Morgunblaðið - 20.11.2004, Blaðsíða 56
56 LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
M.M.J.
Kvikmyndir.com
H.J. Mbl.
Shall we Dance?
Richard Gere Jennifer Lopez Susan Sarandon
Það er aldrei of
seint að setja
tónlist í lífið aftur
Sýnd kl. 6 og 10.Sýnd kl. 3, 5.45, 8 og 10.15.
Sýnd kl. 3, 5.45, 8 og 10.15.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.20.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 2 og 4 . Ísl tal.
Frá leikstjóra RUSH HOUR og RED DRAGON
PIERCE BROSNAN
SALMA HAYEK
WOODY HARRELSON
DON CHEADLE
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 6 og 10.
KRINGLAN
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B.i. 16 ára.
Stanglega bönnuð innan 16 ára
Sama Bridget. Glæný dagbók.
Frá spennumyndaleikstjóranum,
Renny Harlin kemur þessi magnaði
spennutryllir sem kemur
stöðugt á óvart. Funheit og spennandi með John Travolta
og Joaquin Phoenix í aðalhlutverki!Funheit og spennandi með John Travolta
og Joaquin Phoenix í aðalhlutverki!
Walt disney
Sýnd kl. 3 og 8. Ísl. texti.
Við gluggann hennar
sýnd kl. 3.
Undir stjörnuhimni
sýnd kl. 5.30.
Jargo
sýnd kl. 8. Enskur texti
Heimsins tregafyllsta
tónlist
sýnd kl. 10. enskt tal
Sýnd kl. 3, 5.45, 8.15 og 10.30.
ANGELINA Jolie segir að
sig langi ákaflega mikið til
að fá hlutverk í næstu
James Bond-mynd.
Mun hún vera í viðræðum
við framleiðendur mynd-
arinnar um að fá ósk sína
um að verða Bond-stúlka
uppfyllta.
„Alla mína ævi hefur mig
langað að leika vonda kall-
inn í Bond-mynd,“ segir
Angelina.
Einnig greinir Angelina
frá því að hún hafi orðið að
hugga son sinn, Maddox,
þegar hún fór með hann að
sjá nýjustu myndina sína,
Alexander. Maddox hafi
orðið skelfingu lostinn
þegar hann sá mömmu
sína á kvikmyndatjaldinu.
Jolie vill Bond
UM 100 manns, helmingurinn frá
bandarísku sjónvarpsfyrirtækj-
unum CBS og Jerry Bruckheimer
Productions og hinn helmingurinn
frá íslenska fyrirtækinu Pegasus,
kom að gerð upphafsþáttarins í
þáttaröðinni Kapphlaupinu mikla
(Amazing Race) þegar hann var
tekinn upp hér á landi í sumar.
Talið er að 11–12 milljónir Banda-
ríkjamanna hafi horft á þáttinn
þegar hann var frumsýndur í
fyrrakvöld.
Mikil leynd hvíldi yfir framleiðsl-
unni og voru starfsmenn Pegasus
krafðir um algjöra þagmælsku frá
því samið var um að taka þáttinn
upp hér á landi í apríl og þar til
tökur fóru fram í ágúst. Í þætt-
inum takast nokkrir keppendur,
tveir og tveir saman, á við ýmsar
þrautir og berst leikurinn víða um
heim. Vegleg peningaverðlaun eru
í boði fyrir þá sem fyrstir koma í
mark. Stöð 2 hefur sýnt þættina
hér á landi við talsverðar vinsæld-
ir.
Mikill undirbúningur
Einar Sveinn Þórðarson mark-
aðsstjóri Pegasus segir að mikið
hafi gengið á við undirbúning og
tökur enda atburðarásin í þætt-
inum hröð og oftast ófyrirséð. Mik-
ið hafi verið að gerast á mörgum
stöðum í einu. Undirbúningurinn
varð því að vera vandaður og segir
Einar að hann hafi í raun staðið frá
því í apríl. Síðustu tvær vikurnar
áður en bandaríska sjónvarpsliðið
kom til landsins hafi um 50 manns
unnið að þessu verkefni hjá fyr-
irtækinu og síðan hafi u.þ.b. jafn-
margir Bandaríkjamenn bæst við.
Sjónvarpsþátturinn var tekinn
upp á þremur dögum í ágúst og
spurðust þá fyrst út fréttir um að
taka ætti þáttinn upp hér á landi. Í
fjölmiðlum var m.a. sagt frá því að
keppendur hafi, í mikilli geðshrær-
ingu og óðagoti, spurt til vegar við
Vesturlandsveg.
Einar vill koma sérstökum þökk-
um á framfæri til Péturs Ósk-
arssonar hjá viðskiptaþjónustu ut-
anríkisráðuneytisins sem vann náið
með Pegasus að því að ná samn-
ingum. Icelandair, Iceland Nat-
urally og Toyota-umboðið á Íslandi
hafi styrkt gerð þáttarins veru-
lega. Forráðamenn Bláa lónsins
hafi einnig verið mjög hjálplegir.
Þá hafi ákvæði um að erlendir
kvikmyndaframleiðendur fái 12%
framleiðslukostnaðar end-
urgreiddan skipt miklu máli, Ís-
land sé dýrt land og sjónvarpsfyr-
irtæki reyni hvað þau geti til að
halda kostnaði í lágmarki.
Einar bætir við að Bandaríkja-
mennirnir hafi verið afar ánægðir
með hvernig til tókst og að þetta
góða orðspor muni vonandi skila
sér í fleiri sambærilegum verk-
efnum.
Sjónvarp | Kapphlaupið mikla tekið upp í samvinnu við Pegasus
Um 100 manns komu
að gerð þáttarins
Keppendur í Kapphlaupinu mikla á hlaupum að Bláa lóninu.