Morgunblaðið - 07.08.2004, Side 53
MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 2004 53
Tölvulán
Námufélögum býðst allt að 300.000 króna
tölvulán í allt að 3 ár. Þetta gildir fyrir tölvu og
fylgihluti, s.s. tösku, prentara, aukaminni o.s.frv.
Á landsbanki.is geturðu reiknað út afborganir og
fyllt út umsókn um tölvulán.
410 4000 | landsbanki . is Banki allra námsmanna
Náman - námsmannaþjónusta
IBM ThinkPad fartölva frá Nýherja á frábæru verði
fyrir Námufélaga, 154.900 kr.
Intel Pentium M 1,5GHz, 256MB minni, 40GB diskur með APS
fallvörn, 15” TFT skjár (1024x768), Combo drif (CD-RW / DVD),
þráðlaust netkort 802.11b 11Mb
ÞÝSK-svissneski listamaðurinn
Dieter Roth hlýtur að vera besti Ís-
landsvinurinn hvað myndlistina
snertir, enda bjó hann hér löngum,
keypti sér hús á Seyðisfirði og átti
sinn þátt í að breyta listvitund ís-
lenskra myndlistarmanna. Hið
mikla listalíf sem er á Austurlandi,
sérstaklega á Seyðisfirði, er senni-
lega til komið vegna áhuga á Dieter
Roth og hans nærveru þar. Roth,
sem lést árið 1998, hefur sjaldan
verið jafn vinsæll og nú, sérstaklega
eftir yfirlitssýningar á verkum hans
í New York, Basel og Köln. Að vissu
leyti enduruppgötvaður myndlist-
armaður sem er sagður af mörgum
spekúlöntum vera jafn áhrifamikill í
Evrópu og Josef Beuys, en féll í
skugga hans sökum félagslegrar
vanhæfni. Beuys var semsagt fé-
lagslega virkur en Roth dálítill ein-
fari. Roth spannar mjög vítt svið
innan myndlistar, var t.d. frum-
kvöðull í gerð myndlistarbóka. Er
þó sennilega þekktastur fyrir rotn-
andi eða hnignandi hluti (decay
objects). En það eru skúlptúrar úr
efni eins og osti, ávöxtum eða kúk
sem rotna af sjálfsdáðum, eyðast
með tímanum. Margt í list Roths
bendir til þess að hann hafi heillast
af tómleika í eyðingu eða hrörnun
tímans. Heimildarverk hans, eins og
Reykjavíkurskyggnur og Seyð-
isfjarðarskyggnur – Húsin á Seyð-
isfirði, sýna tómleg hús, sjaldan er
manneskja á ferð og húsunum oft
illa við haldið.
Seyðisfjarðarskyggnur voru fyrst
sýndar á Seyðisfirði árið 1995 og
voru þá staðbundið verk, enda gaf
listamaðurinn bænum verkið í af-
mælisgjöf. Í upprunalegri útgáfu
mátti sjá 850 myndir af húsum á
Seyðisfirði renna gegnum lit-
skyggnur, hverja á eftir annarri.
Verkið hefur nú verið fært í nýtt
form. Myndirnar prentaðar á pappír
og eru til sýnis í íþróttasal gamla
Alþýðuskólans á Eiðum. Einnig hef-
ur upprunaleg sýningarskrá verið
endurprentuð eins og heimild um
heimild af sýningu. Hvers vegna
verkið hefur verið fært í nýjan bún-
ing er mér óljóst. Kannski er hug-
myndin komin frá Birni Roth sem
var lengi aðstoðarmaður Dieters og
hefur staðið í því að setja upp sýn-
ingar á verkum hans í áðurnefndum
borgum, eða kannski poppaði þetta
bara upp á miðilsfundi. Allavega er
það hvergi tekið fram í tilkynningu
um sýninguna, á boðsmiða eða í við-
tali við Björn Roth í Morgunblaðinu
hvers vegna verkið er sýnt í nýjum
búningi á Eiðum. Við sjáum jú
myndirnar af húsunum á Seyð-
isfirði. En upplifunin hlýtur að vera
annars konar af 850 papp-
írsmyndum sem er raðað þétt sam-
an á veggi og milliveggi, jafnvel á
glugga í íþróttasalnum, og steypast
yfir mann allar í einu, heldur en
þegar þær eru taldar ofan í mann
með litskyggnuvélum. Rýmisnotk-
unin er gerólík, efnistilfinningin
önnur og myndefnið sýnt frá allt
öðru sjónarhorni sem ein heild.
Hvernig sem á það er litið þá gefur
augaleið að þetta er allt annað verk
þótt það kunni að vera byggt á
sömu hugmyndinni. Hvarflar það að
mér að þegar Dieter Roth gaf Birni
syni sínum leyfi til að halda áfram
með verk sín hafi hann meðvitað eða
ómeðvitað verið að tryggja að þeim
myndi hnigna eftir daga sína. Í
breyttu formi og ýmiss konar aðlög-
un fjarlægast verkin höfund sinn,
breytast í eitthvað annað og með
tímanum hverfa þau frá uppruna
sínum.
MYNDLIST
Eiðar
Opið alla daga. Stendur fram í desember.
LJÓSMYNDIR DIETER ROTH
Morgunblaðið/Ransu
Frá verki Dieters Roths, Húsin á Seyðisfirði. Jón B.K. Ransu
CLIVE Gillin-
son, sem stýrt
hefur Lund-
únasinfóníunni
síðastliðin 20
ár og var selló-
leikari með
sveitinni 14 ár
þar á undan,
hefur verið
ráðinn list-
rænn stjórnandi og fram-
kvæmdastjóri Carnegie Hall í
New York. Gillinson kemur í
stað Robert J. Harth, sem hafði
gegnt stöðunni síðan árið 2001
en lést skyndilega í vor sem
leið.
Gillinson, sem er 58 ára, mun
taka við stöðunni í júlí á næsta
ári og sagðist í samtali við The
New York Times afar ánægður
með ákvörðunina. „Auðvitað
var hún erfið vegna þess að ég
hef eytt undanförnum 34 árum
með Lundúnasinfóníunni og
það getur verið erfitt tilfinn-
ingalega. En ég trúi því stað-
fastlega að stjórnunarstaða við
Carnegie Hall sé besta starf
sem hægt sé að hlotnast í tón-
listarheiminum.“
Nýr
stjórnandi
hjá Carn-
egie Hall
Clive Gillinson
Fréttir á SMS