Morgunblaðið - 29.08.2004, Page 1

Morgunblaðið - 29.08.2004, Page 1
STOFNAÐ 1913 234. TBL. 92. ÁRG. SUNNUDAGUR 29. ÁGÚST 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Fær Bush byr í seglin? Flokksþing repúblikana hefst í New York á morgun | 14 Atvinna | Félagsmálaskóli alþýðu og Háskólinn á Akureyri í samstarf Dampi haldið í atvinnuleit Tímaritið | Músík og minningar fyrir nátthrafna  Lækningajurt erkiengilsins 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 SUNNUDAGUR VERÐ KR. 350 Íslensk framleiðsla skipar mikilvægan sess í þjóðlífinu og mun í vaxandi mæli standa undir velferð þjóðarinnar. BANDARÍSKA al- ríkislögreglan (FBI) hefur hafið rannsókn vegna grunsemda um að háttsettur starfs- maður varnarmála- ráðuneytisins hafi stundað njósnir í þágu Ísraela. Að sögn banda- rískra fjölmiðla ræðir hér um sérfræðing í málefnum Írans sem sagður er náinn samstarfsmaður Douglas Feiths en hann er einn helsti ráðgjafi Donalds Rumsfelds varnarmálaráðherra. Feith er ásamt Paul Wolfowitz að- stoðarvarnarmálaráðherra talinn hafa verið einn helsti skipuleggjandi innrásarinnar í Írak. Í sambandi við þrýstihóp Grunur leikur á um að maðurinn hafi komið leynilegum upplýsingum um Íran í hendur fulltrúa þrýstihóps, „American-Israeli Public Affairs Committee“, sem styður ísraelsk stjórnvöld í einu og öllu. Ónefndur embættismaður sagði í samtali við AP-fréttastofuna hugsanlegt að mað- urinn yrði handtekinn í vikunni. Talsmaður þrýstihópsins vísaði ásökunum þessum á bug í gær, kvað þær „fráleitar“ og „tilhæfulausar með öllu“. Hið sama gerði talsmaður sendiráðs Ísraela í Washington. Trúnaðarskjöl um Íran Upplýsinga um meintar njósnir mannsins mun hafa verið aflað með hlerunum og ljósmyndum auk þess sem fylgst hefur verið með ferðum hans. Skjölin sem hann er sagður hafa látið af hendi vörðuðu stefnu Bandaríkjastjórnar gagnvart Íran en spenna hefur aukist í samskiptum ríkjanna vegna kjarnorkuáforma klerkastjórnarinnar í Teheran. Ísra- elar hafa lýst yfir þungum áhyggjum sökum þeirra. Ísraelar eru sérlega nánir banda- menn Bandaríkjamanna og þykja upplýsingar þessar alvarlegar í því ljósi. Hins vegar hefur áður komist upp um ísraelska njósnara í Banda- ríkjunum. Árið 1985 var leyniþjón- ustumaðurinn Jonathan Pollard handtekinn fyrir njósnir í þágu Ísra- ela. Hann var dæmdur í ævilangt fangelsi. Njósnari í starfsliði Rumsfelds? Washington. AFP. Donald Rumsfeld TIL eru þeir sem halda því fram að nútímalist sé almennt og yfirleitt algjört rusl en gagnrýnendur eru yfirleitt ekki jafn beinskeyttir og ræstitæknir sem starfar í einum af virtustu sýningarsölum Bretlands. Hreingerningarkona í Tate Britain-sýningarsalnum í Lund- únum gekk á dögunum fram á stór- an plastpoka sem reyndist geyma pappa, gömul dagblöð og annan úr- gang sem hún taldi flokkast undir stór abstraktmynd. Verk Metzgers er frá árinu 1960. Starfsmenn Tate fundu pokann í ruslinu en Metzger var þeirrar hyggju að þessi hluti listaverksins hefði orðið fyrir óbætanlegum skaða. Til allrar lukku reyndist honum unnt að leggja fram nýjan plastpoka sem hann náði að fylla með gömlum dagblöðum og pappa. Talsmaður Tate sagði að starfs- fólki hefði verið gerð grein fyrir því að umræddur plastpoki væri listgripur. sorp. Hún tók því pokann og henti honum í ruslið, öldungis grunlaus um að hún hefði þar með fargað hluta listaverks eftir Þjóðverjann Gustav Metzger. Verk Metzgers, sem nefnist „Endursköpun fyrstu almennu sýn- ingarinnar á sjálfseyðandi list“, var sumsé á sýningunni í salnum en verk þetta samanstendur af áð- urnefndum plastpoka sem stillt er upp við borð en í bakgrunni hangir Listaverkið fór í ruslið Lundúnum. AFP. KENNSLA í skólum landsins er óðum að hefjast og venju samkvæmt er nóg að gera í bóka- og fataversl- unum um þessar mundir. Miðborg Reykjavíkur er þar engin undantekning, ungt fólk er alls staðar á ferð og hefur dregið fram þykkari flíkur enda hefur heldur kólnað í veðri. Morgunblaðið/Árni Torfason Á bak við dropana „ÞEGAR sjúkdómurinn er sem verstur er líðan mín hreint út sagt ömurleg. Eins og ég sé með krabbamein í sálinni. [...] Ég reyni að vera á stöðugri hreyfingu til að deyfa sársaukann. Ég þríf íbúðina og bílinn eins og brjálæðingur á hverjum degi. Ég hef tekið upp á því að þrífa svalirnar klukkan fjög- ur að nóttu.“ Þannig lýsir Birna Hrönn Sig- urjónsdóttir, 31 árs gömul, einstæð þriggja barna móðir, sjúkdómsein- kennum sínum, en hún hefur frá barnsaldri þjáðst af persónuleika- röskun, þunglyndi, þráhyggju og áráttu, auk einkenna átröskunar. Birna hefur gert tvær alvarlegar sjálfsvígstilraunir með lyfjum og skipulagt margar tilraunir til að enda líf sitt með öðrum hætti. Hún er í hópi þeirra sem hafa þegið aðstoð Geðteymisins, sem sett var á laggirnar snemma í vor og rekið er af Miðstöð heimahjúkr- unar innan heilsugæslunnar. Reglubundnar heimsóknir hjúkr- unarfræðings hafi breytt miklu um bata hennar og gefið henni lífsvon. „Eins og er kemst ekkert annað að en draumur minn um að ná fullri heilsu. Mér hefur ekki liðið jafn vel í 10 ár. Ef ég sé beran nagla í vegg er ekki lengur mín fyrsta hugsun hvernig ég geti borað naglanum hérna inn í hauskúpuna,“ segir Birna og kímir, „heldur hvað væri hægt að hengja skemmtilegt á hann.“ Fleiri konur en karlar Fjöldi fólks með 75% örorku vegna geðraskana hefur nær tvö- faldast á undanförnum 8 árum. Alls höfðu 1.214 konur og 931 karl verið metin til 75% örorku vegna geðraskana 1. desember árið 1996, en 2.237 konur og 1.943 karlar 1. desember í fyrra. Að því er fram kemur í grein eftir Sigurð Thorlac- ius og Sigurjón B. Stefánsson lækna í nýjasta hefti Læknablaðs- ins hækkaði hlutfall kvenna sem metnar höfðu verið til 75% örorku vegna geðraskana úr 28 í 33% á tímabilinu og hjá körlum úr 31 í 42% þeirra sem metnir höfðu verið til 75% örorku. Á sama tíma jókst fjöldi nýrra 75% öryrkja vegna geðraskana hjá konum úr 68 árið 1996 í 182 árið 2003 og hjá körlum úr 51 í 134. Fjöldi fólks með 75% örorku af völdum geðraskana nær tvöfaldast á átta árum „Eins og ég sé með krabbamein í sálinni“  Samfélagið þarf/18–20 NOKKUR þúsund manns tóku þátt í mótmælum í New York á föstudagskvöld þar sem ríkisstjórn George W. Bush Bandaríkjafor- seta var fordæmd. Rúmlega 250 manns voru hand- teknir. Paul Browne aðstoðarlög- reglustjóri sagði að mótmælend- urnir hefðu valdið miklum truflunum og stofnað öryggi öku- manna í hættu. Þátttakendur í að- gerðunum sögðu hins vegar að mótmælaaðgerðirnar hefðu verið friðsamlegar og sökuðu lögreglu um að beita óhóflegu valdi. Flestir þeirra sem handteknir voru verða ákærðir fyrir óspektir. Búist er við umfangsmiklum mótmælum í New York í vikunni þegar fram fer þing Repúblikana- flokksins. Er þetta fyrsta lögreglu- aðgerðin gegn mótmælendum og því var spáð í gær að fleiri myndu fylgja í kjölfarið Gert er ráð fyrir að um 250.000 manns taki þátt í mótmælum í dag, sunnudag, við Madison Square Garden þar sem flokksþingið fer fram. Mótmæli stöðvuð í New York New York. AFP. Atvinna og Tímaritið í dag

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.