Morgunblaðið - 29.08.2004, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. ÁGÚST 2004 23
Fyrir bráðum fjórum árumsíðan greindi ég í sam-bærilegum pistli fránokkrum hugleiðingummínum um eðli og um-
fang hamingjunnar. Hugleiðing-
arnar gengu í örstuttu máli út á
það að hamingjan væri í eðli sínu
fremur óundirbúin andartök á
lífsleiðinni, en raunhæft markmið,
eða áfangastaður, er unnt væri að
stefna markvisst
að, finna og njóta
síðan upp frá því.
En þessi síðari
skilgreining væri
vinsæl og leiddi
stundum til of-
mats á fyrirbærinu.
Sjálft tilefnið var samtal sem
ég hafði þá nýlega átt, í góðra
vina hópi, á veitingastað í Holly-
wood. Spjallið átti ég við hana
Sally, mjög ríflega þrítugan
bandarískan barnasálfræðing með
demantshring frá auðugum
teppasala á fingri, en tóma óvissu
í höfðinu. Óvissan var til komin
vegna þess að Sally hafði skyndi-
lega hætt við að giftast honum
Teppa-Manga sínum, rétt fyrir
áætlað brúðkaup.
Nú efaðist Sally um að hún
hefði breytt rétt og hafði áhyggj-
ur af því að með þessu bráðræði
hefði hún misst af tækifærinu til
að höndla hamingjuna stóru,
vegna þess að hún hlustaði um of
á eigin tilfinningar og kenndir,
fremur en að trúa á mátt hjóna-
bandsins til þess að laða fram
ástina, lukkuna og lostann, smám
saman.
Í téðum pistli hét ég áhuga-
sömum lesendum því að ef ég
fregnaði eitthvað um lyktir þess-
arar ástar- og örlagasögu, skyldi
ég greina frá þeim þegar þær
bærust. Þar eð ég hef nýlega
fengið frekari fréttir af Sally og
teppasalanum efni ég hér með
heitið.
Það sem hafði gerst var sem sé
þetta: Teppasalinn var og er auð-
ugur maður en pasturslítill, af
vellauðugri fjölskyldu. Hann var
afar natinn og vænn við Sally og
gjafmildur svo af bar, og bæði
skartgripasalar og eðalbílasalar
gátu borið vitni um. Sally er
frískleg kona af miðstéttarupp-
runa og hreint engin meydrottn-
ing að eigin sögn. Hún hafði með
öðrum orðum umtalsvert meiri
áhuga á nánu líkamlegu samneyti
en teppasalinn, sem var snerti-
fælinn, inn í sig og að sumra áliti
meiri skápamaður en teppa.
Á ýmsu gekk í sambandi þeirra
um hríð. Hitt var þó verra í huga
Sallyar hve lítið gekk á að til-
teknu leyti. En eftir ítrekuð bón-
orð og gjafaburð endaði með því
að Sally ákvað að þetta væri
fyrsti og síðasti aðgangsmiði
hennar að hamingjuhúsinu mikla
og hún sagði hið langþráða já.
Hófst nú mikill undirbúningur
og ekkert til sparað, eins og
vænta má af manni sem vanur er
að leggja teppi á uppsprengdu
verði út í öll horn.
En nákvæmlega sjö dögum fyr-
ir brúðkaupið mætti hann ófor-
varandis í íbúðina hennar með
kaupmála til undirskriftar, þess
efnis að hún afsalaði sér öllu til-
kalli til umtalsverðra eigna hans
ef til skilnaðar kæmi og svo fram-
vegis.
Þetta kom illa við hina þol-
inmóðu og sífellt agaðri Sally.
Henni fannst þetta jafngilda van-
traustsyfirlýsingu gagnvart sér
og sambandinu og sagði pass. Og
á þeim tímapunkti átti fyrrnefnt
samtal mitt við hana sér stað. En
viti menn, ekki var sagan þar
með öll. Ó, nei.
Nokkrir dagar liðu nú með tár-
votum símtólum og símsvara-
skilaboðum jafnlöngum og með-
alstór hljóðbók.
Og sjá, hr. Renningur bankaði
loks upp á með tárin í augunum
og sundurrifinn kaupmálann í
hanskaklæddri hendi og bað
Sallyar enn á ný og án allra skil-
yrða og kvaða. Enn og aftur stóð
Sally frammi fyrir hinni flóknu
ákvörðun.
Sally sagði já. Engum sögum
fer af hjónalífinu eða því hvort
djásnið á fingrinum hefur loks
náð að stugga óvissunni og ef-
anum um dvalarstað hamingj-
unnar úr höfði Sallyar. Þaðan af
síður liggur nokkuð fyrir um það,
hvað hefur þá komið í staðinn.
Þau hjónin búa í Los Angeles, í
húsi á stærð við meðal klaust-
urskóla og hafa starfslið á þönum
í garðinum, við sundlaugina, í eld-
húsinu og fjórfalda bílskúrinn.
Hr. Axminster ku vera mikið í
burtu, starfsins vegna.
HUGSAÐ
UPPHÁTT
Eftir
Sveinbjörn I.
Baldvinsson
Er hamingjan ofmet-
in? II – Sally og teppa-
salinn hittast á ný
Ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum til Costa del Sol í september. Nú getur
þú notið skemmtilegasta tíma ársins á þessum vinsælasta áfangastað
Íslendinga í sólinni og búið við frábæran aðbúnað. Þú bókar núna, og
tryggir þér síðustu sætin, og 3
dögum fyrir brottför hringjum við í
þig og tilkynnum þér hvar þú býrð.
Að sjálfsögðu nýtur þú traustrar
þjónustu fararstjóra Heimsferða
allan tímann.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Verð kr. 19.990
Flugsæti m.v. 2 fyrir 1, 1. sept.
Verð kr. 29.995
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára.
Flug, gisting, skattar, 7 nætur, 1. sept.
Netverð.
Verð kr. 39.990
M.v. 2 í herbergi/stúdíó, 1. sept., 7 nætur.
Netverð.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Stökktu til
Costa del Sol
1. sept.
frá kr. 19.990
Kvennakórinn
Léttsveit Reykjavíkur
tilkynnir!
Getum bætt við nokkrum röddum í
1. sópran nú í haust.
Lysthafendur hafi samband gegnum
tölvupóst lettsveit@lettsveit.is
Stjórnandi.
Hópþjálfun
Gigtarfélags Íslands
RagnheiðurSólveigMargrét HuldaLilja Rut Rebekka
Ný námskeið hefjast
mánudaginn 6. sept. 2004
Námskeið í boði
• Létt leikfimi
• Hádegisleikfimi
• Vefjagigtarhópar
• Bakleikfimi karla
• Jóga fyrir gigtarfólk
• Vatnsþjálfun í Sjálfsbjargarlauginni
Góð leikfimi í notalegu umhverfi fyrir gigtarfólk og aðra
er áhuga hafa á góðri hreyfingu undir stjórn fagfólks.
Skráning og nánari upplýsingar á skrifstofu
Gigtarfélagsins í síma 530 3600