Morgunblaðið - 27.09.2004, Page 24

Morgunblaðið - 27.09.2004, Page 24
24 MÁNUDAGUR 27. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Sigurður Sig-marsson Þormar fæddist á Skriðu- klaustri í Fljótsdal 10. janúar 1923. Hann lést mánudag- inn 20. september síðastliðinn. Foreldr- ar Sigurðar voru Sigmar B. Guttorms- son Þormar búfræð- ingur, bóndi á Skriðuklaustri í Fljótsdal, f. 6.12. 1890, d. 5.12. 1976, og Sigríður Hall- dórsdóttir húsfreyja á Skriðuklaustri, f. 30.9. 1889, d. 26.7. 1966. Eftir 1948 bjuggu þau hjón í Reykjavík. Foreldrar Sig- mars voru Guttormur Vigfússon búfræðingur, skólastjóri búnaðar- skólans á Eiðum, bóndi og alþing- ismaður í Geitagerði í Fljótsdals- hreppi, og kona hans, Sigríður Guðbjörg Anna Sigmarsdóttir frá Ljótsstöðum í Skagafirði. Foreldr- ar Sigríðar voru Halldór Bene- diktsson, bóndi á Skriðuklaustri og kona hans Arnbjörg Sigfúsdótt- ir. Systkini Sigurðar eru Halldór fessors, eru: a) Ásgeir R., dósent í sálfræði við Karolinska háskólann í Stokkhólmi, f. 5.11. 1957. Synir Ásgeirs og Sigrúnar Proppé, f. 4.2. 1951, eru Hugi Hrafn f. 12.11. 1988 og Arnaldur Muni f. 26.3. 1991, en þau Ásgeir og Sigrún skildu. b) Valdimar, aðstoðarskólastjóri við Ölduselsskóla, f. 22.12. 1962, kvæntur Helenu M. Jóhannsdóttur listdanskennara og kennara við Langholtsskóla, f. 11.2. 1964. Börn þeirra eru Helgi Már, f. 25.4. 1984, Sigríður Ólöf, f. 31.12. 1993, og Jó- hann Daði, f. 29.2. 2004. Sigurður ólst upp á Skriðu- klaustri. Hann varð stúdent frá MR 1944, tók fyrri hluta próf í verkfræði frá HÍ 1947 og próf í byggingaverkfræði frá DTH í Kaupmannahöfn 1950. Hann var aðstoðarverkfræðingur hjá Verk- fræðistofu Sigurðar Thoroddsen 1950, Birch & Krogboe í Kaup- mannahöfn 1951 og Stadsbyg- mesterens directorat í Kaup- mannahöfn 1952. Hann var verkfræðingur í mælingadeild bæjarverkfræðings Reykjavíkur til 1962, rak eigin verkfræðistofu 1961–1980 og vann jafnframt að útreikningum og gerð lóðaupp- drátta fyrir borgarverkfræðing í Reykjavík. Árið 1980–1993 var Sigurður verkfræðingur í mæl- ingadeild borgarverkfræðings í Reykjavík. Sigurður verður jarðsunginn frá Laugarneskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Þormar leigubílstjóri og verslunarmaður í Reykjavík, f. 23.7. 1921, d. 17.3. 1988, Atli Þormar, fulltrúi á aðalskrifstofu Lands- símans, f. 8.3. 1924, d. 7.3. 1971, og Valgeir Þormar iðnrekandi í Reykjavík, f. 1.11. 1927. Sigurður kvæntist 2. maí 1970 Ólöfu Vil- helmínu Ásgeirsdótt- ur húsmóður, f. 28.7. 1935. Foreldrar henn- ar voru Ásgeir Egg- ertsson, vélstjóri og skipstjóri, og Guðrún Þorleifsdóttir á Húsavík. Dóttir Sigurðar og Ólafar er Sigríður B. Þormar hjúkrunar- fræðingur, f. 29.8. 1970, búsett í Hollandi og við doktorsnám í heilsu- og áfallasálfræði. Sigríður er gift Birni Einarssyni, fram- kvæmdastjóra hjá Samskipum, f. 13.2. 1969. Synir þeirra eru Sig- urður Hrannar, f. 26.12. 1993 og Tómas Atli, f. 6.6. 2000. Stjúpsynir Sigurðar og synir Ólafar og Helga Þ. Valdimarssonar, læknis og pró- Það er ólýsanlega sárt að setjast niður og kveðja þig, elsku pabbi minn. Ég finn að ég á erfitt með að takast á við raunveruleikann og dagarnir líða eins og í draumi. Hvernig er hægt að setja niður á blað þau tengsl sem voru okkar á milli? Hver getur skilið það annar en við? Þú varst rödd mín og styrkur á þeim árum sem ég gat ekki talað fyrir sjálfan mig. Þú kenndir mér muninn á réttu og röngu án þess þú nokkurn tíma byrstir rödd þína. Þú kenndir mér að erfiðleikar geta fyllt mann visku og styrk og gefið manni nýja sýn á lífið. Þú kenndir mér um stjörnurnar og lyftir mér jafnframt upp í átt til þeirra með því að fylla mig sannfæringu um að mér væru allir vegir færir. Það væru engin takmörk önnur en þau sem ég setti sjálf. Slík gjöf er ómetanleg í önnum dagsins þar sem oft er auðvelt að gefast upp og víkja frá markmiðum sínum. Þú kenndir mér hvernig ástin get- ur verið, hvernig maður elskar ann- an einstakling skilyrðislaust. Það hefur gefið mér það veganesti að sætta mig ekki við minna og orðið til þess að samband mitt við börnin mín og maka mun alltaf vera byggt á sömu gildum. Ég finn fyrir þér, ég finn hvernig þú snertir öxl mína á þeim stundum sem ég er að bugast undan þeirri staðreynd að þú sért farinn frá mér. Ég veit þú fylgir mér áfram, ég veit ég mun njóta leiðsagnar þinnar svo lengi sem ég þarf á því að halda. Elsku pabbi minn, takk fyrir að hafa alltaf verið til staðar þegar ég þurfti á þér að halda og að hafa alltaf stutt mig dyggilega í öllum þeim ákvörð- unum sem ég hef þurft að taka í líf- inu. Ég er sú sem ég er í dag vegna þess að þú elskaðir mig. Þín dóttir, Sigríður Björk Þormar. Það vakti nokkra athygli í Hvassaleitinu fyrir rúmum þrem áratugum þegar Sigurður Þormar, þá fjögur ár í fimmtugt, kvæntist fráskilinni konu með tvö börn. Á þeim árum var ekki eins algengt og nú er orðið að fólk skildi og giftist aftur. Orð eins og stjúpa eða stjúpi voru hlaðin neikvæðri merkingu úr ævintýrum. Börnin tvö sem fluttu í Hvassaleiti 71 vorið 1970 vorum við bræður þá tólf og sjö ára og með okkur fylgdi öldruð móðuramma. Þetta var dágóður pakki að taka á móti fyrir hvern sem er og myndi jafnvel enn í dag þykja allstór biti í háls. Í Hvassaleitinu var fyrir aldr- aður faðir Sigurðar. Þetta var því mikil og skyndileg breyting fyrir tæplega fimmtugan mann sem lengst af hafði búið einn. Sigurður fékk svo sannarlega „eina með öllu“ og einkadóttir hans, hún Sirrý litla- systir, var á leiðinni. Þökk sé stjúpa þá fengum við bræður að alast upp í stórfjölskyldu þar sem þrjár kyn- slóðir deildu sama heimili og örlög- um. Við vorum engin lömb að leika sér við á unglingsárunum, villtir og með eindæmum óstýrilátir. Þegar við horfum um öxl á þessum tíma- mótum og skoðum þennan atburð með augum fulltíða manna sem sjálfir eiga börn og heimili erum við fullir aðdáunar yfir þeim einstaka höfðingsskap og ósérhlífni sem stjúpi okkar sýndi á þessum árum. Með tímanum tókust miklir kær- leikar milli okkar bræðra og Sig- urðar. Við stóðum með honum þeg- ar á reyndi og hann studdi okkur þegar á þurfti að halda. Hann bar alltaf ótakmarkaða virðingu fyrir því sem við vorum að fást við og var barnslega glaður þegar við sýndum honum og áhugamálum hans áhuga. Honum tókst ekki að gera okkur að frímerkjasöfnurum þrátt fyrir nokkrar góðar tilraunir. Þó að hvor- ugur okkar hafi í dag meira vit á frí- merkjum en kötturinn á sjöstjörn- unni, eins og Sigurður hefði orðað það, var þekking hans á frímerkjum og póststimplum svo viðamikil og djúp að það vakti aðdáun okkar beggja. Hann sagði oft sögur af því þegar hann ferðaðist landshornanna á milli til að hafa uppi á gömlum póststöðvum, sem var fyrir löngu búið að leggja niður, í þeirri von að einhvers staðar leyndist gamall stimpill. Oftar en ekki hafði hann er- indi sem erfiði og augun hans lýstu af ákafa þegar hann sagði frá þeim skiptum þegar hann fann stimpil á stöðum þar sem engar skráðar heimildir voru lengur til um póst- stöð. Þegar dauðinn ber að dyrum er eins og kaldur norðanvindurinn nísti bæði merg og bein. En svo hellast minningarnar yfir og við skiljum hvað átt er við með að ylja sér við arineld minninganna. Við sjáum stjúpa fyrir okkur með hatt á gangi, tígulegan í fasi. Hann bar sig alltaf eins og höfðingi. Takk fyrir allt, stjúpi. Þetta orð sem hljómaði í eyr- um okkar fyrir rúmum þrjátíu árum eins og hótun úr hrollvekjandi barnasögu lætur í dag blíðlega í eyr- um og fer vel í munni. Ásgeir R. og Valdimar Helgasynir. Þegar ég minnist tengdaföður míns Sigurðar Þormar og þá kemur upp í hugann mikill virðing og minn- ing um mann sem ávallt var eins og klettur fyrir fjölskyldu sína í ólíkum málum. Ég minnist tengdaföður míns sem manns sem var afar fylginn sér og réttlætiskennd hans réð afstöðu hans í öllum málum. Það er í mínum huga sá stærsti kostur sem einn einstaklingur getur haft. Ég fylltist aðdáun yfir því að fylgj- ast með Sigurði takast á við hin ýmsu mál með festu sinni og ákveðni jafnt í starfi sem áhuga- málum. Hann var eins og klettur. Elsku Sigurður, þú varst ávallt til staðar fyrir fjölskyldu okkar, jafnt í erfiðum málum sem og í hvatningu til okkar að efla okkur sem einstak- linga í námi og starfi. Því gleymi ég aldrei. Rétt sýn þín á alla hluti hefur þýtt mikið fyrir okkur, svo mikið að erfitt er að útskýra í orðum. Sú væntumþykja, ást og alúð sem þú sýndir strákunum okkar Sigurði Hrannari og Tómasi Atla var ein- stök og ógleymanleg. Þeir skipuðu sérstakan sess í hjarta þínu sem náði út yfir öll venjuleg mörk. Um leið munt þú skipa sérstakan sess í hjarta þeirra alla tíð. Minningin um góðan afa mun lifa og verða þeim mikilvægt veganesti í lífinu. Takk fyrir allan stuðninginn og styrkinn sem hefur verið ómetan- legur alla tíð. Ég vona innilega að ég hafi komið því nægjanlega sterkt til skila til þín þennan tíma sem við átt- um saman því sá stuðningur hefur gefið okkur svo mikið og hjálpað okkur ómetanlega. Ég veit að þú ert nær okkur en nokkru sinni fyrr og heldur áfram að gefa okkur styrk og stuðning. Takk fyrir allt. Björn Einarsson. Barnabörnin sjö vilja minnast Sigga afa með fáeinum orðum í þeirri röð sem þau eru fædd. Auð- vitað er hlýjan og væntumþykjan öllum efst í huga en þau eiga líka sín litlu minningarbrot um afa sem þeim langar til að deila með öðrum. Þau eru Helgi Már Valdimarsson, 20 ára, Hugi Hrafn Ásgeirsson, 15 ára, Arnaldur Muni Ásgeirsson, 13 ára, Sigurður Hrannar Björnsson 10 ára, Sigríður Ólöf Valdimars- dóttir, 10 ára, Tómas Atli Björns- son, 4 ára, og Jóhann Daði Valdi- marsson, 7 mánaða: Þegar ég frétti að afi væri dáinn varð ég stjarfur og þegar ég kom í Hvassaleitið og sá afa liggja á stofu- gólfinu brast ég í grát. Þetta sem var svo óraunverulegt varð allt í einu svo raunverulegt þegar ég sá Ollu ömmu sitja grátandi og lúta höfði yfir afa sem geislaði af friði og ró. Frímerki voru stóra áhugamálið hans afa. Ég sé hann fyrir mér í skrifstofunni sinni með flísatöng og skæri að raða frímerkjum. Ég á ótal minningar um afa frá Flórída þar sem hann gekk á ströndinni eða lá sofandi á svölunum í sólinni við hlið- ina á ömmu sem sat í skugganum og borðaði ís. Ég kynntist einstaklega skemmtilegri hlið á afa þegar ég fór að fullorðnast. Það voru sögurnar. Hann var óþreytandi að segja sögur úr fyrri og síðari heimsstyrjöldinni. Þökk sé honum fékk ég lifandi áhuga á sögu því sögurnar hans voru miklu skemmtilegri, nákvæm- ari og meira lifandi en bækurnar sem ég hafði lesið í skóla. Afi sá allt- af spaugilegu hliðina á lífinu og kom mér oft á óvart. Meira að segja þeg- ar hann var að læra að ganga upp á nýtt eftir mjaðmabrotið síðastliðið vor, þá hló hann bara og brosti eins og hamingjusamt barn. Ég var fyrsta barnabarnið hans afa og það voru viss forréttindi sem ég er þakklátur fyrir. Olla, amma mín, þú munt alltaf getað leitað til mín og minnar fjölskyldu þegar þú þarft á okkur að halda. Helgi Már Valdimarsson. Siggi afi var tillitssamur húmor- isti. Þannig man ég best eftir hon- um. Þegar hann frétti í sumar að ég ætlaði í geimvísindamenntaskóla langt fyrir norðan heimskautsbaug hló hann og sagði að það væri al- deilis ágætt að safna stjörnuglóp- unum saman þarna fyrir norðan. Fæturnir væru þá að minnsta kosti fast frosnir við jörðina þó að hug- urinn hentist um himingeiminn. Krummi, litli svarti hundurinn þeirra afa og ömmu, dó fyrir skömmu. Þá grét amma mikið. Nú er afi dáinn bara tveim dögum eftir að þau fengu nýjan lítinn hvolp sem heitir Gutti. Nú grætur amma aftur. Þá tvo daga sem þeir þekktust kall- aði afi litla hvolpinn alltaf Krumma og nú er afi farinn að hitta Krumma gamla. Nú ganga þeir saman Hvassaleitishringinn á öðrum og betri stað, gömlu félagarnir. Á morgun er nýr dagur og við barna- börnin og Gutti litli stöndum við hlið ömmu eins lengi og hún þarf á okk- ur að halda. Hugi Hrafn Ásgeirsson. Ég man best eftir afa sem fræð- ara. Það var ótrúlega skemmtilegt að sitja hjá honum og hlusta á sögur úr seinni heimsstyrjöldinni. Afi og amma fóru til Flórída á hverju ári og síðastliðið vor buðu þau mér með. Afi slasaði sig og lá í rúminu mest- allan tímann. Hann var aðallega hræddur um að eyðileggja ferðina fyrir okkur krökkunum. En sann- leikurinn var sá að mér fannst ekki síður skemmtilegt að sitja inni hjá honum og hlusta á sannar sögur sem hann hafði sjálfur upplifað en að fara í ævintýragarða úr plasti. Ævintýrin hans afa voru eins og að skoða myndaalbúm, þau voru eins og litlir gluggar inn í liðna tíð. Arnaldur Muni Ásgeirsson. Afi minn var alltaf góður. Hann var besti afi í heimi. Hann var mikill sögumaður og með aldrinum mundi hann stundum ekkert hvort hann var búinn að segja mér þessa sögu áður og sagði þá: „Er ég búinn að segja þér þessa sögu áður? „Ég sagði alltaf nei, alveg sama hvað ég hafði heyrt söguna oft. Lengsta sag- an sem hann sagði mér tók 3 daga. Hún var um seinni heimsstyrjöld- ina. Þegar afi var hjá okkur í Hol- landi í ágúst þá sagði hann mér hvað honum liði alltaf vel að koma til okk- ar og hvað honum þætti gott að sofa í rúminu mínu. Ég vildi óska þess að hann gæti sofið þar oftar. Hann verðlaunaði mig endurtekið fyrir að vera góður markmaður og sýndi því mikinn áhuga. Afi var nefnilega fót- boltaáhugamaður í leyni. Honum fannst svo leiðinlegt að komast ekki á leikina mína úti í Hollandi í sumar því hann var ekki búinn jafna sig í fætinum. Elsku afi minn, ég var svo glaður að þér var að batna en núna ertu farinn frá mér. Ég á eftir að sakna þín mikið. Sigurður Hrannar Björnsson. Við afi áttum sameiginlegan vin, gamla svarta hundinn, hann Krumma. Við vorum bæði svo leið þegar hann dó fyrir stuttu. Afi sagði mér að vera ekki leið því Krummi væri kominn á góðan stað. Ég trú því að afi sé kominn þangað líka. Þegar ég sé afa fyrir mér sé ég hann sitja í hrúgu af frímerkjum. Afi var frábær frímerkjasafnari og safnaði líka frímerkjastimplum. Það eru ekki margir á Íslandi sem vissu jafnmikið um frímerki og hann Siggi afi en það er bara eitt frímerki sem gildir til himna. Á því er mynd af hreinu hjarta og stimpill sem á stendur „góður maður“. Þetta var dýrmætasta frímerkið hans afa og það er líka það eina sem hann tekur með sér núna. Sigríður Ólöf Valdimarsdóttir. Afi var aldrei reiður, ég var að hræða hann á bak við sófann og hann sagði bara „nei, sko, ert þetta þú?“ Svo var ég að hoppa yfir hann í sófanum og þá sagði hann bara „hva, geturðu hoppað svona hátt?“ Afi kyssti alltaf á höfuðið mitt og svo var afi alltaf í skyrtu. Tómas Atli Björnsson. Jóhann Daði er bara sjö mánaða og getur því ekki sagt okkur hvað það er sem hann vildi segja afa. En þó að Jóhann Daði geti ekki talað er hann ekki mállaus. Hann talar með augunum, andlitinu, já eiginlega með öllum líkamanum. Hlýja brosið hans afa vakti sólskinsbrosið hans Jóhanns litla og sólskinsbrosið hans Jóhanns vakti hlýjuna í brjóstinu hans afa. Þessi orðlausa samræða þess elsta og þess yngsta lokar hringnum. Jóhann Daði Valdimarsson. Barnabörnin. Við fráfall Sigurðar frænda míns koma upp í hugann nokkrar svip- myndir frá liðnum árum. Við sáumst fyrst í rigningunni á Þingvöllum 17. júní 1944, þá báðir nýútskrifaðir stúdentar, hann frá MR og ég frá MA. Þó að við værum bræðrasynir höfðum við ekki sést fyrr, því við vorum hvor á sínu lands- horninu og samgöngur ekki jafn- greiðar og nú. Ég man eftir Sigurði í mannþrönginni í biðröð að kaupa lýðveldishátíðarfrímerkin og fá þau stimpluð á útgáfudegi. Hann hvatti mig til að kaupa nokkrar seríur því þær myndu síðar verða mikils virði. Næst hittumst við haustið 1944 í verkfræðideildinni í Háskóla Ís- lands. Ég man að við bjuggum í stuttan tíma saman á herbergi á Gamla Garði. Þá veiktist Sigurður af lömunarveiki, fór í einangrun á sóttvarnarheimilinu í nokkrar vikur og náði sér að mestu. Leiðir okkar lágu næst saman í Kaupmannahöfn haustið 1947 þar sem við stunduðum saman nám í byggingarverkfræði við DTH. Minningarnar eru margar frá þeim árum og vorum við mikið saman bæði í skólanum og í frístundum. Sérstaklega er mér minnisstæð kynnisferð sem við fórum með skól- anum í lest í gegnum Þýskaland til Parísar sumarið 1949. Eftir námið lágu leiðir okkar aft- ur saman, þá hjá Reykjavíkurborg, en þar var lengst af starfsvettvang- ur okkar beggja. Síðan við hættum störfum hittumst við þó sjaldnar eins og gengur en vissum þó alltaf vel hvor af öðrum. Eins og áður segir fékk Sigurður snemma áhuga á frímerkjum og var það aðaláhugamál hans alla tíð síð- an. Síðar fór hann einnig að safna ís- lenskum póststimplum. Hann kveikti hjá mér áhuga á frímerkja- og stimplasöfnun, þegar hann fékk mig til liðs við sig að safna fyrsta- dagsstimplum frá öllum 216 póst- stöðvum á landinu í tilefni af 100 ára afmæli frímerkisins árið1973. Hann varð sérfræðingur í íslenskum póst- stimplum og tók þátt í mörgum frí- merkjasýningum og vann til verð- launa á því sviði. Að leiðarlokum þakka ég frænda mínum samfylgdina í 60 ár. Við Guðrún sendum Ólöfu og fjölskyld- unni innilegar samúðarkveðjur. Guttormur Þormar. Sigurður Þormar hefur kvatt þennan heim. Það gerðist snögglega SIGURÐUR SIGMARSSON ÞORMAR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.