Morgunblaðið - 29.08.2004, Page 11

Morgunblaðið - 29.08.2004, Page 11
Morgunblaðið/ÞÖK Stutt heimsókn Bills Clintons til Íslands á þriðjudag vakti mikinn áhuga landsmanna. ’Ein helsta áskorun 21. ald-arinnar er að skapa þau skilyrði að fólk þurfi ekki að velja á milli starfsframa og einkalífs.‘Cherie Blair , eiginkona Tonys Blair, for- sætisráðherra Bretlands, virtur lögfræð- ingur og fjögurra barna móðir, á mál- þinginu Konur, völd og lögin, sem fram fór í Háskólabíói á föstudag á vegum Rann- sóknarstofu í kvenna- og kynjafræðum og lagadeildar Háskóla Íslands. ’Pólitísk rétthugsun er kominút í öfgar í Bretlandi og er að gera fólk brjálað.‘Michael Howard , leiðtogi breska Íhalds- flokksins, í ræðu á fimmtudag. ’Framsóknarkonur sætta sigekki við annað en að vera metn- ar að verðleikum og að hafa sömu möguleika og karlar til áhrifa og valda innan flokksins og úti í þjóðfélaginu.‘Úr ályktun fundar Landssambands fram- sóknarkvenna á miðvikudagskvöld, þar sem rædd var sú staða sem upp er komin í jafnréttismálum innan flokksins eftir að ljóst varð að Siv Friðleifsdóttir myndi missa ráðherraembætti þegar Sjálfstæð- isflokkurinn tekur við umhverfisráðu- neytinu í september. ’Í mínum huga hefur Ísland ogöll saga þess alltaf verið eins konar fyrirmynd mjög mik- ilvægs þáttar frjálsra ríkja. Ég hef lengst af starfað í opinbera stjórnkerfinu og ríkisstjórn þarf að hafa nægilegt vald til að gera það sem þarf í þágu fólksins en um leið verður að koma í veg fyrir misnotkun valds.‘Bill Clinton , fyrrverandi forseti Banda- ríkjanna, ræddi við fréttamenn á Þingvöll- um á þriðjudag, en hann var hér á ferð ásamt eiginkonu sinni Hillary, sem kom með nefnd bandarískra öldungardeild- arþingmanna til að kynna sér orkumál. ’Það er mín skoðun að við ætt-um að halda varnarviðbúnaði hér.‘Bandaríski öldungardeildarþingmaðurinn John McCain, sem veitir orkunefnd Bandaríkjaþings forystu, en nefndin kynnti sér vetnisverkefnið og önnur orku- tengd málefni á Íslandi á þriðjudag. ’Ég er himinlifandi með þennanárangur.‘Þórey Edda Elísdóttir stangarstökkvari, sem stökk á þriðjudag yfir 4,55 metra og varð í fimmta sæti í stangarstökki kvenna á Ólympíuleikunum í Aþenu. ’Það var mikill sigur fyrir migað komast í úrslitin og að ná sjö- unda sæti finnst mér frábær ár- angur.‘Fimleikamaðurinn Rúnar Alexandersson hafnaði í 7. sæti í æfingum á bogahesti á Ólympíuleikunum í Aþenu á sunnudags- kvöld. ’Við höfum ekki varið menning-arverðmæti okkar nægilega vel. Við verðum að læra af þessari reynslu.‘Valgerd Svarstad Haugland , menningar- málaráðherra Noregs, eftir að einu þekkt- asta málverki heims, Ópinu eftir Edvard Munch, var rænt úr Munch-safninu í Ósló á sunnudagsmorgun, ásamt öðru verki málarans, Madonnunni. ’Það blundar í mér að hvíla migaðeins, ég get vel þegið að eiga einu sinni rólegan janúarmánuð á ævinni.‘Ólafur Stefánsson , landsliðsmaður í handknattleik og íþróttamaður ársins tvö síðustu ár, sagðist íhuga það alvarlega að taka sér frí frá landsliðinu og leika ekki með því á heimsmeistaramótinu í Túnis á næsta ári. Ummæli vikunnar MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. ÁGÚST 2004 11 hljóða samþykkt sú krafa að konum yrði ekki fækkað í ráðherraliði flokksins. Nú liggur fyrir að sú krafa var virt að vettugi. Eru eitthvað meiri líkur á að áskorun fundar framsóknarkvenna sl. miðvikudag muni hafa áhrif innan flokksins? „Það er alveg ljóst að þessar kon- ur mæla af heilum hug því þær vilja sjá aukinn framgang kvenna, og það á ekki bara við um Landssamband framsóknarkvenna, heldur konur og jafnréttissinna í öllu samfélaginu. Það er alveg ljóst að sú breiðfylking kvenna, sem fram kom á fundinum telur að það verði tekið mark á þeim. Formaður flokksins hefur brugðist við á jákvæðan hátt nú í lok vikunn- ar. Þessi barátta mun skila sér.“ Kom ekki nálægt blaðaauglýsingunni Guðjón Ólafur Jónsson, varaþing- maður Framsóknarflokksins, hefur haldið því fram í pistli á vefsíðu að það þurfi ekki reynslumikla menn í pólitík til að sjá handbragð Sivjar og Jónínu Bjartmarz alþingismanns á blaðaauglýsingunni sem 40 fram- sóknarkonur stóðu fyrir. Spurð hvort þetta sé rétt segist Siv ekki hafa komið nálægt þessari auglýs- ingu: „Þetta er alrangt og það er með ólíkindum ósvífið að á sama tíma og það er eitt brýnasta verkefni okkar framsóknarmanna að auka fylgi okk- ar í þéttbýlinu skuli hann, varaþing- maður okkar í Reykjavík norður, fara ítrekað fram með ófriði gagn- vart oddvita flokksins í fjölmennasta kjördæmi landsins, Suðvesturkjör- dæmi. Konurnar héldu fund þar sem þær ákváðu að standa fyrir þessari aug- lýsingu. Ég vissi ekki af þeim fundi og frétti ekki af auglýsingunni fyrr en skömmu áður en hún birtist,“ seg- ir Siv. -Það er ljóst að þingflokkurinn snérist að stærstum hluta á sveif með tillögu formannsins. Höfðu þessi mótmæli engin áhrif í þing- flokknum þegar ákvörðunin var tek- in um að þér yrði gert að hverfa úr embætti umhverfisráðherra? ,,Það held ég ekki. Þetta gengur þannig fyrir sig, að formaðurinn leggur fram tillögu eftir að hafa átt samtöl við þingmenn. Síðan er hún samþykkt. Yfirleitt tala menn ekki um hvern- ig þeir kjósa en engu að síður hefur Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins, nú stigið fram opinberlega og kosið að gera það. Hann hefur sagt að hann hefði gjarn- an viljað að ég yrði áfram í ríkis- stjórninni en engu að síður hafi hann stutt tillögu formannsins.“ -Hvernig túlkar þú þessi ummæli Guðna? „Mér þykir vænt um þau, en holl- usta hans við Halldór kemur mér ekki á óvart.“ Það að efla flokkinn skiptir öllu máli í stjórnmálastarfi okkar -Styður þú kynjakvóta innan flokksins? „Ég hef stutt þau lög sem flokk- urinn hefur sett sér, þ.e. að leitast skuli við að hlutur hvors kyns verði ekki minni en 40% í öllu okkar starfi. Í jafnréttisáætluninni segir að þetta sé markmið okkar og það hafa fram- sóknarmenn stutt einróma á flokks- þingi. Við erum ánægð með jafnrétt- ismarkmið og reglur okkar og munum auðvitað leitast við að vinna eftir þeim reglum.“ -Í nýlegum vefpistli fjallar Val- gerður Sverrisdóttir viðskiptaráð- herra um þessi ágreiningsmál innan Framsóknarflokksins og segir orð- rétt: „Við erum fyrst og fremst fram- sóknarkonur. Flokkurinn hlýtur að vera númer eitt af því að ef að við höfum hann ekki þá verður engin okkar ráðherra á hans vegum.“ Ertu sammála þessari sýn flokkssystur þinnar? „Það er alveg ljóst að það að efla flokkinn skiptir öllu máli í stjórn- málastarfi okkar. Spurningin snýst um það hvernig við eflum hann. Það gerum við með því að fylgja fram- sýnni stefnu, eins og við framsókn- armenn höfum fylgt s.s. öflugri at- vinnustefnu sem leggur grundvöll að og stendur undir okkar góða velferð- arsamfélagi, sem er eitt hið besta í heiminum. Framsóknarflokkurinn hefur verið mjög traust stjórnmála- afl. Hann þarf að sýna breidd og afla sér fylgis með því að vera trúverð- ugur. Flokkurinn þarf að byggjast á slíkum sjónarmiðum. Einungis á þann hátt getur hann eflst.“ Þýðir ekkert að líta til baka Spurð hvort hún hafi orðið fyrir vonbrigðum með afstöðu kynsystra sinna í þingflokknum og ráðherralið- inu í þeim deilum sem upp hafa kom- ið segist Siv ekki vilja tala um von- brigði í þessu sambandi. „Ég vildi að niðurstaðan hefði orð- ið önnur, en það þýðir ekkert að líta til baka. Ég vil líta fram á veginn. Það kemur nýr dagur eftir þennan dag. Ég tel það vera mikil foréttindi að starfa í stjórnmálum og vil gjarnan leggja mitt af mörkum á meðan ég hef afl og krafta til. Ég mun halda mínu striki. Framsóknarflokkurinn hefur skipt miklu máli fyrir íslenska þjóð og við höfum miklu hlutverki að gegna í framtíðinni. Framsóknar- flokkurinn er miðjuflokkur, og sú staðreynd veitir honum mörg tæki- færi. Framsóknarflokkurinn hafnar öfgum til hægri og vinstri. Við viljum ekki haftalausa einkavæðingu, held- ur að einkaframtakið njóti sín þar sem það á við. Við viljum ekki blinda ríkisvæðingu sem öfgafyllstu vinstri sjónarmiðin standa fyrir. Framsókn- arflokkurinn ber mikla ábyrgð á því hvernig þetta samfélag hefur þróast hingað til og ég er sannfærð um að við munum bera mikla ábyrgð í framtíðinni. Ég lít mjög bjartsýn fram á veginn. Núna brettum við upp ermar, snú- um bökum saman og eflum okkur, þrátt fyrir að aðeins hafi gefið á bát- inn. Ég er bjartsýn og vongóð um að Framsóknarflokkurinn haldi áfram að standa fyrir góðum málum og hafi afl til þess að fylgja þeim fram, í góðu samstarfi við aðra,“ segir Siv ennfremur. Ótímabært að ræða breytingar á forystunni Spurð hvort búast megi við því í ljósi ólgunnar að undanförnu að kon- ur muni sækjast eftir embætti for- manns eða varaformanns í Fram- sóknarflokknum á næsta flokksþingi, segir Siv erfitt að átta sig á því á þessari stundu. „Næsta flokksþing er snemma á komandi ári. Það er mjög mikilvægt að við framsóknarmenn snúum þar bökum saman og nýtum það sem vettvang til sóknar, m.a. í næstu sveitarstjórnarkosningum.“ -Hefur þú hug á að sækjast eftir formennsku eða varaformennsku í flokknum? „Ég er hógvær stjórnmálamaður og hef ekki boðið mig fram gegn sitj- andi manni. Tíminn verður að leiða í ljós hvernig mál þróast og hvernig við viljum skipa okkar forystu. Það er ótímabært að ræða eitthvað um breytingar í því sambandi,“ segir Siv að lokum. ’ Í raun er umræðan um þessa niðurstöðufyrir löngu hætt að snúast um mína per- sónu. Hún er farin að snúast um jafnrétti og kvennabaráttu, lýðræði, réttlæti og sann- girni.‘ ’... það er með ólíkindum ósvífið að á samatíma og það er eitt brýnasta verkefni okkar framsóknarmanna að auka fylgi okkar í þéttbýlinu skuli hann, varaþingmaður okk- ar í Reykjavík norður, fara ítrekað fram með ófriði gagnvart oddvita flokksins í fjöl- mennasta kjördæmi landsins, Suðvest- urkjördæmi.‘ ’Ég er hógvær stjórnmálamaður og hefekki boðið mig fram gegn sitjandi manni. Tíminn verður að leiða í ljós hvernig mál þróast og hvernig við viljum skipa okkar forystu. Það er ótímabært að ræða eitthvað um breytingar í því sambandi.‘ ’Að sjálfsögðu hljóta mínir kraftar semannarra í þingflokknum að koma til greina við næstu uppstokkun. Aðalatriðið er að skipa sem öflugasta sveit. Ég finn að fjöldi flokksmanna telur að við þurfum að við- halda breiddinni. Það er hins vegar alveg óljóst í dag hvernig þetta verður.‘ Morgunblaðið/Árni Torfason Siv segir ljóst af fundi framsóknarkvenna sl. miðvikudag að þær ætli að styrkja sig enn frekar innan Framsóknarflokksins. omfr@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.