Morgunblaðið - 20.11.2004, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2004 17
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Landsbanki Føroya
Nordea and Landsbanki Føroya
arrange a DKK 350 million bond
loan for the Faroese government
The Faroese government, Føroya Landsstýri, will issue a new bond with a nominal amount of DKK
350 million for the partly refinancing of an outstanding bond loan. The issue will be arranged by Nordea
in co-operation with Landsbanki Føroya and with Føroya Banki, Føroya Sparikassi and Kaupthing Føroyar
as co-managers (hereafter called the "Consortium").
The bond has the following terms:
DKK 350 million 2.5% bullet notes with maturity date 24 November 2005
The notes will be issued and registered with the Iceland Stock Exchange on 24 November 2004 and an
application has been filed with the Iceland Stock Exchange for admission to its official list as from that date.
Settlement of the bonds will take place through the Danish VP-system.
Issue price is 99.97
Copy of the prospectus is available at the website of Landsbanki Føroya: www.landsbank.fo.
Documents mentioned in the prospectus are available for inspection at the registered
office of Landsbanki Føroya.
The above mentioned Consortium will purchase the notes and subsequently sell them to investors.
Further notes may subsequently be issued under the note programme.
For further information please call Mr. Christian Hyldahl, Managing Director,
Nordea Markets, on +45 33 33 58 02.
REIKNAÐ er með því að hagvöxtur
verði mestur á Íslandi af Norður-
löndunum á þessu ári, um 5½%, en
minnstur í Danmörku, rúmlega 2%.
Búist er við nokkuð meiri hagvexti á
Norðurlöndum en á evrusvæðinu en
ívið minni en meðaltal OECD-landa
gefur til kynna.
Einnig er gert ráð fyrir að verð-
bólga verði mest hér á landi á þessu
ári af Norðurlöndunum, eða 3,1%,
en minnst í Finnlandi, 0,2%. Spáð er
1,2% verðbólgu í Danmörku á þessu
ári og 0,5% verðbólgu bæði í Noregi
og Svíþjóð.
Þessar upplýsingar ásamt fleirum
koma fram í nýrri skýrslu norrænu
efnahagsnefndarinnar en fjallað er
um helstu niðurstöður hennar í Vef-
riti fjármálaráðuneytisins.
Í norrænu efnahagsnefndinni
sitja sérfræðingar frá fjármálaráðu-
neytum alls staðar af á Norðurlönd-
unum. Nefndin er undirnefnd nor-
rænu ráðherranefndarinnar í
efnahags- og ríkisfjármálum og hitt-
ist tvisvar á ári til að taka saman yf-
irlit yfir hagstærðir á Norðurlönd-
um.
Minnst atvinnuleysi hér á landi
Norræna efnahagsnefndin gerir
ráð fyrir því að af Norðurlöndunum
verði hagvöxtur einnig mestur hér á
landi á næsta ári, 4,9%, og að hann
verði áfram minnstur í Danmörku,
2,5%. Hins vegar reiknar nefndin
með því að verðbólga aukist alls
staðar á Norðurlöndunum á næsta
ári. Er gert ráð fyrir að hún verði
enn mest á Íslandi, eða 3,5%, og
1,6% í Danmörku, 1,8% í Finnlandi,
2,3% í Noregi og 1,6% í Svíþjóð.
Spáð er að atvinnuleysi verði
minnst hér á landi bæði á þessu ári
og því næsta, 3,1% í ár en 2,8% á
næsta ári. Mestu atvinnuleysi er
hins vegar spáð í Finnlandi, 8,8% í
ár og 8,5% á árinu 2005.
Afkoma hins opinbera sem hlut-
fall af vergri landsframleiðslu er
áætluð langbest í Noregi, 11,3% í ár
og 9,8% á næsta ári, lökust hér á
landi á þessu ári, 0,5% en lökust í
Svíþjóð á því næsta, 0,6%. Þá er
gert ráð fyrir að afkoma ríkissjóðs
hér á landi verði 1,5% af vergri
landsframleiðslu sem er næst lak-
asta afkoma ríkissjóðs alls staðar á
Norðurlöndunum.
Í Vefriti fjármálaráðuneytisins
segir að það sem einkenni núverandi
uppsveiflu efnahagslífsins á Norð-
urlöndum sé kröftugur vöxtur fram-
leiðni vinnuafls. Mikill framleiðni-
vöxtur muni að líkindum leggja
töluvert af mörkum við að halda aft-
ur af verðbólgunni á næstu árum.
Hagvöxtur og
verðbólga mest
hér á landi
Norræn efnahagsnefnd segir bjartar
horfur um hagvöxt á Norðurlöndum
alltaf á sunnudögumFERÐALÖG