Morgunblaðið - 27.09.2004, Side 32

Morgunblaðið - 27.09.2004, Side 32
32 MÁNUDAGUR 27. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ DAGBÓK  Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Ekki leggjast í þunglyndi þótt stóru verkefni sé nýlokið. Njóttu þess að vera í faðmi fjölskyldunnar og byrjaðu svo á nýju verkefni. Naut (20. apríl - 20. maí)  Nú er rétti tíminn til að skipuleggja líf sitt upp á nýtt. Sestu niður með blað og penna og sjáðu fyrir þér næstu mán- uðina. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Reyndu að koma til dyranna einsog þú ert klædd/ur og talaðu út frá hjartanu. Þegar öllu er á botninn hvolft er öllum sama um kurteisishjal. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þér finnst þú ekki nógu opin/n þessa dagana. Bættu úr því með því að segja fjölskyldunni hvað þér þykir vænt um hana og þér líður betur eftir á. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Fólki leiðist nöldurtónninn í þér. Það er ekki öðrum að kenna þótt þú sért ekki ánægð/ur með sjálfa/n þig. Horfðu í spegil og gerðu eitthvað í málinu. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Ný vinnuvika byrjar vel og ætti að verða mjög góð. Þú ert létt/ur í lundu og leysir verkefnin þín af snilld. Aðrir munu dást að þér. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Reyndu að tala ekki of mikið um sjálfan þig þótt þú sért með minnimáttarkennd. Það bætir ekki neitt, auk þess sem fólki finnst þú ágæt/ur einsog þú ert. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Dugnaðurinn er alveg að fara með þig. Hvernig væri að sinna fjölskyldunni smávegis? Þú veist vel að hún skiptir meira máli en vinnan. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þú hlakkar til á næstu dögum þegar eitt- hvað mikilvægt mun gerast. Vertu samt viðbúin/n því að stórir og góðir hlutir geta reynst erfiðir meðan á þeim stend- ur. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú ert klár í kollinum og veist það. Það þýðir samt ekki að þú hafir alltaf rétt fyrir þér. Yfirlæti gæti komið sér mjög illa á næstu dögum. Hlustaðu á hug- myndir annarra. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þú mátt ekki gleyma þér í umönnun fjöl- skyldunnar. Þú hefur mikla hæfileika og ættir að nota þá mun meira á næstu dög- um. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Í dag er rétti tíminn til að láta gamla drauma rætast. Þú ert til í allt, full/ur af krafti og það sem þú tekur þér fyrir hendur mun lukkast vel. Stjörnuspá Frances Drake Vog Afmælisbörn dagsins: Eru hógvær og gáfuð. Þau leyna á sér og fólk ætti ekki að dæma þau af fyrstu kynn- um. Þau eru fræðimenn í eðli sínu og hentar vel að vinna við bækur og tölvur. Sum þeirra ættu að reyna fyrir sér sem rithöfundar. Árið reynist þeim skapandi og skemmtilegt. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Krossgáta Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/f olk/krossgata/index.html Lárétt | 1 ragna, 4 róar, 7 hrognin, 8 viljugt, 9 grein- ir, 11 jaðar, 13 skora fast á, 14 matnum, 15 ófrjálsan mann, 17 tanga, 20 skemmd, 22 annmarki, 23 atvinnugrein, 24 nam, 25 virtur. Lóðrétt | 1 bugða, 2 önduð, 3 fífl, 4 tréflögu, 5 ana, 6 nagdýr, 10 synja, 12 vin- gjarnleg, 13 hug, 15 fámál, 16 hyggur, 18 pannan, 19 trú, 20 skot, 21 uppspretta. Lausn síðustu krossgátu Lárétt | 1 matvendni, 8 nýtur, 9 tómur, 10 kór, 11 tuðra, 13 akrar, 15 hafts, 18 hrund, 21 tía, 22 freta, 23 dónar, 24 Skipasund. Lóðrétt | 2 altíð, 3 verka, 4 nötra, 5 nemur, 6 snót, 7 þrír, 12 rót, 14 ker, 15 hafs, 16 flesk, 17 stapp, 18 hadds, 19 unnin, 20 durt. Tveir kostir. Norður ♠D1075 ♥K963 S/Enginn ♦G7 ♣Á83 Suður ♠K6 ♥ÁDG10874 ♦Á954 ♣– Vestur Norður Austur Suður – – – 1 hjarta Dobl 2 grönd * Pass 6 hjörtu! Pass Pass Pass * Góð hækkun í þrjú hjörtu. Útspil vesturs er laufkóngur. Hvern- ig er best að spila? Suður hefði að skaðlausu mátt fara sér hægar í sögnum, því slemman er afleit. Það hefði til dæmis leyst málið að stökkva í fjögur lauf við tveimur gröndum til að sýna stuttlit og slemmuáhuga. Norður á hvorki fyr- irstöðu í tígli né spaða, svo hann myndi slá af í fjórum hjörtum. En það er of seint séð og því ber alla vega að fagna að vestur skyldi ekki spila út tígli. Með laufi út er von. Hún felst í stuttu máli í því að spaðagosinn komi niður þriðji. Norður ♠D1075 ♥K963 ♦G7 ♣Á83 Vestur Austur ♠Á843 ♠G92 ♥– ♥52 ♦D1083 ♦K62 ♣KDG105 ♣97642 Suður ♠K6 ♥ÁDG10874 ♦Á954 ♣– Lykilspilamennskan er að geyma laufásinn og trompa fyrsta slaginn. Vestur hlýtur að eiga spaðaásinn og hann lendir í vanda þegar sagnhafi spilar næst spaðasexunni að blindum. Ef vestur dúkkar mun drottningin eiga slaginn og spaðakóngurinn hverfur svo niður í laufás. Og drepi vestur verður hægt að henda þremur tíglum niður í D10 í spaða og laufás. Vestur á tvo kosti og báða vonda. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is Kvikmyndir Iðnó | Nordisk forum, málþing um heimild- armyndagerð og fjármögnun kvikmynda- gerðar. Háskólabíó | Kl. 21, The Yes Men. Regnboginn | Kl. 10, Docs 9: The Tundra Settlers, My Granddad’s Murderer. Kl. 12, Shorts 1: Happy now, Simply a twig, Passing Hearts, Exit, Elexir. Docs 6: Leonid Shower, The Moment of Truth, Hiding Be- hind. Kl. 14, Barnadagskrá. Docs 10: Love is in the Air, The Extra. Directors Choice. Kl. 16, The Man on the Back / Björk - The Making of Medulla. Docs 2: War Children. Myndir frá Balkanskaga Kl. 18, Docs 4: Arks, Jerusalem My Love. Shorts 2: Soul Seeker, Strong Hold, Pep- talk, Fragile. Evrópa í stuttmyndum. Kl. 20, Docs 11: A Bun in the Oven, Do You Love Me. Shorts 3: Bad Investment, Tell Me not to Worry, Little Daddy, The Comet. Kl. 22, The Story of the Weeping Camel. Docs 12: Einar, In the Name of the Father. Málstofa Hótel Borg | Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum við HÍ, - gengst fyrir opinni málstofu í tengslum við Nordisk Panorama kvikmyndahátíðina um „hlutverk kvenna / kynferðis í kvikmyndum og kvikmynda- gerð.“ Ráðstefnan hefst kl. 15.00. Félagsstarf Aflagrandi 40 | Félagsvist í dag kl. 14, leik- fimi kl. 9, boccia kl. 10, opin vinnustofa, bókabíllinn kl. 13.30. Bólstaðarhlíð 43 | Kl. 9–16 almenn handa- vinna, kl. 10–11 samverustund. Bridsdeild FEBK Gullsmára | Eldri borg- arar spila brids að Gullsmára 13 alla mánu- daga og fimmtudaga. Mæting kl. 12.45. Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids í dag kl. 13. kaffitár með ívafi kl. 13.30. Línu- danskennsla byrjendur kl. 18. Samkvæm- isdans framhald kl. 19 og byrjendur kl. 20. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Kvenna- leikfimi 9.30, 10.20 og 11.15, ullarþæfing kl. 13, tölvur kl. 17. Opið í Garðabergi kl. 13–17. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Tölvur kl. 17 í Garðaskóla. Félagsþjónustan Hraunbæ 105 | Kl. 9 postulínsmálun, keramik–perlusaumur– kortagerð, kl. 10 fótaaðgerð, kl. 10 bæna- stund, kl. 12 hádegismatur, kl. 13.30 skraut- skrift og kaffi kl. 15. Hvassaleiti 56–58, | Kl. 9 –16 opin vinnu- stofa, kl.13 frjáls spilamennska, kl. 9–11 jóga. Fótsnyrting. Hæðargarður 31 | Kl. 9–16 opin vinnustofa, handavinna, kl. 9–12 hárgreiðslustofa s. 568–3139, aðstoð við böðun 9–12, hádeg- ismatur og síðdegiskaffi. Opið öllum ald- urshópum. Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun verður Sundleikfimi í Grafarvogslaug kl. 9.30. Norðurbrún 1, | Kl. 9 smíði, kl. 10 ganga, kl. 13 opin vinnustofa, kl. 15 kaffi. Sviðaveisla verður haldin fimmtudaginn 30. sept. kl. 18.30, Böðvar Magnússon sér um söng og harmonikkuleik happdrætti, upplýsingar og pantanir í sima 568 6960. Allir velkomnir. Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir, kl. 9.15–15.30 handavinna, kl. 9–10 boccia, kl. 9.30–11.30 skrautskrift, kl. 11–12 leikfimi, kl. 11.45–12.45 hádegisverður, kl. 13–16 kóræfing, kl. 14.30–15.45 kaffiveit- ingar. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 8.45, bókband kl. 9, myndlist kl. 9, morgunstund kl. 9.30, boccia kl. 10, handmennt kl. 13, glerbræðsla kl. 13, frjáls spil kl. 13. Farið verður í haustlitaferð miðvikudaginn 29. sept. kl. 13. ef veður leyfir. Upplýsingar í síma 561 0300. Þórðarsveigur 3 | Félagsvist kl. 13.30. Fundir Safnaðarheimili Háteigskirkju | Íslenska bútasaumsfélagið heldur félagsfund þriðju- dagskvöldið 28. september kl. 20, í safn- aðarheimili Háteigskirkju. Kirkjustarf Akureyrarkirkja | Tólf spora hópur kl. 20. Hugmyndafræði og uppruni 12 spora kerf- isins kynnt. Breiðholtskirkja | Barnakórsæfing 7–9 ára alla mánudaga kl. 15:30 og fyrir 10 ára og eldri kl. 16:30. Grafarvogskirkja | KFUK fyrir stúlkur 9–12 ára í Grafarvogskirkju kl.17:30–18:30. Kirkjukrakkar fyrir 7–9 ára í Engjaskóla kl. 17:30–18:30. Langholtskirkja | Ævintýraklúbbur, starf fyrir 7–9 ára börn verður alla mánudaga í vetur kl. 16–17. Fjölbreytt, skemmtileg og uppbyggjandi dagskrá. Umsjón hafa Ólafur Jóhann og Guðmundur Örn. Laugarneskirkja | Kl. 18 Opinn 12 spora- fundur í safnaðarheimilinu. Vinir í bata. Kl. 20 Síðasti kynningarfundur á tólf spora- starfi Laugarneskirkju, áður en hópar lokast. Umsjón hafa Guðlaugur Ólafsson og Hafdís M. Einarsdóttir. Neskirkja | Mánudagur: 6 ára starf kl. 13:40. Sögur, leikir og föndur. Skráning í síma 511 1560. TTT-starf fyrir 10 til 12 ára. Leikir, spil, föndur og margt fleira. Sjá dag- skrá á neskirkja.is. 12 sporin – Andlegt ferðalag. Kynningarfundur kl. 20. Allir vel- komnir. Sjá nánar á neskirkja.is. Málþing Grand Hótel Reykjavík | Tryggingastofnun efnir til morgunverðarfundar um lífeyr- ismál kl. 8:30–10:00 þriðjudaginn 28.9 á Grand Hótel í Reykjavík. „Aldraðir – yf- irstétt framtíðarinnar“ er yfirskrift fund- arins en þar flytur Ásmundur Stefánsson ríkissáttasemjari samnefnt erindi um stöðu íslenskra lífeyrisþega í framtíðinni. Staður og stund á mbl.is. Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is Meira á mbl.is MANNSRÖDDIN skipar nær öll hlutverk á nýjustu plötu Bjarkar, Medúllu, en heimild- armyndin „The inner or deep part of an animal or plant structure,“ eftir Ragnheiði Gestsdóttur, fjallar um gerð plötunnar og skýrir hvernig hún öðlaðist nafn sitt. Myndin sýnir það ferli sem liggur að baki hugmyndum hennar eftir fjölmörg ævintýri. Fylgst er með ferðalögum Bjarkar um heiminn og samstarf við ótrúlegt fólk. Í kvikmyndinni gefst áhorfendum tækifæri til að fá innsýn í þann sköpunarkraft, einlægni og gleði sem ríktu við gerð plötunnar. Myndin verður sýnd í sal 1 í Regnboganum klukkan fjögur í dag. Gerð Medúllu Staðurogstund http://www.mbl.is/sos flísar Stórhöfða 21, við Gullinbrú, sími 545 5500. www.flis.is  netfang: flis@flis.is Allt fyrir baðherbergið JPV-ÚTGÁFA hefur gefið út bókina Súperflört – Dúnd- urdaður eftir Trac- ey Cox, en í henni er farið yfir líkams- tjáningu og lestur í hana auk þess sem kennd eru helstu klækja- brögðin í því að vekja áhuga viðmæl- anda. Um er að ræða nokkurs konar handbók daðrarans, þar sem fjallað er um hinar ýmsu hliðar daðurs og kynþokka. Tracey Cox hefur skrifað fjölda bóka á sviði kynlífs og sambanda og hefur einnig stjórnað sjónvarpsþátt- um á því sviði á BBC og fleiri sjón- varpsstöðvum. Sjálfshjálp MÁL og menning hefur gefið út bók- ina Lærum að nema eftir Ástu Kristrúnu Ragn- arsdóttur, en þar er um að ræða námskerfi fyrir fólk á öllum aldri, innan sem utan hins hefðbundna skólakerfis. Í Lærum að nema er tekið mið af þeim þáttum sem ráða úrslitum um árangur í námi. Hornsteinninn er lestrarlíkan sem felur í sér markvisst ferli við nám og hvers konar þekking- arleit, ásamt því að leiðbeint er um hugarfar, einbeitingu og ákjósanlega lifnaðarhætti. Saman við lestrarlík- anið fléttast aðrir þættir námskerf- isins; glósugerð, tímastjórnun, streitu- og kvíðastjórnun og próftaka – svo úr verður ein heild.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.