
annars eignaðist ég tvær mjög góð-
ar vinkonur frá Belgíu og Þýska-
landi. Ég kynntist líka frábærum
krökkum frá Noregi, Frakklandi,
Finnlandi, Brasilíu, Argentínu, Ítalíu,
Ameríku og Asíu. Þau voru æðisleg
og ég sakna þeirra ótrúlega mikið.“
Ferðaðist þú mikið meðan á dvöl-
inni stóð?
„Já, ég ferðaðist mjög mikið og fór
til dæmis um alla Norðureyjuna í 12
daga rútuferð með 40 öðrum
skiptinemum. Ég fékk líka tækifæri
til að ferðast um Suðureyjuna.
Nýja-Sjáland er ótrúlega fallegt
land eins og sést vel í
Hringadróttinssögubíómyndunum,
sem teknar voru upp á Nýja-
Sjálandi.“
Var skólinn á Nýja-Sjálandi ólíkur
því sem þú átt að venjast hér á
Íslandi?
„Já, við þurftum að vera í skólabún-
ingi sem mér fannst ekkert voða-
lega spennandi fyrst en vandist
því fljótt. Einu sinni í viku var hald-
inn fundur í salnum og þar þurftum
við að standa upp fyrir skólastjór-
anum eins og drottningu og syngja
þjóðsönginn.“
Gerðir þú eitthvað á Nýja-
Sjálandi sem þú hefur aldrei gert
áður?
„Já, ég fór í fallhlífarstökk og það
var frábært. Við flugum upp í
12.000 feta hæð og stukkum svo út
með leiðbeinendum. Ég hef aldrei
verið hræddari á ævinni en ég lét
mig hafa það og sé ekki eftir því. Ég
fór líka á sjóskíði og ég var til í að
prófa allt sem mér gafst tækifæri til
nema teygjustökk, mamma var bú-
in að banna mér að prófa það. Ég
gerði margt annað skemmtilegt,
vann til dæmis í sjálfboðavinnu með
fötluðum börnum á hestagarði.“
Sástu margar kindur?
„Já, það var fullt af kindum og ólík-
ar og fyndnar tegundir alls
staðar. Til dæmis hin fræga Shrek
kind sem var ekki rúin í 6 ár af því
að enginn fann hana.“
Borðaðir þú kíwífugl?
„Nei, þeir eru verndaðir fuglar og
lítið eftir af þeim. Svo eru þeir líka
svo sætir að ég gæti ekki hugsað
mér að borða þá.“
Kynntist þú maórum (frum-
byggjum)?
„Nei, ekki mikið, en ég fór og sá
nokkrar sýningar um þá og ég
smakkaði þjóðarrétt þeirra sem
heitir Hangi. Það er kjöt sem er
grafið niður í jörðina og eldað þar
með heitum steinum í nokkra daga
og það var mjög gott.“
Fannstu ástina á Nýja-Sjálandi?
„Já, ég fann hann James og hann
er bestur. Hann ætlar að koma í
heimsókn til mín í desember og
vera á Íslandi yfir áramótin. Hann
hlakkar mikið til að sjá flugeldabrjál-
aða Íslendinga.“
Helga María Gunnarsdóttir,
18 ára Reykjavíkurmær, er
nýkomin frá Nýja-Sjálandi
eftir að hafa dvalið þar
í eitt ár sem skiptinemi.
Morgunblaðið/Þorkell
Helga María og ferðatöskufargan
við heimkomuna frá Nýja Sjálandi.
Litli frændi hennar bjó til skiltið
uppi á vegg til að fagna heimkomu
hennar.
Borðaði ekki kíwífugl
en stökk úr fallhlíf
/.
Sportlegt frí á Spáni
ÍT FERÐIR eru komnar með umboð á
Íslandi fyrir La Manga Club, í nágrenni
Murcia á Spáni. La Manga hefur verið
lýst sem heilum heimi útaf fyrir sig, en
staðurinn hlaut World Travel Award
verðlaunin í flokki golfdvalarstaða árið
2003. Auk golfs er þá hægt að stunda
fjölda annarra íþrótta í La Manga, m.a.
knattspyrnu og tennis, en svæðið
geymir þrjá golfvelli, tennisvelli, átta
knattspyrnuvelli, heilsurækt og Spa.
Flogið verður í beinu flugi til La Manga
29. september nk. Á öðrum tímum má
fljúga til Murcia eða Alicante, í gegn-
um London eða Kaupmannahöfn.
Fornleifarölt og latínudjass
Á HÓLUM í Hjaltadal verður um versl-
unarmannahelgina boðið upp á forn-
leifarölt um Hólastað undir leiðsögn
fornleifafræðings. Þá er þar einnig að
finna sýningu á merkum gripum í setu-
stofu Hólaskóla. Á sunnudeginum
verður haldin guðsþjónusta í Hóla-
dómkirkju kl. 11, en kl. 15 um daginn
verður latíndjass í kirkjunni með Hav-
anabandi Tómasar R. Einarssonar
kontrabassaleikara.
Ferðamál í brennidepli
FAR heitir nýtt tímarit um ferðamál
sem kom út á dögunum. Tímaritinu er
ætlað að fjalla um allar hliðar ferða-
mála, innlendar sem erlendar og er
kappkostað að þjóna lesendum með
því að birta bæði fræðandi greinar,
sem og greina frá tilboðum og gisti-
möguleikum.
Ritstjóri er Vilmundur Hansen.
Nánari upplýsingar um La
Manga Club hjá ÍT ferðum
Símanúmer: 588 9900
Faxnúmer: 588 9901
Netfang: golf@itferdir.is
Vefföng: www.itferdir.is
www.lamanga.com
Upplýsingar um Hóladagskrá:
Ferðaþjónusta Hólaskóla
Símanúmer: 455 6334
Faxnúmer: 455 6301
Veffang: www.holar.is
khk@mbl.is
ÍSLENDINGAR eru þekktir fyrir
kaupgleði í útlöndum. Engan þarf
því að undra að Íslendingar hafi
fljótt orðið eftirlæti kaupmanna og
annarra athafnamanna í Porec og
næsta nágrenni á Ístríu-skaga í
Króatíu eftir að þeir tóku að
streyma þangað snemma í vor.
En hvað kaupir fólk í Króatíu?
Skemmst er frá því að segja að
ferðamenn verða að leggja leið sína
til stærri borga eins og Pula til að
festa kaup á hefðbundnum tísku-
fatnaði, t.d. Diesel, Levi’s og
þekktri ítalskri merkjavöru. Benet-
ton-búðir eru þó í flestum ferða-
mannabæjum. Meðalverð á fatnaði
er að jafnaði nokkru lægra en á Ís-
landi og úrvalið oft með ágætum.
Aftur á móti er ekki rétt að treysta
því að hræódýr merkjafatnaður og
fylgihlutir á götumörkuðum beri
endilega traust merki uppruna síns.
Gucci-sólgleraugu á 50 kúnur (um
600 kr.) endast þér ekki endilega
ævina alla!
Bestu kaupin í ferðamannabæj-
um eins og Porec eru án efa í gull-
og silfurskartgripum. Óhætt er að
treysta gullsmiðum (zlatar) í hefð-
bundnum skartgripaverslunum og
úrvalið af smekklegum skart-
gripum fyrir konur og karla er yf-
irleitt gott. Gnótt er af ýmiss konar
handunnum minjagripum í ferða-
mannabæjum í Króatíu, t.d. má
víða fá falleg málverk, listaverk úr
tré og leir á góðu verði. Fagurlega
handunnir dúkar endurspegla vel
menningarlega arfleifð Króata.
Bókaormar ættu að varast að
geyma kaup á kiljum á ensku
þangað til komið er á áfangastað.
Stundum er eins og að leita að nál í
heystakk að finna slíkar bók-
menntir á hefðbundnum ferða-
mannaslóðum í Króatíu. Á slóðum
ferðamanna eru búðir yfirleitt opn-
ar langt fram á kvöld á hverjum
degi.
Liðleg þjónusta á veitingahúsum
Ekki borgar sig að eyða of
stórum hluta fjármuna sinna í ver-
aldlega hluti. Þegar allt kemur til
alls felst besta fjárfestingin í því að
ná að slappa vel af í fríinu og gæða
sér á ljúffengum veitingum á króat-
ískum veitingahúsum. Engin
ástæða er til að elda flókna rétti á
hótelinu þótt eldunaraðstaða sé fyr-
ir hendi. Að borða á veitingahúsum
er bæði þægilegra og skemmti-
legra. Verðið ætti heldur ekki að
þvælast fyrir hinum venjulega Ís-
lendingi. Hver máltíð kostar á
bilinu 30 til 80 kn eða á bilinu 400
til 1.000 ísl. kr. (fyrir utan drykki).
Þjónustan er góð og ákaflega
sveigjanleg, t.d. er auðsótt að
skipta einum skammti í tvo þegar
ferðast er með lítil börn, fá soðnar
kartöflur í staðinn fyrir franskar og
áfram mætti telja. Ef þjónustan er
góð þykir kurteisi að gefa þjórfé.
Ferskleiki umfram annað
Veitingahús leggja metnað sinn í
að bjóða upp á nýtt kjöt og fisk-
meti með tilheyrandi grænmeti og
ávöxtum. Hvers konar ávextir og
grænmeti vaxa í Króatíu, t.d. fíkj-
ur, appelsínur, ferskjur, apríkósur,
nektarínur, tómatar, kartöflur, ólíf-
ur og vatnsmelónur að ógleymdum
vínberjunum. Víða er boðið upp á
þessar vörur ásamt víni og ólífu-
olíu á söluborðum við vegkantinn.
Á Ístríu-skaganum gætir tölu-
verðra áhrifa frá Ítalíu í matargerð
og hægt er að fá vinsæla rétti á
borð við lasagna, spaghetti bologn-
ese og pítsur af öllu tagi alls staðar
í Króatíu. Eins og í öðrum stór-
borgum er hægt að ganga að
McDonalds-veitingahúsum og öðr-
um alþjóðlegum veitingahúsakeðj-
um í flestum stærri borgum.
Að ítalska matnum ólöstuðum
eru ferðamenn hvattir til að bragða
á sérréttum heimamanna. Cevapi
er vinsæll réttur meðal barna og
fullorðinna. Rétturinn sam-
anstendur af hökkuðu ungnauta-
eða lambakjöti í litlum rúllum og er
stundum borinn fram í eins konar
pítubrauði (somun). Hann kemur
raunar frá Bosníu og á rætur að
rekja alla leið til Miðausturlanda.
Af öðrum réttum má nefna pršut,
þ.e. þurrreykta skinku, geitaost,
kúaost og fleiri tegundir af osti. Þá
er pasulj, baunasúpa með beikoni
og pršut, einstaklega ljúffeng. Hik-
ið ekki við að prófa fleiri króatíska
rétti. Bragðið kemur á óvart.
Verði ykkur að góðu!
KRÓATÍA|
Bestu kaupin
Gull og
gómsæt-
ir réttir
ago@mbl.is
Reuters
Ferskmeti: Fiskimenn yfirgefa höfnina í Trogir til að kasta netum við
Solta-eyju. Sjö milljónir Evrópubúa heimsækja Króatíu ár hvert, svo fiski-
menn standa í ströngu við að afla nægs sjávarmetis fyrir veitingastaðina.
Morgunblaðið/Anna G. Ólafsdóttir
Sól og sumar:
Eftir góða af-
slöppun á
ströndinni er
tilvalið að
gæða sér á
kræsingum á
dæmigerðum
króatískum
veitingastað.
Hvaðan ertu að koma?