Morgunblaðið - 27.09.2004, Page 18
18 MÁNUDAGUR 27. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
OSRAM flúrperur á
alla vinnustaði
Jóhann Ólafsson & Co Sundaborg, Johan Rönning Sundaborg/Akureyri,
Rekstrarvörur, Osram Perubúðir: Árvirkinn Selfossi, Faxi Vestmannaeyjum,
R.Ó. Rafbúð Reykjanesbæ, Glitnir Borgarnesi, Rafbúðin Hafnarfirði,
G.H. Ljós Garðabæ, Þristur Ísafirði, Ljósgjafinn Akureyri, S.G. Egilsstöðum,
Lónið Höfn, Straumur Ísafirði, Víkurraf Húsavík, Vírnet Borgarnesi.
Rafverkstæði Árna Elíssonar Reyðarfirði.
ÉG ER alltaf í tapliði.
Nei, ég á ekki við í íþróttum.
Þar vinn ég nú af og til.
En í daglegu lífi gengur ekki
alltaf jafn vel.
Fyrir nokkrum árum ákvað ég
að gerast félagi í Náttúruvernd-
arsamtökum. Við
börðumst fyrir því að
Eyjabökkunum norð-
an við Vatnajökul
yrði ekki sökkt undir
uppistöðulón eins og
Landsvirkjun hafði í
huga. Ekki varð neitt
úr þeirri áætlun og
við fögnuðum ákaft,
héldum að við hefð-
um unnið stórsigur.
En auðvitað var ég
samt í tapliði því
Kárahnjúkavirkjun
sem varð að veru-
leika er margfalt
verri.
Reyndar verða lík-
lega fleiri í tapliði
þegar fram í sækir.
Austfirðingar vakna
smám saman upp við
vondan draum og öll
þjóðin á eftir að súpa seyðið af
því. Þetta mun koma betur í ljós
seinna.
Ekki alls fyrir löngu hélt fjöl-
skylda okkar upp á að við vorum
búin að borga upp öll lán og átt-
um litla raðhúsið okkar skuld-
laust. En viti menn, nú hækk-
uðum við heldur betur í skatti. Ég
ætlaði ekki að trúa því að maður
þarf að borga eignarskatt af 90
fermetra húsnæði. Á Íslandi er
manninum greinilega refsað fyrir
að vera sparsamur og reglusamur.
Ég tapaði heldur betur á því að
búa ekki til skuldir og taka lán.
En mestu tapaði ég á því að
vilja starfa sem kennari á Íslandi.
Í Þýskalandi, þar sem ég lauk
kennaranámi og starfaði fyrst,
geta kennarar lifað góðu lífi á
100% starfi og jafnvel framfleytt
fjölskyldunni sinni á því. Reyndu
þetta hér!
Áður fyrr var alla vega sum-
arfrí í þrjá mánuði. Þá gat maður
aðeins bætt upp kaupið með góðri
sumarvinnu. En í síðustu samn-
ingum sömdu kennararnir af sér,
héldu að þeir hefðu bætt kjörin en
fengu í raun og veru
bara aðeins meira
kaup fyrir miklu meiri
vinnu. Aftur var ég í
tapliði.
Nú stendur yfir
verkfall og auðvitað
eru kennararnir að
tapa á því. Engin
vinna, ekkert kaup.
Og af greiðslunum úr
verkfallssjóði verður
tekinn skattur! Gjör-
samlega siðlaus þessi
tvísköttun! Sveit-
arfélögin eru í vinn-
ingsliði, vinna millj-
ónir á dag með því að
borga okkur ekki
kaup. Þess vegna
liggur þeim ekki á að
semja.
Við kennarar töpum
meira í þessu verk-
falli: Margir foreldrar eru okkur
reiðir og vilja meina að okkur sé
sama um börnin þeirra.
Kennurum er kennt um allt. Að
börnin læri ekkert, að þau séu á
götunni langt fram á nótt, að ung-
lingar leiðist út í neyslu eða detti
í þunglyndi. Þær raddir hafa
heyrst einnig að það sé kennurum
að kenna ef verðbólgan rýkur upp
og allt fer úr böndunum hjá
launafólki (eru það ekki frekar
þensluáhrif Kárahnjúka-ævintýr-
isins?).
Já, þetta eru dapurlegir tímar
og ég þarf að leggja mig alla fram
að halda lífsgleði og góðum vinnu-
móral þrátt fyrir öll töpin.
Alltaf í tapliði
Úrsúla Jünemann fjallar um
kennaraverkfallið
Úrsúla Jünemann
’Ég tapaðiheldur betur á
því að búa ekki
til skuldir og
taka lán.‘
Höfundur er kennari.
ÞEGAR Jakob Möll-
er hæstaréttarlögmað-
ur var að verja hlut-
dræga umsögn Hæsta-
réttar sem raðaði Jóni
Steinari Gunnlaugs-
syni aftar en öðrum
umsækjendum í þætt-
inum Ísland í dag var
honum bent á að í síð-
ustu umsögn hefði
rétturinn lagt áherslu
á málflutningsreynslu.
Jón Steinar er einmitt
langreyndasti málflytjandinn í hópi
umsækjenda, með 30 ára reynslu
eða tvöfalt meiri reynslu í árum
talið en sá sem næstur kom í röð-
inni.
Jakob var með svar
tilbúið. Hæstiréttur
lagði áherslu á þekk-
ingu á réttarfari í
fyrri umsögninni.
Málflutningsreynslan
var ekki nóg. Svo ein-
falt er það. – Þannig
að Jón Steinar Gunn-
laugsson, prófessor í
réttarfari og nefndar-
maður í réttar-
farsnefnd til margra
ára, kemur ekki til
greina! Auðvitað.
Nú, var það réttarfar en
ekki málflutningsreynsla?
Haukur Örn Birgisson fjallar
um veitingu stöðu hæstarétt-
ardómara
Haukur Örn Birgisson
Höfundur er lögfræðingur.
UMSÖGN Hæsta-
réttar er augljóslega
hlutdræg og sniðin til
þess að gera lítið úr
Jóni Steinari Gunn-
laugssyni, hæstarétt-
arlögmanni og pró-
fessor.
Þess vegna sýnir
hún betur en nokkuð
skjall hefði getað,
hversu mikil þörf er á
manni eins og honum í
réttinn. Þeir dómarar
sem skiluðu umsögninni láta geð-
þótta sinn greinilega ráða niðurstöð-
unni. Það eru vondar
fréttir fyrir okkur, sem
þurfum að treysta dóm-
stólnum fyrir réttindum
okkar. Umsögnin sann-
ar þannig að í Hæsta-
rétt vantar menn eins
og Jón Steinar, sem
hefur lengi barist fyrir
því að dómarar dæmi
eftir lögunum, en ekki
geðþótta.
Frábær umsögn
fyrir Jón Steinar
Friðbjörn Orri Ketilsson
fjallar um ráðningu í stöðu
hæstaréttardómara
Friðbjörn Orri
Ketilsson
Höfundur er fram-
kvæmdastjóri Frjáls-
hyggjufélagsins.
Eftirfarandi greinar eru á
mbl.is:
Jón Steinsson: „Það er eng-
in tilviljun að hlutabréfa-
markaðurinn í Bandaríkjun-
um er öflugri en hluta-
bréfamarkaðir annarra
landa.“
Regína Ásvaldsdóttir: „Eitt
af markmiðum með stofnun
þjónustumiðstöðva er bætt
aðgengi í þjónustu borgar-
anna.“
Jónas Gunnar Einarsson:
„Áhrifalaus og mikill meiri-
hluti jarðarbúa, svokallaður
almenningur þjóðanna, unir
jafnan misjafnlega þolinmóð-
ur við sitt.“
Jakob Björnsson: „Mörg rök
hníga að því að raforka úr
vatnsorku til álframleiðslu
verði í framtíðinni fyrst og
fremst unnin í tiltölulega fá-
mennum, en vatnsorkuauðug-
um, löndum...“
Tryggvi Felixson: „Mikil
ábyrgð hvílir því á þeim sem
taka ákvörðun um að spilla
þessum mikilvægu verðmæt-
um fyrir meinta hagsæld
vegna frekari álbræðslu.“
Stefán Örn Stefánsson:
„Ég hvet alla Seltirninga til
kynna sér ítarlega fyrirliggj-
andi skipulagstillögu bæjaryf-
irvalda...“
Gunnar Finnsson: „Hins
vegar er ljóst að núverandi
kerfi hefur runnið sitt skeið
og grundvallarbreytinga er
þörf...“
Eyjólfur Sæmundsson og
Hanna Kristín Stefánsdótt-
ir: „Öryggismál í landbúnaði
falla undir vinnuverndarlög
og þar með verksvið Vinnu-
eftirlitsins.“
Jakob Björnsson: „Með því-
líkum vinnubrögðum er auð-
vitað lítil von um sættir.“
Guðmundur Hafsteinsson:
„Því eru gráður LHÍ að inn-
taki engu fremur háskóla-
gráður en þær sem TR út-
skrifaði nemendur með, nema
síður sé.“
María Th. Jónsdóttir: „Á
landinu okkar eru starfandi
mjög góðar hjúkrunardeildir
fyrir heilabilaða en þær eru
bara allt of fáar og fjölgar
hægt.“
Á mbl.is
Aðsendar greinar
EYÐILEGGING helgistaða og
menningarverðmæta sem tengjast
bahá’í trúnni í Íran hefur um
nokkurt skeið verið liður í kerf-
isbundnum ofsóknum klerka-
stjórnarinnar gegn bahá’í minni-
hlutanum þar í
landi. Bahá’í sam-
félagið í Íran er
stærsti trúarlegi
minnihlutahópur
landsins með um
300.000 meðlimi. Á
þeim aldarfjórðungi
sem liðinn er frá
stofnun íslamska
lýðveldisins hafa
rúmlega 200 for-
ystumenn þessa
hóps verið teknir af
lífi. Mörg hundruð
manns hafa verið
fangelsuð og pynd-
uð. Tugir þúsunda
hafa misst atvinnu
sína eða neyðst til
að flýja land. Ung-
um bahá’íum er neit-
að um inngöngu í
háskóla og fram-
haldsskóla og aldr-
aðir bahá’íar, sem
hafa starfað hjá hinu
opinbera, hafa verið
sviptir eftirlaunum.
Í opinberu skjali frá
1991, sem æðsti
maður hennar, Khamenei erki-
klerkur, undirritaði og mannrétt-
indanefnd Sameinuðu þjóðanna
birti 1993, er að finna áætlun um
upprætingu bahá’í samfélagsins
með langtímaaðgerðum sem m.a.
fela í sér eignaupptöku, eyðilegg-
ingu helgistaða og sviptingu al-
mennra mannréttinda.
Stjórnvöld í Íran virðast nú
byrjuð að vinna samkvæmt þess-
ari áætlun af fullum krafti. Á und-
anförnum mánuðum hefur íranska
upplýsingamálaráðuneytið látið
eyðileggja byggingar og mann-
virki sem tengjast bahá’í trúnni. Í
sumar var sögufræg bygging í
Teheran lögð í rústir að viðstödd-
um fulltrúum ráðuneytisins, en
hún hafði tilheyrt Mírza Abbas
Núri, föður Bahá’ulláh, stofnanda
bahá’í trúarinnar. Mírza Abbas
var kunnur stjórnarerindreki og
fræðimaður á 19. öld. Húsið hafði
verið varðveitt sem fágætt dæmi
um íransk-íslamska byggingarlist
frá þessum tíma. Írönsk dagblöð,
þar á meðal Eteemat í Teheran,
hafa lýst yfir furðu og hneykslun
yfir þessum aðgerðum
og segja að hér sé ráð-
ist að sameiginlegum
menningararfi þjóð-
arinnar.
Allt frá stofnun ísl-
amska lýðveldisins í Ír-
an 1979 hefur klerka-
stjórnin beitt sér fyrir
eyðingu sögulegra
bygginga og minja í
eigu bahá’í samfélag-
ins. Margir þessara
staða hafa verið jafn-
aðir við jörðu, þar á
meðal hús Bábsins í
Shíraz, einn merkasti
helgistaður bahá’í
heimsins. Hús í Takur,
þar sem Bahá’u’lláh,
höfundur bahá’í trú-
arinnar, eyddi bernsku
sinni, hefur einnig ver-
ið eyðilagt. Umfangs-
mikil spellvirki hafa
verið unnin á bahá’í
kirkjugörðum í Teher-
an, Shíraz og öðrum
borgum. Í Teheran
hafa meira en 15.000
grafreitir verið eyði-
lagðir. Fyrr á þessu ári var graf-
hýsi sem kennt var við Quddús,
einn fremsta talsmann trúarinnar
á 19. öld, brotið niður þrátt fyrir
mótmæli bahá’ía innanlands og á
alþjóðavettvangi.
Ofsóknir á hendur bahá’íum í
Íran hófust skömmu eftir stofnun
trúarinnar 1844 og hafa að meira
eða minna leyti staðið síðan. Yfir
tuttugu þúsund manns hafa verið
teknir af lífi vegna trúar sinnar og
margfalt fleiri orðið landflótta. Af-
stöðu stjórnvalda er ekki hægt að
skýra á grundvelli stjórn-
málaafskipta því að bahá’í trúin
hvetur til löghlýðni og bannar
fylgjendum sínum íhlutun í stjórn-
mál. Bahá’í trúin boðar einingu
þjóða heimsins og trúarbragða
hans. Hún hafnar því að íslam og
önnur trúarbrögð geti gert tilkall
til þess að vera lokaorð Guðs til
mannkyns og tjái endanlegan vilja
hans. Það eru fyrst og fremst
þessar kenningar sem hafa vakið
þungar áhyggjur og heiftug við-
brögð klerkastéttarinnar og leitt
til blóðugustu og langvinnustu trú-
arofsókna síðari tíma. Í tilefni ný-
legra atburða í Íran hafa bahá’í
samfélög á Vesturlöndum birt yf-
irlýsingar í öllum helstu dag-
blöðum þar sem aðförum klerka-
stjórnarinnar er líkt við
menningarhreinsanir talíbana í
Afganistan fyrr á árum sem
beindust gegn trúararfi búddista
þar í landi. Íranar um allan heim
eru jafnframt hvattir til að mót-
mæla eyðileggingu menningararfs
í heimalandi sínu.
Menningar-
hreinsanir í Íran
Eðvarð T. Jónsson fjallar
um bahá’í-trúna og framferði
gegn henni í Íran
Eðvarð T.
Jónsson
’Stjórnvöld í Ír-an virðast nú
byrjuð að vinna
samkvæmt
þessari áætlun
klerkastétt-
arinnar af full-
um krafti.‘
Höfundur er bahá’í.
Klapparstíg 44
Sími 562 3614
Hveitigraspressa
verð kr. 4.500
Græni töfrasafinn
Hægt að nota sem
ávaxtapressu líka