Morgunblaðið - 07.08.2004, Blaðsíða 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
12 LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ
búið að sýna tolla-
yfirvöldum fram
á virkni iPod á
mörgum fundum
sem haldnir hafa
verið með þeim.“
Ólagur segir að
meginhlutverk
iPod sé að vera
lófatölva og fær-
anlegur harðdisk-
ur til margvíslegra nota. „iPod er
vissulega notað af flestum í dag sem
afspilunartæki. En þetta er alvöru
lófatölva, sem er fær um flest það
sem aðrar lófatölvur geta.“
Segir Ólafur að með iPod sé hægt
að flytja alls konar gögn, hvort sem
það eru ritvinnsluskrár, töflureikn-
isskjöl, myndir eða önnur skjöl.
Hægt sé að tengja iPod við lykla-
borð, skjái, myndavélar og prentara,
ýmist beint eða með aukabúnaði og
gegnum tölvu.
„iPod er hreinlega gjörólíkt hefð-
bundnum afspilunartækjum og
MISRÆMIS gætir í meðferð á
Apple iPod af íslenskum og erlend-
um tollayfirvöldum, að sögn Ólafs W.
Hand, framkvæmdastjóra Apple
IMC á Íslandi. „Það er með ólíkind-
um að lesa skýringar tollayfirvalda,
á iPod og þeim gjöldum sem þau
telja að iPod eigi að bera,“ segir
Ólafur. „Eins og tollayfirvöld vita
mæta vel eftir mánaða þref og tafir,
borga aðrir Evrópubúar aðeins um
tveggja prósenta gjöld af þessari
vöru. Til sönnunar þeirri fullyrðingu
skal það nefnt að Öflun ehf., eigandi
Apple IMC, rekur sambærilegt fyr-
irtæki í Danmörku, í samvinnu við
Bjarna Ákason. Þar í landi er ein-
ungis um tveggja prósenta tolla-
álagning, enda vélin ekki skilgreind
þar sem upptökutæki.“
Í Morgunblaðinu í gær var haft
eftir Stefáni Bjargmundssyni, deild-
arsérfræðingi hjá Tollstjóranum í
Reykjavík, að við tollflokkun væri
miðað við meginhlutverk tækis, og
að meginhlutverk iPod væri afspilun
tónlistar. Því væri iPod sett í flokk
með upptöku- og afspilunartækjum,
en ekki handtölvum.
Svipuð og flestar aðrar
Ólafur segir lýsingu tollayfirvalda
á eiginleikum iPod ranga. „Ég skil
ekki þessa þvermóðsku, því það er
MP3-spilurum, sem eru framleiddir
gagngert til að spila tónlist, en ekki
til þess að vera fjölhæf lófatölva með
stóru harðdrifi sem styður flestar
tegundir gagnasniða. MP3-spilarar
og afspilunartæki styðja ekki
geymslu á margvíslegum gögnum og
eru almennt ekki nothæf sem skipu-
lagningartól, myndageymslur og
þau er ekki hægt að samhæfa við
skipulagningartól.“
Ólafur segir að íslensk tollayfir-
völd hafi rangt fyrir sér varðandi það
að þau fylgi öðrum Evrópulöndum í
álagningu gjalda á iPod. „Þau hafa
einnig rangt fyrir sér að iPod sé lík-
ari stafrænu afspilunartæki en lófa-
tölvum, því hið gagnstæða er stað-
reynd.“ Segir Ólafur iPod vera með
örgjörva, stýrikerfi, vinnsluminni,
skjá og allt annað sem til þarf svo
nota megi hann sem lófatölvu. „Og ef
íslensk tollayfirvöld geta fundið af-
spilunartæki eða MP3-spilara, sem
ræður við að keyra stýrikerfið Fed-
ora þá skal ég éta hattinn minn.“
Meginhlutverk iPod
að vera lófatölva
Tollayfirvöld ekki sögð taka tillit til fjölhæfs notagildis
Ólafur W. Hand
ÞETTA HELST …
VIÐSKIPTI
● HEILDARVIÐSKIPTI í Kauphöll Ís-
lands í gær námu 3,3 milljörðum
króna og þar af voru viðskipti með
hlutabréf fyrir tæpan einn milljarð.
Úrvalsvísitala Kauphallarinnar
hækkaði um 0,36% og var 3.105
stig í lok viðskipta. Mest viðskipti
voru með hlutabréf KB banka, fyrir
470 milljónir. Bréf SÍF hækkuðu
mest, um 2,9%, en hlutabréf Fjár-
festingafélagsins Atorku lækkuðu
hins vegar mest, um 1,1%.
Hlutabréf lækkuðu bæði vestan-
hafs og austan í gær. Það sama á og
við um Asíu og Eyjaálfu. Hlutabréf
lækkuðu því víðast hvar í gær.
Hlutabréf hækka hér
en lækka erlendis
● FJÁRMUNAEIGN íslenska þjóðar-
búsins hefur aukist mikið á síðustu
árum og nam 2.640 milljörðum
króna árið 2003 og var tæplega 3,3
föld landsframleiðsla ársins, að því
er fram kemur í upplýsingum frá Hag-
stofunni. Með fjármunaeign er átt við
uppsafnað en afskrifað verðmæti
þeirra fjármuna sem orðið hafa til við
fjármunamyndun í hvers konar at-
vinnustarfsemi.
Í Morgunkorni Íslandsbanka segir
að fjármunaeignin hafi aukist um
958 milljarða króna á síðustu fimm
árum, eða um nær 57%.
Fjármunaeign þjóðar-
búsins eykst
HAGNAÐUR Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna (SH) eftir skatta á
fyrri helmingi þessa árs var ríflega
tvöfalt meiri en á sama tímabili á síð-
asta ári. Hagnaðurinn á þessu ári
nam 341 milljón króna en var 158
milljónir í fyrra.
Arðsemi eigin fjár var 17% sam-
anborið við 8% á sama tímabili 2003.
Rekstrartekjur SH jukust um
17% milli ára úr 27 milljörðum króna
í 32 milljarða. Í tilkynningu frá SH
segir að auknar rekstrartekjur megi
að mestu rekja til félaga sem ekki til-
heyrðu samstæðunni á sama tíma í
fyrra, Ocean to Ocean í Bandaríkj-
unum og Barogel í Frakklandi.
Veltufé frá rekstri nam 669 millj-
ónum króna í ár samanborið við 503
milljónir árið áður.
Í tilkynningu SH segir að fyrsti
fjórðungur þessa árs hafi gengið
nokkuð betur en áætlun gerði ráð
fyrir, en annar ársfjórðungur hafi
hins vegar verið lítið eitt undir áætl-
un.
Áætlanir SH gera ráð fyrir að
veltan á þessu ári verði um 68 millj-
arðar króna og að hagnaðurinn verði
um 750 milljónir króna.
Sala Icelandic USA nam 166 millj-
ónum Bandaríkjadala sem er um
60% aukning frá fyrra ári. Aukning-
in skýrist fyrst og fremst af kaup-
unum á Ocean to Ocean en innri
vöxtur var um 4%. Hagnaður félags-
ins á tímabilinu nær tvöfaldaðist frá
fyrra ári.
Í Bretlandi jókst salan um 2% frá
fyrra ári og nam 59 milljónum
punda. Segir í tilkynningu SH að
verulegur bati hafi orðið á rekstri fé-
lagsins í Bretlandi frá fyrra ári og að
hagnaður hafi verið af rekstrinum en
hins vegar tap á sama tímabili 2003.
Afkoma dótturfélags SH í Frakk-
landi var undir áætlun bæði hvað
varðar sölu og afkomu. Rekstur ann-
arra fyrirtækja samstæðunnar var í
samræmi við áætlanir.
Heildareignir SH í lok júní síðast-
liðinn námu 26,0 milljörðum og
lækkuðu um hálfan milljarð frá ára-
mótum. Þá lækkuðu skuldir um 622
milljónir.
SH greindi frá því í gær í tilkynn-
ingu til Kauphallar Íslands að stjórn
félagsins hefði samþykkt að hækka
hlutafé þess um 3,7%. Verður það
selt til lykilstjórnenda félagsins á
genginu 6,4 en lokaverð bréfanna í
Kauphöllinni í gær var 6,45.
Hagnaður SH tvöfaldast
Arðsemi eigin fjár
úr 8% í 17%
#
&
/ 2
/
/ 2
#&3
#
5
6
&&778
%
/
-
0&&1
+ !, -
!,#$
-#./ )*
1)$ * 2(
- *32(
- 4
5!4$ #1$(
2
6
7-
. 6
8
8) 5
9 !
$
9
: !
:$ 5!4$ #
;
1!4$ <
5 6
5
=
!
=$ !"-> #
= +$ $#?"
@ (
7
73
.$A !"
B!
:65
: * :4$< :
:A
$
:3 $3 +$ #
C
C+ $3
D $3
?(# E:A
!
1$
5 F+! !
. 6 CA A
D4$+ < 6
: $
* #*
E
E
E
E
E
E
E
E
E
E
E
E
E
E
E
E
E
-+$ 4
+ * #*
E E E
E E
E E E E
E E
E
E
E
E
E
E
E
E
E
E
E
E
E
E
E
E
E
E
GHI
G HI
GEHI
GEHI
E
GHI
GHI
GHI
GEHI
E
G HI
GEHI
GE
HI
GEHI
E
GE
HI
E
E
E
GHI
E
GHI
GHI
E
E
GHI
G
HI
E
E
E
E
E
E
E
E
E
E
E
E
E
= *
$
C (( %
7
:
# #
# # # #
# E
# # # # # E
#
E
# E
#
# E
E
# E
E
E
#
E
#
E
E
E
E
E
E
E
E
E
E
E
D
$ J># #
1C=#K1$ $ 5!3
*
$
E
E
E
E
E
E
E
E
E
E
E
E
E
E
E
E
● EIGNARHALDSFÉLAGIÐ Verðbréfa-
þing skilaði 35 milljóna kr. hagnaði á
fyrri hluta ársins, sem er tæplega
tveimur milljónum minni hagnaður en
á sama tímabili í fyrra. Rekstrartekjur
félagsins, sem á og rekur Kauphöll
Íslands og Verðbréfaskráningu Ís-
lands, námu 280 milljónum og jukust
um átta milljónir á milli ára. Rekstrar-
gjöld jukust um fjórtán milljónir, og
námu 244 milljónum.
Eignir Eignarhaldsfélagsins Verð-
bréfaþings námu 382 milljónum um
mitt ár. Eignir jukust um rúmar fjöru-
tíu milljónir frá áramótum.
Verðbréfaþing hagn-
ast um 35 milljónir kr.
SÆPLAST var rekið með 46 millj-
óna króna tapi á fyrri hluta ársins, en
á sama tímabili í fyrra var 22 millj-
óna hagnaður af rekstrinum. Tekjur
drógust saman um 7% en rekstrar-
gjöld um 2%. Í tilkynningu félagsins
segir að minnkandi tekjur skýrist að
mestu af því að tekjur dótturfélags-
ins í Noregi, sem sé stærsta eining
samstæðunnar, hafi dregist saman
um 15%. Sölutekjur í Kanada hafi
lækkað um 11% og á Dalvík um 4%.
Á Spáni og á Indlandi hafi tekjur
verið svipaðar og í fyrra, en í Hol-
landi hafi tekjur aukist um 22%.
Til þess að auka vöruframboð Sæ-
plasts hefur aukin áhersla verið lögð
á vöruþróun og er kostnaður sam-
stæðunnar vegna vöruþróunar um-
talsvert hærri á fyrri helmingi þessa
árs en á sama tímabili í fyrra, að því
er segir í tilkynningu félagsins.
Hagnaður fyrir afskriftir og fjár-
magnsliði, EBITDA, dróst saman
um 37% og nam 107 milljónum
króna. EBITDA sem hlutfall af
tekjum lækkaði úr 13,0% í 8,7%.
Eignir Sæplasts minnkuðu lítil-
lega á fyrri hluta ársins og námu
tæpum 2,8 milljörðum króna. Eigin-
fjárhlutfall félagsins lækkaði úr 16%
um áramót í 14% í lok júní.
Verkefnisstaða dótturfélaganna á
Dalvík og í Hollandi er í tilkynningu
Sæplasts sögð mjög góð og mjög vel
við unandi á Spáni og á Indlandi. Þá
segir að í Kanada og Noregi sé
áfram unnið að lækkun kostnaðar og
aukinni framlegð og tekjum.
+
/
9
#
!
'()*+,-.
#
"7&
5
6
&&778
%
/ /
/ //
0&&1
Samdráttur
hjá Sæplasti
HAGNAÐUR Sparisjóðs vélstjóra
(SPV) nam 235 milljónum króna á
fyrri helmingi ársins, sem er 172%
aukning frá sama tímabili í fyrra.
Arðsemi eigin fjár, reiknuð á árs-
grunni, var rúmlega 11% á fyrri
hluta ársins, en rúm 9% í fyrra.
Skýringarnar á auknum hagnaði
eru einkum tvíþættar; umtalsvert
auknar tekjur af hlutabréfum og
eignarhlutum og mun lægra framlag
í afskriftareikning útlána. Lækkandi
hreinar vaxtatekjur og hækkandi
rekstrargjöld vega að hluta á móti.
Í tilkynningu frá SPV segir að
rekstrarumhverfið hafi á margan
hátt verið erfitt. Þar vegi þyngst
mikil samkeppni, sem leitt hafi til
minni vaxtamunar, sem lækkaði úr
3,5% á fyrri í 2,3% í ár. Þrátt fyrir
þetta hafi viðskiptavinum fjölgað og
innlánsaukning verið ágæt, eða 10%.
Útlánsaukning var lítil, en heildar-
eignir jukust um 10% og námu 26
milljörðum króna í lok júní.
Eiginfjárhlutfall SPV var 24,8% á
CAD-grunni í lok júní og lækkaði úr
26,3% um áramót.
:
;&
& #
71
<=&1 6
&&778
%
/
0&&1
Mikil aukn-
ing hagnaðar
hjá SPV
B L
:M,
H
H
5C:F
N1O
H
H
010 98O
H
H
75O
B
H
H
/0FO N('@(
H
H