Morgunblaðið - 20.11.2004, Blaðsíða 34
34 LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MESSUR Á MORGUN
ÁSKIRKJA: Barnastarf kl.11, gítarleikari
Pétur Þór Benediktsson, organisti Kári
Þormar, prestur sr. Þórhildur Ólafs. Guðs-
þjónusta kl. 14, félagar úr kór Áskirkju
syngja, organisti Kári Þormar, prestur sr.
Þórhildur Ólafs. Rósa Jóhannesdóttir,
nemandi í Söngskólanum í Reykjavík,
syngur einsöng. Kökubasar Safn-
aðarfélagsins í efri safnaðarsal kl. 15.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnastarf kl. 11. For-
eldrar, afar og ömmur hvött til þátttöku í
barnastarfinu. Guðsþjónusta kl. 14. Fé-
lagar úr Kór Bústaðakirkju syngja. Org-
anisti Guðmundur Sigurðsson. Prestur sr.
Bára Friðriksdóttir. Molasopi eftir messu.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11. Sr. Karl V.
Matthíasson predikar. Dómkórinn syngur.
Organisti er Kjartan Sigurjónsson. Barna-
starf á kirkjuloftinu meðan á messu
stendur. Æðruleysismessa kl. 20. Bryndís
Valbjörnsdóttir flytur hugleiðingu. Sr. Jóna
Hrönn Bolladóttir leiðir stundina, en sr.
Karl V. Matthíasson leiðir okkur í bæn.
Bræðrabandið og Þóra Gísladóttir sjá um
tónlistina.
GRENSÁSKIRKJA: Barnastarf kl. 11 í
umsjá Jóhönnu Sesselju Erludóttur og
unglinga úr kirkjustarfinu. Messa kl. 11.
Altarisganga. Gídeonfélagar kynna starf
sitt. Samskot til Gídeonfélagsins. Kirkju-
kór Grensáskirkju syngur. Organisti Árni
Arinbjarnarson. Sr. Petrína Mjöll Jóhann-
esdóttir.
GRUND, dvalar- og hjúkrunarheimili:
Guðsþjónusta kl. 14. Organisti Kjartan
Ólafsson. Sr. Hreinn Hjartarson messar.
Félag fyrrum þjónandi presta.
HALLGRÍMSKIRKJA: Fræðslumorgunn
fellur niður af óviðráðanlegum orsökum.
Messa og barnastarf kl. 11. Sr. Ingólfur
Guðmundsson prédikar og þjónar fyrir alt-
ari ásamt sr. Sigurði Pálssyni. Helga
Magnúsdóttir nemandi í Söngskólanum í
Reykjavík syngur einsöng. Félagar úr Mót-
ettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti
Kári Þormar. Barnastarfið er í umsjá
Magneu Sverrisdóttur.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11. Jana
María Guðmundsdóttir og Fjóla Dögg Hall-
dórsdóttir nemendur úr Söngskólanum í
Reykjavík syngja í messunni. Organisti
Douglas A. Brotchie. Sr. Tómas Sveins-
son. Barnaguðsþjónusta kl. 13. Umsjón
Ólafur Jóhann Borgþórsson.
LANDSPÍTALI – háskólasjúkrahús:
Landakot: Guðsþjónusta kl. 11.30. Sr.
Ingileif Malmberg.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands
biskups. Messa og barnastarf kl. 11. Kór
kórskólans og Graduale futuri syngja. Ein-
söngur nemenda frá Söngskólanum í
Reykjavík. Barnastarf í safnaðarheimilinu.
Prestur Jón Helgi Þórarinsson. Organisti
Lára Bryndís Eggertsdóttir. Hressing eftir
messuna.
LAUGARNESKIRKJA: Messa og sunnu-
dagaskóli kl. 11. Sr. Bára Friðriksdóttir
héraðsprestur þjónar ásamt Sigurbirni
Þorkelssyni meðhjálpara, fulltrúum les-
arahóps safnaðarins og hópi ferming-
arbarna. Sunnudagaskólinn er í umsjá
Hildar Eirar Bolladóttur, Heimis Haralds-
sonar og Þorvalds Þorvaldssonar. Gunnar
Gunnarsson leikur á orgelið, Kór Laug-
arneskirkju syngur og messukaffi Sigríðar
kirkjuvarðar bíður svo allra að messu lok-
inni. Guðsþjónusta kl. 13 í sal Sjálfs-
bjargar á höfuðborgarsvæðinu, Hátúni 12.
Sigurbjörn Þorkelsson þjónar ásamt Guð-
rúnu K. Þórsdóttur, Gunnari Gunnarssyni
og hópi sjálfboðaliða.
NESKIRKJA: Messa og barnastarf kl. 11.
Félagar út Háskólakórnum leiða safn-
aðarsöng. Einsöngur Halla Dröfn Jóns-
dóttir nemandi í Söngskólanum í Reykja-
vík. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr.
Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyr-
ir altari ásamt sr. Toshiki Toma. Börnin
byrja í messunni en fara síðan í safn-
aðarheimilið. Brúður, söngur, leikir, bæk-
ur, límmiðar og fleira. Umsjón með barna-
starfinu hefur Guðmunda I. Gunnarsdóttir,
guðfræðingur. Önfirðingafélagið efnir til
messuferðar í Neskirkju þennan dag.
SELTJARNARNESKIRKJA: Messa kl. 11.
Félagar úr Kammerkór Seltjarnarneskirkju
syngja undir stjórn Pavel Manasek org-
anista. Svanlaug Árnadóttir úr Söngskól-
anum í Reykjavík syngur einsöng. Við
hvetjum fermingarbörn og foreldra til að
mæta til kirkju sem og sunnudaga-
skólabörnin. Eftir messuna er kirkjugest-
um boðið að þiggja kaffi í safnaðarheimili
kirkjunnar. Prestur er Sigurður Grétar
Helgason. Minnum á æskulýðsfélagið kl.
20.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Í dag, laug-
ardag, verður hinn árlegi basar og hluta-
velta Kvenfélags Fríkirkjunnar kl. 13 í
safnaðarheimilinu. Almenn guðsþjónusta
sunnudag kl. 11. Fermingarbörn og for-
eldrar þeirra sérstaklega hvött til að
mæta. Fríkirkjukórinn syngur undir stjórn
Önnu Sigríðar Helgadóttur. Einsöngvarar
verða: Davíð Ólafsson, bassi og Anna Sig-
ríður Helgadóttir. Gróa Hreinsdóttir verður
við orgelið og píanóið. Hjörtur Magni Jó-
hannsson prédikar og þjónar fyrir altari.
Ása Björk Ólafsdóttir, guðfræðinemi, les
ritningarlestra og flytur bænir. Guðsþjón-
ustunni verður útvarpað í Ríkisútvarpinu.
ÁRBÆJARKIRKJA: Tónlistarguðsþjónusta
kl. 11. Þorvaldur Halldórsson spilar og
leiðir almennan safnaðarsöng. Ferming-
arbörn aðstoða, lesa ritningalestra og
flytja almennar bænir. Sunnudagaskólinn
á sama tíma í safnaðarheimilinu. Kaffi,
ávaxtasafi og kex á eftir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. 7–9 ára börn sýna brúðuleik-
hús. Hressing eftir messuna. Tóm-
asarmessa kl. 20. Organisti Keith Reed.
DIGRANESKIRKJA: Messa kl. 11. Prestur
sr. Gunnar Sigurjónsson. Organleikari Sig-
rún M. Þórsteinsdóttir. Kór Digraneskirkju,
A-hópur. Einsöngur Sigrún Vala Þorgríms-
dóttir . Sunnudagaskóli á sama tíma í kap-
ellu. Léttur málsverður í safnaðarsal að
messu lokinni. (Sjá nánar www.digra-
neskirkja.is).
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Fjölskyldu-
messa kl. 11. Stoppleikhópurinn mun
koma og flytja jólaleikritið Síðasta stráið,
sem er um úlfaldann Hósmakaka. Leik-
ritið er byggt á sögu Fredricks H. Thury en
söguþráðurinn er tekinn úr jólaguðspjall-
inu. Hugljúft leikrit sem kemur öllum í jóla-
skap. Prestur er sr. Svavar Stefánsson en
um gítarleik sér Ingvi Örn Þorsteinsson.
Kvöldstund í kirkjunni hefst kl. 20. Njörður
P. Njarðvík flytur erindi: Úr fjötrum fíkn-
arinnar. Njörður deilir eigin reynslu af
hörðum heimi og leið fíkilsins til baka. –
Sorginni sem verður förunautur aðstand-
enda og mikilvægi þess að vera til staðar
og tapa ekki voninni. Tónlistarmaðurinn
KK flytur hugljúfa tónlist eins og honum
einum er lagið. Kaffiveitingar í boði sókn-
arnefnda.
GRAFARHOLTSSÓKN: Messa kl. 11 í
þjónustusalnum, Þórðarsveigi 3.
GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Séra Lena Rós Matthíasdóttir prédik-
ar og þjónar fyrir altari. Kór Grafarvogs-
kirkju syngur. Hulda Sif Ólafsdóttir nem-
andi úr Söngskólanum syngur einsöng.
Organisti: Hörður Bragason. Barnaguðs-
þjónusta kl. 11 í Grafarvogskirkju. Prestur
séra Elínborg Gísladóttir. Umsjón hafa
Hjörtur og Rúna. Undirleikari er Stefán
Birgisson. Barnaguðsþjónusta kl. 11 í
Borgarholtsskóla. Prestur séra Bjarni Þór
Bjarnason. Umsjón hafa Dagný og
Gummi. Undirleikari er Guðlaugur Vikt-
orsson. Skagfirðingamessa kl. 14. Söng-
sveitin Drangey syngur undir stjórn Snæ-
bjargar Snæbjarnardóttur. Sigurður
Skagfjörð Sigurðsson syngur einsöng. Sr.
Elínborg Gísladóttir prédikar. Sr. Bjarni Þór
Bjarnason þjónar fyrir altari. Organisti er
Hörður Bragason. Unglingakór Grafarvogs-
kirkju verður með kaffisölu að messu lok-
inni. Brottfluttir Skagfirðingar er hvattir til
að mæta í þessa átthagamessu.
HJALLAKIRKJA: Fjölskylduguðsþjónusta
kl. 11. Sr. Sigfús Kristjánsson þjónar. Fé-
lagar úr kór kirkjunnar syngja. Þórunn Vala
Valdimarsdóttir, nemandi í Söngskólanum
í Reykjavík, syngur einsöng. Organisti Jón
Ólafur Sigurðsson. Barnaguðsþjónusta kl.
13. Við minnum á bæna- og kyrrðarstund
á þriðjudag kl. 18 og Opið hús á fimmtu-
dag kl. 12 (sjá einnig á www.hjalla-
kirkja.is).
KÓPAVOGSKIRKJA: Barnastarf í kirkjunni
kl. 12.30 í umsjón Önnu Kristínar, Péturs
Þórs og Laufeyjar Fríðu. Guðsþjónusta kl.
14. Kór Kópavogskirkju syngur og leiðir
safnaðarsöng undir stjórn Guðmundar
Ómars Óskarssonar organista. Hulda
Jónsdóttir nemi við Söngskólann í Reykja-
vík syngur einsöng. Gerðubergskórinn
kemur í heimsókn og syngur undir stjórn
Kára Friðrikssonar. Gestirnir annast ritn-
ingarlestra og flytja upphafsbæn. Kaffi og
samvera í Borgum að lokinni guðsþjón-
ustu. Bæna- og kyrrðarstund þriðjudag kl.
12.10.
LINDASÓKN í Kópavogi: Guðsþjónusta í
Lindaskóla kl. 11. Meðan á guðsþjónustu
stendur fer sunnudagaskóli fram í
kennslustofum. Skipt er í tvær stofur eftir
aldri. Sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðs-
prestur, þjónar. Félagar úr kór Lindakirkju
leiða safnaðarsöng. Að lokinni guðsþjón-
ustu býður Lindasafn, sem er á efri hæð
Lindaskóla, upp á Bókamessukaffi. Þar
gefur að líta nýútkomnar bækur og bækur
tengdar aðventu og jólum.
SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Söngur, sögur, líf og fjör! Guðsþjónusta kl.
14. Sr. Bolli Pétur Bollason prédikar. Kór
Þorlákshafnarkirkju leiðir söng. Organisti
Julian Edwards. Guðsþjónusta kl. 20. Sr.
Bolli Pétur Bollason prédikar. Þorvaldur
Halldórsson leiðir söng. Altarisganga.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Morgunguð-
sþjónusta kl. 11. Fræðsla fyrir börn og
fullorðna. Börnin fá fræðandi og skemmti-
lega kennslu undir leiðsögn Önnu, Guð-
bjargar og Gunnars. Ágúst Valgarð Ólafs-
son kennir hinum fullorðnu um efnið:
Lofgjörðin, leiðin að hjarta Guðs. Sam-
koma kl. 20. Mikil lofgjörð, vitnisburður og
fyrirbænir. Ingunn Björnsdóttir predikar.
Þáttur kirkjunnar „Um trúna og tilveruna“
sýndur á Ómega kl. 13.30.
BOÐUNARKIRKJAN, Hlíðasmári 9, Kóp:
Samkomur alla laugardaga kl. 11. Bæna-
stund alla þriðjudaga kl. 20. Biblíufræðsla
allan sólarhringinn á Útvarp Boðun FM
105,5. Allir alltaf velkomnir.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnudagur:
Bænastund kl. 19.30. Samkoma kl. 20.
Umsjón Anne Marie Reinholdtsen. Mánu-
dagur: Heimilasamband. Valborg Krist-
jánsdóttir talar. Allar konur velkomnar.
FRÍKIRKJAN KEFAS, Vatnsendabletti
601: Samkoma kl. 14. Helga R. Ármanns-
dóttir talar. Lofgjörð og fyrirbænir. Tvískipt
barnastarf fyrir 1–5 ára og 6–12 ára börn
á samkomutíma. Kaffi og samfélag eftir
samkomu. Allir eru velkomnir. Þriðjudag-
inn 23. nóv. er bænastund kl. 20.30.
Föstudaginn 26. nóv. er 10–16 ára starf
kl. 20.
KFUM og KFUK v/Holtaveg: Samkoma
kl. 17. Hr. Karl Sigurbjörnsson, biskup
kemur í heimsókn og predikar.Það verður
altarisganga fyrir félagsmenn. Vitn-
isburðir.. Lofgjörðarhópur KFUM og KFUK
syngur Mikill söngur, mikil lofgjörð. Tón-
listin hefst 15 mínútum fyrir samkomu-
tíma. Undraland fyrir börnin. Matur á eftir
samkomu á hagkvæmu verði. Allir vel-
komnir. Konur eru minntar á basar KFUK
sem verður næsta laugardag 27. nóv-
ember
FÍLADELFÍA: Brauðsbrotning kl. 11. Ræð-
um. Ester Jacobsen. Almenn samkoma kl.
16.30. Ræðumaður Vörður Leví Trausta-
son. Gospelkór Fíladelfíu leiðir lofgjörð.
Fyrirbænir í lok samkomu. Barnakirkja á
meðan samkomunni stendur. Allir vel-
komnir. ATH. Kl. 20 á Omega er sam-
koma. Þriðjudaginn 23. nóv. kl. 18.30 er
Grunnfræðsla kristinnar trúar. Miðviku-
daginn 24. nóv. kl. 18 er fjölskyldu-
samvera – „súpa og brauð“. Ræðumaður
Ásmundur Magnússon. Allir velkomnir.
Bænastund alla laugardaga kl. 20. Bæna-
stundir alla virka morgna kl. 6.
KROSSINN: Almenn samkoma í Hlíða-
smára 5 kl. 16.30.
BETANÍA, Lynghálsi 3: Samkoma kl. 11
sunnudaga. Einnig samkomur kl. 19.30 á
föstudögum.
KIRKJA JESÚ KRISTS Hinna Síðari Daga
Heilögu, Mormónar, Ásabraut 2, Garða-
bæ: Sunnudaginn 21. nóvember verður
sakramentisguðþjónusta kl. 9 árdegis á
ensku, og kl. 12 á íslensku.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
Reykjavík, Kristskirkja í Landakoti, dóm-
kirkja og basilíka: Sunnudaga: Messa kl.
10.30. Messa á ensku kl. 18. Alla virka
daga: Messa kl. 18. Mánudaginn 22. nóv-
ember, miðvikudaginn 24. nóvember og
föstudaginn 25. nóvember er einnig
messa kl. 8 (á latínu). Laugardaga: Barna-
messa kl. 14 að trúfræðslu lokinni.
Sunnudaginn 21. nóvember: Kristskon-
ungshátíð, aðalhátíð Kristskirkju. Hátíð-
armessa kl. 10.30 með helgigöngu innan
kirkjunnar. Jóhannes Páll II páfi boðaði
það heimskirkjunni allri við hátíðlega
messu í Róm á dýradag, 10. júní á þessu
ári, að sérstakt ár yrði haldið sem „ár alt-
arissakramentisins“. Við viljum gjarnan
fylgja þessari hvatningu páfans. Þannig
verður frá októbermánuði á þessu ári
haldin tilbeiðslustund í Kristskirkju á
hverju fimmtudagskvöldi að messu lok-
inni, þ.e. frá kl. 18.30 til 19.15. Reykja-
vík, Maríukirkja við Raufarsel: Sunnu-
daga: Messa kl. 11. Laugardaga: Messa
á ensku kl. 18.30. Virka daga: Messa kl.
18.30 „Ár altarissakramentisins“: Til-
beiðslustund á mánudögum frá kl. 19 til
20. Riftún í Ölfusi: Sunnudaga: Messa kl.
16. Miðvikudaga kl. 20. Hafnarfjörður,
Jósefskirkja: Sunnudaga: Messa kl.
10.30. Miðvikudaga: Messa kl. 18.30.
„Ár altarissakramentisins“: Tilbeiðslu-
stund á miðvikdögum kl. 17.30. Karmel-
klaustur: Sunnudaga: Messa kl. 8.30.
Virka daga: Messa kl. 8. Keflavík, Barb-
örukapella: Skólavegi 38: Sunnudaga:
Messa kl. 14. Stykkishólmur, Austurgötu
7: Alla virka daga: Messa kl. 18.30.
Sunnudaga: Messa kl. 10. Ísafjörður:
Sunnudaga: Messa kl. 11. Flateyri: Laug-
ardaga: Messa kl. 18. Bolungarvík:
Sunnudaga kl. 16. Suðureyri: Sunnudaga:
Messa kl. 19. Akureyri, Kaþólska kirkj-
an: Péturskirkja, Hrafnagilsstræti 2: Laug-
ardaga: Messa kl. 18. Sunnudaga: Messa
kl. 11. „Ár altarissakramentisins“: Til-
beiðslustund á hverjum föstudegi kl. 17
og messa kl. 18.
KIRKJA SJÖUNDA DAGS AÐVENTISTA:
Laugardagur:
Aðventkirkjan Ingólfsstræti 19, Reykja-
vík. Biblíufræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl.
11. Ræðumaður: Björgvin Snorrason.
Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafnarfirði:
Guðsþjónusta/Biblíufræðsla kl. 11.
Ræðumaður: Bandarísku biblíustarfs-
mennirnir. Safnaðarheimili aðventista,
Gagnheiði 40, Selfossi: Biblíufræðsla kl.
10. Guðsþjónusta kl. 11. Safnaðarheimili
aðventista, Blikabraut 2, Keflavík: Biblíu-
fræðsla kl. 10.15. Guðsþjónusta kl. 11.
Ræðumaður: Maxwell Ditta. Aðventkirkj-
an, Brekastíg 17, Vestmannaeyjum: Bibl-
íufræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11.
Ræðumaður Eric Guðmundsson.
LÁGAFELLSKIRKJA: Guðsþjónusta
sunnudag kl. 11. „Vorboðarnir“ kór eldri
borgara í Mosfellsbæ, syngur undir stjórn
Páls Helgasonar. Kór Lágafellskirkju leiðir
safnaðarsöng. Organisti Jónas Þórir.
Prestur sr. Ragnheiður Jónsdóttir. Sunnu-
dagaskóli í safnaðarheimilinu kl. 13.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Prestar: Sr. Sjöfn Jóhannesdóttir,
sr. Gunnlaugur Stefánsson og sr. Gunnþór
Þ. Ingason. Frumflutt verður sálmalag eftir
Finn Torfa Stefánsson við ljóð sr. Gunn-
þórs. Organisti: Antónia Hevesi. Kór: Kór
Hafnarfjarðarkirkju. Sunnudagaskólar í
Strandbergi og Hvaleyrarskóla á sama
tíma.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Skemmtileg stund
fyrir alla fjölskylduna. Guðsþjónusta kl.
14. Kór Víðistaðasóknar syngur undir
stjórn Úlriks Ólasonar. Einsöngur Eva
Dögg Sigurðardóttir. www.vidistadakirkja.-
is
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Barna- og fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 11. Umsjón hafa
Edda, Hera, Örn og Skarphéðinn. Góð og
uppbyggileg stund fyrir alla fjölskylduna.
ÁSTJARNARSÓKN í Samkomusal Hauka
Ásvöllum: Barna- og fjölskylduguðsþjón-
usta sunnudaga kl. 11. Kaffi, djús og kex
eftir helgihald. Kvöldmessa sunnudag kl.
20. Altarisganga. Kaffispjall eftir helgi-
haldið.
KÁLFATJARNARSÓKN: Kirkjuskóli í Stóru-
Vogaskóla á laugardögum kl. 11.15.
BESSASTAÐASÓKN: Sunnudagaskóli í
Álftanesskóla sunnudaginn 21. nóvember
kl. 11. Mætum vel. Prestarnir.
GARÐASÓKN: Guðsþjónusta í Vídalíns-
kirkju sunnudag kl. 11. Síðasta sunnudag
kirkjuársins. Hálftíma fyrir guðsþjónustu
verður æfður einn af sálmum þeim sem
sungnir verða. Er þetta í tengslum við
námskeiðið „Syngjum í kirkjunni. Þori ég –
vil ég – get ég.“ Það er Margrét Bóasdóttir
sem leiðir námskeiðið. Félagar úr kór
kirkjunnar leiða almennan safnaðarsöng.
Einsöng við athöfnina syngur Gréta Her-
gils, nemandi við Söngskólann í Reykja-
vík. Sunnudagaskólinn yngri og eldri deild
á sama tíma í safnaðarheimilinu. Lions-
klúbburinn Eik kemur í heimsókn. Við at-
höfnina þjóna sr. Hans Markús Haf-
steinsson og Lilja G. Hallgrímsdóttir
djákni, ásamt leikmönnum úr Eik sem að-
stoða við helgihald. Mun Lilja sem er einn-
ig Lionsfélagi, flytja predikun dagsins.
Léttur málsverður í safnaðarheimilinu að
lokinni athöfn, í umsjá Lionsfólks, í boði
sóknarnefndar. Prestarnir.
GARÐASÓKN: Helgistund í Hjúkr-
unarheimilinu Holtsbúð í Garðabæ kl. 13.
Prestarnir.
GRINDAVÍKURKIRKJA: Sunnudagaskól-
inn kl. 11. Kvöldmessa sunnudagskvöld
kl. 20. Gospel, létt kirkjuleg sveifla með
hljómsveit og kór kirkjunnar. Fólk er hvatt
til að koma og eiga skemmtileg sam-
verustund í kirkjunni. Sóknarnefnd og
sóknarprestur.
ÞORLÁKSKIRKJA: Messa kl. 11. Minnt er
á helgistund alla miðvikudaga kl. 18 og
foreldramorgna í kirkjunni alla miðviku-
daga kl. 10. Baldur Kristjánsson.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Fjölskylduguðsþjón-
usta og sunnudagaskóli kl. 11 árd. Elín
Njálsdóttir, umsjónarmaður. Eiríkur Val-
berg, Arnhildur H. Arnbjörnsdóttir, Sigríður
Helga Karlsdóttir, Sara Vilbergsdóttir og
Ólafur Freyr Hervinsson. Prestur sr. Sigfús
Ingvason. Kór Keflavíkurkirkju syngur. Org-
anisti og stjórnandi Steinar Guðmunds-
son.
BORGARNESKIRKJA: Fjölskylduguðsþjón-
usta kl 11.15. Fermingarbörn lesa ritning-
arlestra og sýna helgileik. Barnakór Borg-
arneskirkju syngur undir stjórn Steinunnar
Árnadóttur. Allir velkomnir. Sóknarprestur.
ÍSAFJARÐARKIRKJA: Messa kl. 11. Kór
Ísafjarðarkirkju syngur undir stjórn Huldu
Bragadóttur. Kirkjuskóli á sama tíma. Sr.
Stína Gísladóttir.
AKUREYRARKIRKJA: Kirkjudagurinn.
Sunnudagaskóli í kapellu kl. 11. Hátíð-
armessa kl. 14. Sr. Jóna Lísa Þorsteins-
dóttir og sr. Svavar A. Jónsson. Sólveig
Halla Kristjánsdóttir æskulýðsfulltrúi pre-
dikar. Kór Akureyrarkirkju syngur. Kaffi-
sala Kvenfélags Akureyrarkirkju eftir
messu.
GLERÁRKIRKJA: Barnasamvera og
messa kl 11. Sameiginlegt upphaf, börn
fara síðan í safnaðarsal. Sr. Gunnlaugur
Garðarsson þjónar. Félagar úr Kór Glerá-
kirkju syngja. Organisti Hjörtur Steinbergs-
son. Fermingarbörn ásamt foreldrum sér-
staklega velkomin. Kvöldguðsþjónusta
með léttri tónlist kl. 20.30. Sr. Gunn-
laugur Garðarsson þjónar. Krossbandið
leiðir söng.
HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri: Laug-
ardagur: Laufabrauðs-, kaffi- og vöfflusala
til styrktar starfinu kl. 15–17. Sunnudag-
ur: Almenn samkoma kl. 11. Kapteinn
Miriam Óskarsdóttir flytur ræðuna.
Sunnudagaskóli kl. 11. Allir velkomnir.
LAUFÁSPRESTAKALL: Grenivíkurkirkja:
Guðsþjónusta sunnudaginn 21. nóv. kl.
14. Fermingarfræðsla sunnudaginn 21.
nóv kl. 11. Kyrrðarstund miðvikudaginn
24. nóv. kl. 20. (Ath. breytta dagsetn-
ingu.) Svalbarðskirkja: Kyrrðarstund
sunnudagskvöldið 21. nóv. kl. 21.
EGILSSTAÐAKIRKJA: Sunnudagaskóli kl.
11. Tómasarmessa kl. 20 í samvinnu við
nágrannapresta. Léttari sálmar, fyrirbæn.
Sr. Sighvatur Karlsson á Húsavík prédikar.
Mánudagur 22. nóv.: Kyrrðarstund kl. 18.
Sóknarprestur.
ÞYKKVABÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Stúlknakórinn Hekla leiðir sönginn.
Organisti Nína María Morávek. Aðalsafn-
aðarfundur Þykkvabæjarsóknar verður
haldinn í Þykkvabæjarkirkju miðvikudags-
kvöldið 24. nóvember kl. 20. Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf. Sóknarprestur
og sóknarnefnd.
KAPELLAN LUNDI, Hellu: Guðsþjónusta
kl. 14. Stúlknakórinn Hekla leiðir sönginn.
Organisti Nína María Morávek. Sókn-
arprestur.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa sunnu-
dag kl. 11. Sóknarprestur.
HAUKADALSKIRKJA: Guðsþjónusta
sunnudag kl. 14. Sóknarprestur.
SELFOSSKIRKJA: Messa sunnudag kl.
11. Sunnudagaskólinn hefst kl. 11.15.
Léttur hádegisverður að lokinni messu.
Morguntíð sungin þriðjudag til föstudags
kl. 10, kaffisopi á eftir. Foreldramorgnar
miðvikudaga kl. 11. Fermingarbörn og for-
eldrar, miðvikudaginn 24. nóv. kl. 20 kem-
ur Þorsteinn Þorsteinsson, tollvörður,
með fíkniefnaleitarhundinn Bassa í heim-
sókn. Sr. Gunnar Björnsson.
EYRARBAKKAKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11.
Guðspjall dagsins:
Dýrð Krists.
Morgunblaðið/Ómar
Skrúðhúsið við Silfrastaðakirkju í Árbæjarsafni.
(Matt. 17.)