Morgunblaðið - 29.08.2004, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 29.08.2004, Blaðsíða 6
FRÉTTIR 6 SUNNUDAGUR 29. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ Frönskunámskeið hefjast 13. september innritun frá 29. ágúst Námskeið fyrir byrjendur og lengra komna. Taltímar og einkatímar. Viðskiptafranska og lagafranska. Námskeið fyrir börn. Kennum í fyrirtækjum. Tryggvagata 8, 101 Reykjavík, fax 562 3820.Veffang: http://af.ismennt.is Netfang: alliance@simnet.is Innritun í síma 552 3870 „NÚ ER ljóst að skatttekjur hins opinbera eru að aukast, einkum vegna mikilla framkvæmda á Aust- urlandi. Af þeim sökum má vænta þess að hagur sveitarfélaganna vænkist einnig frá því sem verið hefur. Þetta sést meðal annars á því að hlutdeild Jöfnunarsjóðs sveitar- félaga í innheimtum skatttekjum ríkissjóðs á síðasta ári voru um hundrað og fimmtíu milljónum króna hærri en gert var ráð fyrir í fjárlögum og munu þeir fjármunir væntanlega skila sér í auknum framlögum til sveitarfélaganna á yf- irstandandi ári.“ Þetta sagði Árni Magnússon, félagsmálaráðherra á tólfta ársþingi Sambands sveitarfé- laga á Norðurlandi vestra sem sett var á föstudag í félagsheimilinu Héðinsminni í Akrahreppi í Skaga- firði. Í almennum umræðum á fund- inum kom m.a. fram að tryggja þyrfti fjármuni í samræmi við ný verkefni sveitarfélaga, en það hafi ekki orðið raunin þegar sveitar- félögin tóku við málefnum grunn- skólanna. Eftir þingsetningu Ársæls Guð- mundssonar, sveitarstjóra í Skaga- firði, sem flutti skýrslu stjórnar, og kosningu starfsmanna þingsins, flutti Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir, verkefnisstjóri um málefni fatlaðra á Norðurlandi vestra, starfsskýrslu, Bjarni Þór Einarsson, fram- kvæmdastjóri sambandsins, lagði fram reikninga ársins 2003 og fjár- hagsáætlun næsta starfsárs auk starfsskýrslu framkvæmdastjóra. Eftir fyrirspurnir og umræður, voru lagðar fram tillögur stjórnar og einstakra fulltrúa og þeim vísað til nefnda. Ágreiningur innan tekjustofnanefndar Árni ræddi sérstaklega um fjár- málaleg samskipti ríkis og sveitarfé- laga á þinginu. Sagði hann að í upp- hafi verkefnis um eflingu sveitarstjórnarstigsins var gert ráð fyrir því að breytingar á tekjustofn- um sveitarfélaga yrðu ákveðnar út frá þeim tillögum sem verkefnis- stjórn og sameiningarnefnd mundu leggja fram um breytingar á verka- skiptingu ríkis og sveitarfélaga og á sveitarfélagaskipan. Sérstök tekju- stofnanefnd hafi verið skipuð í lok síðasta árs, „og hefur það verið af- staða mín að umræðu um fjármála- leg samskipti ríkis og sveitarfélaga væri sem mest beint í þann farveg. Því miður hefur verið ágreiningur innan nefndarinnar, um verksvið hennar og hafa þeir sem að verkinu standa komist að þeirri sameigin- legu niðurstöðu að tillögur samein- inganefndar um breytingu á sveitar- félagaskipan, sem eru nánast tilbúnar, verði ekki kynntar fyrr en sátt hefur náðst um þennan ágrein- ing,“ sagði Árni. Hann sagði fulltrúa sambandsins hafa viljað ræða ýmis gömul ágrein- ingsmál, svo sem um tekjutap vegna einkahlutafélaga og húsaleigubæt- ur, auk þess sem þeir telja nauðsyn- legt að endurskoða tekjustofna sveitarfélaga í heild sinni. „Um þetta hefur ekki náðst sátt í nefnd- inni og hefur það óneitanlega bitnað á verkefninu í heild sinni.“ Þá drap ráðherrann á samskipti ríkis og sveitarfélaga, stefnumótun í lánamálum vegna húsnæðiskaupa og nýjustu tíðindi í kjölfar þeirra breytinga og í lokaorðum sínum sagði hann: „Hlutverk sveitarfélag- anna hefur breyst mikið og það mun halda áfram að taka breytingum á komandi árum. Það er skýr afstaða Alþingis, ríkisstjórnar og mikils meirihluta sveitarstjórnarmanna að við eigum að efla og stækka sveit- arfélögin til að þau geti sinnt betur þeim auknu verkefnum sem þeim eru falin af löggjafanum og innt af hendi þá þjónustu sem íbúarnir gera kröfu um. Í þeim efnum megum við ekki tala aðeins um stöðuna eins og hún er í dag, við verðum að horfa til framtíðar. Flest getum við verið sammála um að ýmis þjónusta sem ríkisvaldið innir af hendi geti allt eins verið á ábyrgð sveitarfélaganna og að sveitarstjórnarmenn hljóti, að minnsta kosti flestir, að hafa miklu skýrari hugmyndir um þarfir íbú- anna heldur en embættismenn rík- isins.“ Óskað eftir tillögum um sameiningu sveitarfélaga Að loknum framsögu ráðherra og erindum þeirra Guðjóns Bragason- ar, formanns sameiningarnefndar, sem hann nefndi: Eflingu sveitar- stjórnarstigsins; Hjálmars Árnason- ar, alþingismanns og formanns verkefnisstjórnar, sem nefndist Ný verkefni sveitarfélaga, svo og Lín- eyjar Árnadóttur sem fjallaði um viðhorf sveitarstjórnamanns tóku við almennar umræður um fram- söguerindin. Þar kom fram í máli margra að til þess að unnt væri að fjalla um frekari eflingu þessa um- rædda stjórnsýslustigs vantaði þær upplýsingar sem ráðherra hefði boð- að að væru væntanlegar, það er hverjar tillögur um sameininguna væru, og einnig minntu nokkrir á að ekki mætti það gerast aftur að fjár- munir í samræmi við umfang hvers verkefnis fylgdu ekki með í yfir- færslunni til sveitarfélaganna, eins og menn vildu meina að gerst hefði við yfirtöku grunnskólans. Í svörum Hjálmars Árnasonar og Árna Magnússonar kom fram að nú loks hafi náðst um það samkomulag milli fjármálaráðherra og fram- kvæmdastjóra Sambands íslenskra sveitarfélaga að fara í viðræður um það hvaða verðmiði fylgi hverju verkefni, og fullyrti Hjálmar að kominn væri grundvöllur til að finna sanngjarna lausn sem sveitarfélögin ættu að geta vel við unað. Ráðherra sagði að ekki yrði gengið fram með neinu offorsi í sameiningartillögun- um, „það verður ekki gengið til þessa verks nema um þau ríki sátt, og það verða heldur ekki flutt verk- efni frá ríki til sveitarfélaga með neinu ofbeldi, heldur unnið að þess- um málum á þann veg að um þau skapist friður,“ sagði ráðherra að lokum. Þinginu lauk í gær, laugardag. Ársþing sveitarstjórnarmanna á Norðurlandi vestra Framlög til sveitar- félaga aukin á árinu Skagafirði. Morgunblaðið. Íslenska sendiráðið í Lundúnum Framkvæmdum við Kárahnjúka mótmælt AÐGERÐAHÓPUR umhverfis- verndarsinna frá samevrópsku sam- tökunum Earth First heimsótti ís- lenska sendiráðið í Lundúnum á föstudag til að vara íslensk stjórn- völd við að umhverfisverndarsinnar í Evrópu eru reiðir vegna fram- kvæmda Landsvirkjunar og Alcoa við Kárahnjúka. Þetta kemur fram í frétt sem Morgunblaðinu hefur borist. Fram kemur að meðlimir Earth First og annarra umhverfisverndarsamtaka í Evrópu eru staðráðnir í að taka þátt í baráttunni fyrir því að koma í veg fyrir að lokið verði við stífluna við Kárahnjúka og önnur sambærileg verkefni sem ógna náttúrunni á Ís- landi. Fram kemur að samtökin Earth First voru stofnuð fyrir tíu árum og hafa átt hlut að mörgum aðgerðum á sviði umhverfisverndarmála bæði í Stóra-Bretlandi og annars staðar. BIRGIR Ármannsson alþingismaður hefur verið kjörinn formað- ur Vestnorræna ráðs- ins til eins árs og tók hann við embættinu af Jonatan Motzfeld á ársfundi samtakanna í Grænlandi fyrir skömmu. Vestnorræna ráðið er samstarfvett- vangur þinganna á Ís- landi, í Færeyjum og á Grænlandi og eiga sæti í ráðinu sex þing- menn frá hverju land- anna. Markmið með starfinu er að efla samvinnu land- anna á sem flestum sviðum. Birgir sagði í samtali við Morg- unblaðið að þrenn málefni hefðu helst verið til umræðu á ársfundi samtakanna að þessu sinni. Í fyrsta lagi hefði verið rætt um orkumál í framhaldi af þemaráð- stefnu um endurnýjanlega orku sem fram hefði farið hér á landi í júní í sumar á vegum ráðsins og hefði ráðið samþykkt ályktun þar sem hvatt væri til þess að rík- isstjórnir landanna og þá sér- staklega orkumálaráðherrar þeirra efldu samvinnu sín í milli á þessu sviði. Birgir sagði að í öðru lagi hefði verið rætt um ályktun sem varðaði fiskveiðistjórn á Norður- Atlantshafi og sam- skipti við Evrópu- sambandið á því sviði. Í ályktuninni komi fram að löndin hafi hvert með sínum hætti ákveðna samn- inga við Evrópusam- bandið. Hins vegar kæmi fram að það væri miklvægt að vestnorrænu löndin héldu á loft því sjón- armiði í samskiptum sínum við Evrópu- sambandið að á þeirra hafsvæðum væri rekin ábyrg fiskveiðistjórn, sem hefði það að markmiði að tryggja sjálfbæra og skynsamlega nýtingu auðlind- arinnar. Aukin samvinna á sviði rann- sókna á loftslagsbreytingum Í þriðja lagi hefði einnig verið rædd og samþykkt ályktun sem fæli í sér aukna samvinnu á sviði rannsókna á loftslagsbreytingum á svæðinu. Það væri mikilvægt að upplýsingar lægju fyrir um hugs- anlegar breytingar á loftslagi ekki síst með tilliti til áhrifa þess á haf- ið. Vestnorræna ráðið hvetti til þess að þeir aðilar sem beri ábyrgð á rannsóknum í hverju landi fyrir sig efli samvinnu og upplýsingastreymi sín í milli. Birgir Ármannsson formað- ur Vestnorræna ráðsins Birgir Ármannsson TÆPLEGA 20% reykvískra barna og unglinga nota hjálma við hjólreið- ar samkvæmt könnun sem Slysa- varnafélagið Landsbjörg gerði helgina 21.–22. ágúst sl. Könnunin náði til níu bæjarfélaga og var hlutfall barna og unglinga sem nota hjálma minnst í Reykjavík en mest á Dalvík og Akureyri, þar sem rúmlega 60% barna nota hjálma. Í aðeins þremur af níu bæj- arfélögum var hlutfallið yfir 50%. Sambærileg könnun var gerð um miðjan júní í sumar og var þá hjálm- notkunin 31% í Reykjavík. Í frétta- tilkynningu frá Landsbjörg segir m.a að „athyglisvert [sé] að sjá að engin aukning [hafi] orðið í hjálm- notkun meðal barna og unglinga í Reykjavík þó að töluverð umræða hafi orðið um málið í sumar“. Í til- kynningunni er ítrekað að það sé for- eldra að brýna fyrir börnum og ung- lingum að nota hjálma þegar þau nota reiðhjól, línuskauta eða hlaupa- hjól. Tæp 20% barna í Reykja- vík nota hjólreiðahjálma TRYGGINGASTOFNUN ríkisins greiddi á síðasta ári meira en helm- ing af öllum greiðslum sínum vegna tannlækninga beint til tannlækna og er það í fyrsta skipti sem það gerist, en beingreiðslur til tann- lækna hafa tvöfaldast á síðustu fimm til sex árum. Á vef Tryggingastofnunar kemur fram að augljóst hagræði er að því fyrir fólk sem á rétt á endur- greiðslu vegna tannlækninga að greiða einungis það sem því ber hjá tannlækninum, sem síðan innheimt- ir hluta trygginganna hjá Trygg- ingastofnun beint. Það spari fólki ferð til Tryggingastofnunar til að sækja þá endurgreiðslu sem það á rétt á. Beingreiðslur til tannlækna tvöfaldast á 5–6 árum LÖGREGLU barst tilkynning um brotna rúðu í Tómstundahúsinu í Nethyl í Reykjavík kl. hálffjögur í fyrrinótt. Við rannsókn kom í ljós að fimm fjarstýrðum bensíndrifn- um smábílum að verðmæti rúmar tvær milljónir króna hafði verið stolið. Dýrum leik- fangabílum stolið ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.