Morgunblaðið - 29.08.2004, Side 28

Morgunblaðið - 29.08.2004, Side 28
28 SUNNUDAGUR 29. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ 28. ágúst 1994: „Margt bend- ir til þess að harka færist í vöxt í fíkniefnaheiminum hér á landi og að fleiri en áður séu djúpt sokknir í neyzlu eitur- lyfja. Þeir, sem neyta fíkni- efna og umgangast aðra neytendur og fíkniefnasala, bera í auknum mæli á sér vopn. Morgunblaðið greindi frá því í vikunni að maður, sem kunnur er að fíkniefna- neyzlu, hefði haft hlaðinn riff- il og heimatilbúna eldvörpu í fórum sínum. Ekki var þá langt síðan lögregla hafði tekið af honum tvær hagla- byssur. Ofbeldi og líflátshót- anir virðast vera daglegt brauð meðal þeirra, sem lifa og hrærast í svartnætti fíkni- efnaheimsins. Að mati SÁÁ eru að minnsta kosti 300 manns hér á landi svokallaðir sprautu- fíklar; sprauta sig með am- fetamíni og jafnvel sterkari efnum á borð við heróín. Sprautufíklum hefur farið fjölgandi á undanförnum ár- um. Mestur hluti fíkniefna- neytenda heldur sig vænt- anlega við „vægari“ fíkniefni á borð við hass, en nýleg dæmi um innbrot í apótek og heilsugæzlustöðvar til að stela lyfjum eru talin benda til þess að fólk sækist í vax- andi mæli eftir sterkari efn- um.“ . . . . . . . . . . 29. ágúst 1984: „Tuttugu menn tóku sig til og sendu sjónvarpinu bréf þar sem þeim tilmælum var beint til stofnunarinnar, að það veldi íslenska söngva og hljómlist í ríkara mæli en nú er gert milli táknmáls og kvöldfrétta. Auk þess verði leikin sígild lög eða nútímatónlist, enda sé kostað kapps um að vanda val hverju sinni. Í tilmælunum kemur einnig fram sú ábend- ing að vel kæmi til greina að útvarpa ljóða- og sagnalestri íslenskra skálda og lista- manna á fyrrgreindum tíma. Minnt er á að fjöldi þeirra hafi lesið ljóð, ritgerðir og sögur á hljómplötur og hljómbönd. Af því megi velja. Þessum tilmælum lýkur á orðunum: „Íslensk tunga á við í sjónvarpi og útvarpi.“ Tilmælin stafa af því að skipt- ar skoðanir hafa verið um jafn sjálfsögð atriði og þar koma fram. Hefur oftar en einu sinni verið vakið máls á því smekkleysi sem sjón- varpið hefur sýnt í lagavali á þessum mínútum.“ . . . . . . . . . . 30. ágúst 1974: „Stefnu- yfirlýsing ríkisstjórnar Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins hefur nú verið birt. Geir Hallgrímsson, forsætisráðherra, gerði grein fyrir henni á fundi í samein- uðu Alþingi í gær. Eins og gert hafði verið ráð fyrir er þar lögð þyngst áherzla á brýnustu aðgerðir í efna- hagsmálum til þess að koma í veg fyrir rekstrarstöðvun at- vinnufyrirtækja, treysta at- vinnuöryggi, bæta gjaldeyr- isstöðuna, styrkja hag fjárfestingarlánasjóða og rík- issjóðs og sporna við hinni öru verðbólguþróun. Víst er, að nauðsynlegt er að grípa til þess háttar aðgerða til þess að tryggja lífskjör almenn- ings í landinu.“ Fory s tugre inar Morgunb laðs ins Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. S ennilega gera fæstir af yngri kynslóðum sér grein fyrir hvers konar bylting hefur orðið á húsnæðislánamark- aðnum hér á einum áratug. Það er ekki breyting heldur bylting og þar hafa þrír aðilar komið mest við sögu: Jóhanna Sigurðardóttir, sem í félagsmálaráðherratíð sinni hafði forystu um að taka upp húsbréfa- kerfið, Árni Magnússon, núverandi félagsmála- ráðherra, sem hefur beitt sér fyrir 90% lánum frá Íbúðalánasjóði og bankarnir. Húsnæðismál voru áratugum saman þáttur í kjarabaráttu verkalýðsfélaganna. Bygging Verkamannabústaðanna á fjórða áratugnum hlýtur að hafa verið mikið átak og ekki að ástæðulausu, að þar hefur höggmynd af Héðni Valdimarssyni, formanni Dagsbrúnar á sínum tíma, verið sett upp. Þar á hún heima. Um þremur áratugum seinna urðu stórfelld- ar umbætur í húsnæðismálum láglaunafólks lykilþáttur í lausn kjaradeilu. Það var sumarið 1965, þegar samið var um byggingu 1.250 íbúða fyrir láglaunafólk í Breiðholti. Það var ekki að ástæðulausu að sérstakar ráðstafanir voru gerðar á sínum tíma í húsnæð- ismálum verkafólks. Um tíma ríkti neyðar- ástand í húsnæðismálum á höfuðborgarsvæð- inu. Eftir að heimsstyrjöldinni síðari lauk var gripið til þess að taka braggana, sem hermenn- irnir skildu eftir sig til þess að leysa brýnustu húsnæðisneyð fólks. Þeir voru óviðunandi vist- arverur og höfðu slæm félagsleg áhrif á þá, sem þar bjuggu. Þeir urðu fyrir aðkasti frá öll- um hinum. Allt var þetta til marks um þá stað- reynd að Íslendingar voru fátæk þjóð fyrir hálfri öld. Húsnæðismál voru því pólitískt viðfangsefni áratugum saman og mikið baráttumál verka- lýðsfélaganna að koma þeim í viðunandi horf. Í grundvallaratriðum má segja, að lánakjör- in, sem leitazt var við að tryggja láglaunafólki í kjarasamningunum 1965 hafi verið þau kjör, sem allir landsmenn geta nú notið. Og ekki óeðlilegt að byrja á þeim hópi. Í Staksteinum Morgunblaðsins í dag, laug- ardag, er vikið að sjónarmiði, sem brezkur kaupsýslumaður setti fram í bréfi til The Tim- es í London, á níunda áratugnum og hefur raunar verið fjallað um áður á þessum vett- vangi. Það hafði vakið athygli hins brezka kaupsýslumanns, sem búsettur var í Þýzka- landi, að einn meginmunur var á húsnæðislán- um í þessum tveimur löndum. Í Þýzkalandi voru vextir fastir. Í Bretlandi voru þeir breyti- legir. Bréfritarinn sagði sem svo: fólk getur þolað margt, m.a. sveiflur í afkomu sinni, svo lengi, sem það er öruggt um þak yfir höfuðið. Fastir vextir eru meiri trygging fyrir því, að fólk geti haldið húsum sínum eða íbúðum, þótt erfiðleikar steðji að en ef þeir eru breytilegir. Þetta var sagt á tíma, þegar vextir af húsnæð- islánum í Bretlandi ruku upp úr öllu valdi. En það eru mikil sannindi í grunnhugsun þessa manns, sem hér var vitnað til. Húsnæð- iskerfi, sem er þannig vaxið, að það tryggir jafnvægi í þjóðarbúskapnum og festu og öryggi í daglegu lífi fólks er líklegt til þess að tryggja almennt jafnvægi í samfélaginu og stuðla m.a. að því að kaupkröfum verði haldið innan þeirra marka, sem þjóðfélagið þolir og atvinnuveg- irnir geta staðið undir. Við Íslendingar erum nú að nálgast húsnæð- islánakerfi, sem lengi hefur verið við lýði í ná- lægum löndum. Það er einhver mesta bylting í þjóðfélagsmálum á Íslandi frá lýðveldisstofnun. Áhrif óðaverð- bólgu og verð- tryggingar Óðaverðbólgan, sem skall á í kjölfar valdatöku vinstri stjórnarinnar 1971 var upphaf 20 ára tímabils, sem jók mjög efnamun í samfélaginu og skapaði marg- víslegt þjóðfélagslegt ranglæti. Í hita leiksins var kannski gengið fulllangt í að kenna þeirri vinstri stjórn um allt, sem aflaga fór í þeim efnum m.a. af hálfu Morgunblaðsins. Auðvitað átti fyrri olíukreppan á áttunda áratugnum sinn þátt í að kynda undir óðaverðbólguna, þótt efnahagsstefna ríkisstjórnar Ólafs Jó- hannessonar hafi átt þar mestan hlut að máli. Og það átti sú síðari raunar líka. Óðaverðbólgan leiddi til þess, að þeir, sem stofnað höfðu til mikilla skulda á því tímabili ekki sízt vegna húsnæðiskaupa fylgdust með verðbólgunni greiða skuldir sínar upp. Þetta hafði raunar gerzt á áratugunum áður en ekki í sama mæli og á áttunda áratugnum. Verðtryggingin, sem upp var tekin að frum- kvæði seinni ríkisstjórnar Ólafs Jóhannessonar var sjálfsögð ráðstöfun og stuðlaði m.a. að því að lífeyriskerfi landsmanna kom undir sig fót- unum. Sem leiddi til þess, að við Íslendingar búum nú við öflugra lífeyriskerfi en flestar aðr- ar þjóðir. Og sýnir framsýni þeirra, sem stóðu að uppbyggingu þess í upphafi. Líklega hafa fáir einstaklingar haft jafnmikil áhrif á sam- félagsþróunina seinni hluta síðustu aldar og þeir, sem lögðu línur um uppbyggingu lífeyr- iskerfisins á sínum tíma. Einn þeirra, sem þar kom hvað mest við sögu var Guðmundur H. Garðarsson, fyrrum alþingismaður og formað- ur Verzlunarmannafélags Reykjavíkur um langt árabil. Um leið og verðtryggingin var sjálfsögð og nauðsynleg lagði hún grunninn að því að þeir, sem höfðu safnað eignum í skjóli verðbólgu og óðaverðbólgu gátu notið góðs af verðtryggingu, þegar hún kom til sögunnar. En jafnframt var grundvallarhugmyndin sú, að verðtryggð hús- næðislán ættu að vera með lágum vöxtum, sem þau voru í upphafi og má þar m.a. nefna verð- tryggðan lánaflokk Lífeyrissjóðs verzlunar- manna, sem þótti marka tímamót fyrir ald- arfjórðungi eða svo. Snemma á níunda áratugnum fóru hugmynd- ir um stóraukið frjálsræði í viðskiptum og fjár- málalífi að ryðja sér til rúms. Þær leiddu til þess að vextir voru gefnir frjálsir, sem leiddu til þess að þeir hækkuðu verulega á skömmum tíma. Þá hafði það gerzt, að verðtrygging fjár- skuldbindinga hafði verið tekin upp, sem verk- aði að sjálfsögðu á báða bóga, bæði gagnvart innlánum og útlánum, vextir höfðu verið gefnir frjálsir en jafnframt var óðaverðbólgan enn í fullum gangi. Á einu ári hækkaði verðtrygging lánaskuldbindinga jafnvel um 80%. Og frá- dráttarbærni vaxta í skattakerfinu hafði verið breytt verulega. Þá varð svonefndur Sigtúns- hópur til, þegar fólk, sem varð illa úti í hús- næðismálum vegna þessarar þróunar, hóf að mótmæla. Það varð svo ekki fyrr en með tímamóta- samningunum á vinnumarkaðnum í febrúar 1990, sem óðaverðbólgan var brotin á bak aft- ur, að verðtryggingin og vaxtastefnan fóru að virka með þeim hætti, sem að var stefnt. Þar með var grundvöllur skapaður fyrir þeim um- bótum í húsnæðismálum, sem síðar hafa orðið. Húsnæði og lífeyrir Húsnæði og lífeyrir eru grundvallarþætt- ir í nútímalífi fólks. Þegar horft er yfir farinn veg er engin spurning um, að okkur hef- ur tekizt betur að koma lífeyrismálum þjóð- arinnar í réttan farveg en í húsnæðismálum. Sú leið, sem valin var í lífeyrismálum í upphafi var rétt. Hins vegar kom óðaverðbólgan í veg fyrir, að lífeyriskerfið fengi notið sín fyrr en verð- tryggingin kom til sögunnar. Eftir það hefur uppbygging lífeyriskerfisins og sá þjóðar- sparnaður, sem þar fer fram verið ævintýri lík- astur. Húsnæðiskerfi okkar hefur verið brokkgeng- ara undanfarna áratugi og það er fyrst nú, sem það er að komast á það stig, sem nágranna- þjóðir okkar hafa lengi búið við. Engin spurn- ing er um að Jóhanna Sigurðardóttir alþing- ismaður á þar mikinn hlut að máli. Hún barðist eins og ljón fyrir húsbréfakerfinu, þegar hún var félagsmálaráðherra, sem markaði þáttaskil og upphafið að því kerfi, sem nú er að verða til, þótt margir hefðu efasemdir um það. Stefnumörkun framsóknarmanna fyrir síð- ustu kosningar var rétt eins og þróun mála hefur sýnt og Árni Magnússon, núverandi fé- lagsmálaráðherra, hefur fylgt því eftir af mikl- um krafti. En jafnframt er ljóst að nýtt og endurskapað bankakerfi á hér einnig mikinn hlut að máli. Þótt margt megi segja um þróun bankakerf- isins á undanförnum árum fer ekki á milli mála, að þar hefur mikil nýsköpun átt sér stað. Ungir menn með nýjar hugmyndir hafa komið til sögunnar. Sumt af því, sem þeir hafa gert hefur ekki hugnast öllum, sem með hafa fylgzt en þegar á heildina er litið fer ekki á milli mála, að framlag þeirra til betra samfélags á Íslandi er umtalsvert. Það er svo annað mál, að þótt bankarnir hafi tekið skemmtilegt frumkvæði í húsnæðislánum í samkeppni við Íbúðalánasjóð er ekki þar með sagt, að tímabært sé að leggja Íbúðalánasjóð niður. Þar kemur tvennt til. Í fyrsta lagi sú ábending Einars K. Guðfinnssonar, formanns þingflokks Sjálfstæðisflokksins, að með því hafi Íbúðalánasjóður verið festur í sessi vegna mis- mununar í lánakjörum milli þéttbýlis og dreif- býlis. Og í öðru lagi óvissa um hvað gerast HJÁLP VIÐ GEÐRÖSKUNUM Geðraskanir eru alvarlegur vandi ííslensku samfélagi. Samkvæmttölum, sem birtast í nýjasta hefti Læknablaðsins og greint er frá í Morg- unblaðinu í dag voru 2.237 konur og 1.943 karlar metin til 75% örorku vegna geðraskana 1. desember árið 2003. 1. desember árið 1996 voru 1.214 konur og 931 karl metin til 75% örorku vegna geð- raskana og hefur fjöldinn því nær tvö- faldast á átta árum. Í grein Önnu Gunnhildar Ólafsdóttur, blaðamanns á Morgunblaðinu, í dag er fjallað um vanda geðsjúkra og kemur fram að fjöldi fólks með geðraskanir í sjálfstæðri búsetu hafi ekki verið met- inn til 75% örorku og teljist því ekki til áðurnefnds hóps. Þar segir Sigursteinn Másson, formaður Geðhjálpar, að fjöldi fólks með geðraskanir hér á landi sé mikill og fari vaxandi. Hann segir að gera þurfi verulegt átak til að ná utan um þennan hóp til að geta nálgast hann og boðið upp á þjónustu. Þjónustu við þá, sem eiga við geð- raskanir að stríða, er alltaf hægt að bæta og ber að bæta. Ein nýjung í þess- um efnum er geðteymi, sem Miðstöð heimahjúkrunar innan Heilsugæslunn- ar í Reykjavík hefur rekið síðan í vor. Í teyminu eru fjórir, tveir hjúkrunar- fræðingar og tveir sjúkraliðar. Teymið heimsækir skjólstæðinga sína og veitir þeim aðstoð af ýmsum toga, tryggir til dæmis að þeir taki lyfin sín, hjálpar við sprautugjöf, aðstoðar í samskiptum við aðrar meðferðarstofnanir og jafnvel nánustu aðstandendur. Sigríður Bjarna- dóttir, verkefnisstjóri teymisins, segir að einnig sé rík áhersla lögð á að eitt- hvað komi í staðinn þegar þjónustu þess sleppir: „Við reynum að hjálpa fólki að finna rétta stuðninginn og halda áfram að fóta sig úti í samfélaginu.“ Birna Hrönn Sigurjónsdóttir er í hópi þeirra, sem hafa notið hjálpar geðteym- isins. Birna Hrönn er 31 árs gömul þriggja barna móðir og lýsir hún sjúk- dómi sínum í viðtali við Morgunblaðið: „Þegar sjúkdómurinn er sem verstur er líðan mín hreint út sagt ömurleg. Eins og ég sé með krabbamein í sálinni og krabbameinið sé að éta mig upp til agna. Ég reyni að vera á stöðugri hreyfingu til að deyfa sársaukann. Ég þríf íbúðina og bílinn eins og brjálæðingur á hverjum degi. Ég hef tekið upp á því að þrífa svalirnar klukkan fjögur að nóttu. Ef ég sest niður til að hvíla mig líður aldrei á löngu þar til ég finn sársaukann færast nær.“ Birna Hrönn hefur tekið miklum framförum upp á síðkastið og horfir bjartsýn fram á veginn þegar hún er spurð hvaða draum hún eigi um framtíð- ina: „Eins og er kemst ekkert annað að en draumur minn um að ná fullri heilsu. Mér hefur ekki liðið jafn vel í 10 ár. Ef ég sé beran nagla í vegg er ekki lengur mín fyrsta hugsun hvernig ég geti borað naglanum hérna inn í hauskúpuna, held- ur hvað væri hægt að hengja skemmti- legt á hann. Mig langar til að halda áfram að vakna til að hlakka til að gera eitthvað skemmtilegt með stelpunum mínum. Ekki til að hugsa um hvernig ég geti drepið sjálfa mig í dag eins og ég gerði svo oft áður. En veistu – það er fullt af svoleiðis fólki þarna úti.“ Það er þyngra en tárum taki að hugsa til allra þeirra, sem eru á ystu nöf „þarna úti“ og hárrétt hjá Sigursteini Mássyni að það þarf að ná utan um þennan hóp til þess að hægt sé að bjóða honum hjálp. Heilbrigðiskerfið þarf að vera fært um að veita þessu fólki aðstoð sem er á persónulegum grunni og lögð er áhersla á mannlegt viðmót. Allt er til vinnandi til að koma í veg fyrir að sjúk- lingur á batavegi fari út af sporinu og þurfi að byrja aftur frá grunni. Leiðin, sem Birna Hrönn er að feta úr heimi geðröskunar til fullrar heilsu, er torfær. Enginn vafi leikur á því að fólk með geð- raskanir á nú meiri möguleika á að leita hjálpar en áður og sem betur fer hefur orðið breyting til batnaðar á viðmóti al- mennings til geðsjúkdóma. Á hinn bóg- inn vekur ugg hversu stór sá hópur er, sem er með geðraskanir, og að hann skuli fara vaxandi. Það sýnir að hvergi má slá slöku við. Þvert á móti þarf að leggja aukna áherslu á heilbrigðisþjón- ustu vegna geðraskana og geðteymi Heilbrigðisþjónustunnar í Reykjavík er gott dæmi um hvernig það má gera.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.