Morgunblaðið - 20.11.2004, Blaðsíða 20
Akureyri | Suðurnes | Árborg | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti Hallgrímsson, skap-
ti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson,
krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-
5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborg-
arsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Hvergerðingar höfðu frumkvæðið að því
að boða til fundar um sameiningarmál í
vikunni, svona til að viðra sængurfötin
áður en til þess kæmi að sveitarfélögin
gengju mögulega í eina sæng. Það stend-
ur fyrir dyrum að kjósa í mars 2005 um
sameiningu Stór-Árborgarsvæðisins í
neðanverðri Árnessýslu og fá fram sveit-
arfélag með 10.400 íbúa. Það var ekki
margt á fundinum, mest sveitarstjórn-
armenn, núverandi og fyrrverandi og
nokkrir áhugasamir til viðbótar. Í um-
ræðum kom greinilega fram að lítið
traust ríkir gagnvart því sem ríkisvaldið
segir um möguleg verkefni og tekjur sem
fylgja myndu.
Svo kom auðvitað fram að hver hugsar
um sitt því enginn vill missa það sem
hann hefur en þó voru nokkrir sem töldu
að sameinuð yrði stórsveitarstjórnin
sterkari út á við en allir vildu skoða vel
hvernig það sneri að fólkinu. Sumir vildu
verða enn sterkari og sameina alla Árnes-
sýslu og við það kinkuðu margir kolli.
Athygli vakti að það voru bara karlar
sem höfðu framsögu.
„Skólinn er hjarta litlu sveitahrepp-
anna,“ sagði einn oddvitinn og vilja þeir
standa vörð um Flóaskólann sinn sem
þeir eru nýbúnir að koma á fót eftir sam-
einingu þriggja skóla. Guðmundur Stef-
ánsson, oddviti Hraungerðishrepps, benti
á að ríkið ætti bara að gefa útsvarsálagn-
inguna frjálsa en vera ekki að skammta
úr sínum kreppta hnefa. Við þetta litu
menn hver á annan og sögðu með aug-
unum, „ja, því ekki það.“ Guðmundur
setti fram vísu um sameininguna:
Á því sé ég engan hæng,
aukast myndi róin,
ef að fara’í eina sæng,
Ölfusið og Fóinn.
Bæjarfélagið og kaupmenn kveiktu jóla-
ljósin á Selfossi á fimmtudag. Mikil um-
ferð var í miðbænum og verslun drjúg,
kaupmenn brostu, voru kvikir á fæti og
klárir í komandi jólaverslun. Svolítill
undrunarsvipur kom á börnin þegar farið
var að syngja jólalög, þeim fannst eins og
mörgum það dálítið snemmt en allir fögn-
uðu tilbreytingunni.
Úr bæjar-
lífinu
SELFOSS
EFTIR SIGURÐ JÓNSSON FRÉTTARITARA
Margir for-vitnilegir við-burðir hafa ver-
ið kynntir til sögunnar á
Dögum myrkurs sem
lýkur á Austurlandi á
morgun, sunnudag. Dag-
ar myrkurs eru árleg há-
tíð sem æ fleiri eystra
taka þátt í af lífi og sál
og kennir vægast sagt
ýmissa grasa í dag-
skrárliðum allt frá
Vopnafirði niður á
Djúpavog. Seyðfirðingar
efndu til Afturgöngu í
gær og slökktu á öllum
ljósum í bænum. Enduðu
svo í hryllingsbíói í
Herðubreið. Leik-
skólabörn á Héraði léku
sér með vasaljós í morg-
unrökkrinu, síldarveisla
var haldin í Löngubúð á
Djúpavogi og Norðfirð-
ingar slökuðu á í sund-
lauginni í gærkvöld.
Hátíðin heldur áfram
og má fá upplýsingar um
viðburðina á vefnum
www.east.is.
Dagar myrkurs
Starfsmenn Nýsköp-unarsjóðs fóru ínokkurs konar
kveðjuheimsókn í Bláa
lónið í gær. Tilefnið var
að sjóðurinn sem tók
þátt í uppbyggingu fyr-
irtækisins hefur nú selt
hlut sinn til eign-
arhaldsfélags í eigu
stjórnenda og Hitaveitu
Suðurnesja hf. Myndin
var tekin á brúnni, áður
en hópurinn skellti sér í
lónið. Grímur Sæmund-
sen, framkvæmdastjóri
Bláa lónsins, er lengst
til hægri, þá Gunnar
Örn Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Nýsköp-
unarsjóðs, Snorri Pét-
ursson, Gísli
Benediktsson, Jón Stein-
dór Valdimarsson,
stjórnarformaður Ný-
sköpunarsjóðs, Smári
Þórarinsson og Finnur
Árnason.
Kveðja Bláa lónið
Rúnar Kristjánssonfylgdist með um-ræðum í þinginu
og fannst ræður sumra í
þynnra lagi. Hann orti:
Skapa flækjufellingar,
fárs og vanda stellingar,
huga og sál til hrellingar
heiladauðar kellingar!
Rúnar veltir líka fyrir
sér samskiptaleiðum ungu
kynslóðarinnar, – og til
hvers sé leitað, símað,
þegar eitthvað bjáti á …
Þó að sitthvað ami að
einhver mun á vísum stað.
Sjáið hver er sífelld stoð
Sendið Mömmu skilaboð!
Í Lífinu á Sigló eru birt-
ar vísur eftir tvo menn
sem fara gjarnan í göngu-
túr eftir ströndinni. Annar
er Baldur Þór Bóasson:
Ennþá virðist, kallinn kúl
konu sinni, fengur
bráðgreindur og bjútifúl
og bragðar það, ekki lengur.
Sigurður Friðriksson:
Alla tíð frá æsku var
ekki byggt á sandi
maðurinn eins og múví-star
mágúll sjarmerandi.
Samskipti
pebl@mbl.is
Mýrdalur | Kuldalegt er í Mýr-
dalnum þessa dagana, snjóföl
yfir öllu og töluvert frost. Inni á
Höfðabrekkuheiðum, í svoköll-
uðum Lambaskörðum, er þetta
myndarlega höfuð sem ber við
himin og oftast kallað Tótanef.
Göngufólki sem þar var á ferð
sýndist karlinn hafa kvefast í
kuldanum og vildi rétta honum
hjálparhönd. Einn dró fram klút
til að snýta Tóta tröllkarli.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Tóti tröllkarl kvefaður
Kuldi
Borgarfjörður | Margt mælir með því að
þrír grunnskólar verði reknir í Borgarfirði,
norðan Skarðsheiðar, og fækki þar með um
tvo, verði sveitarfélögin á svæðinu samein-
uðu í eitt eins og til stendur að greiða at-
kvæði um. Kemur þetta fram í niðurstöð-
um úttektar sem Rannsóknarstofnun
Háskólans á Akureyri hefur gert fyrir
sameiningarnefnd heimamanna.
Unnið er að undirbúningi atkvæða-
greiðslu um sameiningu Borgarbyggðar,
Borgarfjarðarsveitar, Hvítársíðuhrepps,
Skorradalshrepps og Kolbeinsstaða-
hrepps. Nemendur úr þessum sveitar-
félögum sækja nú fimm skóla. Fram kem-
ur í skýrslunni að kostnaður við
fræðslumál sé mikill og fari vaxandi.
Telja þeir að margt bendi til að þrír skól-
ar verði á svæðinu í næstu framtíð, Grunn-
skólinn í Borgarnesi, Kleppjárnsreykja-
skóli og Varmalandsskóli. Skólasel frá
Varmalandsskóla verði í Laugargerðis-
skóla en börn frá Hvanneyri sem nú sækja
Andakílsskóla myndu fara í Borgarnes.
Telja höfundur að með þessu yrði hægt að
spara sem nemur öllum kennslukostnaði
við Andakílsskóla enda myndi breytingin
ekki hafa í för með sér fjölgun deilda í hin-
um skólunum. Þá er þeirri hugmynd velt
upp að sameina rekstur Varmalands-,
Kleppjárnsreykja- og Laugargerðisskóla
með einum skólastjóra.
Þrír skólar
í stað fimm
Austur-Húnavatnssýsla | Kosið verður
um sameiningu fjögurra sveitahreppa í
Austur-Húnavatnssýslu í dag. Einnig
verður kosið um sameiningu fjögurra
hreppa í Borgarfirði, sunnan Skarðsheið-
ar.
Í hreppunum fjórum í Austur-Húna-
vatnssýslu eru samtals rösklega 400 íbúar
og eru 289 á kjörskrá. Hrepparnir eru Ból-
staðarhlíðarhreppur, Sveinsstaðahreppur,
Svínavatnshreppur og Torfalækjarhrepp-
ur.
Samstarfsnefnd heimamanna hefur
kynnt íbúunum tillögur sínar með kynn-
ingarbæklingi og á kynningarfundum, að
því er fram kemur í tilkynningu frá sam-
einingarnefnd.
Kosið verður í Húnavallaskóla, Dals-
mynni, Húnaveri og Steinkoti.
Kosið um
sameiningu í
Húnaþingi
♦♦♦