Morgunblaðið - 27.09.2004, Side 11

Morgunblaðið - 27.09.2004, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. SEPTEMBER 2004 11 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF ● BILL Gates, stofnandi og stjórn- arformaður bandaríska hugbún- aðarfyrirtækisins Microsoft, er enn ríkasti maður í Bandaríkjunum að mati bandaríska fjármálatímarits- ins Forbes. Hefur Gates setið í efsta sætinu á lista blaðsins yfir helstu auðmenn landsins í 11 ár. Auðæfi Gates eru metin á 48 milljarða dala, jafnvirði um 3.400 milljarða íslenskra króna. Kaupsýslumað- urinn Warren Buffett er í 2. sæti á listanum en eignir hans eru metnar á 41 milljarð dala. Samtals eru eignir 400 ríkustu Bandaríkjamannanna metnar á u.þ.b. eitt þúsund milljarða dala, sem er um 45 milljarða aukning frá því í fyrra. Segir tímaritið að aukn- inguna megi rekja til batnandi efna- hags í heiminum. Paul Allen, sem stofnaði Micro- soft með Gates, er í 3. sæti yfir rík- ust Bandaríkjamennina. Í næstu fimm sætum er fólk úr Walton- fjölskyldunni, sem á verslunarkeðj- una Walmart. Þeir Sergey Brin og Larry Page, stofnendur netleitarinnar Google, komast í fyrsta skipti á lista Forbes, en fyrirtæki þeirra var sett á hluta- bréfamarkað í sumar. Þeir eru yngst- ir á listanum. Bill Gates enn rík- astur í Bandaríkjunum Ánægður Bill Gat- es, stjórnarfor- maður Microsoft, og ríkasti maður veraldar, brosir framan í heiminn. ● ÚTFLUTNINGSRÁÐ tekur þátt í skipulagningu á Norrænu fjárfesting- arþingi sem haldið verður í Kaup- mannahöfn í dag. Á þinginu er sjónum beint að líf- og hátæknigeirum sem byggst hafa upp á Norðurlöndum und- anfarin ár. Í tilkynningu frá Útflutningsráði seg- ir að yfir 40 norræn fyrirtæki hafi sér- staklega verið valin til að kynna afurð- ir sínar á fjárfestingarþinginu og þar á meðal séu fjögur íslens fyrirtæki, Hex, Lífeind, Lyfjaþróun og Orf. Fjögur fyrirtæki á nor- rænu fjárfestingarþingi ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI GERT er ráð fyrir að ótilgreindur fjöldi hlutabréfa í Símanum verði boð- inn almenningi til kaups á markaði, að því er segir í lýsingu framkvæmda- nefndar um einkavæðingu á verkefni ráðgjafa, sem auglýst verður eftir á næstu dögum, í tengslum við sölu á hlut ríkisins í Símanum. Jafnframt kemur til greina að selja ótilgreinda stærð hlutar í Símanum til kjölfestu- fjárfestis eftir forval eða lokað útboð. Fram kemur í verkefnalýsingu einkavæðinganefndar að við ráðningu ráðgjafa, sem tilkynnt verður um í síðasta lagi 10. nóvember, verði tekið mið af alþjóðlegri reynslu og þekk- ingu á sviði innlendra og erlendra fjarskiptafyrirtækja. Einnig verði tekið mið af reynslu af gerð skráning- arlýsinga og sölu á hlutabréfum á inn- lendum og erlendum markaði, reynslu einstakra ráðgjafa, tilboðs- fjárhæð og tillögum um fyrirkomulag verkefnisins. Einkavæðingarnefnd áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum og ekki verður samið við aðila sem tengjast fyrir- tækjum í samkeppni við Símann. Verkefni ráðgjafa felst m.a. í því að meta kosti sem koma til greina við sölu hlutabréfa í Símanum, þ.á m. stærð hlutar, verð og tímasetningu. Einnig að meta kosti og galla þess að í stað sölu til kjölfestufjárfestis, verði hlutir í Símanum boðnir fjárfestum og/eða almenningi til kaups í tiltekn- um áföngum. Þá skal veita ráðgjöf um hvort og þá hvernig standa megi að sölu til kjölfestufjárfestis, og hversu stór hlutur yrði boðinn slíkum fjár- festi. Ráðgjafa er ennfremur ætlað að taka við tilboðum frá áhugasömum fjárfestum og yfirfara þau. Ráðgjafi má ekki tengjast keppinautum Lýsing á verkefni ráðgjafa vegna sölu á hlut ríkisins í Símanum liggur fyrir FYRIRTÆKI og einstaklingar með rekstur geta nú, í gegnum Netbanka Íslandsbanka, gengið frá greiðslu á virðisaukaskatti um leið og þeir skila virðisaukaskattsskýrslum rafrænt. Marteinn M. Guðgeirsson sérfræð- ingur í fyrirtækjaþjónustu Íslands- banka, sem býður upp á þessa nýju þjónustu, segir að í þessu felist mikið hagræði. „Menn hafa getað skilað virðisaukaskattsskýrslum rafrænt í gegnum vef ríkisskattstjóra, www.rsk.is, í einhvern tíma, en þetta er í fyrsta skipti sem hægt er að klára málið frá a-ö á einum stað, það er að gera skýrsluna og greiða skatt- inn um leið,“ segir Marteinn. Hann segir að með þessari nýju þjónustu Íslandsbanka sé einnig hægt að ganga frá greiðslunni fram í tímann með framvirkri greiðslu í Netbankanum. Í tilkynningu frá Íslandsbanka segir að í þessu felist bæði hagræði og betri yfirsýn því hægt verði að nálgast eldri virðisaukaskatts- skýrslur í Fyrirtækjabankanum. Þá segir í tilkynningunni að Fyrir- tækjabankinn villuprófi skýrslurnar til að lágmarka hættu á mistökum. Íslandsbanki með nýjung í VSK-skilum Morgunblaðið/Golli Nýjungin kynnt Jón Ingi Þorvalds- son, forstöðumaður netþróunar Ís- landsbanka, kynnir nýjung bankans fyrir starfsmönnum. FRÉTTIR BJÖRN Bjarnason dómsmálaráð- herra telur fyllilega réttmætt að velta upp spurningunni hvort þörf sé á sérstökum stjórnsýsludóm- stóli og vísar í því efni til þriggja nýlegra dóma sem varða stjórnsýsluna en að mati Björns eru fingurbrjót- arnir í þeim áberandi og sumir alvarlegri en aðrir og lýsti hann sig ósam- mála niðurstöðu þeirra þegar litið væri til starfshátta á vegum stjórnsýslunnar. Þetta kom fram í ræðu sem Björn flutti á málþingi Lögfræð- ingafélags Íslands um eftirlit með störfum stjórnvalda. „Sumum þeirra [dómanna],“ sagði Björn, „hefur ríkisstjórnin meira að segja neyðst til að bregðast við með því að leita eftir sérstakri lagasetn- ingu til að draga úr fordæmisgildi dóma, þegar þeir hafa gengið þvert á allt, sem viðtekið hefur verið í stjórnsýslurétti eftir hefð- bundnum lögskýringaraðferðum.“ Dómarnir, sem dómsmálaráð- herra nefndi, eru svokallaður land- mælingadómur frá árinu 1998 en þá dæmdi Hæstiréttur ákvörðun umhverfisráðherra að flytja starf- semi Landmælinga Íslands til Akraness ólögmæta þar sem ráð- herra hefði ekki aflað lagaheim- ildar fyrir flutningum. Þá svokall- aður Stjörnugríssdómur frá árinu 2001 þar sem Hæstiréttur hnekkti úrskurði umhverfisráðherra um ákvörðun heilbrigðisnefndar þar sem dómurinn taldi ráðherrann vanhæfan til að fara með málið og í þriðja lagi nefndi Björn svokall- aðan minnisblaðsdóm frá árinu 2002 þar sem felld var úr gildi staðfesting úrskurðarnefndar um upplýsingamál á synjun forsætis- ráðuneytis um að veita aðgang að minnisblaði til að undirbúa um- fjöllun og ákvörðun ríkisstjórnar- innar um viðbrögð við dómi Hæstaréttar um tekjutryggingu öryrkja. Þurfti frumvarp til að eyða fordæmisáhrifum dómsins Um landmælingadóminn sagði Björn m.a.: „Furðuleg áhrif þessa dóms má meðal annars merkja af því, að í frumvarpinu, sem flutt var til að eyða fordæmisáhrifum hans, þurfti í sérstöku band- ormsákvæði að leita eftir heimild til að starfrækja 9 stofnanir utan Reykjavíkur, sem þegar voru starfandi utan borgarinnar, án þess að njóta til þess heimildar í lögum. Þar af voru a.m.k. þrjár ekki fjær höfuðborginni en í Kópa- vogi!“ Um Stjörnugrísdóminn sagði Björn að dómarar hafi fallið í þá gryfju að yfirfæra reglu úr réttar- fari sem næst hráa yfir stjórn- sýsluna án þess að leiða hugann að afleiðingunum. Í dóminum hafi enginn varnagli verið sleginn við því í hvaða tilvikum hin óvenjulega túlkun réttarins á vanhæfisreglum stjórnsýsluréttarins ætti við. Sér- hver starfsmaður hefði þannig með vanhæfi sínu getað gert ráðherra vanhæfan til að gegna embætti sínu, algerlega án tillits til þess af hvaða ástæðu vanhæfi starfs- mannsins væri sprottið. „Ríkis- stjórnin átti ekki annan kost,“ sagði Björn, „eftir þennan dóm en að leita enn eftir lagabreytingum til að eyða réttaróvissu vegna hans og árétta löggjafarstefnuna að baki hæfisreglum laganna.“ Þekkingarleysi réttarins Um minnisblaðsdóminn sagði dómsmálaráðherra að þekkingar- leysi réttarins hafi birst skýrt í út- leggingum hans á hlutverki starfs- hópsins sem skipaður var til að bregðast við öryrkjadóminum svo- nefnda og til að undirbúa aðgerðir af því tilefni en þær hafi rétturinn skilgreint afar þröngt, vægast sagt. Af því hafi dómurinn svo dregið þá ályktun að vinna hópsins hafi ekki verið þáttur í stefnu- mörkun ríkisstjórnarinnar, jafnvel þótt hún væri augljóslega fólgin í því að undirbúa lagafrumvarp fyr- ir ríkisstjórnina sem hún hafi gert að sínu og lagt fyrir alþingi til að bregðast við áðurnefndum dómi. Skilningur og virðing fyrir lögmálum stjórnsýslunnar „Ég hef hér rakið þrjá dóma og lýst mig ósammála niðurstöðu þeirra, þegar litið er til starfshátta á vettvangi stjórnsýslunnar. Nú getur að sjálfsögðu enginn fullyrt, að sérstakur stjórnsýsludómstóll geti ekki komist að umdeildri nið- urstöðu. Rök hníga á hinn bóginn til þess, eins og ég gat í upphafi máls míns, að dómstóll, sem sér- hæfir sig á sviði stjórnsýslu muni tileinka sér meiri skilning og virð- ingu fyrir hinum sérstöku lögmál- um innan hennar, en fram kemur í þessum þremur dómum,“ sagði Björn Bjarnason. Réttmætt að velta fyrir sér stofnun stjórnsýsludóms Björn Bjarnason Dómsmálaráðherra gagnrýnir þrjá dóma sem fallið hafa í Hæstarétti EIRÍKUR Tómasson, prófessor og forseti lagadeildar Háskóla Íslands, flytur erindið: Hvernig á að skýra fyrirmæli 2. gr. stjórnarskrárinnar um að Al- þingi og forseti Íslands fari saman með löggjafarvaldið? Er- indið er flutt í málstofu Laga- stofnunar í Lögbergi, stofu 101, miðvikudaginn 29. september kl. 12.15. Fundarstjóri er Sigurður Líndal, prófessor emeritus. „Í erindinu er gengið út frá því sem gefnu að forseti geti synjað lagafrumvarpi staðfest- ingar skv. 26. gr. stjórnarskrár- innar, svo að gilt sé að lögum. Að teknu tilliti til þess verður leitast við að svara þeirri spurn- ingu, hvort hendur þingsins séu að einhverju leyti bundnar eftir að forseti hefur neitað að stað- festa frumvarp sem þingið hefur áður samþykkt. Einkum verður fjallað um þetta lögfræðilega álitaefni í ljósi fjölmiðlamálsins svonefnda,“ segir í fréttatil- kynningu. Umræður munu fara fram á eftir og eru allir velkomnir. Erindi um lög- gjafarvaldið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.