Morgunblaðið - 31.07.2004, Qupperneq 30
MINNINGAR
30 LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Þegar við kvöddum
hana systur okkar á
Landspítalanum þar
sem hún var á leið til
Eyja, var okkur orðið
ljóst að hún var búin að tapa bar-
daganum fyrir þeim veikindum sem
hún var með. En okkur grunaði
ekki að við værum að kveðja hana í
síðasta skipti í jarðnesku lífi.
Kristný Hulda veikist fyrir tæp-
um tveimur árum og háði hetjulega
baráttu fyrir tilvist sinn. Hún hafði
nýlega keypt sér yndislega íbúð á
Skólaveginum og hafði hún bæði
mikið yndi af og hæfileika að búa
fallegt heimili því íbúðin hennar var
áður skrifstofa fyrir verkalýðsfélag.
Allt sem hún gerði var gert af svo
mikilli smekkvísi og urðu allir hrifn-
ir af hve fallegt heimili hún hafði
búið sér og sínum. Það er reyndar
ekki skrýtið að henni skyldi takast
svo vel til með heimilið þar sem hún
systa var mikil hagleikskona í hönd-
unum. Það var alveg sama hvað hún
tók sér fyrir hendur svo sem að
klippa systur sínar þegar hún var
lítil eða prjóna. Hún var alltaf að
prjóna eitthvað og gefa börnunum
okkar húfur, peysur ofl. Það var
ljóst frá hennar fyrstu árum að þar
færi kona sem hafði fengið mikið í
vöggugjöf. Að læra var ekki vanda-
mál hjá henni. Hún varð fyrirmynd
KRISTNÝ HULDA
GUÐLAUGSDÓTTIR
✝ Kristný HuldaGuðlaugsdóttir
fæddist í Vest-
mannaeyjum 4.
ágúst 1954. Hún
andaðist á Heil-
brigðisstofnun Vest-
mannaeyja 18. júlí
síðastliðinn og var
jarðsungin frá
Landakirkju 24. júlí.
okkar hvað varðar
dugnað og eljusemi. Í
vinnu var hún á við
marga. Hún hafði því-
líka orku að um var
talað.
Við vitum að hún er
núna á góðum stað og
mun halda áfram að
nýta orkuna sína til að
búa til eitthvað fallegt
fyrir sig og aðra. Við
trúum að hún sé núna
hamingjusöm þar sem
ein af hinstu óskum
hennar var að gifta sig
og fékk hún þá ósk
sína uppfyllta skömmu áður en hún
kvaddi þennan heim.Við gætum
haldið áfram í marga daga að tala
um alla hennar góðu kosti og allar
þær góðu minningar sem við eigum
og munu ylja okkur í framtíðinni.
Elsku mamma, Jón, Rúnar, Lilja,
Guðlaugur og Bogi Ágúst, við vott-
um ykkur okkar dýpstu samúð.
Guðrún Erla
Guðlaugsdóttir,
Gylfi Þór Guðlaugsson,
Erna Guðlaugsdóttir.
Sumardagur í Vestmannaeyjum
árið 1977. Einn af þeim fáum dög-
um þar sem maður gat hlaupið um
á sundbol að hjálpa Guðlaugi afa að
slá grasið við Brimhólabraut 32
ásamt frænkum og frændum í
stjórn mömmuafa, eins og hann var
kallaður á mínu heimili. Í seinni tíð
komst ég að því að föðurafi minn
hafði byggt húsið við Brimhóla-
braut 32 og selt síðan móðurafa
mínum það í gosinu þegar hann
missti hús sitt undir hraun á ör-
stuttri stundu.
Mikið vatn hefur runnið til sjávar
síðan þá. Guðlaugur afi dó úr
krabbameini og nú er dóttir hans
farin úr sama sjúkdómi langt fyrir
aldur fram. Kristný er látin, rétt
fyrir 50 ára afmælið sitt, eftir stutta
en harða baráttu við krabbamein. Í
veikindum Kristnýjar fékk hún af-
not af íbúð krabbameinsfélagsins
við Rauðarárstíg. Þar áttum við oft
kaffispjall og rifjaðar voru upp
gamlar og góðar minningar. Meðal
þeirra var þegar ég sem unglings-
stelpa var í „vist“ hjá þeim hjónum.
Það gerðist að ég, frænkan, kom
ekki heim alveg á réttum tíma. Eitt
sinn um klukkan 5 um morgun fór
ég á klósettið, að sjálfsögðu hálf
svefndrukkin. En þegar ég kom út
af klósettinu stóð Rúnar, maður
hennar Kristnýjar, skelfilegur
ásýndum og spurði hvað ég væri nú
eiginlega að hugsa að koma svona
seint heim! Um leið og hann sleppti
setningunni sá hann auðvitað að
stelpan var í náttfötum og löngu
sofnuð. Að þessari sögu hló hún
Kristný mín mikið.
Við frænkurnar áttum fleiri dýr-
mætar stundir en þessa, um lífið og
tilveruna. Um tilgang lífs og dauða
svo eitthvað sé nefnt. Ég átti við
Kristnýju mjög dýrmætt samtal
stuttu áður en almættið kallaði
hana til meiri verka í betri heimi.
Ég trúði ekki að Guð myndi kalla
hana svo fljótt á sinn fund og sagði
henni það. En ég hafði rangt fyrir
mér.
Ég vil enda þessa kveðju á orðum
sem við Kristný höfðum sem sam-
eiginlegt markmið:
Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig
við það sem ég fæ ekki breytt,
kjark til að breyta því sem ég get breytt
og vit til að greina þar á milli.
(Reinhold Niebuhr.)
Elsku Rúnar, Lilja, Laugi og
Bogi, megi Guð gefa ykkur styrk í
þessari miklu sorg.
Ykkar frænka að eilífu,
Kristín Björg Pétursdóttir.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is (smellt á reitinn Morgun-
blaðið í fliparöndinni – þá birtist
valkosturinn „Senda inn minning-
ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs-
ingum).
Lengd Minningargreinar séu ekki
lengri en 2.000 slög (stafir með
bilum - mælt í Tools/Word Count).
Ekki er unnt að senda lengri grein.
Hægt er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og
votta þeim sem kvaddur er virð-
ingu sína án þess að það sé gert
með langri grein. Ekki er unnt að
tengja viðhengi við síðuna.
Minningar-
greinar
Minningarkort
Hjartaverndar
535 1825
Gíró- og greiðslukortaþjónusta
Kársnesbraut 98 • Kópavogi • 564 4566 • www.solsteinar.is
SÓLSTEINAR erum fluttir á KÁRSNESBRAUT 98
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
MARGRÉT TRYGGVADÓTTIR,
Stóru-Borg, Víðidal,
Vestur-Húnavatnssýslu,
verður jarðsungin frá Breiðabólstað í Vestur-
hópi þriðjudaginn 3. ágúst kl. 14.00.
(Björn) Tryggvi Karlsson,
Ólöf Hulda Karlsdóttir,
Guðrún Karlsdóttir, Leo J. W. Ingason,
barnabörn og barnabarnabörn.
AÐALHEIÐUR JÓNSDÓTTIR,
dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi,
lést miðvikudaginn 21. júlí.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Fyrir hönd aðstandenda,
Erla Þórðardóttir.
Við þökkum kærlega fyrir samúð og hlýhug
við andlát og útför okkar ástkæru móður,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÞÓRUNNAR KRISTRÚNAR ELÍASDÓTTUR
(Dúddu),
dvalarheimilinu Hvammi
á Húsavík.
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki á
dvalarheimilinu Hvammi og Heilbrigðisstofnun Þingeyinga á Húsavík fyrir
einstaka umhyggju og hlýju.
Elías Kristjánsson, Lísbet Bergsveinsdóttir,
Dagbjört Eysteinsdóttir, Kristján G. Þorsteinsson,
Kristján Jón Eysteinsson, Sigríður Guðmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
JÓN PÁLMI KARLSSON,
Lindasíðu 2,
Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju þriðju-
daginn 3. ágúst kl. 13:30.
Elsa Halldórsdóttir,
börn og aðrir aðstandendur.
Innilegar þakkir fyrir sýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför ástkærs bróður okkar,
ARA BENEDIKTS SIGURÐSSONAR,
Fagurhólsmýri,
Öræfum.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkr-
unardeildar HSSA fyrir góða umönnun.
Nanna Sigurðardóttir,
Tryggvi Sigurðsson.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
ARNBJÖRG JÓHANNESDÓTTIR
frá Höskuldarnesi,
Mýrarvegi 113,
Akureyri,
verður jarðusungin frá Akureyrarkirkju mið-
vikudaginn 4. ágúst kl. 13.30.
Árni Árnason,
Jóhannes Árnason, Ragnhildur Þorgeirsdóttir,
Jórunn G. Árnadóttir, Bjarni Maronsson,
Árni Árnason, Kristín M. Axelsdóttir,
Guðbjörg Árnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæri,
EIRÍKUR JÓNSSON
múrarameistari,
Rauðhömrum 12,
Reykjavík
lést á Landspítala Fossvogi fimmtudaginn
29. júlí sl.
Útför hans verður auglýst síðar.
Sjöfn Jónsdóttir,
Jón Eiríksson, Ragnhildur K. Sandholt,
Yngvi Eiríksson Herdís Guðmundsdóttir,
Auður Eiríksdóttir, Ómar Runólfsson,
Garðar Eiríksson, Anna Vilhjálmsdóttir,
Kristinn Eiríksson Birna Ragnarsdóttir,
Sjöfn Eiríksdóttir, Thor Smitt-Amundsen
og fjölskyldur.
Lokað
Lokað verður frá kl. 12.00 miðvikudaginn 4. ágúst vegna
útfarar JÓNS VIGNIS JÓNSSONAR.
Hellusteypa JVJ,
Vagnhöfða 17, Reykjavík.