Morgunblaðið - 29.08.2004, Síða 8

Morgunblaðið - 29.08.2004, Síða 8
FRÉTTIR 8 SUNNUDAGUR 29. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ Verð: 39.900kr. 2 fyrir 1 * ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S U RV 2 56 87 08 /2 00 4 *Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting í 7 nætur, akstur til og frá flugvelli erlendis og íslensk fararstjórn. Verð m.v. að bókað sé á netinu. Ef bókað er símleiðis eða á skrifstofu bætist við 2.000 kr. bókunar- og þjónustugjald á mann. Haustsólin Örfá sæt i - bó kaðu stra x! Bókaðu strax á www.urvalutsyn.is Tilboðið gildir í brottfarir 31. ágúst - 16. sept. Einungis valdir gististaðir á tilboði. Fleiri en tveir? Verð á mann er óháð fjölda í gistingu. til Portúgal, Mallorca, Benidorm eða Costa del Sol á mann í stúdíói í 7 nætur. Aukavika: 19.900 kr. Verð: 46.900kr.* á mann í íbúð í 7 nætur.Aukavika: 24.900 kr. Þetta er bara vitleysa hjá ykkur, þetta hefur ekkert með jafnrétti að gera, ég notaði hana bara sem skiptimynt fyrir forsætisráðherrastólinn. Líta má á auglýsinga-og markaðsher-ferðir sem hverja aðra fjárfestingu, sem skila verður ákveðinni arðsemi. Hönnun og dreif- ing auglýsinga, hvort heldur í prent- eða ljós- vakamiðlum, kostar fé og gæta þarf að því að aug- lýsingarnar berist í réttar hendur. Vel heppnuð auglýsing fyrir tannlím gerir lítið gagn ef hún birtist í barna- og unglingatíma- riti. Markaðsgreiningu er ætlað að leysa þetta vandamál, en hún eykur óhjákæmilega á kostnað- inn við auglýsingaherferðina. Við þessi fjárhagslegu vanda- mál bætist svo auglýsingaþreyta fólks. Almennt streitist fólk á móti því að vera „matað á auglýsing- um“, og eru þeir ófáir sem slökkva á viðtækinu eða skipta um stöð í auglýsingahléi. Auglýsandinn stendur því frammi fyrir nokkrum vanda. Hann verður að koma vöru sinni eða þjónustu á framfæri við neyt- endur, en kostnaður við þróun og dreifingu auglýsingarinnar má ekki vera of hár, hún verður að berast í réttar hendur og henni verður að vera vel tekið. Ólaunuð markaðsgreining Sumir auglýsendur telja Netið hafa leyst nokkur af þessum vandamálum, séu möguleikar þess nýttir á réttan hátt. Hefð- bundnar auglýsingar eru háðar fjölmiðlum um dreifingu, og sjái neytandi auglýsingu sem snertir við honum á hann óhægt um vik með að fjölfalda hana og dreifa til vina sinna. Hann nefnir hana kannski í samtölum, ef hún hefur ekki þá þegar gleymst. Netið og stafræn tækni tölv- unnar gerir fjölföldun gagna og dreifingu tafarlausa og nánast gjaldfrjálsa. Netnotandi sem rekst á áhugavert efni á Netinu getur á augabragði sent það öllum vinum og vinnufélögum sínum. Flestir netnotendur kannast við að hafa fengið með tölvupósti frá vinum eða vandamönnum skrýtlu eða skopmynd, stafrænan undir- skriftalista eða viðvörun um nýj- ustu tölvuveiruna. Stundum öðl- ast þessir tölvupóstar að því er virðist eigið líf, og hefur verið líkt við veirur, þótt sú samlíking sé e.t.v. óheppileg. Munurinn á tölvuveirum og „skrýtlupóstinum“ er að sjálf- sögðu sá að pósturinn er sendur með vitund og vilja sendanda og gerir viðtakanda engan skaða eða óskunda. Veiran dreifir sér hins vegar sjálf og getur mikil eyði- legging fylgt í kjölfarið. Samlíkingin er samt sem áður ekki alveg út í hött. Líta má á efn- ið – skrýtluna, skopmyndina o.s.frv. – sem veiru og netnotand- ann sem hýsil sem fjölgar og dreifir veirunni. Nái „veiran“ að „smita“ nógu marga „hýsla“ getur hún náð veldisvaxandi dreifingu og þannig sýnt hegðun sem er ekki ósvipuð smitsjúkdómafar- öldrum. Hagsmunir auglýsenda af því að nýta sér þessa tækni og til- hneigingu netnotenda eru aug- ljósir. Nái auglýsingar þeirra að komast inn í þetta óskipulagða, dreifða, en mjög áhrifamikla dreifikerfi, getur hún náð til mik- ils fjölda fólks, án þess að auglýs- andinn þurfi að greiða krónu fyrir dreifinguna. Auk þess sendir fólk áhugavert efni iðulega á þá sem það heldur að njóti þess, og því er líkt og þúsundir ólaunaðra mark- aðsgreinenda vinni fyrir auglýs- andann, þótt í skamman tíma sé. Eins og gefur að skilja skiptir miklu máli hvernig auglýsingin er hönnuð og hvert innihald hennar er. Fólk dreifir ekki efni um Netið til þess eins að auglýsa fyrirtæki og vörur, heldur vegna þess að efnið sjálft er einhvers virði. Aug- lýsingar í formi tölvuleikja og stuttmynda eru dæmi um góðar smitleiðir, og eru auglýsingastof- ur erlendis sem sérhæfa sig í gerð auglýsinga fyrir Netið með það að markmiði að ná smitdreifingu. Auglýsir sig sjálf Frægasta dæmið um smither- ferð er sú aðferð sem vefpóstfyr- irtækið Hotmail notaði, og notar enn, til að auglýsa þjónustu sína. Neðan á hvern tölvupóst sem not- endur Hotmail senda eru hengdar þrjár línur af texta þar sem við- takandinn er hvattur til að kynna sér kjör Hotmail og að verða sér úti um ókeypis netfang. Notend- urnir dreifa auglýsingunni fyrir fyrirtækið, og varan – þ.e. tölvu- pósturinn – auglýsir sig sjálf. Auðvitað munu ekki allir aug- lýsendur geta nýtt sér þessa smit- dreifingaraðferð. Vörur eða þjón- ustu sem ætluð er fyrir þjóðfélagshópa sem lítið eða ekk- ert nota Netið er ekki hægt að auglýsa þar. Þá hentar þessi aug- lýsingaaðferð frekar fyrirtækjum sem þjóna stórum svæðum, eða geta sent vöru sína hvert á land sem er. Staðbundin fyrirtæki græða lítið á því þótt auglýsing þeirra njóti vinsælda á Netinu. Fyrir þá sem geta komið boð- skap sínum á framfæri með þess- um hætti er um gullið tækifæri að ræða – svo lengi sem auglýsingin er nægilega smitandi. Fréttaskýring | Auglýsingaherferðir Smitandi auglýsingar Hvernig má gera auglýsinguna sjálfa eftirsóknarverða fyrir neytendur? Herferð Hotmail er talin afar vel heppnuð. Netið virkjað í þágu markaðsaflanna  Smitmarkaðssetning (e. viral marketing) nýtur sívaxandi vin- sælda meðal auglýsenda erlend- is, en smitauglýsingar eru af- sprengi nútímatölvutækni og netvæðingarinnar. Helstu kostir hennar eru lágur dreifingarkostnaður og hag- kvæmari dreifing á auglýsing- unni. Tölvuleikir, stuttmyndir og vefsíður eru notaðar til að koma skilaboðunum áleiðis, og geta herferðirnar verið langvarandi og íburðarmiklar. bjarni@mbl.isÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.