Morgunblaðið - 29.08.2004, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 29.08.2004, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. ÁGÚST 2004 27 Fjarhitun hf. er flutt á Suðurlandsbraut 4 Nýtt símanúmer er 578 4500 Kennt í Jógastöðinni Heilsubót, Síðumúla 15. Hefst 8. september - mán. og mið. kl. 20.00. JÓGA GEGN KVÍÐA Skráning í síma 544 5560 og á www.yogastudio.is með Ásmundi Gunnlaugssyni Uppbyggjandi, traust og yfirgripsmikið námskeið fyrir þá, sem eiga við streitu, kvíða eða fælni að stríða og/eða eru að ganga í gegnum miklar breytingar í lífinu. Næsta jógakennaraþjálfun hefst í haust. - SPENNANDI VALKOSTUR Stangarhyl 3, 110 Reykjavík, sími 591 9000 www.terranova.is Akureyri, sími 461 1099 Bændaferðir kynna: Haust-2 og Aðventuferð Haust-2 Austurríki - Þýskaland - Ítalía 14.-24. október Flogið til Frankfurt. Fyrstu 3 næturnar verður gist í Seefeld í Austurríki. Næstu 6 nætur verður gist í Riva á Hótel Enrica og í lokin 1 nótt á Hótel Maritim í Würzburg. Aðventuferð Þýskaland - Austurríki 28. nóvember - 5. desember Flogið til Frankfurt. Þaðan ekið til Ulm og gist í 1 nótt. Síðan ekið til Seefeld í Austurríki og gist þar í 5 nætur. Í lokin verður gist 1 nótt í Würzburg. Verð kr. 98.700 á mann í tvíbýli. Innifalið: flug, skattar, gisting, allur akstur erlendis, morgun- og kvöldverður og íslensk fararstjórn. Verð kr. 84.500 á mann í tvíbýli. Innifalið: flug, skattar, gisting, allur akstur erlendis, morgun- og kvöldverður og íslensk fararstjórn. Á haustin er mikið rætt um bækur,einkum eru námsbækur þá í brennidepli. Þegar ég var lítil fannst mér bækur afar merkilegar. Ég drakk í mig sög- ur á borð við Kapitolu, ævintýrasögur eftir Sabatini, ævisögu Napóleons og Heilsurækt og mannamein, en þessar bækur ásamt fleirum mynduðu uppi- stöðu í bókasafni heimilis þar sem ég var í sveit. Kapitola var í eldgömlu skinnbandi en sag- an var síung og fjallaði um hvernig hinir góðu eiga æv- inlega um sárt að binda vegna að- gerða illmenna en hið góða sigrar þó eftir langvarandi erfiðleika. Sabatini mótaði hugarfar mitt gagnvart karl- mönnum í upphafi; glæsilegir en mis- skildir ævintýramenn voru efstir á óskalistanum þá. Napóleon fannst mér dapurlega smávaxinn en ég lofaði Guð í huganum þegar ég sá löngu seinna í höll hans í París á gömlum kjólum hvað Jósefína hafði verið lítil. Heilsurækt og mannamein voru þó áhrifaríkasta lesningin. Meðan ég las þá bók var ég við fremur lélega heilsu; ég fékk aðkenningu að flestum þeim sjúkdómum sem lýst var en einkennin breyttust sem betur fer hratt í takt við lesturinn. Ég trúði öllu sem í þessum bókum stóð, meira að segja Basil fursti fékk raunveruleikablæ í huga mér. Það var varla fyrr en ég sjálf hafði skrifað bók sem það rann upp fyrir mér fyrir al- vöru að bækur eru allar, hver og ein einasta, skrifaðar af mönnum, fólki sem hefur fæðst, fengið fullorðins- tennur, unglingabólur, lært að lesa og skrifa og farið í fyllingu tímans að hugsa. Á einhverjum tímapunkti fór það svo að skrá hugsanir sínar og gefa þær út á bók. Reynsluskilningur er engum skiln- ingi líkur. Þegar mér var orðinn kýr- skýr bakgrunnur bóka hætti ég að trúa öllu því sem í þeim stóð og tók í staðinn að efast um allt sem þar var fram sett. Stundum finnst mér gæta nokkurs misskilnings á því hvað bækur eru. Bækur eru „niðursoðnar“ hugsanir einhvers. Með þetta í huga er næsta furðulegt hvað fólk er hátíðlegt yfir bókum. „Ég er mikil bókamann- eskja“, segir fólk t.d. alvarlegt í við- tölum. Það er svo sem ágætt en rétt er ævinlega að hafa í huga að höf- undar bóka eru bara fólk rétt eins og maður sjálfur og alveg undir hælinn lagt hvort þeirra hugsanir eru nokkuð merkilegri en annarra þeirra sem á vegi manns verða, þær eru bara skrif- aðar niður en ekki sagðar fram. Það er í raun bara stigsmunur en ekki eðlismunur á því að lesa eftir fólk eða tala við það. Reyndar eru bækur oftast skipulegri en lifandi frásögn, en einnig stundum þess leiðinlegri. Raunar geta bækur aldrei orðið skemmtilegri en höfundar þeirra. Eftir að þessi uppgötvun varð að lifandi sannindum með mér les ég bækur á annan hátt en áður. Ég les þær kurteislega en vænti endilega ekki mikils af þeim, verð glöð ef höf- undi tekst að koma fram með ný sjón- arhorn sem ég hef ekki heyrt eða lesið um áður eða sjálf komið auga á. Mér hugnast hins vegar verr allar fyrirsjá- anlegar lausnir og niðurstöður og all- ar „standard“ mannlýsingar. Allt sem snertir drykkjusiði, tísku og heim- spekilegar umþenkingar tek ég til vandlegrar íhugunar – þær opinbera oft höfundinn, drykkju- og matar- venjur hans eða ættmenna hans og vina, löngun hans til að líta út eða koma fyrir á ákveðinn hátt og loks op- inberast í ýmsu smálegu heilastarf- semi hans og skipulagsgáfur, sem og frumleiki. Til eru auðvitað alls konar bækur – skemmtibækur og námsbækur og allt þar á milli – en allar eiga þær höfund eða höfunda. Því fleiri sem höfund- arnir eru því „sálarlausari“ eru bæk- urnar gjarnan, ef svo má að orði kom- ast – þá þarf að koma til samvinna sem einkennist oft af málamiðlunum. Við lestur slíkra bóka hugsar maður af og til um hvor/hver höfundanna eigi þessar eða hinar lausnir eða nið- urstöður. Sumar bækur eru undirbyggðar af rannsóknum. Fyrst hélt ég að þar hlyti hinn algildi sannleikur að ráða ríkjum en seinna sá ég að rannsókn- um um sama efni ber hreint ekki allt- af saman og augu mín lukust upp fyrir því að fólk útbýr líka spurningarnar og stjórnar rannsóknunum, svo að bækur um það efni þarf líka að skoða með gagnrýnu hugarfari. Loks er forvitnilegt að sjá umbún- að bóka, þar kemur í ljós smekkvísi höfunda og annarra sem að útgáfunni koma. Þá sést hvort um er að ræða vandvirkni eða hroðvirkni, rómantík eða naumhyggju, svo dæmi séu nefnd. Eftir að ég fór að lesa bækur með tilliti til alls þessa urðu þær ekki leið- inlegri heldur skemmtilegri. Þá er að mörgu að hyggja, ekki bara stíl og söguþræði. En allar eru bækur í einum flokki hvað það snertir að þær eiga höfunda og það ber að taka mátulega mikið mark á þeim. Það sem í þeim er fram sett þarf að íhuga og taka afstöðu til. Hafa má hugfast að höfundar eru háðir upplagi sínu, uppeldi og um- hverfi – og síðast en ekki síst ber að muna að þekking hefur tilhneigingu til þess að úreldast, oft furðu fljótt. En það góða við allar bækur er að þær eru misvel heppnaðar tilraunir til að ná sambandi við annað fólk – niðurstöður hugsana eða athugana fyrir aðra að gæða sér á – og því allrar athygli verð- ar sem slíkar. ÞJÓÐLÍFSÞANKAR/Eru bækur merkilegar? Bók verður ekki skemmti- legri en höfundur hennar Eftir Guðrúnu Guðlaugsdóttur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.