Morgunblaðið - 27.09.2004, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 27.09.2004, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. SEPTEMBER 2004 25 MINNINGAR og hélt hann fullri reisn sinni til síð- asta dags. Aðdragandinn að því að ég kynnt- ist Sigurði og hans ágætu konu Ólöfu var sá að við Sirrý dóttir þeirra urðum einstakar vinkonur frá því að við vorum saman í sjö ára bekk í grunnskóla og fram eftir aldri, þótt við höfum ekki á síðari árum ræktað okkar vinskap í lík- ingu við það sem áður var. Ég fór því fljótt að koma inn á heimili þeirra hjóna, þar sem ég fann að ég var ávallt velkomin. Sigurður var hæglátur maður og hófsamur en hann var kíminn og brosið náði allt- af til augnanna, hlýja hans var því ósvikin og traustið stafaði af honum. Hann var einstakur maður, hann tók mér stelpuskottinu eins og ég væri hans eigin dóttir. Hann talaði við mig af mikilli skynsemi, leið- beindi mér eins og ég væri orðin fullorðin. Hann snerist með okkur stelpurnar bæinn á enda ef því var að skipta og meira að segja bauð hann mér þrisvar sinnum til útlanda þegar hann fór þangað með fjöl- skyldu sinni og ég tilheyrði hópnum sem ein af þeim. Þetta voru dásam- legir dagar og minningarnar um þá gleymast ekki. Minningar um allt það sem þetta góða fólk gerði fyrir mig, um heimili þeirra og um ferða- lögin sem að sjálfsögðu voru mér eins og hvert annað ævintýri. Svona var hann rausnarlegur í öllu sem hann gerði. Ólöf tók ávallt á móti mér með sömu hlýju og Sigurður, og mun síst hafa dregið úr því sem þau hjón gerðu fyrir mig. Að sjálfsögðu mun vinskapur okkar Sirrýjar hafa mestu um ráðið því vonandi hefur það verið talinn góður félagskapur fyrir báðar. Við fráfall Sigurðar flyt ég honum og þeim hjónum báðum þakkir fyrir frábæra vináttu og alla góðvild og bið honum blessunar. Þar sem góðir menn fara eru guðsvegir. Elsku Ólöf og Sirrý, þið hafið misst mikið og skyndilega en minn- ingin um góðan mann er ykkur dýr- mætur fjársjóður á komandi tímum. Ég og fjölskylda mín sendum ykkur og fjölskyldunni allri einlægar sam- úðarkveðjur. Nína Margrét Pálmadóttir. Ástkær eiginkona, móðir og dóttir, EMILÍA KOFOED-HANSEN LYBEROPOULOS, sem lést föstudaginn 17. september, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 27. september kl. 15. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Barnaspítalasjóð Hringsins. Constantin Lyberopoulos, Irena og Yannis Lyberopoulos, Björg Kofoed-Hansen. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HELGA ELÍSABET KRISTJÁNSDÓTTIR Hlíf 2, Ísafirði, andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu Ísafirði laugardaginn 25. september. Kristján Rafn Guðmundsson, Ásthildur Inga Hermannsdóttir, Jónína Elísa Guðmundsdóttir, Aðalsteinn Jónsson, Albert Guðmundsson, Anna Þórunn Sveinsdóttir, ömmu- og langömmubörn. Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og systir, HELGA LEIFSDÓTTIR, Trönuhjalla 19, Kópavogi, sem andaðist mánudaginn 20. september á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut, verður jarðsungin frá Kópavogskirkju þriðju- daginn 28. september kl. 13.30. Ingibergur Sigurðsson, Íris Kristjánsdóttir, Anton G. Ingibergsson, Kristján A. Írisarson, Valgerður Ý. Ásgeirsdóttir, Steinunn Gísladóttir, Hulda Leifsdóttir, Bjarni Pálsson, Hafdís Leifsdóttir, Sigurbjörn Sigurðsson og aðrir aðstandendur. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HALLDÓR JÓN ÓLAFSSON bólstrari, Hátúni 6b, verður jarðsunginn frá Laugarneskirkju þriðju- daginn 28. september kl. 15.00. Jónína Sigurðardóttir, Ólafur Halldórsson, Rósa Friðriksdóttir, Sólveig Halldórsdóttir, Jóhann Björn Arngrímsson, Erla Halldórsdóttir, Tryggvi Sigurðsson, Jón M. Halldórsson, Ingibjörg Svavarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Hjartkær móðir mín, BJARNVEIG INGIMUNDARDÓTTIR, sem lést mánudaginn 20. september verður jarðsungin frá Krossinum þriðjudaginn 28. september kl. 13.30. Ingimundur Björgvinsson. ✝ Sigurður Guðmundsson fædd-ist í Otradal í Arnarfirði 10. júlí 1928. Hann lést á Landspít- alanum við Hringbraut 28. júlí síð- astliðinn og var útför hans gerð frá Háteigskirkju 5. ágúst. Að eilífðarströnd umvafin elsku, frjáls ert farin ferðina löngu. Í englaveröld andinn lúinn, í föðurfaðmi friðsæll hvílir. Takk fyrir tímann og tryggðarþelið í mörgum mætum minningum sem lifa. Með vinarkveðju, Jóna Rúna Kvaran. SIGURÐ- UR GUÐ- MUNDS- SON Elsku Pálmi, elsku vinur. Nú er þinn tími liðinn og þú farinn á betri stað eftir mikla þrautagöngu. Mikið óska ég þess að þér líði vel þar sem þú ert því að þú áttir svo miklu betra skilið. Þegar ég hugsa til baka fyllist hug- ur minn öllum góðu stundunum okk- ar sem voru ófáar. Við bjuggum öll á sama stað og þú varst besti vinur hans pabba. Ég man ekki neinar fyrstu minningar okkar því að þú varst alltaf frá upphafi partur af mínu lífi. Þínu stóra gjöfula hjarta mun ég aldrei gleyma. Ég var alltaf að koma í heimsókn til þín og alltaf tókstu vel á móti mér og leyfðir mér að vera með þér, alveg sama við hvað þú varst að fást. Við gátum eytt dög- unum saman við að gera allt milli himins og jarðar. Ég fékk að fara í sendiferðir með þér í bæinn, ég fékk að vera með þér í bílskúrnum og dunda mér með þér. Allar stundirnar sem við áttum saman geymi ég í minningunni. Við gátum setið saman, þú í stólnum þín- um og ég á gólfinu hjá þér, hlustuðum á djass og fórum í leikinn okkar. Þú teiknaðir einhvern hlut í kringum okkur og ég átti að giska hvað það var. Sértaklega man ég eftir því þegar ég fór að safna frímerkjum og þú lagði aldeilis hönd á plóg í því verk- efni. Þú hafðir farið til Danmerkur og keypt fullan kassa af frímerkjum sem PÁLMI KRISTJÁNSSON ✝ Pálmi Kristjánsson fæddist íReykjavík 9. september 1939. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ 25. júlí síðastliðinn og fór útför hans fram frá Fossvogs- kapellu 29. júlí. átti eftir að fjarlægja af umslögunum. Við hertókum stofuna heima hjá þér og svo var allt sett í bleyti og svo var þurrkað og þau að lokum slétt öll- sömul. Þetta var margra daga verk- efni og ég var svo spennt. Einnig man ég eftir öllum póstkortunum sem þú sendir mér frá Danmörku þegar þið ferðuðust þangað. Ég hljóp í póst- kassann á hverjum degi til að kíkja hvort eitthvað væri komið frá Ponna mínum og þegar kortið kom svo, sem aldrei klikkaði, var það fullt af frí- merkjum þó svo eitt hefði dugað. Þegar þú lentir í slysinu var ég 11 ára. Ég heimtaði að fá að heimsækja þig án þess að skilja að það yrði aldrei eins. Ég skildi ekki að ég myndi ekki sjá þig nákvæmlega eins og áður. Þegar ég kom til þín leið þér mjög illa og mér brá svo að sjá þig svona. Þetta var ekki Ponni minn. Ég grét í marga daga og skildi ekki af hverju þetta væri svona. Elsku Ponni, ég kom aldrei aftur til þín, ég einfaldlega gat það ekki. Í öll þessi ár sem ég kom ekki var það ekki af því að ég væri bú- in að gleyma þér. Ég mun aldrei gleyma þér. Þú átt hlut í hjarta mínu alla mína ævidaga, því að þú átt eng- an þinn líka. Ég vildi að ég hefði get- að kynnt son minn fyrir þér en hann mun fá að heyra seinna um besta vin minn, sem gladdi mig oft og ósegj- anlega mikið með því að vera til. Af hverju var ég svo lánsöm að fá að kynnast þér? Það mun ég aldrei vita, en alltaf mun ég verða þakklát fyrir það, það var eitthvað spes sem við áttum, þvílíkur fjársjóður var þitt hjarta. Núna ert þú engillinn minn. Hafðu það gott, elsku vinur. Kveðja Hanna Jóna. Fyrstu kynni mín af ykkur hjónum, Höllu og Herði, voru yndis- leg. Þið voruð alltaf svo hress og kát, það lá við að ég öfundaði Þrúðu systur að eiga svona góða tengda- foreldra. Þegar mamma og pabbi dóu var stórt skarð höggvið í hóp- inn hjá okkur. Börnin mín vantaði þá afa og ömmu, því var bara redd- að í snatri og þar komuð þið til sög- unnar. Það var alltaf talað um Höllu ömmu og Hörð afa. Það var ekki góð afmælisgjöf sem ég fékk 5. maí síðastliðinn þeg- ar Eyfi mágur hringdi í mig og sagði mér að Halla amma væri dá- in. Ég sem hélt að hún væri orðin svo hress aftur, eftir mikil veikindi. Ekki bjóst ég við því að þegar Þrúða systir hringdi í mig 19. ágúst að hún væri að láta mig vita að Hörður afi væri dáinn. Hann sem var í sumarfríi á Krít. Ekki nema rúmir þrír mánuðir á milli ykkar. HÖRÐUR SIGURVINSSON ✝ Hörður Sigur-vinsson fæddist í Reykjavík 6. október 1936. Hann lést á Krít fimmtudaginn 19. ágúst síðastliðinn og var útför hans gerð frá Garðakirkju 2. september. En þeir sem þekkja ykkur vita hvað þið voruð samrýnd, og nú verðið þið það áfram bara á öðrum og betri stað og fáið ykkur að borða í hádeginu, eins og þið voruð vön að gera alla daga, sama hvað það var mikið að gera hjá ykkur í vinnunni. Með þessum fáu orðum vil ég þakka fyrir að hafa fengið að kynnast ykkur. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. (Úr 23. Davíðssálmi.) Elsku Eyfi, Þrúða og börn, Hulda og Hörður, Anna og börn, Óli og Hjörvar og aðrir ættingjar og vinir, ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Guðrún Ósk (Rúna). Elsku besti afi. Ég vildi óska þess að ég hefði getað sagt þér hversu mikið mér þykir vænt um þig og hversu góður afi þú varst. Þegar ég var lítil þá sagðir þú mér oft ynd- islegar sögur og labbaðir með mér niður að bryggju, Langasand og vita. HELGI INGÓLFUR IBSEN ✝ Helgi Ingólfur Ib-sen fæddist á Suð- ureyri við Súganda- fjörð 8. september 1928. Hann lést á Sjúkrahúsi Akraness 28. ágúst síðastliðinn og fór útför hans fram frá Akraneskirkju 3. september. Þú sagðir oft að við værum lík. Það er mér mikill heiður að eiga afa eins og þig. Ég lærði margt af þér og þú studdir mig í mörgu. Ég mun alltaf hugsa til þess hversu mikið góð- menni og hraust- menni þú varst og ör- læti þitt mikið. Mér fannst mjög erfitt að kveðja þig elsku afi, þú munt alltaf lifa í hjarta mínu. Þú ert langbesti afi í heimi. Ég mun alltaf elska þig. Þitt barnabarn, Elísabet Ólöf Björgvinsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.