Morgunblaðið - 07.08.2004, Side 47
DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 2004 47
Ekki missa af flessu!
Faxafeni 5 • Reykjavík • Sími 588 8477 • betrabak@betrabak.is • www.betrabak.is
Opi› virka daga frá kl. 10-18 • Laugardaga frá kl. 11-16
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
©
20
04
Lyftistólar
fyrir betri heilsu
Lyftistóll le›urklæddur
me› fjarst‡ringu.
Á›ur kr. 223.193,-
Tilbo› til eldri borgara
a›eins
kr. 167.900,-
Me› tauáklæ›i
á›ur kr. 180.709,-
Tilbo› til eldri borgara
kr. 136.900,-
Amerískir hægindastólar á ver›i
fyrir flig.
Tauáklæ›i á›ur kr. 72.900,-
Ver› nú 59.900,-
Le›ur á›ur kr. 85.900,-
Ver› nú 69.900,-
Horft á sjónvarp
Jasper rúm me› stillanlegum
botni og heilsud‡nu, fáanlegt í
kirsuberi e›a eik. Stær›ir 90x200
cm e›a 90x210 cm.
Me› Apple heilsud‡nu kr. 99.800,-
Me› heilsud‡nu
kr. 119.900,-
Loksins komin
aftur
Tilbo›
til eldri borgara
Íslensku menntasamtökin ses og Council forGlobal Education standa fyrir ráðstefnu íReykjavík sem hefst á morgun. Ráðstefnanber yfirskriftina Innihaldsrík menntun á 21.
öld og er þetta sú fjórða sem Íslensku mennta-
samtökin halda. Jákvæður agi og fjölgreindakenn-
ing dr. Howards Gardners eru viðfangsefni ráð-
stefnunnar að þessu sinni.
Bill Scott er einn af fyrirlesurum ráðstefnunnar
og mun hann fjalla um jákvæðan aga.
Hvað felur hugtakið jákvæður agi í sér?
„Jákvæður agi er byggður á kenningum Alfreds
Adlers og Rudolfs Dreikurs. Jákvæður agi er hegð-
unarstjórnunarkerfi, sem er byggt á góðvild, virð-
ingu, ákveðni og hvatningu. Foreldrar og kennarar
sem sýna skilning og samúð kalla fram samvinnu,
góða hegðun og hæfileika til að takast á við vanda-
mál hjá ungu fólki. Þetta kerfi laðar fram færni sem
er nauðsynleg bæði núna og síðar í lífinu.“
Hvernig er jákvæður agi nýttur?
„Það þarf að kenna og sýna fram á þessi grunn-
atriði, virðingu, samvinnu og hæfileika til að takast
á við vandamál. Það er trú mín að ef ætlast er til að
barn læri aðferðir í stærðfræði þurfi að kenna og
sýna því hvernig fara á að og nemandinn þurfi tíma
til að æfa sig. Það sama á við um jákvæðan aga.
Nemendur verða að fá tækifæri til að æfa nýja
færni í öruggu umhverfi.
Við trúum því að flest hegðunarvandamál megi
útloka þegar foreldrar og kennarar læra árangurs-
ríkari aðferðir við að hjálpa börnum að mynda sér
heilbrigðar skoðanir og færni.“
Hvert er mikilvægasta ráðið sem þú gefur uppal-
endum?
„Þjálfun tekur tíma! Við búum í heimi þar sem
við erum orðin vön umsvifalausum árangri og um-
svifalausum viðbrögðum. Þetta eru afleiðingar há-
tækninnar. En við verðum að muna að breytingar á
fólki taka tíma. Ef einhver kæmi til mín sem full-
orðins einstaklings og segði að ég yrði að breyta
þremur hlutum í sambandi við sjálfan mig væri
ekki nóg að segja það. Ég yrði sjálfur að ákveða
hvort ég væri því sammála, til þess að breyting-
arnar gætu átt sér stað. Síðan þyrfti ég að ákveða
hvort og hvenær ég myndi framkvæma þær. En
með stuðningi og hvatningu eru allar breytingar
mögulegar.
Jákvæðum árangri má oft ná með bekkjar- eða
fjölskyldufundum. Fullorðnir bera þá ábyrgð að
hjálpa börnum og þróa með sér skapgerð-
areinkenni sem lætur þau lifa hamingjusömu og
innihaldsríku lífi. Jákvæður agi snýst ekki um full-
komnun, frekar um framfarir.“
Nánari upplýsingar um ráðstefnuna er að finna á
www.ims.is.
Ráðstefna | Íslensku menntasamtökin um innihaldsríka menntun
Jákvæður agi
Bill Scott er skóla-
stjóri Chalker-grunn-
skólans í Kennesaw í
Georgíu í Bandaríkj-
unum. Hann er sér-
fræðingur á sviði já-
kvæðs aga og
persónuleikakennslu og
hefur hlotið margvísleg
verðlaun sem kennari,
þar á meðal var hann
tilnefndur besti skóla-
stjóri ársins í Georgíuríki árið 2002.
Umgengni í borginni
VÍKVERJI kvartaði um daginn yfir
rusli út um allt og að enginn hirti um
að ganga frá eftir sig
Ég vil endilega sjá átak aftur, á
borð við „Hrein torg – fögur borg“
sem var fyrir nokkrum árum. Er
ekki kominn tími til að grípa til að-
gerða á ný og vekja fólk til meðvit-
undar?
Ég hef tröllatrú á að Þórólfur
borgarstjóri geti lagt verkefninu lið
og orðið forgöngumaður í nýju átaki
til að gera Reykjavíkurborg snyrti-
lega. Svona átak ætti að fara fram á
jákvæðan hátt, t.d. með því að á
ruslatunnum séu skilaboð til vegfar-
enda á borð við: „Settu drasl í mag-
ann minn!“
Einnig vil ég benda á að við meg-
um gjarnan hjálpast að við þetta.
Það er okkur öllum til góðs þótt við
þurfum stundum að taka upp drasl
eftir aðra.
Reykjavík verður 218 ára átjánda
ágúst. Viljum við ekki fagna afmæl-
inu með snyrtilegu afmælisbarni?
Eldri borgari.
Sex kettlingar fást gefins
KASSAVANIR og mjög blíðir. Í öll-
um litum, sumir eru Europe Short-
hair. Upplýsingar fást hjá Heiðu í
síma 847 7222.
Mána er enn saknað
HANN Máni okkar hefur ekki kom-
ið heim síðan 31. júlí sl. Hann býr í
Víðihlíð 36, 105 Reykjavík (Suð-
urhlíðar). Máni er persneskur kött-
ur, steingrár og loðinn með koparlit
augu. Hann er merktur með hálsól
með stáltunnu. Ef einhver hefur orð-
ið hans var þá vinsamlega látið okk-
ur vita. Hugsanlegt er að hann hafi
lokast inni í bílskúr eða kjallara.
Steingrímur s. 825 7902, Katrín s.
698 6837, heimasími 553 2470 – vidi-
hlid@simnet.is
Týndur persi
PERSNERSKUR köttur, golden,
eyrnamerktur, týndist í Rimahverfi
4. ágúst sl. Ef einhver hefur orðið
hans var má viðkomandi endilega
hafa samband í síma 567 3304 eða
865 2208.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6
5. O-O Be7 6. He1 b5 7. Bb3 d6 8. c3
O-O 9. h3 Rb8 10. d4 Rbd7 11. Rbd2
Bb7 12. Bc2 He8 13. a4 Bf8 14. Bd3 c6
15. b3 g6 16. Bb2 Db6 17. c4 Rh5 18. b4
Bg7 19. c5 Dc7 20. cxd6 Dxd6 21. dxe5
Dxb4 22. Ba3 Dc3 23. Bd6 Rxe5 24.
Ha3 Db2 25. Hb3 Da2 26. Rxe5 Bxe5
27. Bxe5 Hxe5
Staðan kom upp í ofurskákmótinu í
Biel sem lauk fyrir skömmu. Alexand-
er Morozevich (2743) hafði hvítt gegn
Krishnan Sasikiran (2666). 28. Rc4!
He7? Svartur tapar drottningunni við
þetta. Betra hefði verið 28... bxc4 29.
Bxc4 Dxa4 30. Bxf7+ Kh8! og svartur
getur haldið taflinu gangandi. 29. Ha3
bxc4 30. Hxa2 Hd8 31. Hd2 Hed7 32.
Df3 Hxd3 33. Hxd3 Hxd3 34. He3 Hd7
35. De2 og svartur gafst upp. Loka-
staða mótsins varð þessi: 1. Alexander
Morozevich (2743) 7½ vinning af 10
mögulegum. 2. Krishnan Sasikiran
(2666) 6 v. 3.-5. Ruslan Ponomarjov
(2722), Yannick Pelletier (2597) og
Etienne Bacrot (2712) 4½ v. 6. Luke
McShane (2643) 3 v.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik
Á NÆSTSÍÐUSTU tónleikahelgi þessa
sumars í Hallgrímskirkju mun bandaríski
orgelleikarinn Stephen Tharp koma fram
á vegum Sumarkvölds við orgelið. Tharp
flytur fjölbreyttar efnisskrár á hádeg-
istónleikum í dag kl. 12 og á kvöld-
tónleikum annað kvöld kl. 20.
Efnisskrár Stephens spanna allt frá bar-
okki til nútímans. Í dag leikur hann umrit-
un sína á Tónlist fyrir hina konunglegu
flugelda sem Georg Friedrich Händel
skrifaði 1748 og tvö verk eftir franska
organistann og tónskáldið Louis Vierne.
Efnisskrá sunnudagstónleikanna hefst
einnig á konunglegu flugeldatónlistinni en
þar á eftir leikur Stephen Tharp tvo sálm-
forleiki Bachs við sálminn Jesus Christus,
unser Heiland. Þá er báða að finna meðal
hinna 18 Leipzig-sálmforleikja Bachs sem
hafa verið rauði þráður tónleikarað-
arinnar í sumar. Þá leikur hann Sónötu nr.
2 í c-moll eftir Felix Mendelssohn og Me-
ditation eftir Louis Vierne, en tónleik-
unum lýkur svo með annarri umritun eftir
Stephen Tharp, The Fair, sem er úr Pet-
rushka eftir Igor Stravinsky.
Stephen Tharp var organisti og tón-
leikastjóri Kirkju heilags Patreks í New
York en helgar tíma sinn núna tónleikum,
kennslu og hljóðritunum. Fyrir utan tón-
leika, sem einleikari eða með öðrum, er
hann eftirsóttur kennari og fastur gesta-
kennari við Yale-háskóla en hann býr bæði
í New York og í Þýskalandi.
Bandarískur orgelleikari í Hallgrímskirkju
Stephen Tharp