Morgunblaðið - 07.08.2004, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MINNA FLÓÐ Í JÖKLU
Vatnavextir í Jöklu í gær voru
ekki nándar nærri jafnmiklir og í
fyrrakvöld, þegar yfirborð árinnar
hækkaði um nálægt 10 metra og var
vatnsrennslið áætlað 740 til 760 rúm-
metrar á sekúndu.
Lést í Bláa lóninu
14 ára drengur lést í Bláa lóninu í
gær. Ekki er vitað hvað olli slysinu
en vitað er að drengurinn hafi verið
flogaveikur að sögn Önnu G. Sverr-
isdóttur, aðstoðarframkvæmda-
stjóra Bláa lónsins.
Sjávarhiti að aukast
Mælingar á sjávarhita um gervi-
hnött á Norður-Atlantshafinu benda
til þess að hitastig sjávar sé jafnt og
þétt að aukast á svæðinu, einkum
fyrir norðan land og allt norður í
Barentshaf.
Óska eftir aðstoð
Yfirvöld í Máritaníu hafa óskað
eftir aðstoð erlendra ríkja og al-
þjóðastofnana í baráttunni við engi-
sprettufaraldur sem nú hefur breiðst
til vestanverðrar Afríku. Stórir engi-
sprettusveimar hafa undanfarna
daga leikið nyrstu ríki Afríku, Mar-
okkó, Alsír, Líbýu og Túnis, grátt.
Samið um Thule-stöðina
Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, og Per Stig Møller,
utanríkisráðherra Danmerkur,
skrifuðu í gær undir nýtt samkomu-
lag um starfsemi bandarísku ratsjár-
stöðvarinnar í Thule á Grænlandi.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Úr Vesturheimi 34
Viðskipti 12 Messur 35
Erlent 16/17 Skák 35
Minn staður 20 Minningar 36/42
Höfuðborgin 21 Myndasögur 46
Akureyri 24 Dagbók 46
Árborg 24 Listir 49/53
Landið 25 Leikhús 52
Daglegt líf 26/27 Fólk 54/57
Ferðalög 28 Bíó 54/57
Forystugrein 30 Ljósvakamiðlar 58
Viðhorf 32 Veður 59
Bréf 33 Staksteinar 59
* * *
Kynningar – Morgunblaðinu í dag
fylgir auglýsingablaðið „Kanarí“ frá
Úrvali-Útsýn og auglýsingablaðið
„Kanarí“ frá Plúsferðum.
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfull-
trúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf
Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl
!
"
#
$
%&' (
)***
HENRÝ Þór Reynisson er 24 ára bakari sem
starfar við kökugerð í ensku stórversluninni
Harrods í London, sem er í eigu egypska auð-
jöfursins Mohamed al-Fayed. Að sögn Henrýs
hefur hann unnið þar í fimm mánuði, en sem
stendur vinnur hann við kökugerð í bakaríi
föður síns, Reynis bakara á Dalvegi í Kópavogi.
„Unnusta mín var búin að búa þarna úti í
nokkur ár, og mig langaði alltaf að fara út og
læra meira í sambandi við bakstur, en ég var
að vinna sem bakari hér. Mig langaði að læra
meira í sambandi við „konditor“ og þess háttar.
Þannig að ég fór til Danmerkur og tók grunn-
inn þar,“ segir Henrý en bætir því við að hon-
um hafi ekki litist á bakaríin í Danmörku, og
því hafi hann ákveðið að drífa sig til London og
sækja um starf sem bakari í ýmsum flottum
bakaríum, m.a. hjá Harrods. Hann segist ein-
faldlega hafa hringt og athugað með starf þar
og fengið svar. Eftir ítarlega læknisskoðun hafi
hann svo fengið starfið og sér ekki eftir því.
Hann segist vera eini Íslendingurinn sem
vinni við kökugerðina en starfsliðið í kringum
hann komi frá öllum heimshornum, allt frá
Frakklandi til Mongólíu. Hann segir vinnuna
jafnan vera mikla, t.d. hafi verið útsala fyrir
skömmu í versluninni og þá hafi verið í nógu að
snúast. „Þá var þetta mikil vinna,“ og hann
bætir við að hann hafi séð um veitingar fyrir
efnamikið fólk og hafi dagurinn verið 17 tímar
í það heila með einni hálftíma pásu. Hann segir
að ekkert sé sparað í hráefni eða þvíumlíkt. „Ef
eitthvað klikkar þá er bara keypt ný græja.“
Hann segist stefna á að geta boðið fólki upp
á fallegar brúðartertur, sem meiri vinna og
betra hráefni fari í, þegar hann snýr aftur til
London í haust. „Þannig að við getum boðið
viðskiptavinum bæði upp á ódýrar, fallegar
tertur og eins líka dýrar og fallegri.“
Henrý neitar því ekki að vinnan hjá Harrods
sé skemmtileg. „Þetta er mjög skemmtilegt,
maður er alltaf að læra eitthvað nýtt.“ Reglu-
lega er verið að breyta uppskriftum og búa til
nýjar þannig að ávallt er verið að takast á við
ný verkefni að sögn Henrýs. „Þeir eru alltaf að
reyna að vera með eitthvað nýtt sem hefur ekki
sést annars staðar, og láta sérsmíða fyrir sig
vélar til að búa til eitthvert skraut. Það eru alls
konar nýjungar sem maður hefur aldrei séð áð-
ur.“
Hann segir stefnuna að taka samninginn sinn
hjá Harrods en koma svo heim til þess að klára
bakaranámið og vinna við bakaríið með föður
sínum og bróður.
Henrý Þór Reynisson starfar við kökugerð í stórversluninni Harrods
Bakar fyrir auðjöfra í London
Morgunblaðið/Árni Torfason
Henrý Þór bakar glæsilegar tertur fyrir Harrods-verslunina í London.
EINAR Sveinbjörnsson veðurfræð-
ingur, sem hefur kynnt sér ræki-
lega veðurfar á svæðinu kringum
Kárahnjúkavirkjun og fylgst með
hegðun Jökulsár á Dal, segir að
flóðið í ánni eigi eftir að verða enn
meira. Veðurútlitið næstu daga
svipi mjög til þeirra aðstæðna sem
voru síðsumars 1977 þegar mesta
vatnsrennsli mældist í Jöklu, vel
ríflega 1.000 rúmmetrar á sekúndu.
„Það mun ekki koma mér á óvart
ef rennslið fer í þúsund rúmmetra á
sunnudag, mánudag eða þriðju-
dag,“ segir Einar, sem telur veð-
urspána vera mjög óhagstæða fyrir
þá sem voni að Jökla láti minna fyr-
ir sér fara. Eitthvað geti þó sjatnað
í ánni í dag en á morgun og næstu
daga megi gera ráð fyrir meiri flóð-
um.
Bráðnun í Brúarjökli
Vatnavextirnir í Jöklu síðustu
daga stafa af bráðnun í Brúarjökli í
norðanverðum Vatnajökli, sem áin
á upptök sín í. Einar segir einkum
þrjá þætti hafa valdið þessari
bráðnun. Í fyrsta lagi hafi almenn
hlýindi verið á svæðinu og lofthiti
yfir landinu verið
hár. Í öðru lagi
hafi geislar sólar-
innar náð að
bræða ís á jökl-
inum. Fyrri part
sumars liggi hvít-
ur snjór síðasta
vetrar yfir öllu.
Þegar líða taki á
sumarið bráðni
þessi snjór og í
ljós komi skítugur snjór frá fyrri
vetrum. Skíturinn í þeim ís gleypi í
sig geisla sólarinnar og bræði frá
sér, á meðan hvíti snjórinn endur-
kasti mestu af sólarljósinu burtu.
Einar segir að í þriðja lagi hafi
það mikil áhrif ef rigni mikið áveð-
urs sunnan á Vatnajökli, í A-Skafta-
fellssýslu, samfara suðaustanátt. Þá
losni úr læðingi í loftinu svonefndur
dulvarmi. Þegar loftið komi niður á
jöklinum norðanverðum bræði dul-
varminn mikinn ís. Þegar þessir
þrír þættir fara saman í nokkra
daga, líkt og hafi verið á Kára-
hnjúkasvæðinu, eigi sér stað miklar
leysingar, bæði í Jökulsá á Dal og
einnig í Jökulsá á Fjöllum.
Einar Sveinbjörnsson spáir hlýju veðri og rigningu á Austurlandi næstu daga
Geislar sólarinnar
bræða skítugan jökulinn
Einar
Sveinbjörnsson
STJÓRN SÁÁ telur óviðunandi að
heilbrigðisyfirvöld og fjárveitingar-
valdið taki engan þátt í kostnaði við
meðferð ungra sprautufíkla sem
háðir eru ópíumefnum eins og mor-
fíni og heróíni og sækja sér meðferð
á göngudeild við Sjúkrahúsið Vog.
Í ályktun stjórnarinnar er vakin
athygli á því að þau taka engan þátt í
kostnaði nýrra lyfja sem notuð eru
til að lækna ungt fólk sem glímir við
þennan vanda. Stjórnin lýsir furðu
sinni á því að ungum mikið veikum
sjúklingum skuli mismunað með
þessum hætti og skorar á stjórnvöld
að bæta úr þessu.
„Meðferðin sem um ræðir er við-
haldsmeðferð með samsettu lyfi sem
í eru lyfin buprenorphine og nalox-
one. Auk þessa fá sjúklingarnir fé-
lagslega og geðræna endurhæfingu.
Fjöldi vísindarannsókna sýnir svo
ekki verður um villst að árangur
slíkrar meðferðar er mjög góður og
tíðkast þessi meðferð nú í nær öllum
Evrópulöndum, Kanada og Banda-
ríkjunum,“ segir í ályktun stjórnar-
innar.
40 einstaklingar í meðferð
SÁÁ hóf þessa meðferð á göngu-
deildinni við Sjúkrahúsið Vog í sept-
ember 1999. Nú sækja yfir 40 ein-
staklingar slíka meðferð. Þeir koma
reglulega í læknaviðtöl og fá lyf af-
hent á Vogi. Sumir sækja lyfin dag-
lega, aðrir einu sinni til tvisvar í viku.
Á ársgrundvelli eru áætlaðar komur
til hjúkrunarfræðinga vegna lyfja-
meðferðarinnar um 4.400 og fjöldi
viðtala við lækna er áætlaður 600.
Þjónusta er aðeins veitt á Vogi og
stjórnvöld hafa fram til þessa ekki
tekið neinn þátt í kostnaði hennar.
SÁÁ bendir jafnframt á að þetta
unga fólk sé engan veginn í stakk bú-
ið til að greiða þennan lyfjakostnað
sjálft.
SÁÁ gagnrýnir afstöðu stjórnvalda til vanda ungra
sprautufíkla á Vogi sem háðir eru ópíumefnum
Meðferð ungra sprautu-
fíkla verði niðurgreidd ÞRÍR skákmenn eru efstir og jafnireftir fyrri dag alþjóðlega atskák-
mótsins sem fram fer í bænum Tas-
iilaq á austurströnd Grænlands.
Þetta eru þeir Jóhann Hjartarson,
Róbert Harðarson og danski stór-
meistarinn Henrik Danielsen, sem
fengu fjóra vinninga í jafn mörgum
umferðum. Fimm umferðir verða
svo leiknar í dag, teflt er til þrautar
og engin jafntefli í boði.
Sjö skákmenn koma næstir með
þrjá vinninga, þ.á m. Hjörtur Jó-
hannsson Hjartarsonar, 18 ára son-
ur stórmeistarans íslenska. Aðrir
jafnir honum eru Hrafn Jökulsson,
Regína Pokorna, Gunnlaugur Karls-
son, Tómas Björnsson, heimamaður-
inn Jon Rassmussen og Páll Gunn-
arsson.
Þrír efstir
og jafnir á
Grænlandi
Tasiilaq. Morgunblaðið.