Morgunblaðið - 31.07.2004, Síða 31
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 2004 31
HALLDÓRA
MAGNÚSDÓTTIR
✝ Halldóra Magn-úsdóttir fæddist á
Hólmavík 16. janúar
1921. Hún lést á
Hrafnistu í Reykjavík
sunnudaginn 18. júlí
síðastliðinn. Hún var
dóttir hjónanna
Magnúsar Lýðssonar
bónda og járnsmiðs
og Elínar Jónsdóttur.
Dóttir Halldóru er
Elín Heiðberg Lýðs-
dóttir.
Halldóra vann á
símstöðinni á Hólma-
vík til ársins 1965 er
hún flutti til Reykjavíkur. Þar hóf
hún störf hjá Landsíma Íslands og
vann þar til ársins 1991.
Útför Halldóru var gerð frá Bú-
staðakirkju 27. júlí.
Nú er hún Dóra
frænka búin að kveðja
þessa jarðvist.
Í gegnum hugann
þjóta minningar, marg-
ar og ljúfar frá liðnum
árum. Ég vil með þess-
um fáu orðum þakka
henni fyrir allt það sem
hún gerði fyrir mig. Ég
var lánsöm að eiga að
þessa góðu frænku.
Þegar ég átti heima í
Reykjavík með Þröst
minn lítinn var hún allt-
af boðin og búin að rétta
mér hjálparhönd, ég
þurfti ekki að biðja hana, hún fylgdist
með okkur og var alltaf í sambandi við
mig. Heimilið í Álfheimum 30 var svo
sannarlega opið hvenær sem var, það
var mér ómetanlegt. Þau voru öll svo
góð við Þröst og höfðu ánægju af að
fylgjast með honum.
Eftir að ég flutti norður þurfti ég á
læknishjálp að halda í Reykjavík. Þá
bauð hún mér að vera í Álfheimum,
þar var ég að mestu leyti í 2 mánuði.
Þá naut ég hennar kærleiksríku um-
hyggju og hlýju sem hún var svo rík
af. Ég fann þá vel að það sem stóð
hjarta hennar næst var að hugsa um
velferð fjölskyldu sinnar sem hún
unni svo mjög.
Dóra hafði yndi af að ferðast, marg-
ar ferðirnar fórum við saman bæði
hér um landið og til annarra landa.
Hún var góður ferðafélagi og naut
þess að fara um nýjar slóðir. Hún
hafði einnig ánægju af að fara á kaffi-
hús og í leikhús, margar voru þær
stundir sem við systurnar nutum með
henni.
Ástvinum hennar sendi ég mínar
innilegustu samúðarkveðjur.
Elsku Dóra, hafðu þökk fyrir allt
og allt.
Megi hið eilífa ljós lýsa þér. Geymi
þig góður Guð.
Anna Guðrún (Gunna).
Ástkær frænka mín
og vinkona Kristborg
Kristinsdóttir er látin,
eftir hetjulega baráttu
við illvígan sjúkdóm.
Ég á margar yndislegar minningar
um Kristborgu frá því að ég var barn
til dagsins í dag. Þegar ég var ellefu
ára gömul eignaðist Kristborg yngri
son sinn Egil, fyrir átti hún Kristin
Ólaf (Kiddó) sem er sjö árum eldri en
Egill. Ég var svo lánsöm að fá að
passa Egil, það þótti mér alltaf mjög
gaman og mikill heiður að vera treyst
fyrir þessu yndislega barni.
Þegar ég komst svo á unglingsár
fékk ég stundum að vinna með Krist-
borgu á hótelinu við að þrífa herberg-
KRISTBORG
KRISTINSDÓTTIR
✝ Kristborg Krist-insdóttir fæddist
í Reykjavík 8. októ-
ber 1962. Hún lést á
kvennadeild Land-
spítalans við Hring-
braut 14. júlí síðast-
liðinn og fór útför
hennar fram frá
Stykkishólmskirkju
24. júlí.
in þar en þar var mín
fyrsta alvöru vinna. Með
okkur Kristborgu hefur
alla tíð ríkt góð og traust
vinátta sem ég verð æv-
inlega þakklát fyrir og
alltaf var maður velkom-
inn til Kristborgar á fal-
lega heimilið hennar og
fjölskyldu hennar.
Við fráfall Kristborg-
ar er mikið skarð höggv-
ið í okkar fjölskyldu en
við sem eftir lifum reyn-
um að styrkja hvert
annað í þessari miklu
sorg og ylja okkur við
ljúfar minningar um góða, fallega og
yndislega konu, sem mun lifa í hjört-
um okkar um alla tíð.
Ég vil þakka Kristborgu fyrir
stutta en yndislega samfylgd á lífs-
leiðinni og votta öllum ástvinum
hennar mína dýpstu samúð.
Hvíl í friði, kæra frænka
Margrét Pálmadóttir.
14. júlí. – Sit hérna í sófanum sem
þú gafst mér. Fjarlæg, sorgmædd.
Kertaljósin kringum mig sefa sökn-
uðinn í huga mér. Í logunum birtast
myndir um ljúfar og einlægar stundir
sem við áttum saman í vetur og sum-
ar.
Þakka þér fyrir að fá að kynnast
þér, Kristborg baráttukona. Ég skal
hafa auga með Agli þínum í skólanum
eins og þú baðst mig um.
Skrýtið með þetta líf, það er eins og
leikrit. Sumir hreppa aðalhlutverkin
og fá að vera með allt lífið, heilbrigðir.
Því miður fékk Kristborg ekki að
leika lengur. Þó svo hugurinn hafi
ætlað sér stærra og lengra hlutverk
beið líkaminn ósigur fyrir hinum ill-
skeytta óvini.
Leikritið heldur áfram. Áfram án
hennar, tómlegra, sárara. Sárast þó
fyrir Egil, Kiddó, Egil, foreldra,
systkini og nánustu ættingja.
Megi góður Guð gefa ykkur styrk
til að takast á við sorgina og hvers-
dagsleikann.
Hvíl í friði, vinkona mín.
Hverfur margt
huganum förlast sýn
þó er bjart
þegar ég minnist þín.
Allt er geymt
allt er á vísum stað
engu gleymt,
ekkert er fullþakkað.
(Oddný K.)
Auður Rafnsdóttir.
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Ólafur Ö. Pétursson,
útfararstjóri,
s. 896 6544
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
S. 551 7080
Vönduð og persónuleg þjónusta.
Í PERLUNNI
Erfidrykkjur
Upplýsingar og pantanir í síma 562 0200
Á fallegum og notalegum
stað á 5. hæð Perlunnar.
Aðeins 1.250 kr. á mann.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
GUÐMUNDAR STEFÁNS KARLSSONAR,
Baldursgötu 26.
Innilegar þakkir til allra, sem önnuðust hann í
veikindum hans og sérstakar þakkir færum við
starfsfólki Vífilsstaða fyrir frábæra umhyggju
og umönnun.
Guð blessi ykkur öll.
Margrét Sveinsdóttir,
Gunnar Viðar Guðmundsson, Pétrína Ólöf Þorsteinsdóttir,
Karl Birgir Guðmundsson, Guðrún Vilhjálmsdóttir,
Björgvin Grétar Guðmundsson, Hildur Pálmadóttir,
Þórir Baldur Guðmundsson, Hafdís Ingimundardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
SIGRÍÐUR ELLINGSEN,
áður til heimilis
á Ægisíðu 80, Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Holtsbúð, Garðabæ,
fimmtudaginn 22. júlí.
Jarðsungið verður frá Dómkirkjunni í Reykjavík
þriðjudaginn 3. ágúst kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á
Barnaspítalasjóð Hringsins.
Óttar B. Ellingsen, Stefanía L. Jónsdóttir,
Steingrímur Ellingsen, Anna Birna Jóhannesdóttir,
Lára María Ellingsen, Erlingur Aðalsteinsson,
Björg Ellingsen, Broddi Broddason,
Dagný Ellingsen, Garðar V. Sigurgeirsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, pabbi okkar, tengda-
pabbi, tengdasonur, bróðir, mágur og svili,
ÞRÖSTUR HELGASON
kennari,
Hófgerði 12,
Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju þriðju-
daginn 3. ágúst kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á
Krabbameinsfélag Íslands eða heimahlynningu Krabbameinsfélagsins.
Hulda Brynjúlfsdóttir,
Drífa Kristín Þrastardóttir,
Heiðar Þór Þrastarson,
Úlfur Ingi Jónsson, Marta Rúnarsdóttir,
Ingiríður Árnadóttir, Brynjúlfur Sigurðsson,
Svala Helgadóttir,
Erla Helgadóttir, Sverrir Guðmundsson,
Valur Helgason, Ásta Gísladóttir,
Haukur Helgason, Eyrún Kjartansdóttir,
Örn Helgason, Elísabet Hannam,
Ragnheiður Brynjúlfsdóttir, Jón Óskarsson,
Sigurður Brynjúlfsson, Anna María Karlsdóttir.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
JÓN VIGNIR JÓNSSON
framkvæmdastjóri,
Sævangi 15,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju
miðvikudaginn 6. ágúst kl. 15.00.
Soffía Jónsdóttir,
Jón Rúnar Jónsson, Dagbjörg Traustadóttir,
Kolbrún Jónsdóttir, Steingrímur Magnússon,
Bragi Vignir Jónsson, Rut Helgadóttir,
Sigurður Ól. Jónsson, Dagrún Guðlaugsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær dóttir mín, systir okkar, mágkona
og frænka,
ERNA GUÐMUNDSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðviku-
daginn 4. ágúst kl. 13.30.
Ingibjörg Hermannsdóttir,
Halldór Guðmundsson,
Brynjar Guðmundsson, Geirþrúður Þorbjörnsdóttir,
Steinþór Ómar Guðmundsson, Jóhanna Jónsdóttir
og frændsystkini.
Hjartans þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður, ömmu og lang-
ömmu,
GUÐBJARGAR BÁRÐARDÓTTUR.
Svavar Símonarson,
Jóhanna Melberg Madsen, Svend Madsen,
Gíslína Melberg Sigurgísladóttir,
Unnur Melberg Sigurgísladóttir, Pétur Óskarsson,
Bára Melberg Sigurgísladóttir, Páll Einar Halldórsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum samúð og hlýhug við andlát elsku-
legrar móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
DROPLAUGAR BENEDIKTSDÓTTUR,
sem lést fimmtudaginn 1. júlí sl.
Benedikt Þ. Jónsson, Fanney Helga Friðriksdóttir,
Hannes J. Jónsson, Auður Gunnarsdóttir,
Kristjana Þ. Jónsdóttir, Stefán Ásgeirsson,
Andrea K. Jónsdóttir, Jóhannes Ingi Kolbeinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.