Morgunblaðið - 20.11.2004, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 20.11.2004, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR LANDIÐ Selfoss | „Það fyrsta sem ég gerði var að hreyfa tærnar og ég man að ég varð mjög feginn að geta það og hugsaði að þetta væri fyrsta skrefið og fyrsti sigurinn í þeirri bar- áttu sem ég vissi einhvern veginn strax að væri framundan,“ segir Einar Rúnar Ein- arsson, verslunarmaður á Selfossi, sem ligg- ur á Sjúkrahúsi Heilbrigðisstofnunar Suður- lands á Selfossi eftir bílslys sem hann lenti í 29. október í Draugahlíðarbrekkunni fyrir ofan Litlu kaffistofuna. Hann fékk mikla áverka á fætur auk þess sem hann hlaut handleggs- og viðbeinsbrot. Einar var á leið til Reykjavíkur í inn- kaupaferð á Benz-jeppa með tóma vél- sleðakerru aftan í bílnum. Honum hafði gengið vel það sem af var ferðarinnar þrátt fyrir að nokkuð rok væri og það tæki í bílinn og kerruna. „Þegar ég kem fram á Draugahlíðarbrekkuna fyrir ofan Litlu kaffi- stofuna þá er eins og rifið sé í kerruna og bílinn. Kerran fer á loft og slengist utan í bílinn svo framendi hans vísar inn á veginn og beint á bíl sem kom á móti. Ég reyndi að beygja undan en lenti utan í bílnum. Þá ein- beitti ég mér að því að beygja útaf en þá kom allt í einu önnur hviða og þeytti bílnum og kerrunni framan á fóðurflutningabíl sem kom á móti. Ég man augnablikið rétt áður en ég lenti á fóðurbílnum og það næsta sem ég man er þegar ég kíkti upp fyrir líknar- belginn og upp í brekkuna,“ segir Einar þegar hann rifjar upp atburðarásina. Fara þarf gætilega í umferðinni „Svo kom fljótlega til mín ungur maður sem breiddi yfir mig peysu, hlúði að mér og hringdi á hjálp. Ég missti víst ekki meðvit- und en finnst eins og allt hafi gengið mjög hratt fyrir sig frá því ég vissi af mér og þar til sjúkrabíllinn kom. Það kom til mín kona þar sem ég var í brakinu og sagðist vera læknir og hún sagði mér að það væri verið að klippa bílinn til að ná mér út. Ég heyrði ekkert í klippunum og fann aldrei neitt fyrir þeirri vinnu. Ég bara lá þarna og beið, fékk heiftarlegt sársaukakast en man annars lít- ið,“ segir Einar og leggur áherslu á nauðsyn þess að fara gætilega í umferðinni, nota skynsemina og vera viðbúinn. Hann sagði þetta hafa flogið í gegnum hugann þar sem hann lá í brakinu. Hann sagðist á einhvern hátt hafa gert sér grein fyrir því að hann væri alvarlega slasaður en verið alveg rólegur yfir því og tilbúinn að taka öllu sem að höndum bæri. „Ég fann að ég myndi hafa þetta án þess að vita nokkuð hvað ég var slasaður, þetta var bara tilfinning sem ég hafði. Svo hitti ég mitt fólk á gjörgæslunni og það var auðvitað dásamleg stund,“ segir Einar. Guð var greinilega með mér Einar og kona hans, Guðbjörg Emma Ing- ólfsdóttir, voru að selja verslun sína á Sel- fossi, Allt í hund og kött, og var gengið frá sölunni viku eftir slysið. Einar segist því hafa nægan tíma til að einbeita sér að bat- anum. „Það er nú einu sinni þannig að maður ásakar sjálfan sig þegar svona kemur upp og mér fannst þetta vera mér að kenna en ég varð auðvitað mjög feginn þegar ég fékk að vita að aðrir hefðu ekki slasast og lent á sjúkrahúsi en auðvitað er svona lagað áfall fyrir fólk að fá bíl framan á sig. Það má segja að ég sé ótrúlega heppinn að lifa af þetta sem gerðist. Guð var greinilega með mér og augljóst að ekki var komið að mér að fara,“ segir Einar R. Einarsson sem ásamt því að selja verslunina var að undirbúa rekstur nýs bíóhúss á Selfossi í byrjun des- ember ásamt félaga sínum. Hann segir að um nóg sé að hugsa en aðalmálið sé að kom- ast á fætur á nýjan leik. Einar R. Einarsson lenti framan á tveimur bílum í Draugahlíðarbrekku „Ég var ótrúlega heppinn að lifa af það sem gerðist“ Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Brotinn Einar Rúnar Einarsson í rúmi sínu á Sjúkrahúsi Heilbrigðisstofnunarinnar. Bolungarvík | Mikil andstaða kom fram við hugmyndir um sameiningu við nærliggjandi byggðarlög á íbúa- þingi sem bæjarstjórn Bolungarvík- ur efndi til í fyrrakvöld. Ekki er þó útlit fyrir að bæjarstjórn geri at- hugasemdir við fyrirhugaða at- kvæðagreiðslu. Til fundarins var boðað til að kynna niðurstöður vinnuhópa sem að tilstuðlan bæjaryfirvalda unnu að því síðastliðið vor að greina kosti og galla þess að Bolungarvík gengi til sameiningar við Ísafjarðarbæ, eða Bolvíkingar verði áfram í sjálfstæðu sveitarfélagi en unnið verði að frek- ari samvinnu við Ísfirðinga á ýmsum sviðum. Þröstur Sigurðsson frá ráð- gjafarfyrirtækinu ParX kynnti skýrslu með niðurstöðum verkefna- vinnunnar. Fækkun og lækkun tekna bæjarsjóðs Fór Þröstur yfir íbúaþróunina undanfarinn áratug og áhrif hennar á rekstur bæjarfélagsins. Undanfar- inn áratug hefur orðið veruleg fækk- un íbúa í kaupstaðnum sem leitt hef- ur til tekjulækkunar fyrir bæjarsjóð og aukinna skulda. Sala eignarhluta bæjarins í Orkubúi Vestfjarða hefur leitt til þess að veltufjárstaðan er viðunandi en reikna má með því að þeir pen- ingar klárist á næstu þremur árum ef ekkert verður að gert. Árið 2002 voru skuldir á hvern íbúa í Bolungarvík 881 þúsund krón- ur, 718 þúsund á Ísafirði og á lands- vísu samsvöruðu skuldirnar 627 þús- und kr. á íbúa að meðaltali. Fram kom að helsti kostur sam- einingar væri sparnaður í stjórnsýsl- unni og samþjöppun stjórnunar hinna ýmsu málaflokka, en ókostir helstir þeir að störfum muni fækka og kostnaður aukast fyrir íbúa þar sem þjónusta mun færast í stærra bæjarfélagið. Þá var á fundinum kynnt tillaga sameiningarnefndar félagsmálaráð- herra þar sem lagt er til að íbúum Súðavíkur, Ísafjarðar og Bolungar- víkur verði gefinn kostur á því að kjósa um sameiningu þessara sveit- arfélaga í apríl á næsta ári. Áttatíu manna þing Um 80 manns sótti fundinn og voru skoðanir þeirra fjölmörgu sem til máls tóku mjög á sama veg, sem sé að við sameiningu töpuðust störf í stjórnsýslu og á félags- og mennta- sviðum. Einnig kom fram ótti við að þjónusta við íbúana færðist úr byggðarlaginu og þar með yrði dreg- ið verulega úr því þjónustustigi sem í boði hefur verið í Bolungarvík. Þá komu fram sjónarmið um að jarðgöng sem leystu af núverandi vegasamband milli byggðarlaganna um Óshlíð væru forsenda fyrir því að til sameiningar við önnur sveitar- félög gæti komið. Samskipti ríkis og sveitarfélaga voru talsvert rædd og voru fundarmenn sammála um að tekjuskipting ríkis og sveitarfélaga væri ekki rétt og verulega vantaði uppá að sveitarfélögunum hefði verð bætt tekjumissir sem þau hefðu orð- ið fyrir, til dæmis vegna laga um einkahlutafélög og fleira. Heyra mátti á fundarmönnum að nokkur bjartsýni ríkti meðal bæjar- búa þar sem ýmislegt benti til þess að Bolvíkingar væru að ná aftur vopnum sínum á sviði sjávarútvegs en aflaheimildir útvegsmanna í byggðarlaginu hafa verið að aukast verulega að undanförnu. Bæjaryfirvöld voru gagnrýnd fyr- ir að hafa sig ekki meira í frammi og að ekkert hefði verið gert í því til dæmis að kynna kosti þá sem Bol- ungarvík hefur uppá að bjóða, svo sem ódýrara húsnæði, fjölskyldu- vænt umhverfi, háhraða netteng- ingu, góðan skóla og góða heilsu- gæslu. Reikna ekki með að gera athugasemdir Elías Jónatansson, forseti bæjar- stjórnar, sagðist í samtali við Morg- unblaðið vera ánægður með fundinn og það hversu margir tjáðu hug sinn og skoðanir til þessa máls. Hann sagði ljóst að mikill meiri- hluti fundarmanna vildi halda í sjálf- stæði bæjarfélagsins en hann sagðist jafnframt skynja það að íbúar teldu það sjálfsagt að kosið yrði um tillögu sameiningarnefndarinnar þannig að vilji þeirra lægi skýrt fyrir. „Bolvík- ingar vita hvað þeir hafa en óljóst er um hvað fólk á að kjósa, til dæmis liggur ekkert enn fyrir hvað gæti komið út úr umræðunni um tekju- skiptingu ríkis og sveitarfélaga,“ sagði hann. Elías sagði að bæjarstjórnin myndi ræða málin og niðurstöðu þessarar vinnu á næsta fundi sínum. Bæjarstjórnir hafa frest til 1. desem- ber til að gera athugasemdir við til- lögur sameiningarnefndar. Sjálfur sagðist Elías hafa það á tilfinning- unni, í ljósi umræðna á íbúafundin- um, að ekki yrði gerð athugasemd við það að íbúarnir fengju að kjósa um tillögur sameiningarnefndarinn- ar á næsta ári. Skýr andstaða við sameiningu sveitarfélaga kom fram á íbúaþingi í Bolungarvík Óttast að störf tapist og þjónustan minnki Morgunblaðið/Gunnar Hallsson Andstaða Bolvíkingar virðast almennt ekki kjósa sameiningu við önnur sveitarfélög. Það var niðurstaða þingsins. ÁRBORGARSVÆÐIÐ Selfoss | Bæjarstjóri Sveitarfélagsins Árborg- ar segir nauðsynlegt að byggja nýja brú ofar á Ölfusá til að beina þungaumferð fram hjá Sel- fossi. Vonast hann til að það verði gert á næstu fjórum til átta árum. Umdæmisstjóri Vega- gerðarinnar segir nauðsynlegt að lagfæra hringtorgið við núverandi Ölfusárbrú. Aðalfundur Samtaka sunnlenskra sveitarfé- laga samþykkti á aðalfundi sínum að óska eftir því að byggð verði ný brú á Ölfusá. Einar Njálsson, bæjarstjóri Árborgar, segir miklar umferðarteppur skapist á álagstímum við brúna og hringtorgið sem við hana er og bæj- aryfirvöld hafi áhuga á að losna við þungaum- ferðina úr þéttustu byggðinni. Tvö brúarstæði í umræðunni Á núgildandi aðalskipulagi er tekið frá land sem miðar við að vegurinn fari yfir ána hjá Efri-Laugardælaeyju, norðan við Selfoss. Ein- ar reiknar með að ákvarðanir um brúarstæði verði teknar í tengslum við afgreiðslu nýs að- alskipulags Árborgar og Hraungerðishrepps sem áformað er á næsta ári. Svanur G. Bjarnason, umdæmisstjóri Vega- gerðarinnar á Selfossi, segir að tvær leiðir komi einkum til greina en Vegagerðin hafi enn ekki lagt fram sína tillögu. Annars vegar að fara yfir Efri-Laugardælaeyju og hins vegar meðfram Búrfellslínu sem er nokkru norðar en þar þyrfti styttri brú. Báðir staðirnir eru við golfvöll Selfyssinga. Vegurinn myndi aftur tengjast Suðurlandsvegi nálægt vegamótum Gaulverjabæjarvegar, austan við Selfoss. Ný Ölfusárbrú er ekki á vegaáætlun eða langtímaáætlun til 2014. Svanur segir að um- ferðartalning sem gerð var á síðasta ári sýni að umferðin um Ölfusárbrú sé að stórum hluta til og frá Selfossi og tiltölulega lítill hluti gegn- umakstur um Selfoss. Því sé brýnna úrlausn- arefni að greiða fyrir umferðinni þar en að byggja nýja brú. Hann segir svæðið við brúar- sporðinn þröngt og erfitt að leysa umferðar- hnútinn en það yrði helst gert með því að fjölga akreinum í hringtorginu eða út úr því. Brúarstæði Ölfusár ákveðið í aðalskipulagi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.