Morgunblaðið - 29.08.2004, Side 16
16 SUNNUDAGUR 29. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÞEIR létust allir
samstundis,
mennirnir fjórir
sem voru um borð
í breskri sprengjuflugvél af gerðinni Fairey
Battle, en hún fórst á jökli sem er á hálendinu
milli Eyjafjarðar og Öxnadals 26. maí 1941. Brot-
lendingin er talin hafa verið mjög harkaleg. Nú
rúmlega 60 árum eftir að vélin fórst er búið að
hreinsa svæðið á jöklinum, en 15 manna leið-
angur var að störfum í vikunni og lauk við hreins-
unarstarfið. Meðal annars voru líkamsleifar
mannanna fluttar með þyrlu Landhelgisgæsl-
unnar TF-LÍF til Akureyrar. Hörður Geirsson á
Akureyri leitaði vélarinnar í yfir 20 ár og bar leit-
in loks árangur síðsumars 1999. Hann hefur alls
farið 22 ferðir á jökulinn á undanförnum árum.
Flugvélin fór frá Kaldraðarnesflugvelli að
morgni 26. maí 1941 og lenti um hádegisbil á
Melgerðismelum í Eyjafirði, en tilgangur far-
arinnar var að sækja tvo meðlimi flugsveitar sem
höfðu verið á spítalaskipi sem lá við bryggju á
Akureyri. Á bakaleiðinni hvarf vélin sjónum
manna en vegagerðarmenn á Öxnadalsheiði
heyrðu í henni og einnig hermenn á Melgerð-
ismelum. Hún fannst svo eftir mikla leit, en óger-
legt þótti að koma líkamsleifum mannanna til
byggða. Þær varðveittust hins vegar vel í jökl-
inum og var hluti þeirra fluttur niður árið 2000
og svo aftur nú í vikunni. Í vélinni voru þrír Bret-
ar sem báru ættarnöfnin Hopkins, Garret og Tal-
bot, en flugstjórinn var Nýsjálendingur, Arthur
Round. Allir voru mennirnir ungir, ókvæntir og
barnlausir. Legsteinn þeirra er í Fossvogs-
kirkjugarði, þar sem minningarathöfn fór fram
síðla sumars árið 2000.
Mótor flugvélarinnar fannst í leiðangrinum nú
í vikunni. Að auki fannst afturvélbyssa vél-
arinnar, blysbyssa og sigti flugmannsins, stýri og
ýmsir smáhlutir hafa verið tíndir upp af svæðinu,
s.s. skíðamerki, 25-eyringur frá 1939 og penni,
svo fátt eitt sé nefnt.
Þar sem mótorinn er kominn í leitirnar sagði
Hörður að hægt væri að setja saman kenningu
um brotlendingarstefnu flugvélarinnar, en hún
var þvert á flugstefnu hennar. Mótorinn er mikið
brotinn, en merkið, Rolls Royce er merkilega
heilt. Talið er að flugstjórinn hafi gert tilraun til
að bjarga vélinni með því að fljúga ofan í dal sem
þarna er, eftir að komið var niður úr skýjum og
eitthvað farið úrskeiðis. Það hins vegar ekki tek-
ist og annar vængurinn lenti á jöklinum í krappri
beygju. Ekki varð komið í veg fyrir harkalega
brotlendingu.
Rispur
Feðgarnir Hörður Geirsson og Arnar Össur Harðarson við flak vélarinnar á jöklinum
á hálendinu milli Eyjafjarðar og Öxnadals. Hörður fann vélina eftir 20 ára leit, síð-
sumars 1999, og hann hefur farið 22 ferðir þangað upp.
Sjö skothylki fundust á jöklinum og eyddu sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar þeim enda stafaði hætta af
hylkjunum. Í hverju þeirra voru 2–300 skot þannig að sprengingin var gríðarleg og eftir hana myndaðist stór gígur.
Framhlið á talstöð vélarinnar.
Vélbyssuskothylki sem
fannst á jöklinum.
Um borð í sprengjuvélinni
voru fjórir menn, Bretarnir
Hopkins, Garret og Talbot
og flugstjórinn, Arthur
Round, sem var Nýsjálend-
ingur. Einhver þeirra hefur
gengið í þessum skó.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
25
61
1
0
8/
20
04
Toyota, Nýbýlavegi 4-6. Toyotasalurinn Selfossi, Fossnesti 24. Toyotasalurinn Reykjanesbæ, Njarðarbraut 19. Toyota Akureyri, Baldursnesi 1
STÓRSÝN
Yaris Bluehaustpakki100.000 kr. aukabúnaður Innifalið: Þokuljós að framan, sérstök
Yaris Blue innrétting, krómpúst,
silsalistar, vindskeið o.fl.
Frumsýn
um
nýjan Co
rolla
Kynnum
tákn um
gæði
Komdu á stórsýningu Toyota um helgina. Sjáðu nýja Corolla bílinn, glæsilega
Yaris Blue haustpakkann, ríkulegan útbúnað Avensis og margt fleira.