Morgunblaðið - 07.08.2004, Blaðsíða 46
Grettir
Smáfólk
Smáfólk
© DARGAUD
Bubbi og Billi
?
PFFF! ÉG NÆ
ALDREI AÐ LÆRA ÞESSA
MANNKYNSSÖGU
HEYRÐU, BUBBI!
ÉG SKAL LESA ÞETTA
UPPHÁTT FYRIR ÞIG ÞANNIG
AÐ ÞÚ SKILJIR ÞETTA BETUR
ÉG BYRJA Á
FYRSTA KAFLA!
Á JÖRÐINNI...
BLA BLA...
RISAEÐLUR...
BLA BLA...
TYRANNOSAURUS REX
VAR STÆRSTA KJÖTÆTAN
4.-8. KAFLI... BLA BLA... KLÓPATRA... BLA BLA...
DROTTNING EGYPTALANDS... BLA BLA... PÝRAMÍDAR...
SVO 12. KAFLI... BLA BLA... LÚÐVÍK XIV...
BLA BLA... KONUNGUR FRAKKLANDS
OG... BLA BLA... 20. KAFL... BLA BLA...
VIGDÍS FINNBOGADÓTTIR... BLA BLA...
SKO, BÚINN! ÞARNA SÉRÐU BUBBI,
ÞETTA VAR EKKERT ERFITT!
SKILURÐU ÞETTA EKKI
NÚNA?
? JÁ! TAKK BILLI ÉG
SKIL ÞETTA MIKLU
BETUR NÚNA!
HVER ELSKAR
EKKI MÁNUDAGA?
ÉG HATA
ÞESSAR
PAR-5
HOLUR
VAKNAÐU,
STÓRI BRÓÐIR
KLUKKAN ER 7... TÍMI TIL AÐ
LJÚKA AF ENN
EINUM DEGINUM
Dagbók
Í dag er laugardagur 7. ágúst, 220. dagur ársins 2004
Sumarleyfi Víkverjaer af götóttu gerð-
inni þetta árið. Vika
hér, vika þar, dagur
þarna og dagur hinum
megin. Fyrsti hluti frí-
tökunnar er nú að
baki, var hann tíu
daga langur, og ferð-
aðist Víkverji til hinna
harðbýlu stranda
Vestfjarða. Tilgang-
urinn var tvíþættur,
að finna verðskuld-
aðan frið (að hans mati
alltént) með unnustu,
tengdamóður og mági
en einnig að sækja
heim ættaróðalið. Kúrir það fram-
arlega í Vatnsdal í Patreksfirði, yf-
irgefið og fremur óhrjálegt að sjá,
því miður. Fyllir það í ört vaxandi
flokk eyðibýla landsins, sem er og
miður. Í hinni nálægu Rauðasands-
sveit eru nú starfandi tvö býli t.a.m.
en fyrir fimmtíu árum voru þau ell-
efu. Og 1703 voru þau nítján talsins.
Það er eitthvað sorglegt við þetta allt
saman. Orð Rosseau verða skyndi-
lega ljóslifandi: Aftur til náttúrunn-
ar!
x x x
Siglt var yfir Breiðafjörð á leiðinnivestur (norður væri reyndar ná-
kvæmara) með ferjunni Baldri og
stoppaði Víkverji og
hans ektakvinna í eyj-
unni Flatey, hinni
fornfrægu menningar-
miðstöð. Þar var áð
eina nótt og mælir Vík-
verji hiklaust með að
fleiri geri slíkt hið
sama. Andrúmsloftið í
eyjunni er einstakt og
gestir þar falla fljótt í
einhvers konar róleg-
heita-trans. Útpískuð
möppudýr úr stein-
steypufrumskóginum
myndu gera margt vit-
lausara en að kíkja
þangað er þau losna
frá skyldustörfunum.
Hinnar sönnu rottur himinsins,
kríurnar, gerðu reyndar sitt til að
angra Víkverja með sinni óþolandi
uppvöðslusemi, frekju og árásar-
hneigð en það dugði engan veginn til.
Flatey umvafði Víkverja og hans
heitmey ljúfum örmum, tíminn stóð
þægileg í stað og úrvinda andinn
komst fljótt og vel í jafnvægi.
x x x
Að lokum þetta: Rútur út úr Stykk-ishólmi ættu að stoppa úti við
höfnina þar sem Baldur leggur. Það
er allt of langt að bera allan farang-
urinn hálfa leið yfir bæinn úti á bens-
ínstöð, þar sem rúturnar koma við.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Gyðja miskunnseminnar | Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson, og Þór-
ólfur Árnason, borgarstjóri í Reykjavík, afhjúpuðu í gær friðarstein við suð-
vesturhorn Reykjavíkurtjarnar.
Það var Michio Unemoto, formaður Stone for Peace Association of
Hiroshima, sem afhenti friðarsteininn og forsetinn tók við honum fyrir hönd
Íslendinga. Til þessa hafa 90 þjóðir tekið við friðarsteini en í þá er höggvin
ímynd gyðju miskunnseminnar.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Friðarsteinn afhjúpaður
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Orð dagsins: Drottinn er ljós mitt og fulltingi, hvern ætti ég að óttast?
Drottinn er vígi lífs míns, hvern ætti ég að hræðast? (Sl.. 27, 1.)