Morgunblaðið - 02.09.2004, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 02.09.2004, Blaðsíða 22
DAGLEGT LÍF 22 FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ Föstudaginn 3. september Umgjarðakynning Nýtt frá Lafont Paris ALLIR VELKOMNIR 580 80 80 Vilt þú auglýsa! Þetta svæði er laust núna hringdu í síma midlun@midlun.is Einnota frauðmál fyrir kaffi nú á 20% afslætti 1000 stk á 1.980.- af 200 ml. glösum Brautarholti 28 Sími: 5 600 900 www.akarlsson.is 1 4 4 4 w w w. g u l a l i n a n . i s Ásólríkum sumardegi erheilmikið rennerí af fólkiá húðflúrstofunni Studio54 á Laugavegi, sem flestir þekkja sem JP Tattú. Sumir leita skjóls frá heitum geislum utandyra, aðrir svala forvitni og berja augum stórar hauskúpur vel hyrndar sem hanga á veggjum uppi og einhverjir dunda sér við að fletta möppum með myndum og táknum sem hægt er að láta húð- flúra á sig. Og svo eru það þeir sem eru búnir að velja sér mynd og bíða spenntir í sófanum eftir tattúmeistaranum Jóni Páli Hall- dórssyni. Hann minnir óneitanlega dálítið á Frelsarann þar sem hann storm- ar inn síðhærður og brosmildur ut- an úr sólskininu. En stóri hvíti páfagaukurinn sem situr á öxl hans gerir hann líkari sjóræningja en Jesú, þó svo að fuglinn sé vissu- lega í hvítum lit hreinleikans og beri nafn erkiengilsins Gabríels. Slær kettinum við Jón Páll kemur gauknum fyrir á þar til gerðu priki og býður fram aðstoð sína. Á meðan hann beitir nálinni fagmannlega og teiknar varanlegan sporðdreka á herðablað manns sem er fæddur í sporð- drekamerkinu, segir hann blaða- manni allt um gaukinn góða. „Gabríel er frábært gæludýr og þótt mér hafi þótt afskaplega vænt um kisurnar sem ég hef átt, þá hefur þessi fugl svo margt fram yfir köttinn að ég er nokkuð viss um að ég fái mér aldrei aftur kött. Fyrst og fremst er það sterkur persónuleikinn sem gerir hann ein- stakan og svo er hann líka bráð- gáfað kvikindi.“ Alinn upp af mannfólki Jón Páll og Birta Björnsdóttir spúsa hans eiga tvo aðra stóra páfagauka sem eru aðeins eldri en Gabríel og þeir heita Erlendur og Kári. Þeir eru af annarri tegund en hvíti prinsinn. „Þeir eru báðir fæddir í búrum af búrfuglum og aldir upp af fuglum en tamdir eftir á af mönnum, og eru því ekki eins mannelskir og Gabríel sem er handmataður. Handmötun felst í því að fuglinn er tekinn strax þeg- ar hann kemur úr egginu og er mataður af manneskju fyrstu mán- uðina í lífinu. Slíkir fuglar eru því mjög mannvanir og allt aðrir per- sónuleikar en þeir fuglar sem aldir eru upp af fuglum og tamdir eftir á. Erlendur og Kári sækja til dæmis ekki nærri eins mikið í að láta klappa sér og Gabríel.“ Frekjudós og mikil félagsvera Gabríel kemur frá Bretlandi þar sem hann var ræktaður af löglegum fuglaræktendum og á bakvið hann standa nokkrar kynslóðir fugla sem allir eru ræktaðir af mönnum. „Við fengum hann eftir að hann hafði verið í sóttkví hér heima. Þá var hann átta mánaða gamall en nú er hann orð- inn eins og hálfs árs. Hann er bara smábarn ennþá, því þessir fuglar verða ekki kynþroska fyrr en við þriggja til fjögurra ára aldur. Við erum því enn í uppalendahlutverk- inu en Gabríel er mjög frekur og hann krefst mikillar athygli. Þegar ég kem heim eftir langan vinnudag þá vill hann að ég taki hann á höndina, spjalli við hann og klappi honum, en ég verð að passa mig á að ofdekra hann ekki. Hann er mikil fé- lagsvera og honum finnst mjög gaman að hafa fólk í kringum sig og þess vegna tek ég hann stund- um með mér hingað í vinnuna. En hann er samt var um sig þegar ókunnugir gefa sig að honum og hann er sjaldnast til í að gera ein- hverjar kúnstir fyrir gesti.“ Jón Páll segir að Amazon- fuglarnir Erlendur og Kári hafi mikinn félagsskap af hvor öðrum en Gabríel blandi ekki geði við þá. „Hann vill bara vera með okkur mannfólkinu.“ Takkaóður tætari Þegar Jón Páll og Birta fengu Gabríel var hann mikið væng- stýfður en hann hefur safnað fjöðr- um síðan þá. „Núna getur hann flögrað aðeins um en hann nær ekki fullu löngu flugi, enda gengur það ekki upp að hafa hann alveg fleygan, því þá gæti hann týnst.“ Gabríel er aðeins byrjaður að læra að tala og segir halló í mörg- um mismunandi útgáfum. „Hann lærir þetta sjálfur og tekur upp á því að segja þau orð sem honum hentar.“ Gabríel fer sínar eigin leiðir á fleiri sviðum, til dæmis þegar hann ferðast milli hæða á heimili sínu, þá rennir hann sér fimlega niður handriðið. En hann getur líka ver- ið uppátektarsamur. „Hann slapp úr búrinu sínu um daginn og þegar ég kom heim var ekki snyrtilegt um að litast. Slóðin eftir hann var út um alla íbúð. Hann var búinn að borða heilt vítamínspjald og ég fann hann í vinnuherberginu mínu þar sem hann var við tölvuna að dunda sér við að kroppa hvern einasta takka af lyklaborðinu. Nokkrum dögum seinna hafði honum tekist að brjóta upp nýja lásinn á búrinu og þá var hann búinn að tæta niður öll kerti heimilisins og hann hafði smeygt sér undir teppi sem hylur tölvuna og rústað nýja lyklaborð- inu. Við verðum að passa vel að skilja engin tæki eftir þar sem hann kemst í þau. Ef hann kemst í farsíma þá er hann ekki nema fimm mínútur að stúta honum.“ Fær að koma með í sund Jón Páll og Birta taka Gabríel gjarnan með sér á flakk og nýlega fékk hann að fara með þeim hring- inn í kringum landið. „Við leyfum honum að vera lausum í bílnum og honum finnst fínt að vera í bíl. Er- lendur og Kári kæra sig aftur á móti ekkert um bíltúra og verða bara órólegir við slíkar aðstæður. Við tökum Gabríel líka með okkur í sumarbústaðaferðir ef svo ber undir og stundum fær hann að koma með okkur í sund þegar við erum á litlum sundstöðum úti á landi. Þá er hann bara að vappa um á bakkanum og skoða mann- lífið.“ Gabríel lifir greinilega skemmti- legu lífi og kemur til með að vera gæludýrið hans Jóns Páls næstu hálfa öldina og ekki ólíklegt að hann lifi eiganda sinn því fuglar af hans tegund geta orðið allt að hundrað ára gamlir.  GÆLUDÝR | Gaukurinn Gabríel er uppátektarsamur og hefur gaman af farsímum og tölvum Athyglissjúkur gáfufugl Gæludýr eru margskonar og sumir taka þau með sér í vinnuna. Kristín Heiða Krist- insdóttir fékk að vita allt um páfagaukinn Gabríel á meðan eigandi hans flúraði húð viðskiptavinar með nál og bleki. Morgunblaðið/Jim Smart Jón Páll og Birta: Að leika sér með gæludýrin. Allir þrír saman á grein: Gabríel telur sig greinilega ekki samboðinn þeim grænu, sem heita Kári og Erlendur. khk@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.