Morgunblaðið - 20.11.2004, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2004 25
LISTIR
Í
fyrrakvöld var frumsýning í
Playhouse leikhúsinu í
London á Rómeó og Júlíu í
uppfærslu íslenska leik-
hópsins Vesturports.
Skemmst er að minnast góðs gengis
sýningarinnar þegar hún var fyrst
sett upp í Young Vic leikhúsinu í
London í fyrra. Strax í gærmorgun
birtust fyrstu dómar um sýninguna í
Playhouse, og virðast á einn veg:
skrýtin sýning, en frábær. Gagnrýn-
andi Times, Benedict Nightingale
kemst svo að orði:
„Að Rómeó og Júlía komi frá Ís-
landi virðist jafn fráleitt og að Snæ-
drottningin komi frá hitabeltinu og
að Brandur Ibsens sé settur upp í
Sahara eyðimörkinni.
Þaðan getum við varla vænst þess
dramatíska hita sem Verónaborg og
brennheitur harmleikur Shake-
speares kallar á. Þetta héldum við að
minnsta kosti þegar ensk uppfærsla
Vesturports var frumsýnd í Young
Vic á síðasta ári.
En við höfðum jafn rangt fyrir
okkur og hugsast gat. Og hver sá
sem mætir með slíka fordóma í far-
teskinu á enduruppfærslu Gísla
Arnar Garðarssonar á sirkusstíl-
færðu verkinu í Playhouse leikhús-
inu nú, mun hafa jafn rangt fyrir sér.
Hreinstefnumaðurinn í mér hafn-
ar því eðlilega að Rómeó sé svo bók-
staflega uppfyrir haus ástfanginn að
hann svipti Júlíu um loftin, hangandi
öfugur í ljósakrónum Kapúlett fjöl-
skyldunnar og fljúgi svo á vír yfir
sviðið til að segja henni „Ég sveif á
léttum vængjum ástarinnar og henni
tálmar enginn múr.“ (H.H.).
Mitt umburðarlyndara sjálf,
minnist þess að Young Vic leikhús-
inu var frá upphafi ætlað að höfða til
yngri áhorfenda meðan þeir mið-
aldra sæktu frekar Old Vic, og þótt
Playhouse leikhúsið henti trúðs-
látum á fjölleikasýningu Íslending-
anna síður, dáist það þrátt fyrir allt
að hvínandi frumleika þeirra.
Pétur, íklæddur skyrtu úr fán-
anum, bregður sér einnig í hlutverk
kórsins, og notar þá tækifærið
óspart til að gorta af sínu þjóðlega
hvalmeti og hæðast að okkur fyrir
ljótleika breskra kvenna; – það er
erfitt að ímynda sér þetta sem harm-
leik. Og þegar Ólafur Darri kjagar
áfram í hlutverki fóstrunnar, eins og
risavaxin, skeggjuð dragdrotting
með gúmmíbrjóst, þá fær maður á
tilfinninguna að verið sé að vinna að
framhaldinu: Áfram Kapúlett.
En er þetta svo hræðilegt? Eins
og ég hef áður haldið fram, má auð-
veldlega flokka Rómeó og Júlíu sem
rómantískan gamanleik, sem er
feykt út af sinni braut fyrir einskæra
óheppni.
Satt er það, að gamanið hefur
sjaldan eða jafnvel aldrei, verið jafn
grátt. París í túlkun Erlendar
Eiríkssonar er til dæmis hræðilegur
dægurlagasöngvari, sem arkar um í
hvítum jakkafötum með silfraða
boðunga í grænni pífulagðri skyrtu
kyrjandi: Oh, What a Beautiful
Morning.
Ingvar Sigurðsson er Kapúlett, og
virðist fullur áhuga um hvatvíslegt
hjónaband Júlíu; aðallega til þess að
losna undan óþolandi frekjunni í
biðilsfíflinu.
Það er alltaf nokkuð um stytting-
ar á þessu verki, og þeim virðist
fjölga eftir því sem á þessa sýningu
líður. Það líða vart nema um 15 mín-
útur frá því að Rómeó yfirgefur Ver-
ónu, þar til kórinn kyrjar söng sinn
um að aldrei áður hafi verið sögð
saga slíkra hörmunga; – og þá er
lyfjabyrlarinn ekki enn kominn til
skjalanna, París ennþá lifandi og
Kapúlett enn ósáttur við Montag.
Þetta er prísinn sem greiða þarf fyr-
ir skræpóttar stælskyrtur, heljar-
stökk afturábak og loftfimleika.
Vissulega sjáum við þó líka alvar-
legu hliðarnar á hinum flotta og
fljúgandi Rómeó Garðars og tilfinn-
ingaheitri Júlíu Nínu Daggar Filipp-
usdóttur, sem jafnan flýgur inn á
sviðið í hring sem minnir á mánann.
Þegar leikurinn gerist hvað tryllt-
astur gleyma elskendurnir enskunni
og atlotin umhverfast yfir á íslensku.
Og þau skilja, og þau deyja fagur-
lega, flækt hangandi í hvítum tjöld-
um; í annað sinn með líka dauðra
Kapúletta hangandi á hvolfi í bak-
sýn.
Kenjótt? Já. Áhrifamikið og jafn-
vel svolítið hjartnæmt? Annað já.“
Heltekinn af sársauka fyrstu
kynferðislegu ástríðunnar
Evening Standard lét ekki sitt eft-
ir liggja með dómi sem birtist strax í
gær. Þar segir gagnrýnandinn
Nicholas de Jongh meðal annars:
„Fyrir alla þá sem eru orðnir
hundleiðir á ófrumlegum dauðdaga
Rómeós og Júlíu, er þessi undra-
verða loftfimleikasýning frá Íslandi,
með elskendur hangandi í rólum og
silkireipum, örvandi yndisleiki. [...]
Leikstjórinn, Gísli Örn Garðarsson,
sem jafnframt leikur Rómeó, hefur
ratað á stórkostlega viðeigandi leik-
hússaðferð til að tjá þá tilfinningu að
verða heltekinn af sársauka fyrstu
kynferðislegu ástríðunnar. Þegar
hinn kynþokkafulli og kraftmikili
Rómeó Gísla Arnar flýtur um loftið í
átt að svölum hinnar djörfu og
þroskuðu Júlíu Nínu Daggar Fil-
ippusdóttur; – ellegar þegar atlot
þeirra tvinnast saman við silkireipin,
þá er leikstjórinn um leið að fanga
stoltið, hættuna og falska frelsis-
tilfinninguna sem ástarguðinn blind-
ar fórnarlömb sín með.
Í frábærri lokasenunni hanga
leikararnir á hvolfi í reipunum sem
lík. Hið sama á við um Rómeó – lík-
ami hans hangir í viðjum hvíts silki-
vefjar, eins dauðaleg endurtekning á
fyrsta ástarfundi elskendanna.
Það truflar uppfærslu Gísla Arnar
á hraustlegri ensku, sem stundum
umhverfist í íslensku, hve ofhlaðin
gríni hún er. Átök Montaga og
Kapúletta sem leiða til dauða Mer-
kútsíós sem Björn Hlynur Haralds-
son leggur mikla hnyttni í; fær furðu
lítið vægi í sparkboxi og loftfimleik-
arólum. Skeggjuð dragdrottning
sem fóstra; París, sem er gerður að
næturklúbbasöngvara, og Pétur sem
gerður er að tjaldsiðameistara trufla
flæði ljóðrænu loftfimleikanna sem
gera leikgerð Gísla Arnar Garðars-
sonar annars skringilega heillandi.“
Leikhús | Rómeó og Júlía frá Vesturporti vekja lukku hjá gagnrýnendum blaða í London
Ljósmynd/Sigfús Már Pétursson
Atlot í lausu lofti. Nína Dögg Filippusdóttir og Gísli Örn Garðarsson í hlutverkum Júlíu og Rómeós.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Dorrit Moussaieff, Gísli Örn Garðarsson og Björgólfur Thor Björgólfsson
gleðjast að lokinni frumsýningu í Playhouse-leikhúsinu í fyrrakvöld.
Skringilega
heillandi
sýning
NÍU myndlistarmenn opna sýningu
undir heitinu Illgresi í Galleríi Tukt
í Hinu húsinu í dag. Sýningin á sér
svokallað manifesto, en það er: „Ill-
gresi er svar alþýðunnar við elít-
unni.“
Að sögn Þuríðar Helgu Kristjáns-
dóttur, annars sýningarstjóra sýn-
ingarinnar og eins af þátttakend-
um, felst engin reiði í yfirlýsing-
unni þó að skarplega orðuð sé. „Það
var reyndar ekki ég sem samdi
þessa yfirlýsingu,“ segir hún.
„Þetta er auðvitað grín að vissu
leyti, en við sem tökum þátt í sýn-
ingunni Illgresi erum sem sagt ekki
hluti af þessari „elítu“, og erum
nokkur í hópnum sem eigum það
sameiginlegt að hafa verið hafnað
af grasrótarsýningunni í Nýlista-
safninu. Þá ákváðum við bara að
finna okkur vettvang sjálf, og setja
saman sýninguna Illgresi.“
Þuríður Helga segir listamenn-
ina níu vera mjög ólíka í vinnu-
brögðum, og á sýningunni gefi að
líta alla miðla, allt frá myndböndum
til skúlptúra. Þá varð yfirskrift sýn-
ingarinnar, Illgresi, útgangspunkt-
ur nokkurra listamanna á sýning-
unni. „Ég nota það til dæmis sjálf,
en það var alls engin skylda. Hver
og einn getur túlkað hugtakið á
sinn hátt,“ segir Þuríður Helga.
Hún segist telja að „elítan“ sé
mjög sterk í íslenskum myndlistar-
heimi, þó að það sé enginn löstur að
tilheyra henni ekki. „Við sköpum
okkur bara okkar eigin tækifæri,“
segir hún að lokum.
Myndlistarmennirnir níu eru:
Tinna Ævarsdóttir, Móheiður Hlíf
Geirlaugsdóttir, Steinþór Carl
Karlsson, Þuríður Helga Kristjáns-
dóttir, Tinna Kvaran, Guðlaugur
Jón Árnason, Þrándur Þórarinsson,
Heiða Harðardóttir og Edda Ýr
Garðarsdóttir.
Myndlist | Níu myndlistarmenn sýna í Galleríi Tukt
Alþýðan svarar fyrir sig
Morgunblaðið/Kristinn
Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir er meðal sýnenda í Galleríi Tukt.
Sýningin Illgresi í Galleríi Tukt er
opin alla virka daga á hefðbundn-
um skrifstofutíma.
TÓNLISTARFÉLAG Akureyrar
stendur fyrir tónleikum í Deiglunni í
dag kl. 16, en hér er um að ræða
aðra tónleikana í tónleikaröðinni
„Laugardagur í Listagili“ sem hóf
göngu sína í haust.
Þau Hallveig Rúnarsdóttir sópran
og Árni Heimir Ingólfsson píanó-
leikari munu á tónleikunum leika
fjölbreytta og skemmtilega dagskrá
við allra hæfi. Flutt verða þekkt ís-
lensk sönglög og ljóð eftir Schubert,
Grieg, Kurt Weill o.fl.
Hallveig Rúnarsdóttir lauk námi
frá Guildhall School of Music and
Drama árið 2001. Hún hefur komið
víða fram bæði hérlendis og erlend-
is. Hún hefur hlotið lofsamlega
dóma fyrir söng sinn, nú síðast á
tónleikum með Sinfóníuhljómsveit
Íslands í Háskólabíói.
Árni Heimir Ingólfsson píanóleik-
ari lauk námi frá Oberlin Conserv-
atory of Music. Þá lauk hann dokt-
orsnámi í tónvísindum frá Harvard
árið 2003. Árni hefur komið fram á
fjölmörgum tónleikum í Evrópu og í
Bandaríkjunum. Auk þess að vera
virkur píanóleikari kennir hann
tónlistarfræði við Listaháskóla Ís-
lands.
Laugardagur í Listagili
Tónleikarnir eru haldnir í sam-
vinnu við Félag íslenskra tónlistar-
manna. Miðaverð er kr. 1.500 kr.
Morgunblaðið/Sverrir
Árni Heimir Ingólfsson píanóleikari og Hallveig Rúnarsdóttir söngkona.