Morgunblaðið - 29.08.2004, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. ÁGÚST 2004 49
F
A
B
R
IK
A
N
í Akoges-salnum, Sóltúni 3, Reykjavík
og í Gróttu-salnum, Suðurströnd, Seltjarnarnesi
Swing, salsa og fleiri
samkvæmisdansar - fyrir hjón, pör og vini.
Línudans með stæl - skemmtun, útrás og góð hreyfing
fyrir einstaklinga á öllum aldri.
Krakkagleði – dansað og sungið á Nesinu!
Einkatímar - frábærir fyrir einstaklinga eða pör til að
læra það sem hver og einn óskar sér.
Stutt námskeið - fyrir litla og stóra hópa sem vilja vera
sér á parti og skemmta sér saman.
Dans í vinnunni - við mætum á vinnustaðinn
og hristum hópinn saman.
Sýningar & Ráðgjöf - við útvegum flott atriði og
sýningar eða tryggjum að heimatilbúin atriði slái í gegn.
Danssmiðjan veturinn 2004 - 2005
Fyrri önn frá 13. september - 16.
desember
Seinni önn frá 11. janúar - 22. apríl
2005
Innritun og nánari upplýsingar
í síma: 862 4445 og á
www.danssmidjan.is
Hulda, Thea, Jói, Berglind og Hrafnhildur
Ve
tu
ri
nn
20
04
-2
00
5
Danssmiðjan
Á FYRSTU plötu Brúðarbandsins,
hinni kröftuglega titluðu Meira!
gefst loksins tækifæri til að athuga
hvort eitthvað haldbært leynist á
bakvið slæðuna. Eða með öðrum
orðum; eiga brúðirnar sjö til tónlist
til að bakka athyglisverða ímynd
sína upp? Meðlimir koma nefnilega
alltaf fram í brúðarkjólum á tón-
leikum og um það hefur fréttaflutn-
ingur af bandinu iðulega snúist,
frekar en tónlistarlega innstæðu.
Og hvernig er þetta svo? Eigum
við ekki bara að orða það þannig að
ég taki bónorði Brúðarbandsins?
Þetta er nefnilega fínasta plata,
hrein grallaragleðin kemst til skila
ásamt mjög svo heilnæmu „kýlum á
það“ viðhorfi.
Tónlistin fylgir fagurfræði pönks-
ins. Söng og hljóðfæraleik er oftast
ábótavant en það er allt saman
„partur af prúgramet“ eins og það
var orðað í ofmetinni íslenskri kvik-
mynd. Lagasmíðarnar eru eftir
þessu og á meðan ekkert laganna
hér er helber snilld detta þau hins
vegar aldrei niður í einhverja logn-
mollu, hvert og eitt þeirra hefur
eitthvað við sig. Það er helst í „Sæt-
ar stelpur“ og „Brúðarbands-
mantran“ sem trúðslætin keyra úr
hófi fram.
Brúðarbandið spilar athyglisvert
og melódískt síðrokk, dettur t.d. nið-
ur á nánast Cure-lega þunglynd-
isnýbylgju í „Lítil vísa um landið
okkar“ og viðlagið þar er glettilega
fallegt og djúpt.
„Sid“ minnir á skóglápssveitir
eins og Lush eða Ride og laglínan í
„Smjörkúkinum“ líkist einna helst
eldri lögum Bag of Joys. „Lagið um
Jón“ kallar þá Wedding Present
fram í hugann (og varla er það til-
viljun. Eða hvað?).
Gítarleikararnir í sveitinni eiga
oft stórleik og lyfta plötunni upp þar
sem hugmyndaríkar og frumlegar
gítarlínur skjóta iðulega upp kolli.
Textasmíðin er hins vegar upp og
ofan, oftast skopkennd og í sumum
tilfellum með pólitískum undirtón
(háttvirtur þingmaður, Pétur Blön-
dal, fær það óþvegið í „Fátæk í hel-
víti“). Stundum hitta textarnir í
mark en stundum eru þeir fremur
ódýrir.
Brúðarbandið sýnir hér dug og
þor, skeytir lítt um „vandaðan hljóð-
færaleik“ en lætur í þess stað vaða
sem er hið besta mál. Heildarupplif-
unin af plötunni er bráðgóð því af
henni stafar krafti – fölskvalaus og
hressandi ástríða. Og já, ég væri al-
veg til í að heyra Meira!
Morgunblaðið/Þorkell
„Og hvernig er þetta svo?“ spyr Arnar Eggert Thoroddsen í dómi sínum um fyrstu plötu Brúðarbandsins. „Eigum
við ekki bara að orða það þannig að ég taki bónorði Brúðarbandsins?“
Já
TÓNLIST
Íslenskar plötur
Brúðarbandið er
skipað Melkorku
(söngur), Kötu
(harmonika), Unni
Maríu (bassi),
Sunnu (trommur),
Guggu (hljómborð),
Eygló (gítar, söngur)
og Siggu (gítar, söngur). Danni Pollock
tekur gítarsóló í „Gítarinn brennur“.
Meðlimir semja lög og texta.
Upptökustjórn var í höndum Birgis Bald-
urssonar en um hljóðblöndun og hljóm-
jöfnun sáu Birgir og Orri Harðarson. Að-
stoðarmaður var Guðmundur Kristinn
Jónsson. Það eru 12 tónar sem gefa út.
BRÚÐARBANDIÐ - MEIRA!
Arnar Eggert Thoroddsen